Þjóðviljinn - 06.02.1982, Blaðsíða 24
DJÚDVIUINN
Helgin 6.— 7. febrúar 1982.
Úr íslenskum
þjóðsögum
Sprengikvöldið
Þriðjudagskvöld i sjö vikna
föstuinngang gekk mikiö á aö
brytja og sjóöa hangikjötið. Þótti
litiö handa milli ef ekki var
sauðarfall fyrir fjóra. Skammtað
var á stórum diskum; var sumum
hótaö straffi ef ekki var boröaö
svo freklega sem hæfa þókti. Allir
mötuðust i hvllu sinni. Þá áttu all-
ir að gjalda þjónustu kaup og ekki
til oröa tekiö þó þær lægi hjá þeim
aö nóttinni. Þegar hjónin voru
búin aö boröa af langlegg og
mjöðminni var hvurttveggja
hengt upp yfir sæng hjónanna.
Dytti annaö fyrstu vikuna átti þaö
pariö að deyja þaö ár; dytti
annað eöa bæöi um föstuna boðaði
skammlifi, en langa lifdaga ef
uppi tolldu jafnlengd. Aö morgni
fyrir dag heimti bóndi saman
allar leifar. Geyma átti hann þær
allar þar til laugardag fyrir
páska. Þegar á fætur var komið
lagðist allt fólkiö frá útidyrum til
svefnhúsdyra, vóru settar iljar
viöhvirfil. En ef fleira var fólk en
ein röö var byrjað á annari.
Þarna var legið tvo tima þar til
öskudagur var bjartur um allt
loft. Enginn mátti nefna kjöt né
flot um alla langaföstu; lá viö þvi
fémunamissir eöa lausnir af
prestinum. Um sólaruppkomu
var tekið til verks með öskupoka-
burð á karlmennum, en steina-
burð á kvenfólki; var svo mikið
bragö aö þvi aö karlmenn sáust
meö pokana hangandi á sér I
kirkju, þvi þá var messað á miö-
vikudaga föstunnar. Enginn
mátti hafa nærklæðaskipti alla
föstu út, enn siöur kasta lús af
sér, og svo var rikt að þvi gengiö,
ef lús skreiö á úlfliö eöa úr höföi
manns, varö aö pota henni upp
undir ermi, barm eða i höfuöhár.
Enginn mátti banna barni sinu
hvurnin sem þau breyttu illa, þar
til á föstudag langa, þá var tekið
að flengja; var þaö gert meö
skorpum eftir sem mörg og mikil
þóktu afbrotin og mæöur vóru
heiftugar og haröir hegnendur.
Lágu þau oft blóörisa á eftir
marga daga.
Ein móðir var sem ekki gat
fundið barni sinu neitt misbrot
alla föstu út. Daginn áður eða á
skirdag setti hún mjólkurfötu I
göngin svo barniö datt um hana
og steypti, enda fékk það
ráðninguna.
Eitt sprengidagskvöldið var
gestur hjá bónda; boröaöi hann
kjöt sem aðrir og leiföi miklu, en
laugardag fyrir páska kom hann
til bónda og heimti leifar sinar.
Bóndi taldist undan þar til um
nónbil; þá kom hann með kjötiö,
en af þvi mygluna vantaði en
þetta nýsoöið fór gesturinn meö
þaö til prestsins og klagaöi bónda
fyrir honum, en hvurnin sem
bóndi afsakaði sig mátti hann um
siðir aö meðganga brot sitt, sér
heföi oröiö þaö svöngum að
glepsa bita af leifunum. Prestur-
inn skipaði honum aö gjalda sér
leigurnar af ábýli hans i tiu ár, en
gestinum skipaöi hann aö taka
beztu kúna úr fjósinu hjá bónda.
Borguöust meö þvi vel greiöa-
launin.
Einu sinni var einn grunaöur af
presti sinum um skyrát; bauöst
vinnumaöur hans til aö komast
eftir þvi hjá bónda. Hann fór um
kvöld upp á gluggann og kallaði
hastarlega: „Þurrkaðu skyr úr
skeggi þér maöur.” Bónda varö
bilt við og strauk hendi niður um
skegg sitt, en sá úti var tók votta
aö bráðræöi bónda. Og mátti hann
láta ábýli sitt fyrir misbrot sitt
jafnvel þó hann aldrei heföi skyr
borðaö i það skipti.
(Úr Islenskum þjóðsögum og
ævintýrum Jóns Arnasonar)
lllt til aðdrátta, en ósköp
mörgum að skammta
Kerling er snikt haföi saman
mikiö af fiskætum og öörum mat-
vælum um sumariö baö þess um
haustið að ef hún sálaðist um vet-
urinn að senda þaö allt með sér til
himnarikis þvi ekki mundi matur
þar aflögu þar sem bæöi væri illt
og langt til aödrátta, en svo ósköp
mörgum aö skammta.
25% kyiutingarafsfáttw f\versfumtm
Nýlega kom á markaðinn nýr Sanitas Safi í nýjum umbúðum.
Sanitas Safinn inniheldur c-vítamín og er án litarefna.
Við bjóðum 3 bragðtegundir af Sanitas Safa, appelsínusafa, sykursnauðan
appelsínusafa og blandaðan ávaxtasafa í nýjum 1 líters og 1,8 líters umbúðum.
„Sefítm semerengum tikun”
Nú er 1,8 líters Sanitas Safinn á kynningarverði íverslunum.
Borgartúni20 Sími 26788