Þjóðviljinn - 17.02.1982, Síða 7
Mibvikudagur 17. febrúar 1982 þjóÐVILJINN — SIÐA 7
Reykjavíkurskákmótið
umsión: Helgi Ólafsson og Einar Karlsson
Slæmur dagur íslensku
keppendanna í gær
Gurevic endurheimti forystuna
Allt gekk á afturfótun-
um hjá íslensku keppend-
unum í 7. umferö Reykja-
víkurskákmótsins/ sem
tefld var aö Kjarvals-
stöðum í gærkvöldi.
Erlendu keppendurnir
raða sér nú smám saman
iefstu sætin.
Friðrik Ólafsson lenti enn
einu sinni i slæmu timahraki, og
staða hans hrundi um það bil
sem timamörkunum var náð.
Helgi Ólafsson fékk snemma
verri stöðu, sem Abramovix var
ekki i vandræðum með að vinna
úr.
Guömundur Sigurjónsson
hafði lengst af örlitið betra tafl
gegn Horvath, en með
nákvæmri vörn tókst Ungverj-
anum að halda jafntefli.
Ljósu punktarnir voru skákir
Hauks Angantýssonar og Jóns
L. Arnasonar, sem báðar fóru i
bið. Staða Hauks er óljós, en Jón
L. var með betra i endatafli.
Júliusi Friðjónssyni tókst ein-
um að sigra erlendan mótherja
sinn, Goodman frá Englandi.
Úrslitin uröu annars þessi:
Gurevic-Alburt............1-0
Helgi-Abramovic .........0-1
Schneider-Adorjan.........1/2
Byrne-Ivanovic...........BIÐ
Jón L.-Helmers............BIÐ
Kogan-Sahovic.............1/2
Wedberg-Burger............BIÐ
Firmian-Haukur............BIÐ
Shamkovic-Bischoff........1-0
Zaltsman-Sævar...........BIÐ
Guðmundur-Horvath ........1/2
Iskov-Mednis..............1/2
KrShenbUhl-Bajovic .......0-1
Kaiszauri-Jóhannes........1-0
Friðrik-Forintos..........0-1
Margeir-Jóhann Hj.........BIÐ
Frey Grunberg.............1/2
Kindermann-Leifur.........1-0
Kuligowski-Jónas P........1-0
Stefán Briem-Elvar........1-0
Hilmar-Höi................0-1
Westerinen-Benedikt.......1-0
Júiius-Goodman............1-0
Dan Hansson-Savage........BIÐ
Karl Þorst.-Róbert........1/2
ÁsgeirÞór-Jóhann ÞÓrir ....1/2
Magnús-Jóhann örn.........BIÐ
Shamcovic hafa 4.5 vin. Fleiri
gætu bæst i hóp 5 og 4.5 vinninga
hópana vegna ólokinna biö-
skáka. —eik
Alþjóðlegi meistarinn Gurevic
hefur nú endurheimt forustuna.
Gurevic tefldi skynsamlega
gegn Alburt, og nýtti sér vel
timahrak hans. Alburt tókst þó
ávallt að rata leiðina til að halda
stöðunni, en þegar hann féll á
tima var staðan óljós. Sjálfur
taldi Gurevic að svartur ætti aö
halda jafntefli með bestu tafl-
mennsku.
Staðan er þá þannig aö Gure-
vic er efstur með 6 vinninga,
Arbamovic hefur 5.5 vin.
Schneider og Alburt hafa 5 vin.
Adorjan, Helgi, Kogan,
Sahovic
kærði
Eins og oft vill verða bilaði
skákklukka sú er mældi tima
þeirra Wedbergs og Sahovic i
skák þeirra á mánudagskvöld.
Einn af dómurum mótsins sótti
nýja klukku, stillti timann eins
og var á þeirri sem fyrir var og
skipti siöan um.
Allt mun þetta eftir laga-
bókstöfum, en i gær lagði Saho-
vic fram kæru á hendur dómar-
anum, öttari Felix Haukssyni,
og taldi sig hafa verið truflaðan
i timahraki.
Málinu var skotið til yfirdóm-
nefndar, en hún hafði ekki skil-
að áliti i gærkveldi.
Einn af forsvarsmönnum
mótsins sagöi i gærkveldi aö
Óttar hefði i öllu farið rétt að, og
að kæruna mætti flokka undir
nöldur. —eik —
Hasar vegna
mótsblaðsins
Miklar deilur risu á
Kjarvalsstöðum í gær-
kveldi vegna fimmta
tölublaðs mótsblaðsins
milli forystumanna
Skáksambands islands og
aðstandenda útgáfunnar.
Ritstjóri blaðsins er
Högni Torfason, og hon-
um til aðstoðar hefur
verið Haraldur Blöndal.
Tilefni deilunnar var grein i
blaðinu, eftir Einar S. Einars-
son, fyrrum forseti S.I.sember
heitiö „Nordic chess”. Mun þar
vera um að ræða gamla grein
eftir Einar, sem Þorsteinn Þor-
steinsson varaforseti S.í.
kallaði i gærkveldi „gamla
lummu fulla af rangfærslum”.
Þarna virðast aftur komnar
upp á yfirboröiö gamlar deilur
núverandi forystu Skáksam-
bandsins og Einarsmanna, eins
og frægt var á sinni tið.
Málalyktir urðu þær að öllu
hafurtaski þeirra Högna og
Haraldar var komið burt úr
þeirri aðstöðu sem þeir höfðu á
Kjarvalsstöðum, meö þeim orð-
um Þorsteins aö
aödáendaklúbbs
„starfssemi Einarssonar færi ekki fram á
Einars S. þessum stað!” __eik—
X.REYKJAVIKUR
SKAKMOTIO
Biðskákir fra
í fyrrakvöld
A mánudagskvöld voru tefld-
ar áfram nokkrar biðskákir.
Helstu tiðindin af þeim er sigur
Gurevic á Burger, og náði Gure-
vic Alburt að vinningum, þeir
hafa báðir 5 vinninga af 6 mögu-
legum.
Abramovic skaust einnig upp
á toppinn með þvl að sigra
Firmian. öðrum biðskákum
lyktaöi þannig að Kogan vann
Höi, Mednis vann Savage og
jjafntefli gerðu Horwath og
iShamkovic.
Alls voru fimm biðskákir óút-
kljáðar fyrir umferöina I gær-
kvöldi. Það voru skákir þeirra
Margeirs og Jóhannesar Gfsla,
Sahovic og Wedbergs, Forintos
og Krahenbiihls, og úr fimmtu
umferð skákir þeirra Benedikts
iOg Goodman, Dan Hansson og
Jóhanns Þóris Jónssonar.
Frí í dag
i dag fá keppendurnir á
Reykjavíkurmótinu að
slappa af fyrir loka-
sprettinn á mótinu.
Einhverjir mega þó sitja
yfir biðskákum, sem
hreinsaðar verða upp,
þannig að úrslít eiga að
vera komin i öllum
skákum þegar sest
verður við taf Iborðin i 8.
Keppendur gera sér ýmislegt
til dundurs i dag, og þar á meðal
má nefna boö borgarstjórnar
Reykjavikur að Höfða. Verða
þar án efa veitingar góðar, og
má i þvi sambandi vitna I orð
Helga ólafssonar I timaritinu
Skák, er hann minnist á sams-
konar uppákomu vib siðasta
|Reykjavíkurmót.
Annars var þab athyglisvert að
vart var i þaö kot komið, að ekki
var tekið við að sulla oni gesti
brennivini i stórum stfl. Eins og
kunnugt er þá þarf sterk bein til
að þola slikar trakteringar,
enda höfðu menn fyrir satt að
óeðlilega hefði gengið á
limonaðibirgðir keppenda eftir
ihvern fridag!” —eik—
Háskólatónleikar
á föstudaginn:
Edda
Erlendsdóttir
píanóleikari
Næstu háskólatónleikar verða I
hádeginu föstudaginn 19. febrúar
i Norræna húsinu. Edda Erlends-
dóttir leikur á pianó stutt verk
eftir frönsku tónskáldin Emman-
uel Chabrier, Gabriel Fauré,
Claude Debussy og Maurice
Ravel. Tónleikarnir hefjast kl.
12.30 og standa i um þaö bil hálfa
klukkustund.
Edda Erlendsdóttir, planóleikari
Tilkyimlng írá AA
Að gefnu tilefni óskar Lands-
þjónustunefnd AA-samtakanna á
tslandi að taka eftirfarandi fram:
AA-samtökin standa ekki að
fundum til kynningar á með-
feröarstofnunum, enda rekstur
þeirra og fjármaálaumsvif þeim
viðkomandi víös fjarri hlutverki
samtakanna. Þau hafna allri
utanaðkomandi fjárhagsaðstoö
og sjá sér efnalega farborða með
frjálsum samskotum félaga.
AA-samtökin eru sjálfstæð
heild og óháö hvers kyns félags-
skap öörum, hvort heldur er á
vegum opinberra aðila eða ein-
staklinga, sem vinna að áfengis-
málum utan samtakanna. Ofan-
greint eru menn beðnir að hafa i
huga þegar AA-samtökin ber á
góma.
Landsþjónustunefnd
AA-samtakanna
á tslandi
„Algjört
æði”
í Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Leiklistarfélag Menntaskólans
við Hamrahlið frumsýnir i dag kl.
20.00 Ieikritið „Algjört æði” eftir
Howard Brenton I leikstjórn Rún-
ars Guöbrandssonar.
Þetta er frumsýning verksins
hér á landi en áöur hafa nemend-
ur Menntaskólans viö Sund sett
upp eftir Brenton leikritið „Gum
og Goo” einnig I leikstjórn og
þýöingu Rúnars Guðbrandssonar.
Með stærstu hlutverk fara þeir
Eirikur Hjálmarsson sem leikur
Jed og Halldór J. Jörgenssen sem
leikur Will.
önnur sýning verður fimmtu-
dag 18. febrúar, 3. sýning verður
mánudag 22. febrúar, 4.- verður
mánudag, 1. mars og 5. sýning
þriðjud. 2. mars. Sýningarnar eru
allar i hátiðasal Menntaskólans
við Hamrahlfð og hefjast allar kl.
20. Miðaverö er 40 krónur fyrir
nemendur skólans en 50' krónur
fyrir almenning.
—v.
Úr „Algjört æöi” eftir Howard Brenton.