Þjóðviljinn - 06.02.1982, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 06.02.1982, Blaðsíða 13
Helgin 6.-7. febrúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 rúms um allt land. Hér var um aö ræöa, aö soöinn, nýr fiskur og saltfiskur kominn i stað harð- fisksins, grænmeti svo sem gul- rófur, næpur og kartöflur, er fariö að rækta hér i görðum (árið 1800 voru hér á landi aðeins 283 kartöflugarðar, en 6032 ári 1863), kaffi- og sykurnotkun orðin al- menn og farið að baka kökur og brauö — rúgbrauð og hveitibrauð. Millistriðsárin eiga sér sina sé- stæðu sögu i matarmenningunni. Þá var eign á eldavélum meö bökunarofnum nokkuð almenn. Hinni nýju tækni fylgdi að sjálf- sögðu ýmsar matarnýjungar. Nú sigldu striðsterturnar fullum seglum inn á matarborðin fagur- lega skreyttar og sætar. Tert- urnar annálauöu urðu stolt hverr- ar húsfreyju, þvi umfangs- og iburðarmeiri, þeim mun stoltari varð bakarinn. Tæknin nýja bauð að sjálfsögðu upp á fleiri mögu- leika en þennan, en svo er að sjá sem allt hugmyndaflug húsreyj- anna yröi eftir I tertunum. ast í»a« DE IKl XER S*!j£Ö, i Kvium mm& mmm SMAr&Ctmmr mt T*%mm 'tmum/jmmx* mmrn * m Humar og kjúklingur Árið 1906 héldu islenskir þing- menn utan til Danmerkur I boði rikisþingsins. Þar var þeim mikil veisla gjör: humar og kjúklingur og dýrindis vin með. I tilefni af þingmannaförinni voru búnir til diskar hjá Konung- legu postulinsverksmiðjunni með áprentuðum matseðli og sjáum við hér mynd af einum slikum. Hver þingmaður fékk disk til minja um veisluna og sá sem er hér á myndinni var i eigu sr. Olafs i Arnarbæli, seinna Fri- kirkjuprests. Þessi diskur er nú i eigu Þjóðminjasafnsins. Skyldu margir þingmannanna islensku hafa bragðað humar eða kjúkling fyrr? (Ljósm gel) ast Hvernig á að geyma grænmeti og ávexti? Það er þýðingarmikið í allri matreiðslu að hráefn- ið sé eins nýtt og unnt er. Sé það ekki nýtt þarf það að hafa verið geymt á besta hugsanlegan máta. Kjöt og fisk er best að frysta, salta eða súrsa. Grænmeti og ávexti er best að geyma á köldum og dimmum stað. Hér sjáum við hvernig á að geyma ýmsar tegundir af græn- meti og ávöxtum: Baunir. Geymist á þurrum stað, fremur köldum. Geymast i það óendanlega. Hvitkál. Geymist helst i úti- geymslu, ekki mjög þurri. Geym- ist i nokkra mánuöi. Blómkál. Best að hafa i kjallara, ekki mjög þurrum. Hitastig undir frostmarki. Geym- ist i 6-8 vikur. Selleri. Ræturnar geymast svipað og kartöflur, stönglarnir geymast mjög stutt og er best að geyma þá i vasa með köldu vatni. Ræturnar geymast i nokkra mánuði. Laukur. Geymist best á mjög þurrum stað, við 2ja stiga hita. Geymist i 4-5 mánuði. Ónýtur ef raki kemst að honum. Paprika.Má alls ekki frjósa en þarf að vera á fremur þurrum stað. Hitastig niður undir frost- marki. Geymist i 2-3 vikur. Kartöflur. Best aö geyma við um 5 gráðu hita á þurrum og dimmum staö. Kartöflur spira ef birta kemst aö þeim. Þær geym- ast i allt aö 10 mánuði ef geymsl- an er vel þurr og köld. Tómatar.Geymast best á þurr- um stað viö um 8 stiga hita. Mega alls ekki frjósa eða komast i raka. Geymast i 4-6 vikur ef þeir hafa ekki verið orðnir fullþroska, ann- ars skemur. Epli. Geymast best i kjallara ekki of þurrum. Geymast i nokkra mánuði ef þau eru ekki mjög þroskuð. Græn epli geymast lengst. Epli skemma mjög frá sér eins og kartöflur og þarf að fleygja öllum mjúkum eplum. Appelsinur.Geymast i 4-6 vikur o ? þurfa svipaða geymslu og epli. Vinber.Þola alls ekki frost, en þurfa aö vera i þurri geymslu við nokkurra gráða hita. Geymast i 3 - 4 vikur. Perur.Geymast vel ef þær eru harðar. Fullþroska perur geym- ast aðeins i 1 viku. Mega alls ekki frjósa. Þvílflcur munur! ORBYLGJUOFN með ngsdisKi snuni SHARP ÖRBYLGJUOFN með snúningsdiski gerir matargerð fljótari.. betri.. og hollari. Hafir þú lítinn tíma, eða leiðist að standa lengi yfir matargerð er örbylgjuofninn frá SHARP svarið: Með örbylgjuhitun tekur örstund að hita, sjóða eða steikja matinn án þess að bragð eða ilmefni tapi sér. Snúningsdiskur íofninum tryggir jafna hitun. Sjáifvirk tölvustilling ákveður eldunaraðferö þar sem hægt er að samtengja fleiri eldunarstig. Ef tíminn er naumur.. Full power/Fullur styrkur: Kartöflursteiktará 5 mín. Kótilettur steiktará 7 mín. Ofninn hefur þrjár stillingar: Defrost/Þýðlr: Þýðir djúpfrystan matt.d.200g. kjötstykki á 4 mín. steikir eggjarétti. Simmer / Smásuða: Hitun á osta- samlokum og upphitun rétta HLJÓMTÆKJADEILD KARNABÆR LAUGAVEGI 66BSIMI 25999 Utsolustaðir Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavik Portið Akranesi — Eplið Isafirði— Althóll Siglufiröi — Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirði — M M h f Selfossi Eyiabær Vestmannaeyjum -

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.