Þjóðviljinn - 16.12.1981, Side 17

Þjóðviljinn - 16.12.1981, Side 17
Jólablaö Þjóöviljans — SÍÐA 17 Mæðradagurinn i Þýskalandi 1943. Embættismaður þýska rikisins hengir járnkrossinn á brjóst hinnar frjósömu móður. / 1 HAVE ONLV U SeCONPS UNTIL ThWT /H/S$tL£ BLA&T& THE <3&EAT WAU. OZ= CH/NA TO 4TO/U&--J * ONLY SECONPS — TO CHAHGB FROM P//JNA PH/NCE INTO . WONPER WOMAN- FA&TER TH/»N I EVEfZ HAVE . BEFOREA JrT. v;- <5epry aosE dave CONV^íAY/ * DELBO HUNT kYR/TÉR ART/9TS AULT, 6NAPINN. /errsRtsR. JERRY SERFE COAOAt/ftT LBN weiN, * : ep/70Rl % Líknar æð... Framhald af 15. siöu. armynd skal tekin sem dæmi um þetta, en hana málaði Tizian árið 1538. Konan sem við sjáum á myndinni er fyrst og fremst að sýna sig og sinn girnilega kropp áhorfendum. Eigandi þessarar myndar hefur með eignarhaldinu öðlast jafnframt þá tilfinningu að hann hafi náð konu á vald sut, og konan virðir sjálfa sig fyrir sér með augum þess karlmanns sem myndina sér. Tikin á sænginni er þar kannski ekki af tilviljun, hún gæti undirstrikað fordildina og hégómann, en siðseminnar vegna er þjónustustúlkan að leita ofan i fatakistunni að spjör til þess að hylja þessa blygðunarlausu nekt fyrir augum hins óinnvigða/ Leit að sjálfsímynd Og þá komum við til nútimans og þeirra spurninga, sem þessar Mariumyndir kunna að vekja, og sem mér hefur þótt fróðlegt að skoða i ljósi þeirrar miklu um- ræðu, sem fram fer um þessar mundir um jafnrétti kynjanna, kvennamenningu, kvennafram- boð o.s.frv. Staða kvenna i okkar þjóðfélagi einkennist kannski m.a. af þvi sem kalla mætti identitetskreppu, þ.e.a.s. óvissu um sjálfsimynd og hlutverk. Annað hvort er konan heim^vinnandi húsmóðir og jafn- framt litilsvirtur þátttakandi i þjóðfélaginu eða þá að hún er framarlega i samkeppnisþjóð- félaginu og léleg móðir. Konan er semsagt alltaf léleg. Eg sagði i upphafi að mér fyndist hin heilaga fjölskylda minna á mæðraveldi, — þar drottnar Maria i krafti sins heilaga getnaðar. Það hefur hvarflað að mér hvort dýrkun sú, sem viðgekkst á þessari konu, hafi ekki verið konum styrkur i leit þeirra að sjálfsvirðingu og sjálfimynd i gegnum aldirnar. Það hefur einnig hvarflað að mér hvort bannfæring Maridýrkunar hér á íslandi og i Lútherskum sið hafi ekki um leið þýtt að sjálfs- virðing kvenna og jafnréttisbar- átta hafi beðið nokkurn hnekki. Mariuimyndin er eins konar fyrirmynd að fullkomnum eigin- leika. Slikar fyrirmyndir hafa ekki lagst niður i okkar þjóð- félagi, þótt Maria sé ekki lengur i tisku. Við birtum hér 3 slikar úr nútimanum i lokin. Þýsk móður- ímynd frá 1943 Sú fyrsta er frá mæðradeginum iÞýskalandi 1943. Það er strið og þýski herinn þarf á börnum að halda. Hér veitir þýskur em- bættismaður úr nazistaflokknum gamalli konu verðlaun fyrir frjó- semi. Svipurinn i andliti konunnar gefur til kynna að hún sé eitthvað annars hugar, að hún hugsi kannski frekar til sona sinna á vigvellinum eða i gröfinni eða til þeirra striðsógna sem börn hennar eru látin búa við en til þess heiðursmerkis, sem þarna er verið að prýða barm hennar með. En úr andlitum stúlknanna má lesa, hversu hamingjusamar þær yrðu, fengju þær að fórna sin- um börnum á sama hátt fyrir der Fúhrer og Föðurlandið. Hér er komin ein imynd kvenlegrar fyrirmyndar, — eruð þið nokkru nær, konur? Jólagjöf karl- mannsins í ár Til er fróðlegt breskt timarit sem heitir Men Only, og er samkvæmt heitinu aðallega ætlað karlmönnum. Innihald ritsins bendir reyndar til þess að það sé fyrst og fremst gert fyrir karl- menn sem búi við miklar kyn- ferðislegar bælingar og hafi sér- lega undarlegar hugmyndir um konur. Forsiðumynd desember- heftisins i ár sýnir okkur algeng- ustu kvenimynd og kvenfyrir- mynd nútimans — konan sem söluvara eða jólagjöf karlmanns- ins. Inni i ritinu getur reyndar að lita myndaseriu er sýnir, hvernig umhorfs er innanlærs hjá eigin- konum og dætrum nokkurra breskra athafnamanna og má Wonder Woman — undrakonan úr heimi bandarlskra teiknimynda- blaða. WOMAN, (USPS 690-040), Vol. 40, No. 285, Novembar, 1981. Publiahed monthly by DC I Jenettt Kihn. President and Publfthei IMICSINC, 75 Rockeieller Pl»»» MV ínnin e-------- . ........... 1 ...... - . - Jóiagjöfin I ár. Forsíða desemberheftis timaritsins Men Only. Jólabarnið i góðum höndum skilja á blaðinu að þeir hafi fengið vel greitt fyrir. Konan sem likamlegur söluvarningur er lik- lega álika algengt myndefni i um- hverfi okkar nú og Mariu- myndirnar voru i kaþólskum sið á íslandi. Berið þessa mynd saman við forsiðumynd blaðsins. Wonder Woman Til er fróðlegt bandariskt myndablað sem heitir Wonder Woman. Hún er kraftakerling, og verður vart annað séð, en jafn- ræði riki með henni og súperman, þeirri frægu bandarisku hetju. I þessu hefti sjáum viðhvernig hún bjargar leiðtogum Rauða Ki'na frá þvi' að verða sprengdir upp i frumeindir sinar af bandariskri eldflaug, sem stjómað er af Rauða drekanum, þeim illa fjanda. En hún fer létt meö það, notar handafliö og hugvitið. Þaö fer hins vegar ekki sögum af þvi hvort hún mjólki vel. Þessi sér- kennilega kvenimynd er búin til af sérfróðum markaðssál- fræðingum til þess að uppfylla tóm ihugum stórs hóps manna og kvenna. E in af kvenimyndum nú- timans? Að lokum fylgir hér mynd af jólabarninu i góðum höndum. Hún þarfnast ekki skýringa en er birt til frekari skýringar. 10. des. 1981 Ólafur Gislason

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.