Þjóðviljinn - 12.12.1981, Síða 3

Þjóðviljinn - 12.12.1981, Síða 3
Helgin 12,— 13. desember 1981 ÞJ,ÓÐVILJINN — SIÐA 3 Þad er ekkii sama hvaö börn og unglingar lesa im óöar bækur Bskeli? Verðlaunabækur Gunillu Bergström EINAR ÁSKELL Nú eru komnar út þrjdr nýjar boekur í þýðingu Sigrúnar Ámadóttur um þennan skemmtilega strók sem býr einn með pabba sínum. Hver bjargar Einari Áskeli Einar Áskell er nýiluttur í nýtt hverli. Hann er einmana. þekkir engan og leikur sér ekki við neinn. Nema Manga, leynilegan vin sinn. En þegar stóru strákarnir œtla að hrekkja mann er lítið gagn í vini sem enginn sér. Þessi saga segir frá þvi þegar EinarÁskell eignaðist raunverulegan vin. Einar Áskell og ófreskjan Það er laugardagskvöld og Einar Áskell getur ekki sotnað. Hann getur ekki hœtt að hugsa um að hann heíur barið strák sem er minni en hann sjálíur. Á morgun œtlar hann að finna þennan smápolla og geía honum gula leikíanga- bílinn sinn. Nœsta dag leitar Einar að litla stráknum, en hann er horfinn! Hann finnst hvergi nokkurs staðar. Ertu skræfa Einar Áskell Einar Áskell vill ekki fljúgast á. Þegar krakkarnir eru að slást úti á götu fer hann bara burtu. Krakkamir halda að hann sé hálígerð skrœfa. Þessi saga segir frá því þegar þrír nýir ólátabelgir byrjuðu í leikskólanum og réðust á EinarÁskel. Viktor Rydberg JÓLIN HANS VÖGGS LITLA Hið sígilda œvintýri sœnska skáldsins Viktors Rydberg um Vögg litla, lítinn, fátœk- an munaðarleysingja sem gamli Jólaskröggur tók með sér í jólaferðina á sleðanum sínum á alla bœina í sveit- inni og um það sem þar bar fyrir augu. Með gullfallegum mynd- skreytingum Haralds Wiberg. Ágúst H. Bjamason þýddi. Inger Brattström HANDAN VIÐ HRAÐBRAUTINA Jónas er sextán ára og heíur fengið vinnu á barnaheimili í stuttan tíma. Hann er að undirbúa helgarferð með félöQrum sínum. Af henni verður þó ekki, þvi enginn kemur tíl að sœkja Sólong litlu, fjögurra ára þeldökka stúlku. Hið fyrirhugaða ferðalag verður annars konar ferð, kynnisferð út í heim sem byrjar í nœsta nágrenni en er þó undar- lega ólíkur öllu sem Jónas hefur áður kynnst. Fram- undan eru þrír sólarhringar, fullir aí áhyggjum, spennu, kviða og hrœðslu - og þegar þeir em liðnir er Jónas ekki lengur sá sami. Þýðandi Þuríður Baxter. Þessi bók var lesin í Ríkis- útvarpi íyrir þremur árum undir nafninu Ferð út í veruleikann. Valdís Óskarsdóttir FÝLUPOKARNIR Hefur þú nokkuð komið í Séstvallagötu? Ekki það nei. Þetta er líka ósköp fyriríerðarlítil gafa. Hún sést varla. og við erum of stór til að komast þangað inn. Aftur á móti eiga fýlupokamir sem eiga heima við Sést- vallagötu mjög auðvelt með að koma sér fyrir hjá þér og mér og okkur öllum. Ertu ekki viss um það? Horfðu þá á íólkið í kringum þig. Ný og endurskoðuð útgáf a einnar vinsœlustu bama- bókar síðari ára. Myndir eftir höfundinn. Astrid Lindgren MADDITT OG BETA Þetta er sjálfstœtt framhald sögunnar Madditt sem kom út í fyrra. Ný bók um stelpuna Madditt sem dettur svo margt skemmtilegt í hug og um litlu systur hennar Betu sem leikur allt eftir henni. „Þú ert alveg klikkuð Madditt," segir Beta. Samt fylgir hún systur sinni gegnum þykkt og þunnt, það gildir einu hvaða fífldirísku Madditt finnur upp á. Bœkurnar um Madditt em á leiðinni að verða álíka vinsaelar og bœkurnar um Emil í Kattholti. Nýbúið er að gera efiir þeim skemmtilega íramhalds- þœtti fyrir sjónvarp. Myndir eítir Ilon Wikland. Sigrún Árnadóttir þýddi. Astrid Lindgren RONJA RÆNINGJADÓTTIR Ævintýraleg og skemmtileg saga írá rœningjatímunum um Ronju, dóttur Matthíasar rœningjaforingja og Birki, son erkióvinar hans sem strjúka að heiman út í skóginn. Þar lifa þau ótrú- legu og viðburðaríku land- nemalífi þangað til þau geta snúið heim aftur og bundið endi á œvafomar illdeilur þessara tveggja rœningjaœtta. En slíkt gerist ekki átakalaust. Þessi bók er nýkomin út í heimalandi höíundar og hefur fengið frábœrar við- tökur. Myndir eftir Ilon Wikland. Þorleifur Hauksson þýddi. Andrés Indriðason POLLI ER EKKERT BLÁVATN Hvert getur tíu ára strákur íarið sem er ákveðinn að strjúka að heiman og koma aldrei aítur - að minnsta kosti ekki strax? Og hvað getur hann gert þegar hann kemur heim aftur og enginn hefur tekið eítir að hann vantaði þvi mamma hans og systir eru farnar að heiman og pabbi situr einn eltir í öngum sínum? Polli getur ýmislegt gert þegar hann tekur til sinna ráða. Eftir það fer margt að breytast í kringum hann. Andrés Indriðason hlaut barnabókaverðlaun Máls og menningar fyrir bókina Lyklabarn sem kom út í hitteðfyrra. Hringur Jóhannesson myndskreytti BÚKOLLA Ævintýrið skemmtilega með nýjum og íallegum litmynd- um eftir Hring Jóhannesson. K.M. Peyton DAUÐIÁ JÓNSMESSUNÓTT Jónatan Meredith situr í dýra heimavistarskólanum sínum og þykir lítið til dýrðarinnarkoma. Ekki bœtir úr skák að í natni jaínréttis er búið að taka stelpur inn í eístu bekkina, og þœr ekki smávegis skrítnar sumar! Það eina sem er gaman er að œfa íjallgöngu með Hugo stœrð- frœðikennara, en hann er með merkilegri mönnum í augum Jónatans. Svo deyr enskukennarinn voveiílega - og fjör fœrist í leikinn. Dauði á Jónsmessunótt er sjálfstœtt framhald bókar- innar Sýndu að þú sért hetja eftir höfund bókanna vin- saelu um Patrick Pennington. Spenna bókarinnar, frábœr persónusköpun og mann- skilningur höfundar svikur engan. SOja Aðalsteinsdóttir þýddi. Theódóra Thoroddsen ÞULUR Hinar fallegu og vinsœlu þulur Theódóru Thorodd- sen haía lengið verið ófáanlegar. Þetta er 5. út- gáía þeirra og hér er að íinna allar þulur sem Theódóra orti. Kjörgripur allra barna - og fullorðinna. Myndir eítir Guðmund Thorsteinsson og Sigurð Thoroddsen. Geoffrey Trease Á FLÓTTA MEÐ FARANDLEIKURUM Þessi saga gerist í Englandi á síðustu áratugum ló. aldar. Þetta voru róstusamir tímar víða í Evrópu, en í Englandi haíði lriður rikt óvenju lengi undir stjóm Elísabetar 1. drottningar. Ungur drengur, Pétur Brownrigg, lendir í úti- stöðum við lénsherra föður síns og verður að flýja átt- haga sína. Áílóttanum verður hann margs vísari, m.a. um samsœri gegn drottningu, og lendir í ýmsum háska. Meðal helstu persóna bókarinnar er leik- ritahöfundurinn William Shakespeare. Silja Aðal- steinsdóttir þýddi og las söguna í Ríkisútvarpi fyrr á þessu ári. Mál IMI og menning

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.