Þjóðviljinn - 12.12.1981, Blaðsíða 20
Sigurður A. Magnússon
MdSKVAR
MORGUNDAGSINS
Þetta er sjállstœtt íramhald
metsölubókarinnar Undir
kalstjörnu. Þegar frásögnin
hefst er söguhetjan 9 ára
og þegar henni lýkur er
hann kominn „í íullorðinna
manna tölu."
Möskvar morgundagsins er
ekki síður en fyrri bókin
fallegt og átakanlegt lista-
verk og um leið sérstoeð
aldaríarslýsing aí þeim
sviðum Reykjavikuriífsins á
kreþþu- og hemámsárum
sem lítt hefur íyrr verið
hampað í bókum.
Jakobína Sigurðardóttir
í SAMA KLEFA
Aðalpersónur eru miðaldra
kona og ung stúlka sem
verða aí tilviljun samskípa
á leið suður. Á þeim rúma
sólarhring sem ferðin tekur
segir eldri konan þeirri yngri
slitur úr œvisögu sinni. Ai
hversdagslegri frásögn
hennar - og ekki síður því
sem hún lœtur ósagt - nemur
lesandinn örlagasögu
umkomulausrar manneskju
og það hugarfar sem til
verður í harðbýlum og af-
skekktum byggðum og
skapar henni örlög. Er þá
ónefnd lýsing ungu konunn-
ar og að hve miklu leyti
hennar bíður sams konar
hlutskipti þrátt fyrir þá upp-
reisn sem henni býr í brjósti.
Hér er mikilli sögu þjappað
saman á fáar blaðsíður í bók
sem enginn bókmennta-
unnandi má láta fram hjá
sér fara.
Einar Kárason
ÞETTA ERU ASNAR
GUÐJÓN
Bráðvel skrifuð íslensk nú-
tímasaga. Aðalpersóna er
ungur maður sem er í upp-
reisn gegn umhverfi sínu,
uppreisn sem er hálíáttavillt
og steínulaus. Við tylgjum
honum eftir í stúdentspróís-
íylliríi sem œtlar engan
enda að taka, í kommúnu
gamalla skólaíélaga sem
haía sest að á sveitabœ til
að nýta gaeði landsins. í
misheppnaðri tilraun til
háskólanáms og á trillu og
togbát þar sem lítið fer fyrir
sjómannarómantík í lýsingu
höfundar.
Vandfundin er jafn hnyttin
lýsing á lííi og hugsunar-
hœtti ungs íólks nútímans og
í þessari bók. Málíarið er
ósvikið og sver sig í œttina
og sagan er auk þess
krydduð með hráslaga-
legum gálgahúmor sem
hœfir elninu einkar vel.
Vilborg Dagbjartsdóttir
UÓÐ
Ljóðasaín eins af allra list-
fengustu ljóðskáldum okkar.
Hér er að íinna allar þœr
ljóðabœkur sem Vilborg
hefur gefið út, Laufið á
trjánum, Dvergliljur og
Kyndilmessu. Til viðbótar
eru hér prentuð ljóð sem
síðar haía birst í blöðum og
tímaritum. Er ekki minnstur
íengur að fá þau kvœði öll
saman á einum stað því
meðal þeirra eru mörg al
merkilegustu ljóðum
Vilborgar. Jón Reykdal
teiknaði kápu og sá um útlit
bókarinnar.
Tryggvi Emilsson
KONA SJÓMANNSINS
og aörar sögur
Æviminningar Tryggva
Emilssonar haf a notið
mikillar hylli og viður-
kenningar. Sögur þessarar
bókar eru skáldsögur þó að
þœr sœki að einhverju leyti
efnivið sinn tii raunvem-
leikans. Sögusviði í Konu
sjómannsins svipar að tals-
verðu leyti til œviminning-
anna, þar er lýst lífsbaráttu
fólks og byrjandi verkalýðs-
baráttu í ungum og vaxandi
kaupstað þar sem óbrúan-
legt djúp er milli stétta.
í bókarlok em nokkrar
smœrri sögur þar sem frá-
sagnargáf a höfundar nýtur
sín einna best.
Mikhaíl Búlgakof
MEISTARINN
OG MARGARÍTA
Söguþráð þessarar
mögnuðu og œrslaíullu
skáldsögu er eríitt að rekja
í stuttu máli. Hér er fléttað
saman píslarsögunni og frá-
sögn af því er andskotinn og
árar hans heimsœkja
Moskvu - og setja allt á
annan endann. Það fólk sem
af því hlýtur uppreisn,
örlagasaga þess og ástar-
saga, er þungamiðja bókar-
innar upp frá þvi.
Mikhaíl Búlgakoí (1891-
1940) lauk við þessa skáld-
sögu skömmu fyrir andlát sitt
og var þá lítil von til þess að
sagan kœmist nokkm sinni á
prent. Fmmprentun var í
sovésku tímariti 1966-7,
með ýmsum úríellingum. í
þýðingu Ingibjargar
Haraldsdóttur, sem gerð
er beínt úr rússnesku, er
sagan óstytt.
Snorri Hjartarson
KVÆÐ11940-1966
Heildarsaín ljóða Snorra
Hjartarsonar fram að verð-
launabókinni Hauströkkrið
ylir mér.
Myndskreytingar eftir Jón
Reykdal. Bók sem enginn
ljóðaunnandi getur án
verið.
William Heinesen
KVENNAGULLIÐ í
GRÚTARBRÆÐSLUNNI
Fimmta bókin í sagnasafni
Heinesens í þýðingu Þorgeirs
Þorgeirssonar. Um síðustu bók
sögðu gagnrýnendur m.a.:
„Er nú ekki að orðlengja það
að slíka bók leggja menn frá
sér með þakklœti og biðja
William Heinesen að lifa í
hundrað og tuttugu ár. Þorgeir
Þorgelrsson fœr ósvikið loí fyrir
þýðingu sína sem hinar fyrri í
þessu ritsafni - hún er á miklu
máli og góðu." ÁB Þjv.
„Þessar dýrlegu smásögur
Heinesens eiga eflaust ettir að
vera öllum unnendum hans
kœrkomin upplyfting í annars
snautlegu jólabókaflóði."
SSHp.
„Þegar öðm hverju er verið
að rífast út aí Norrœna
þýðingarsjóðnum, aldrei
heyrist þá nefnt hvað við
eigum sjóðnum að þakka...
í mínum huga er enginn vafi
á því að þýðingar Þorgeirs
Þorgeirssonar em það sem
við eigum sjóðnum mest að
þakka það sem af er,"
ÓJ Dbl.
„Sem bókmenntaverk er
„Það á að dansa" með þvi
besta af þýddu efni, sem
undirritaður hefur fengið til
lestrar mjög lengi."
JGTíminn.
Maj Sjöwall og
Per Wahlöö
MAÐUR UPPIÁ ÞAKI
Sjöunda bókin í hinum
vinsœla lögreglusagna-
ílokki Skáldsaga um glœp.
Þessar bœkur haía komið
út i 22 þjóðlöndum og
hvarvetna notið mikilla vin-
sœlda. Eftir þessari sögu
gerði Bo Widerberg
kvikmynd sem m.a. hefur
verið sýnd hér á landi.
Þýðandi er Ólaíur Jónsson.
Richard Llewellyn
GRÆNN VARSTU
DALUR
Saga námumannaíjölskyldu
í Wales skömmu íyrir síðustu
aldamót. Sagan er í senn
uppvaxtarlýsing. þjóð-
félagsleg skáldsaga og
ástarsaga. Engum dylst að
höíundur nauðþekkir það
íólk sem hann lýsir og að
það á samúð hans óskipta.
Saga þess verður heillandi
lestur, ljóðrœn, íull af hlýju,
skaphita, angurvœrð og
góðlátlegri kimni.
Þessi skáldsaga hefur
hvarvetna farið sigurför.
Þýðing Ólafs Jóhanns
Sigurðssonar var fyrst
prentuð 1949 og seldist upp
á tveimur mánuðum en
helur ekki verið endurprent-
uð fyrr en nú.
Vésteinn Lúðvíksson
í BORGINNI OKKAR
Sögur og ævintýri frá
kostulegri tíð.
Vésteinn Lúðviksson er
löngu kunnur sem einn
fremsti rithöfundur okkar.
Með þessu sagnasafni mun
hann þó enn koma lesend-
um sínum á óvart. Hann
fjallar hér um samtíð okkar
frá sjónarhóli íramtíðar-
innar og birtir hana um leið í
nýju og kostulegu ljósi.
Lestur þessara sagna er ekki
síður skemmtun en opin-
berun á þeim veruleika sem
við þekkjum best.
Það er góður sögumaður
sem heldur á penna.
Kristján Jóhann Jónsson
HAUSTIÐ ER RAUTT
Fjölskrúðug nútímasaga
sem gerist í íslensku þorpi
og sveitinni þar í kring. Þetta
þoip er þó ekki allt þar sem
það er séð. í rás sögunnar
tekur það t.a.m. stökkbreyt-
ingu og þenst út í allar áttir.
Er ekki að furða þótt ýmsar
af sögupersónum verði átta-
villtar og að háttvirtur
höfundur óttist að missa allt
út úr höndum sér.
Kristján Jóhann Jónsson er
f. 1949. Hann kennir nú við
Menntaskólann á Egils-
stöðum. Haustið er rautt er
fyrsta skáldsagan sem eftir
hann birtist,
Mál Í| og menning
t