Þjóðviljinn - 12.12.1981, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 12.12.1981, Qupperneq 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 12,— 13. desember 1981 erlendar bsekur M. Bloch/ F. BraudeL L. Febvre u.a.: Schrift und Materie der Geschichte. Vorschlage zur systematischen Aneignung historischer Prozesse. Herausgegeben von Claudia Hon- egger. Suhrkamp Verlag. 1977. Þetta er nokkurskonar kynn- ingarrit á „Annales”, hinu kunna franska sagnfræöi-timariti, sem hóf göngu sina 1929. Allir fremstu sagnfræöingar Frakka standa aö þessu riti og þaö braut blaö i sagnfræöirannsóknum fyrst og fremst meö þ;vi aö leggja áherslu á efnahags-og samfélagsþætti og leitast viö aö átta sig á „parad- igma” hvers tima, skynjun kyn- slóöanna á hverjum tima og mati, sem er reist á mismunandi for- sendum. I þessu úrvali eru rit- smiöar þrettán franskra sagn- fræöinga, sem standa aö „Annales”. Fyrsta greinin er hin kunna grein Fernand Braudels um sagnfræöi og félagsfræöi. Síöan koma greinar eftir Furet, Vilar, Marc Bloch, Le Roy Lad- urie, Lucien Febvre, Le Goff, Duby, Mandrou ofl. 1 þessum greinum birtist stefna „Anna- les”, samþætting og skörun mennskrar viöleitni, þar sem sagnfræöin spannar yfir allar þær greinar sem snerta lif mannanna á þessari jörö. Þetta er þarft rit, þvi samkvæmt skoöun útgef- andans var kunnugleiki þýskra sagnfræöinga á kenningum frönsku annalistanna fram til þess aö úrvaliö birtist, mjög rýr. Claudia Honegger hyggst bæta nokkuö úr þessari vanþekkingu meö útgáfu úrvalsins. Undan- farin ár hafa birst mörg verka þeirra manna sem eiga greinar i þessu riti, verk, sem hafa vikkaö og dýpkaö sögu þeirra timabila, sem þeir hafa fjallaö um i þessum verkum. Má nefna sem dæmi rit Braudels: Civilisation matérielle, économie et capitalisme, XVe-XVIIIe sifecle, rit i þremur bindum, rit Dubys og Le Goffs um miöaldasögu og rit Mandrous. Svartigaldur Framhald af 6. siöu. hafði teygt beran handlegg inn um gluggann ofanverðan og varað reyna aö opna að neðan- verðu. Rimski fannst ljósið á borð- lampanum slokkna og skrif- boröið hallast. Iskaldur gustur fór um hann, en til allrar ham- ingju tókst honum að verjast falli. Það sem hann átti eftir að kröftum fór i að hvi'sla: - Hjálp ... Varenúkha stóð vörð við dyrnar og tók nú að hoppa og svifa i iausu tofti. Hann veifaði til Rimskis kræklóttum fingrum, hvæsti og skellti i góm og blikkaði stúlkuna. Hún hamaðist á glugganum, tróð rauðhausnum inn um opið teygði handleggina eins langt og hún gat og fór að klóra i neðri lokuna og hrista rúðu- karminn. Likgrænn handleggur hennar teygðist einsog hann væri úr gúmmi. Loks náðu grænir fingur liksins utan um lokuna, sneru henni, og glugg- inn opnaðist. Rimski rak upp lágt óp, hallaði sér upp að veggnum og hélt skjalatösk- unni fyrir framan sig einsog skildi. Honum var ljóst að dauðastund hans var upp runn- in. Þaö er annaö en gaman að eiga viö árann og skratta hans og vera ekki meö tandurhreina sam- visku! Lokslangarmigaðgetaþess að ég sá i London sl. vor leikrit eftir Búlgakof sem á ensku hét The Crimson Island og var bráðærsla- fenginn byltingarfarsi, bannaður fjórum dögum eftir frumsýningu 1928. tslensku leikhúsin mættu at- huga hann eða önnur leikrit Búlgakofs i framhaldi af þessari útgáfu á Meistaranum og Margaritu. • Blikkiðjan Asgaröi 7, Garðabæ önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiði. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468 Vélprjónasamband Islands Sölusýning á vélprjónuðum fatnaði verður að Hallveigarstöðum sunnudaginn 13. desember frá kl. 13 til 18. Til sölu m.a. dömukjólar, barnakjólar, drengjaföt, peysur, nærföt og margt margt fleira. Þetta er mjög góður fatnaður á vægu verði. Verið velkomin. Vélprjónasambandið Blaðberabíó í kröppum leik Æsispennandi mynd í litum og með ísl. texta I Regnboganum, laugardag kl. 1 e.h. Góða skemmtun! wornium StoUMULA 6. SlMI »1333

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.