Þjóðviljinn - 17.02.1982, Page 3
Miövikudagur 17. febrúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Siguröur Grétar Guðmundsson og Siguröur Jóhannesson í hlutverkum
sinum sem Madsen klæöskerameistari og þjóöskáldiö Toggi frá
Traöarkoti.
Leikfélag Kópavogs 25 ára:
Sýnir Leynimel 13
Um þessar mundir er Kópa-
vogsleikhúsiö tuttugu og fimm
ára. í tilefni af afmælinu mun
leikhúsiö sýna gamanleikinn
„Leynimelur 13” eftir Þridrang i
nýrri leikgerð Guörúnar
Ásmundsdóttur, en hún leikstýrir
verkinu sjálf.
Leikfélag Kópavogs var stofnað
5. janúar 1957. 1 tilefni afmælisins
boðuðu félagsmenn til blaða-
mannafundar i Kópavogsleikhús-
inu við Fannborg i gær. Þar kom
fram að alls hefði leikfélagið
staðið fyrir á milli 40 og 50
sýningum um dagana og hefði
fyrsta leikritið vérið Spanskflug-
an en Leynimelur 13, var hiö
næsta i röðinni.
Starfsemi leikfélagsins hefur
staðið með blóma þennan tima og
hafa sumir leikendur leikið með
þvi i 20 til 25 ár. A þessu leikári
hefur félagið átt mikilli velgengni
að fagna, gamanleikurinn
borlákur þreytti hefur verið
sýndur 85 sinnum fyrir fullu húsi
og eru gestir orðnir yfir 17.000 á
Þorláki. Þá er leikfélagið að sýna
leikritið Aldrei er friður eftir
Andrés Indriðason og hefur
sýningunni verið vel tekið. Þetta
mun vera i fyrsta sinn i sögu
félagsins sem ráðist er i aö sýna
þrjú leikverk á sama leikárinu.
1 máli leikfélagsmanna kom
fram að aðstaðan i leikhúsinu
væri ekki upp á það besta, en bær-
inn sýndi þó starfsemi leikfélags-
ins mikinn skilning miðað við það
sem gerðist annars staðar. Til
dæmis væri nú i bigerð að reisa
viðbótarbyggingu við leikhúsið og
yrði sú aðstaða nær eingöngu til
að bæta úr þörfum leikfélagsins
fyrir aukið húsrými
Leikarar i Kópavogsleikhúsinu
eru áhugaleikarar og tekur þessi
starfsemi mikinn tima. Þannig
þurfa leikarar að mæta á æfingar
Fylkingin og SFR:
Stuðningur
við
gæslumenn
Fylkingin hefur gert samþykkt
um stuöning viö baráttu
gæslumanna og starfsmanna á
Kleppsspitala og Kópavogshæli.
Hvetur liún verkfallsmenn til aö
standa fast á rétti sinum og hvika
hvergi frá markmiöi slnu. Fylk-
ingin fordæmir viöbrögö verka-
lýösforystunnar og telur fram-
komu Sóknarforystunnar vita-
veröa.
Þá segir Fylkingin að deilan
sýni glögglega að hagsmunir
verkalýðsforystunnar og verka-
lýðshreyfingarinnar fari ekki
alltaf saman og sé kominn timi til
að skipta um forystu, þegar hún
sé farin aö ganga erinda rikis-
valdsins og atvinnurekenda.
Fundur trúnaðarmanna Starfs-
mannafélags rikisstofnana 11.
febrúar 1982 lýsir einnig yfir ein-
dregnum stuðningi við kröfur og
baráttu gæslumanna innan SFR
og starfsmanna i Sókn á Klepps-
spitala og á Kópavogshæli.
Jafnframt hvetur fundurinn fé-
laga BSRB og ASl eindregiö til að
ráða sig ekki til starfa i stað
þeirra sem i verkfalli eru.
og sýningar eftir að vinnudegi
þeirra lýkur annars staðar og má
þvi segja að áhuginn sé brenn-
andi. Ekki kváðust leikararnir
leggja svo mikið á sig fyrir von-
ina um frægð eða frama heldur
væri ánægjan af starfinu og sam-
vinnan i hópnum aðalatriðið.
Hátiðasýning Kópavogsleik-
hússins mun fara fram 19.
febrúar kl. 20.30. Leikgerð Leyni-
mels 13 er töluvert breytt frá upp-
runalegri mynd, hefur henni
verið breytt til samræmis við lið-
andistundog atburöi, en leikritið
fjallar um leigunám ibúða og
hvernig koma megi húsnæðis-
lausum iófullnýtt húsnæði. i leik-
inn er bætt sprellfjörugum lögum
frá striðsárunum og hefur Jón
Hjartarson sett saman textana,
en Magnús Pétursson annast
undirleikinn. Leikmynd gerir
Ivan Török, ljósamaður er Lárus
Björnsson og búninga sér Halla
Harðardóttir um.
Um 20 manns koma fram i
sýningunni og fara með helstu
hlutverk Siguröur Grétar
Guðmundsson, Sigurður
Jóhannesson, Helga Harðar-
dóttir, Einar Guðmundsson, Sól-
rún Yngvadóttir, Sigriður Ey-
þórsdóttir og Hólmfriður Þór-
hallsdóttir. Svkr.
Rætt við Guðrúnu Helgadóttur borgarfulltrúa:
_
Anægjulegt að vinna
að dagvistunarmálum
Guörún Ilelgadóttir borgarfull-
trúi á sæti i félagsmálaráöi
Reykjavikur, en undir þaö heyrir
rekstur Félagsmálastofnunar
Reykjavikurborgar. Dagvistar-
deild er ein af deildum Félags-
málastofnunar og hefur sina eigin
stjórnarnefnd og er Guörún for-
maöur þeirrar nefndar. Þjóö-
viljinn spuröi hana um helstu viö-
fangsefnin á kjörtimabilinu.
Það var vorið 1979 að Félags-
málaráð skipaði starfshóp til að
gera áætlun um uppbyggingu
dagvistarheimila i Reykjavik.
Þvi verki var lokið i haust og
hefur áætlunin verið samþykkt I
borgarstjórn. bar er stefnt að þvi
marki, að þörf fyrir dagvistar-
rými verði fullnægt fyrir 1990. 1
áætlun þessari var t.d. tekið mið
ibúafjölda i borginni, breyttri
nýtingu dagvistarrýmis og mörgu
fleira og liggur þessi mikla vinna
fyrir I fjölriti.
Haustið 1979 var svo öðrum
starfshóp falið að vinna aö gerð
tillagna um innra starf dagvistar-
heimila og hefur sá hópur einnig
lokið störfum og tillögurnar hlotið
samþykki borgarstjórnar. Þessar
tillögur eru til i f jölriti eins og þær
fyrrnefndu. Margar af tillögum
vinnuhópsins eru þegar komnar
til framkvæmda, svo sem
blöndun aldurshópa, undir-
búningstími fóstra, sveigjanlegur
starfstimi, foreldrasamstarf o.fl.
Þá hefur Alþingi samþykkt að
láta gera námsskrá fyrir dag-
vistarheimili, en hópurinn geröi
tillögur þar að lútandi.
Hvaö hafa bæst mörg dagvist-
arrými viö á kjörtímabilinu?
Frá miðju árinu 1980 og til loka
kjörtimabilsins hafa bæst við 577
dagvistarrými á tiu dagvistar-
stofnunum.
1 þessu sambandi er rétt að
geta þess nýmælis aö leikskóla-
deildirnar við Hólaborg eru i ein-
ingahúsum úr timbri, en slik
byggingaraðferð tekur mun
minni tima en heföbundinn
byggingamáti og er auk þess
ódýrari. Eru þvi nokkrar vonir
bundnar við að á þann hátt megi
hraða uppbyggingu dagvistar-
stofnana i borginni, enda ljóst að
leita verður nýrra leiða i vþi efni.
I árslok 1980 starfrækt Reykja-
vikurborg 43 dagvistarheimili
fyrir samtals 3023 börn, en auk
þess styrkir borgin nokkur dag-
vistarheimili, sem rekin eru af
einkaaöilum.”
Veröur rekstur gæsluvallanna
óbreyttur áfram?
,,Um siöustu áramót tók dag-
vistarnefnd við gæsluvöllum
borgarinnar og er ætlunin að gera
úttekt á þeim rekstri á næstunni.
Það er ljóst að sá rekstur verður
að breytast, ef hann á aö koma á
móts við þarfir útivinnandi
mæöra, en mikill hluti kvenna
vinnur utan heimilis. Þaö má með
minni tilkostnaði bæta þjón-
ustuna viö samborgarana á þessu
sviði.
Þaö hefur verið'stefna meiri-
hlutans i borgarstjórn aö koma á
móts við félagslegar þarfir fólks i
sem rikustum mæli. Ég vil i sam-
bnadi við þessi mál segja frá þvi
aö i byrjun kjörtimabilsins voru
dagvistarheimili opnuð i rikara
mæli en áður þroskaheftum
börnum. Ráðinn var sálfræöingur
við dagvistarheimilin og siðan
var öörum bætt við. Þá starfar
talkennari viö heimilin”.
Hvaö er helst á döfinni um
þessar mundir?
,,Nú standa yfir samningar á
milli stjórnar dagvistunarmála
og fræðsluyfirvalda um mögu-
leika á skóladagheimili i Laugar-
nesskólanum. Arið 1980 var
stofnaö skóladagheimili i Austur-
bæjarskólanum og hefur sá
rekstur gengið verulega vel. Ég
tel eðlilegt aö nýta húsnæði
grunnskólanna, ef fækkun i þeim
leyfir slikt.
Nýlega hefur veriö samþykkt
fjárhagsáætlun Reykjavikur fyrir
áriö 1982. Hvaö er áætlað aö
byggja mörg dagheimili á þessu
ári?
A fjárhagsáætlun þessa árs er
gert ráð fyrir aö byggja 2 ný dag-
heimili, annað við Bústaðaveg en
hitt við Bólstaðahlið. Fram-
kvæmdir eru að hefjast við nýtt
dagheimili við Hraunberg. Þá
mun Sumargjöf ljúka við bygg-
ingu nýs dagheimilis á Skóla-
vöröuholti i staö gömlu Grænu-
borgar og mun borgin trúlega
taka viö rekstri þess.
Hvernig hefur þér svo likaö aö
vinna aö þessum málum á kjör-
timabilinu?
Það hefur verið mikil ánægja
þvi samfara að vinna með stjórn
dagvistarmála, en þar sitja
meðal annarra fulltrúar foreldra
og starfsfólks. Dagvistarstofn-
anir hafa fyrirtaks starfsfólk,
sem hefur veriö áhugasamt um
að gera breytingar og lag-
færingar og margar þær hug-
myndir, sem komið hefur verið i
framkvæmd eru frá þvi komnar,
sagði Guðrún Helgadóttir að
lokum. Svkr.
Alþýðubandalagið:
Svavar
Logi
Rannveig
Kristján
Ráðstef na um
sveitarstjórnarmál
haldin dagana 27. og 28. f ebrúar 1982 og hefst kl. 13Í30 f yrri daginn.
Fundarstaður: HÓTEL ESJA, Reykjavik
Ráðstefnustjórar: Hilmar Ingólfssonog
Kristjáh Thorlacíus
DAGSKRA:
1) Ávarp: Svavar Gestsson
2) Ahersluatriði AB í komandi sveitarstjórnarkosningum:
Framsaga: Sigurjón Pétursson.
2.1) Lýðræði og vaiddreif ing
2.2) Atvinna
2.3) Uppeldi, fræðsla og tómstundir.
2.4) Félags- og heilbrigðisþjónusta
2.5) Umhverf i og skipulag
2.6) Framsetning stefnumála og blaðaútgáfa.
Stutta kynningu á hverjum málaflokki flytja eftirtalin: Logi Kristjánsson,
Rannveig Traustadóttir, Kristján Asgeirsson,Alfheiður Ingadóttir, Þorbjörn
Broddason og Stefán Thors.
Umræðuhópar fjalla um liði 2.1.—2.6.
3) Samvinna ríkis og sveitarfélaga um framkvæmdir rekstur og tekjuöflun:
Framsaga: Adda Bára Sigfúsdóttir.
4) Samskipti sveitarstjórnarmanna Alþýðubandalagsins innbyrðis við flokk-
inn:
Framsaga: Soffia Guðmundsdóttir.
5) Skýrsla umræðuhópa og afgreiðsla mála.
Þátttaka tilkynnist á skrifstof u AB sími 17500.
Stelán
Adda Bára
Soffia
Alfheíöur
Sigurjón