Þjóðviljinn - 16.12.1981, Side 4

Þjóðviljinn - 16.12.1981, Side 4
4 SÍÐA — Jólablað t>jó&viljans Dr. Gunnar Kristjánsson, Reynivöllum: Kj ar nor ku ví gbúnaður: helstefna eða lífsstefna? Hvert stefnir vigbúnaöarkapp- hlaup risaveldanna? Er þaö kapphlaup til dau&ans e&a til lifs- ins? Er stefna þess til heljar eöa lifs? Erjöröiná leiö til torti'ming- ar, sem ekki veröur meö neinu móti umflúin? Munu spádómar allra tima bráttrætast, spádómar um heimsendi, er jöröin muni brenna upp i eldi og frumefnin leysast sundur? Eöa er hin mikla úrslitakreppa aö nálgast, þegar skorið veröur úr um framtlö mannsog heims? Hver á svör viö slikum spurningum, eru þaö vis- indamenn, guöfræðingar, heim- spekingar, eru þaö stjórnmála- menn eða hernaöarsérfræöingar? Sex þúsund fundir Svörin hefur enginn á reiöum höndum. — Þrátt fyrir háþróaöa visindaþekkingu og vel skipu- lagða alþjóölega starfsemi á mörgum sviðum allt frá lokum seinni heimsstyrjaldar hefur þó fjöldinn allur af stjórnmálaleiö- togum getað tekið undir orð fyrr- verandi framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna U Thants er hann sagði, að mannkynið væri eins og smábarn aö leik meö rak- vélarblað. Alþjóöleg samtök eins og Sameinuðu þjóöirnar horfa máttvana og úrræðalaus á hömlulaust vi'gbúnaöarkapp- hiaup. Viöræöur hefur ekki skort, frá striðslokum hafaveriö haldn- ir yfir sex þúsund fundir um af- vopnunarmál, þar af 300 i Salt II viðræðunum, en árangur hefur enginn orðið, sem sést af þvi að vigbúnaðurinn er trylltari en nokkru sinni fyrr. Nú er svo komiö aö f jöldi þjó&a býr yfir þekkingu og getu til þess að framleiða kjarnorkusprengju og talið er a& 35 þjóöir geti fram- leitt slik vopn meöskömmum fyr- irvara. Tilraunir með kjarnorku- sprengjur halda stöðugt áfram, frá striðslokum hafa verið geröar nærri sjöhundruö tilraunir með kjarnorkusprengjur, margar i andrúmsloftinu. Vopnaverk- smiðjur starfa meö fullum af- köstum, sala á vopnum til þriöja heimsins hefur margfaldast á nokkrum árum, bróðurparturinn af þeirri sölu fellur i skaut vestur- löndum. Þarna eiga fátækustu þjóðir i hlut en meir en helmingur rikjaþriðja heimsins býr viö her- foringjastjórn, sem tekur brauöið frá börnunum til þess aö vigbúast og viðhalda oft á tiðum óréttlæti i margvislegum myndum. 1 raun og veru er strið framtiðarinnar hafiö þegar fé er heldur varið til vopnakaupa en til þess aö seöja hungur þess milljarðar manna, sem býr viö þau kjör i' heiminum; af þeim svelta um 55 milljónir manna til bana á hverju ári. Hvergi hefur hugvit og tækni- þekking mannsins náö lengra en i smiöi morötóla, þaö kemur reyndar fáum á óvart, þegar þess er gætt, aö yfir 400 þúsund vis- indamanna vinna aö vigbúnaöi. Fuilkomnustu eldflaugar, sem tileru, og áætlað er aö koma fyrir I Vestur-Þýzkalandi áriö 1983 ef áætlun NATO frá þvi i desember fyrir tveim árum standast, eru hinar meðaldrægu Pershing II eldflaugarsem fljúga með 20 þús- und km. hraöa á klst. Þær eru út- búnar fullkomnasta stýribúnaöi, sem til er og þær geta hæft skot- mark i 2000 km fjarlægö meö að- eins 45 metra skeikun — eöa álika og salur þessi er á lengd — er þær steypa sér úr 240 km hæö beint á skotmarkið og grafa sig allt að 30 metra niður i jöröina áður en þær springa og granda niöurgröfnum eldflaugabyrjum andstæðingsins. Eða Trident kafbátarnir, sem senn — jafnvel á þessu ári, munu sigla um heimshöfin. Þeir eru tvöfalt stærri en stærstu kafbát- ar, sem nú eru til, yfir 170 metrar á lengd. Þeir munu flytja 24 eld- flaugar af Trident II gerð, sem hverum sig ber ekki aðeins eina kjarnorkusprengju heldur 17. Hver sprengja hefur sjálfstætt skotmark vegna hins fullkomna stýribúnaðar. Einn Trident kaf- bátur getur þvi grandaö 408 skot- mörkum í allt aö 10 þúsund kiló- metra fjarlæ^, sem Trident II flaugin dregur. Þeir kosta hver um sig 1,5 milljarö bandariskra dollara eða 12 milljarða fslenzkra króna. Aætlunin hljóöar upp á a.m.k. 30 slika báta. Til hvers er keypt? Hisaveldin keppa, stóru hern- aðarbandalögin keppa. En um hvað? Til hvers? Hvers vegna getur ekkert stöðvaö þetta vit- firrta kapphlaup, hvorki slökun- arstefna né viðræöufundir og af- vopnunarráðstefnur? Hvernig er slökkt á þessari sjálfvirku vél dauðans? Hvar er frumorsökin? Er það pólitiskur ágreiningur risaveldanna, er það tæknin, sem pólitik og vigbúnaður laga sig sið- an að, eru það hinar risastóru vopnasmiðjur risaveldanna, eru það vopnasalar eða er þetta allt saman samkvæmt þvi sem tals- menn risaveldanna og stóru hern- aöarbandalaganna segja, visvit- andi gert i þágu aukins friöar? Bæði risaveldin hafa þann sjálfs- skilning, aö þau ein séu friðsöm og kosti kapps um að vernda frið- inn, báöir leiðtogar þeirra birtast heiminum eins og brosandi friö- arhöfðingjar, afslappaðir og oft rifandi af sér brandara á báða bóga. Býr kannski undir brosinu martröð þeirrar vitundar, að ferðin sé stjórnlaus, hraðinn auk- ist og aukist en enginn finni aö- ferð tíl að stöðva þessa hraöferö til tortimingar? Bæði hernaðarbandalögin á noröurhveli jarðar segjast vigbú- asttil þess aö verjast hugsanlegri áras.Til þess hafa þau ákveðnar kenningar að leiðarljósi. Allt frá striðslokum hefur kenningin um ógnarjafnvægi veriö meginkenn- ingin. í henni felst, að mikill vig búnaöur fæli andstæðinginn frá árás, vopnin séu i rauninni aðeins til sýnis og fælingar. Geri annar aðilinn árás muni hinn kvitta fyr- ir svo um munar. I þvi skyni hafa risaveldin komið sér upp full- komnu kerfi langdrægra eld- flauga heima fyrir. En kenningin um ógnarjafn- vægi reyndist ekki alls kostar ör- ugg þegar frá leið. Einkum hefur þessi kenning takmarkað gildi fyrirEvrópu og varþvikomið þar fyrir kerfi skammdrægra eld- flauga sem ná ekki inn i risaveld- in heldur takmarkast við banda- lagsriki hernaðarbandalaganna. En einnig þetta kerfi reyndist skammgóður vermir. 1967 kemur opinbertega fram kenning NATO um sveigjanleg viðbrögð i striöi, húnfelur isérþann möguleika,að hugsanlegt sé að beita kjarnorku- vopnum, sem farið var að setja upp 1957 i Evrópu, i einhverjum mæli ef þörf gerist. Með aukinni tækniþróun i vig- búnaði hefur hættan á þvi aukist, að kjarnorkuvopnum verði beitt i Evrópu. Heimspekingurinn Carl Friedrich von Weizsacker benti á það fyrir nokkrum árum, að ein- ■ mitt sú öra tækniþróun, sem nú er orðin staðreynd.ekkisizt þar sem hinar meðaldrægu eldflaugar eru annars vegar, muni stórauka hættuna á kjarnorkustyrjöld i stað þess að draga úr henni. Hættan felsteinkum ihinni miklu nákvæmni stýribúnaðarins, hrað- fleygni eldflauganna og hinum litlu kjarnorkusprengjum sem þær bera. Alþjóðlegar friðar- rannsóknarstofnanir benda á, aö nifteindasprengjan sé sams kon- ar ögrun við heimsfriðinn, þar eð hún lækki hinn svokallaða kjarn- orkuþröskuld og geri mönnum þar með auöveldara aö stiga hið örlagarika skref um leið og hún eykur ógn varnarkerfisins. Einn- ig benda þær á, að styr jöld kunni að brjótast út á margvi'slegan annan hátt, t.d. meö þvi að risa- veldin drægist inn i tiltölulega takmörkuð hernaðarumsvif i þriöja heiminum, sem siðan leiddi til þeirra ragnaraka, sem vigbúnaðinum var ætlað að koma i veg fyrir. Það er helstefna, sem Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandarikjanna lýsti i siðustu ræðu sinni sem forseti i upphafi þessa árs, er hann sagði: „Ef til vill er það aðeins timaspursmál, hvenær brjálæði, örvænting, öf- und eða mistök leysa hið skelfi- lega tortimingarvald kjarnorku- sprengjunnar úr læðingi”. Þess- um orðum visar enginn á bug, sem eitthvað vill vita um vigbún- að, hættan felst i vigbúnaðinum sjálfum, sem æðir áfram sem öskrandi ljón, sem enginn ræður neitt viðlengur. Andstæ&ingurinn er vigbúnaðurinn, þaö er þvi'grár leikur og ögrun við mannlega skynsemi, þegar stjórnmálaleiö- togar halda þvi fram, að enn sé þörf á auknum vigbúnaði. Hver einasta sprengja sem bætist við vopnabúr risaveldanna eykur ör- yggisleysi mannkynsins, hvort sem hún er sett upp austan járn- tjalds eða vestan. Attum okkur á því i tæka tið, að hættuna eigum við öll sameiginlega hvar i flokki sem viö kunnum aö standa. Siðfræði útlagans? En hvað blasir þá við, er ein- hver lausn i sjónmáli eða eigum við að bi'ða þess, að spádómur Jimmy Carters verði að veru- leika? Er heimurinn i raun og veru vonlaus? Gildir nú aftur sið- fræði Gisla sögu Súrssonar, að horfast I augu viö ill örlög með köldu hugrekki, láta ekkert setja sig út af laginu ekki einu sinni martröö næturinnar, drauminn um hinn blóðuga vef, sem örlaga- nornir slá dag sem nótt? Er ör- yggið fólgið i auknum vigbúnaði, sem nú þegar nægir til þess að tortima jörðinni mörgum sinnum með þeim fimmtiu þúsund kjarn- orkusprengjum sem til eru? Og vopnin hlaðast upp, eigum viö samt að láta sannfærast, að auk- inn vigbúnaður sé nauðsyn — kannski þangað til allir sofa með eina litla kjarnorkusprengju und- ir rúminu? Yröum við þá örugg- ari? Er ekki einhvers staðar i þessari drungalegu vigbúnaðar- sinfóni'u heldur betur falskur tónn? Kannski er það rétt niðurstaöa hjá ýmsum, sem fást viö aö rann- saka innviði vigbúnaðarkapp- hlaupsins.aðmannkynið þjáistaf ofsóknarbrjálæði. Slikur ótti er ekki nýr i sögunni, múgótti hefur áður gripið um sig og heltekið mennina. Óttinn við galdranornir leiddi til galdrabrenna, óttínn við falskrista leiddi af sér rannsókn- arréttinn, óttinn við drauga var á sinn hátt einnig múgótti hér á landi a.m.k. óttinn tekur á sig ýmsarmyndirog sérþaðsem ótt- ast er hvarvetna á kreiki, ihverju horni, i'vötnum og höfum, á fjós- bitanum, i' prédikunarstólnum, bak við hvern stein og i hverju skúmaskoti. Og óttinn þarfnast öryggiskerfis, þvi hann kallar fram öryggisleysi. Hættulegastur er óttinn við hinn illa skilgreinda óvin, þvi honum er erfiðast að verjast. öryggisráðstafanir gegn honum yfirstiga öll skynsamleg takmörk, um það er mannkyns- sagan til vitnis. öryggisráðstaf- anir og öryggiskerfi geta gengið svo langt, aö það komi upp um sjúklegt hugarástand, sem er haldiö af ótta. Óttinn á alls kostar við sjúklinginn, hefur hann i hendisér og lætur hann leika alls konar hundakúnstir. Eisenhower forsetiBandarikjanna benti á sin- um ti'ma á þessa tviræðni hins yf- irdrifna öryggis, sem fyrr en var- ir fer þá sjálft að framleiða ótta og verður hættulegra en allt ann- að. Menn spyrja sig nú i auknum mæli, hvort leiðtogar risaveld- anna séu ekki haldnir af slikum ótta og leitist eðli málsins sam- kvæmt við að draga allan heim- inn inn i hina fölsku veröld tilbú ins öryggis, sem þeir hafa búiö sér til. Enginn skyldi láta sér detta i hug, að vlgbúnaöarsérfræöingar risaveldanna, vopnasalar og vopnaframleiðendur hafi ekki nægileg rök fyrir sinu máli. Þeir hafa jafnóþrjótandi rök og sér- fræðingar galdrabrenna og rann- sóknarréttar höfðu á sinum tíma. Aróðursvélar risaveldanna starfa báðar með svipuðum hætti, þær túlka sérhverja minnstu hreyf- ingu andstæðingsins sem undir- búning hans að þvi að leggja heiminn i rúst, þær keppa báðar að þvi að útmála andstæðinginn sem froðufellandi ófreskju, sem veit ekkert i sinn haus annað en að drepa og myrða, eitra og meiða. öll vopn hans eru hættu- legri en okkar, vigbúnaður hans er ævinlega allt að þvi sexfalt meiri en okkar, hugarfar hans, svo spillt og ógeðslegt sem það er að öllu leyti, miöar að engu öðru en tortimingu— meðan við höfum eingöngu frið og kærleika á okkar stefnuskrá. óvinurinn er djöful- óður. Hið kalda strið, sem menn ótt- ast, að nú sé að hefjast, byggir á áróðri af þessu tagi. Til þess að unnt sé að réttlæta vigbúnað þarf að útmála hættuna sem af and- stæðingnum stafar og þar með óttann þvi að óttinn er eitt grund- vallarstef vigbúnaðarsinfóniunn- ar. Vigbúnaðurinn er sagður eiga að bægja óttanum frá en eykur hann ekki óttann þess I stað? Þarfnast hann ekki óttans, við- heldur hann ekki óttanum til þess að ástandiö haldizt óbreytt? Innsta eðli vigbúnaðarins er i raun og veru tilraun til þess að’ byggja upp falskt öryggi, sem i senn nærist á ótta og framleiöir ótta, það er i' raun og veru sjálft ógnun. Eftir þriggja áratuga sambúö við slikt falskt öryggi er þaö nú æ betur að renna ipp fyrir mönnum, að sliktkerfi eykur ekki hamingjuskilyröi manna. Gagnkvæmt öryggi öryggi byggist á gagnkvæmni, öryggi mittbyggist á þvi, að and- stæðingur minn sé einnig öruggur. Pólitík styrkleika, sem öðru hvoru er dásömuð sem endanleg lausn allra mála, felst i þvi að sýna kraftana, sýna styr- leika, yfirburði. En slikar sýningár eru bezt til þess fallnar að vekja ótta andstæðingsins, þær eru ógnun við öryggi hans og kalla hann til vigbúnaöar, þær ögra honum til þess að sýna vig- tennurnar öðru hvoru og kunna á endanum að sannfæra hann um, að beztséaö vera fyrri tíl að hefja þá árás, sem allt er búið undir. Réttlát vopn Kjarnorkuvopn eru i raun ekki lausn á neinum vanda, með þeim er ekki ráðist að rótum vandans i þessum heimi, orsökunum sjálf- um, meö þeim er ekki gengið á hólm við þau vandamál, sem mannkynið á við að glima svo sem hungur, mengun, skerðingu mannréttinda efnahagslegt mis- réttimillinkra og fátækra þjóða. Kjarnorkusprengjurnar auka vandann, þær bæta við öll þau vandamál, sem fyrireru hættunni á kjarnorkustyrjöld. Við þurfum kjark til þess að horfast i augu viö hin raunverulegu vandamál, við þurfum ekki hugleysi, sem lokar fyrir þeim augunum og hleður þess I staö ótta að höfði sérhvers barns.sem fæðist á þessa jörð og segir að öryggi þess sé undir þvi komiö að það fallifram og tilbiðji þessa sprengju. Kjarnorkuvigbúnaðurinn varp- ar skugga yfir allt lif á þessari jörð, skugga dauöans, skugga ótt- ans, skugga haturs og tortryggni. Hann er skæðasta niðurrifsafl á þessari jörö. Við þörfnumst hug- rekkis til þess að bjóða þvi niöur- rifsafli byrginn. Kannski er betra að láta lifiö i nafni slíks hugrekkis, sem þorir að hafa augun opin og ganga á hólm við þann óvin, en i nafni þess hugleysis, sem heldur krampataki i skurðgoðið, sem að lokum mun senda þögult svart regnyfirþessa jörð, pax atomica, friöur kjarnorkunnar, getur einn- igáttvið áþeirri jörð, sem þaöan ifrá hvi'lir i eilifum friði dauðans. En hvaö er þá rangt við hiö falska öryggi vopnanna, hvaða tónn er óhreinn i þessum söng? Þetta: að friður verður aldrei án áhættu, sá sem neitar að taka áhættu afneitar fyrirfram friði. Ahættan felst i þvi að bjóða óttan- um byrginn. Það er stef gegnum alla Bibliuna: Ottastu ekki, merkja þau orð ekkert i dag? Kirkjan mótmælir En strið hefur nú alltaf fylgt mannkyninu kann einhver að segja, og þaö sem skiptir máli er að vera raunsær. Vissulega hefur strið og togstreita ævinlega fylgt þessu blessaöa mannkyni en hvað raunsæiö snertir, þá eru til ýmsar gerðir af þvi. Kirkjan hefur ævin- lega talið þaö skyldu sérhvers kristins manns aö verja saklausa borgara, land sitt og þjóð, fjöl- skyldu sina, börn og gamalmenni fyrir árásum ræningja og herja. Það hefur aldrei verið still kirkj- unnar, að segja mönnum að halda að sérhöndum.þvertá móti hefur hún talið þaöskyldu hvers manns að vera ábyrgur á þessum sviðum sem öðrum. Og þá hefur hún lagt blessun sina yfir vopnin. I þeim efnum hefur verið stuðst viö æva- fomar kenningar um réttlátt V

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.