Þjóðviljinn - 06.02.1982, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 06.02.1982, Blaðsíða 24
DJÚDVIUINN Helgin 6.— 7. febrúar 1982. Úr íslenskum þjóðsögum Sprengikvöldið Þriðjudagskvöld i sjö vikna föstuinngang gekk mikiö á aö brytja og sjóöa hangikjötið. Þótti litiö handa milli ef ekki var sauðarfall fyrir fjóra. Skammtað var á stórum diskum; var sumum hótaö straffi ef ekki var boröaö svo freklega sem hæfa þókti. Allir mötuðust i hvllu sinni. Þá áttu all- ir að gjalda þjónustu kaup og ekki til oröa tekiö þó þær lægi hjá þeim aö nóttinni. Þegar hjónin voru búin aö boröa af langlegg og mjöðminni var hvurttveggja hengt upp yfir sæng hjónanna. Dytti annaö fyrstu vikuna átti þaö pariö að deyja þaö ár; dytti annað eöa bæöi um föstuna boðaði skammlifi, en langa lifdaga ef uppi tolldu jafnlengd. Aö morgni fyrir dag heimti bóndi saman allar leifar. Geyma átti hann þær allar þar til laugardag fyrir páska. Þegar á fætur var komið lagðist allt fólkiö frá útidyrum til svefnhúsdyra, vóru settar iljar viöhvirfil. En ef fleira var fólk en ein röö var byrjað á annari. Þarna var legið tvo tima þar til öskudagur var bjartur um allt loft. Enginn mátti nefna kjöt né flot um alla langaföstu; lá viö þvi fémunamissir eöa lausnir af prestinum. Um sólaruppkomu var tekið til verks með öskupoka- burð á karlmennum, en steina- burð á kvenfólki; var svo mikið bragö aö þvi aö karlmenn sáust meö pokana hangandi á sér I kirkju, þvi þá var messað á miö- vikudaga föstunnar. Enginn mátti hafa nærklæðaskipti alla föstu út, enn siöur kasta lús af sér, og svo var rikt að þvi gengiö, ef lús skreiö á úlfliö eöa úr höföi manns, varö aö pota henni upp undir ermi, barm eða i höfuöhár. Enginn mátti banna barni sinu hvurnin sem þau breyttu illa, þar til á föstudag langa, þá var tekið að flengja; var þaö gert meö skorpum eftir sem mörg og mikil þóktu afbrotin og mæöur vóru heiftugar og haröir hegnendur. Lágu þau oft blóörisa á eftir marga daga. Ein móðir var sem ekki gat fundið barni sinu neitt misbrot alla föstu út. Daginn áður eða á skirdag setti hún mjólkurfötu I göngin svo barniö datt um hana og steypti, enda fékk það ráðninguna. Eitt sprengidagskvöldið var gestur hjá bónda; boröaöi hann kjöt sem aðrir og leiföi miklu, en laugardag fyrir páska kom hann til bónda og heimti leifar sinar. Bóndi taldist undan þar til um nónbil; þá kom hann með kjötiö, en af þvi mygluna vantaði en þetta nýsoöið fór gesturinn meö þaö til prestsins og klagaöi bónda fyrir honum, en hvurnin sem bóndi afsakaði sig mátti hann um siðir aö meðganga brot sitt, sér heföi oröiö þaö svöngum að glepsa bita af leifunum. Prestur- inn skipaði honum aö gjalda sér leigurnar af ábýli hans i tiu ár, en gestinum skipaöi hann aö taka beztu kúna úr fjósinu hjá bónda. Borguöust meö þvi vel greiöa- launin. Einu sinni var einn grunaöur af presti sinum um skyrát; bauöst vinnumaöur hans til aö komast eftir þvi hjá bónda. Hann fór um kvöld upp á gluggann og kallaði hastarlega: „Þurrkaðu skyr úr skeggi þér maöur.” Bónda varö bilt við og strauk hendi niður um skegg sitt, en sá úti var tók votta aö bráðræöi bónda. Og mátti hann láta ábýli sitt fyrir misbrot sitt jafnvel þó hann aldrei heföi skyr borðaö i það skipti. (Úr Islenskum þjóðsögum og ævintýrum Jóns Arnasonar) lllt til aðdrátta, en ósköp mörgum að skammta Kerling er snikt haföi saman mikiö af fiskætum og öörum mat- vælum um sumariö baö þess um haustið að ef hún sálaðist um vet- urinn að senda þaö allt með sér til himnarikis þvi ekki mundi matur þar aflögu þar sem bæöi væri illt og langt til aödrátta, en svo ósköp mörgum aö skammta. 25% kyiutingarafsfáttw f\versfumtm Nýlega kom á markaðinn nýr Sanitas Safi í nýjum umbúðum. Sanitas Safinn inniheldur c-vítamín og er án litarefna. Við bjóðum 3 bragðtegundir af Sanitas Safa, appelsínusafa, sykursnauðan appelsínusafa og blandaðan ávaxtasafa í nýjum 1 líters og 1,8 líters umbúðum. „Sefítm semerengum tikun” Nú er 1,8 líters Sanitas Safinn á kynningarverði íverslunum. Borgartúni20 Sími 26788

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.