Þjóðviljinn - 12.01.1982, Page 12

Þjóðviljinn - 12.01.1982, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 12. janúar 1982 Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaöarráðs um stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1982 liggja frammi í skrifstofu félagsins frá og með fimmtudeginum 14. jan. Öðrum tillögum ber að skila í skrifstofu Dagsbrúnar fyrir kl. 17.00 föstudaginn 15.jan. 1982. Kjörstjórn Dagsbrúnar RÍKISSPÍTALARNIR lausar stödur LANDSPÍTALINN HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á skurðstot'u Kvennadeildar sem fyrst. HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast á geisladeild nú þegar i fullt starf. SKURÐSTOFUHJÚKRUNARFRÆÐ- INGUR óskast á göngudeild spitalans þrjá daga i viku frá kl. 14.30 til 18.30 (i ambu- lant meðferð) Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarforstjóri Landspitalans i sima 29000. FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast til afleysinga i eitt ár frá 1. febrúar n.k. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist Stjórnarnefnd rikisspitalanna fyrir 18. janúar n.k. Upplýsingar veitir starfs- mannastjóri i sima 29000. KLEPPSSPÍTALINN HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI Óskast á deild 2 á Kleppsspitalanum. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri spitalans i sima 38160. Reykjavik, 10. janúar 1982, RÍKISSPÍTALARNIR. Lausar stöður Stööur skólastjóra og aðstoðarskólastjóra við Armúla- skóla i Reykjavik, fjölbrautaskóla, eru lausar til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavik, fyrir 6. febrúar 1982. Menntamálaráðuneytið, 6. janúar 1982. Blikkiðjan Ásgarði 7/ Garðabæ Önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468 Niðurstöður Matvælarannsókna ríkisins kynntar: Alegg er yfirleitt mjög léleg vara Aðeins 33,5 prósent þeirra sýna, sem Matvælarannsóknum rikis- ins bárust á árabilinu 1976—80 af lambasteik, sem selt er sem álegg, reyndust söluhæf. Hlutfall söluhæfra sýna hjá öðrum áleggs- tegundum vará bilinu 46—57 pró- sent. Matvælarannsóknir rikisins hafa starfað siðan 1. mars 1976 og skal stofnunin „undir stjórn heil- birgðisráðherra, annast matvæla-, efna- og örverufræðilegar rann- sóknir á hvers konar matvælum vegna heilbrigðiseftirlitsins i landinu.” Nú nýverið kynntu for- stöðumaður Matvælarannsókna og sérfræðingar niöurstöður fjög- urra ára starfs. Á þessum árum hafa stofnuninni borist 21.302 sýni frá heilbrigðisnefndum i.landinu, en stofnunin er þjónustuaðili þessara nefnda. Stofnunin hefur enga eftirlitsskyldu og tekur aðeins sýni sem berast tii grein- ingar. Svo haldið sé áfram með niður- stöðurnar af matvælarann- sóknum, en þær hefur Franklin Georgsson unnið: A timabilinu 1976—80 voru aðeins 42,3% sýna af hráum kjöt- vörum söluhæf. Sams konar samantekt fyrir sýni metin af soðnum eða hituðum kjötvörum sýnir, að 64,4 prósent sýnanna voru söluhæf. 60,6 prósent sýna af heilskornu hráu kjöti reyndist söluhæft.enaðeins 37,7prósent af hökkuðu kjöti eða farsi. I skýrslu Aðalsteins Geirssonar er yfirlit yfir niðurstöður gerla- rannsókna á mjólk og mjólkur- vörum 1976—80. Þar kemur fram, að geymsluþol m jólkur er um 4—5 dagar að vetrinum en 3—4 dagar á sumrin. Þá kemur einnig fram, að aðeins 23 prósent sýna af geril- skertu skyri (dósaskyri) voru metin góð. Annars virðist sem mjólurvörur standist ágætlega þær gæðakröfur, sem gerðar eru hér á landi "þegar yfir heíldina er litiö. Guðlaugur Hannesson, for- stöðumaður Matvælarannsókna, Hofsós hreppur víll Blöndu A fundi hreppsnefndar Hofsós- hrepps 3. janúar 1982 var eftirfar- andi tillaga samþykkt sam- hljóða: „Hreppsnefnd Hofsóshrepps lýsir fyllsta stuðningi sinum við virkjun Blöndu, og skorar á Iðnaðarráðuneytið og hrepps- nefndir þeirra hreppa er hlut eiga að máli að semja nú þegar um virkjun Blöndu til hagsbóta fyrir alla landsmenn.” er höfundur skýrsiunnar um gerlarannsóknir á neysluvatni 1976—80. Þar kemur fram, að aðeins 71 prósent sýnanna, sem tekin voru úr vatnsbóli Gvendar- brunna, var nothæf, og aðeins 55 prósent sýna, sem tekin voru úr krönum Reykvikinga. Or Bullauga, sem er lokuð borhola, reyndust hins vegar 92 prósent sýnanna nothæf. Það vekur sérstaka athygli, að aðeins sjö af 224 heilbrigðisnefnd- Framkvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa, Hólmfr- iður Arnadóttir, hefur beðið Þjóð- viljann að birta eftirfarandi: „í tilefni af baksiðugrein i Þjóðviljanum 5.1. s.l. um launa- greiðslur til starfsfólks á veit- ingahúsum á gamlárskvöld vill samband veitinga- og gistihúsa biðja yður að birta eftirfarandi: Agreiningur er kominn upp milli S.V.G. og F.S.V. um helgi- dagagreiðslur til fastráðins tima- kaupsfólks á veitingahúsum. Varðar það túlkun á ákvæðum, er komu inn i kjarasamninga 22. júni 1977 eða fyrir 4 1/2 ári siðan. Nýverið skaut F.S.V. ágreiningnum til fastanefndar V.S.Í./A.S.l. og var hann tekinn fyrir á fundi 30. des. sl., að við- stöddum formanni F.S.V. og framkvæmdastjóra S.V.G. Sam- komulag náðist ekki og kvað for- seti A.S.t. málinu veröa skotið til dómstóla. Við þessu hafði for- um landsins hafa sent stofnuninni sýni i öll þau tæplega fimm ár, sem hún hefur starfað. Aðeins einn af 134 hreppum hafa sent stofnuninni sýni reglubundið. Það virðist þvi sem starfsemi heil- brigðisnefndanna sé að verulegu leyti ábótavant. Heilbrigöiseftir- lit Reykjavikur stendur sig lang- best, 59,2 prósent aðsendra sýna af matvælum bárust frá þeirri nefnd. — ast. maður F.S.V. engin mótmæli uppi. Á gamlárskvöld bar hins vegar svo við að hann kom um miðnæturskeið i Veitingahúsið Klúbbinn og taldi 5 starfsmenn á það að ganga fyrirvaralaust brott úr vinnu. Ollu þessar aðgerðir veitingahúsinu verulegum skaða og er um skýlaust brot á lögum um vinnudeilur að ræða. Er það viðkomandi verkalýðsfélagi til litils sóma að standa að sliku. Agreiningurinn er sem áður segir milli félaganna tveggja, ekki einstaks fyrirtækis og starfs- manna þess. Veitingahúsið Klúbburinn gerði ekki annað en halda fram þeirri túlkun sem félag þess, S.V.G., hefur frá upphafi gefið á viðkomandi samningsákvæðum. Jafnframt lýsti það sig reiðubuið til þess að hlita breyttri túlkun yrði úr- skurður þar um kveðinn upp af þar til bærum aðilum.” Byggingasamvinnu- félag Kópavogs óskar eftir umsóknum félagsmanna i ibúðir við Álfatún i Kópavogi, sem áætlað er að afhenda i lok árs 1984. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsing- ar fást á skrifstofu félagsins. Umsóknar- fréstur er til 22. janúar 1982. Allar eldri umsóknir verður að endurnýja. Byggingasamvinnufélag Kópavogs Nýbýlavegi 6. Opið kl. 9 - 16. Ágreiningurinn um laun: Klúbburinn er ekki einsdæmi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.