Þjóðviljinn - 15.01.1982, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 15.01.1982, Blaðsíða 15
Föstudagur 15. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Hringið i síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum lesendum Guðrún Ágústsdóttir stjórnarformaður SVR: Hlustað á íslensku stöðina í strætó anir frá farþegum dundu yfir mig. Margir farþega voru svo óánægöir meö gargiö í her- mannaútvarþinu i strætó aö þeir sögöust helst ekki vilja nota vagnana af þeim sökum. Þaö varö úr I stjórn Strætis- vagna Reykjavikur aö beina þeim tilmælum til vagnstjóra aftur, aö ekki yröi hlustaö á annaö en islensku stööina fram- vegis i vögnunum. Ég hélt aö þetta mál væri þarmeö úr sög- unni og aö farið yröi aö til- mælum. Ég vonast lika til aö farþegar fái ekki fleiri ástæöur til kvartana af þessu tagi i framtiðinni. Guörún Agústsdóttir for- maður stjórnar Strætisvagna Reykjavikur hafði samband við blaðið i tilefni af lesendabréfi i gær um hermannaútvarpið I strætó. — Þegar vagnstjórum var veitt heimild til þess að hafa útvarp i strætisvögnunum, var það gert meö þvi skilyröi að ekki yröi haft opið fyrir er- lendar stöövar. Fulltrúi vagn- stjóra i nefndinni var þessu einnig samþykkur og nefndar- menn á einu máli um þetta at- riði. — Hins vegar geröist þaö, eftir að útvarpið var komiö i gagnið i vögnunum, að kvart- Guðrún Ágústsdóttir. Friðelskandi konur Undirritaðri hefur borist bæn frá Friðelskandi konum i Noregi með ósk um að ég komi henni á framfæri á Islandi. Mér er ljúft að veröa við þeirri ósk. Þvi sendi ég ykkur þessa litlu bæn meö ósk um aö þiö getið birt hana i blaðinu og þar meö sameinast hinum mörgu friöelskandi sálum i bæn um frið. Ég læt bænina fylgja i þýöingu minni. Með ósk um gleðilegt og friösæltár tilykkar allra. Leiddu mig frá Dauðanum til Lífsins frá Lygi til Sannleika. Leiddu mig frá örvæntingu til Vonar frá Ötta til öryggis. Leiddu mig frá Hatri til Ástar frá Stríði til Friðar. Lát Frið fylla hjörtu okkar Heim okkar Alheim okkar. Bergþóra Gisladóttir (Kvinner for fred er heitið á hreyfingu friöelskandi kvenna i Nor- egi, samsvarandi Kvinder for fred i Danmörku og viöar). Bamahornid \fif qdutm Lé : Æ —•*" j */ ^ f o. C9 /O E L i'rt ^ <3 etvm viÍ qert trteS van^e-tnnm t>orn n m . FÖTLUN Vangef in börn eiga erf- itt með að borða sjálf. Mongólitar hafa ská- sett augu. Þeir hafa f leiri litninga en heilbrigðir. Heilinn hefur skemmst. Þeir tala óskýrt. Við fengum gesti frá Lyngási. Það voru fjórir strákar. Við gerðum saman verkef ni um hvað við ætl- um að verða þegar við er- um stór. í lesverinu töiuðum við i tæki sem við heyrðum í okkur sjálfum úr. Höfundar: Elin, Oddný/ Einar örn, Eydis, Una, Ester Rut, Þorvaldur og Jónas. Gömlu kempurnar í Rolling Stones eru enn aö þrátt fyrir miöjan aldur. Skonrokk í kvöld t Skonrokki i kvöld verða góðkunningjar kynslóöarinnar um þritugt, Rolling Stones og Kinks meðal hljóðsveita. Þá má nefna hljómsveitirnar: Earth Wind and Fire, Bee Gees, Loverboy, Barry Manylowe, Tenpole tudor og fleira, sem dagskrárkynn- ingin kann ekki að nefna. Umsjónarmaður er að vanda Þorgeir Astvaldsson. .Q. Sjónvarp O kl- 20.45 Sagan af Pietari Aholainen bónda veröur sýnd f kvöld. Uppreisnin í mýrinni t kvöld fáum við að sjá finnska sjónvarpskvikmynd, Uppreisnin i mýrinni. Hún segir af baráttu fátæks bónda við skriffinna og erfiða tima. Bóndanum finnst hann standa utan við þjóðfélagið. Kvik- myndin er gamansöm og manneskjuleg. Leikstjórinn heitir Markku Onttonen, en þýöandi er Kristin MSntytó. Sjónvarp kl. 21.50 TF Kvöldgestir að norðan Kvöldgestir Jónasar Jónas- sonar eru þau Björg Baldvinsdóttir og Jóhann ögmundsson, máttarstólpar leikfélagsins á Akureyri um langan aldur. Jónas var á ferð fyrir norðan fyrir áramót og notaði tækifærið og hljóðritaði tvo þætti. Hann sagði i stuttu viötali, að þessi þáttur ætti að vera kyrr og ljúfur^ það væri nóg af hamagangi i okkar harða heimi utan þessa þáttar. Utvarp kl. 23.00 Kvöldvakan Stefán Karlsson. A kvöldvökunni veröur aö vcnju sitthvaö I tali og tónum. Guðrún Tómasdóttir syngur islensk þjóölög. Kór Söngskólans i Reykjavik syngur islensk þjóðlög i útsetningu Jóns As- geirssonar. Þá les Stefán Karlsson um heysókn á Flat- eyjardalsheiði 1919, eftir Jón Kr. Kristjánsson frá Viði- völlum i Fnjóskadal. Andrés Kristjánsson les kvæði eftir Agúst Vigfússon Valdimar Hólm Hallstaö. Tómas Helgason rifjar upp sitthvað úr gömlum ritum um fóðurbætisnotkun og fóður- gæslu hérlendis. Ágúst Vig- fússon flytur frásöguþátt, sem ber heitið I vegavinnu i Brött- ubrekku. • Útvarp kl. 20.40

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.