Þjóðviljinn - 19.02.1982, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 19.02.1982, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÖDVILJINN Föstudagur 19. febrúar 1982 KÆRLEIKSHEIMILIÐ VÍðtalíd Æ, nei, mamma, ekki láta mig í sturtu. Rætt við Dollý Nielsen og sagt frá Málfreyju- samtökunum á Islandi „Sýn okkar greinir ekki langt fram í tímann” Nýlega heimsótti okkur á Þjóöviljanum frú Dollý Nielsen, formaður útbreiöslunefndar Málfreyjusamtakanna á ts- landi, og vildi kynna félagsskap þennan Warren Stewart sellóleikari. Ljósm. Jerry Bergman. Bandariskur selló- leikari í Norræna húsi á miðvikudag: Warren Stewart leikur verk eftir Bach, Britten og Stockhausen Bandariski selióleikarinn Warren Stewart heldur hljóm- leika i Norræna húsinu þ. 24. febrúar kl. 20.30. Hann stundar nám viö einleikaradeildina á „Det kongelige danske Musik- konservatorium”, i Kaup- mannahöfn, og vinnur þar með Erling Blöndal Bengtson pró- fessor. Hann er útskrifaður frá „The Eastman School of Mus- ic”, oghefur lærtmeð Paul Katz og Laurence Lesser. Hann hlaut styrk til náms i Danmörku, The George C. Marshall Scholar- ship. Warren Stewart mun kynna dagskrá fyrir sellóeinleikara, sem inniheldur svitu nr. 5 i c- moll eftir J. S. Bach, nýtt verk eftir Karlheinz Stockhausen með titilinn In Freundschaft og Kariheinz Stockhausen aðra svitu Benjamins Britten. Selló útgáfan af verki Stock- hausens, sem upphaflega var skrifað fyrir klarinettu, varð til úr samvinnu Stewarts og tón- skáldsins i janúar 1981. Áfram- haldandi samvinna þeirra hefur skapað nýtt verk, einnig upp- haflega ættlaö fyrir klarinettu, með titilinn Amour, sem enn hefur ekki verið flutt opinber- lega. Verk Britten, ein af þremur svitum hans fyrir sellóeinleik- ara, var samin 1967 og fyrst flutt opinberlega á the Aldeburgh Festival af Mstislav Rostropov- ich árið 1968. Doliý Neilsen: „Við viljum bæta einstaklinginn”. — Samtök okkar, sem eru starfandi i flestum lýðræðisrikj- um, voru stofnuð i Bandarikjun- um árið 1938, en fyrsta deildin á Islandi, Puffin, var stofnuð á Keflavikurflugvelli fyrir 9 ár- um, sagði Dollý Nielsen. I þeirri deild voru bæði konur banda- riskra hermanna og islenskar konur, og unnu þær saman að þvi markmiöi samtakanna að þjálfa einstaklinginn, vinna bug á feimni, og verða betri áheyr- andi og flytjandi. Siðan hafa veriö stofnaöar 10 islenskar deildir, þar af ein I Luxemburg, og eru aldrei fleiri en 30 konur i hverri deild, til þess að allar séu virkar og hafi jöfn tækifæri. — Eru samtökin að einhverju leyti tengd kvenréttindahreyf- ingunni? — Nei, við vinnum bara aö þvi að efla einstaklinginn. — Eru einhverjir karlmenn i þessum félagsskap? — Nei, hann er eingöngu fyrir konur. — Ilvernig er starfseminni háttað? — Viö höldum fundi hálfs- mánaöarlega, og á hverjum fundi fá konur ákveöið mál til aö fjalla um á næsta fundi. Siðan höfum við stigakerfi og gefum einkunnir eftir þvi hve vel kon- an hefur staðið sig. Stigin skipt- ast eftir þvi hvort um grunn- þjálfun, viöbótarþjálfun eöa framhaidsmenntun er að ræða. 1 fréttabréfi samtakanna, sem heitir Freyja, er birt ensk ræða úr spólukeppni á ársþingi ASM 1976, en ræðan hlaut þar 2. verðlaun. Ræðan er eftir Eriu Guðmundsdóttur og heitir Mið- aldaskeið vélvæðingaraflsins. Þar segir m.a.: „Sýn okkar greinir ekki langt fram i timann, ef tekið er mið af visindalegum framförum og tækniþróun, nema ef telja skyldi ofsjónir þær, sem nútimamað- urinn gerir sér, er hann reisir skýjaborgir sinar i ölvimu tölvuheims og undir áhrifum hins nýja LSD: — Lausn (frá) Skyldu (og) Dug — (Liberating — Slave — Devise), Leyfi selt Dýrt (Licence-Sold-Dear), Lif (i) Skyndi Deytt (Life-Soon- Dead) eöa Lúksus Sýkis Drómi (Luxury-Seeking-Drive). Nei, flest okkar geta einungis nýtt sér sina venjulegu sjón, beint henni út á við og siðan inn á viö og athugað af gaum- gæfni...” Siöar i greininni segir: „Og hvað um konuna? Getur hún hjálpað til að forða honum (manninum i dag) frá tortim- ingu sjálfs sin og annarra, vegna ábyrgðarlausra gerða sinna? Er það þess vegna sem konan nú krefst þess að hlustað veröi á hennar raust? Raust hennar heyrist ekki ennþá, vegna gnýs og glamurs I vélum sem keyrðar eru áfram við framleiöslu vopna, mengandi efna, hættulegra ökutækja, svo ekki sé minnst á hin huldu raf- eindatæki sem eru eins og veir- ur i mannslikamanum, sem smeygja sér inn i tilveru okkar eins og martröð á þeim tima sem viö ættum guðs og manna lögum samkvæmt að hvila okk- ur, sofa, endurnýja lifskraftinn, — friðarspillar tilverunnar. Ismeygilegar raddirnar sem hvetja, já jafnvel skipa okkur að gera þetta eða hitt rétt eins og hver snefill dómgreindar sé horfinn mönnum. Grimmd og feimnismál, já jafnvel siöspill- ing eru leidd fram eins og á rómverskum leikum fyrrum, á þessum skjá sem við i barnslegu sakleysi héldum aö væri dýr- mæt gjöf til mannkynsins. Hversu hroðaleg er ekki mis- notkun og ofnotkun vélvæðing- arinnar. Hvert á hún eftir aö leiða okkur, —höfum við taum- haid á henni, eða er hún meö taumana i höndunum?” Það skal tekið fram, að verð- launaræöa þessi var flutt á ensku á spólukeppninni, en er hér birt i þýðingu höfundar. 1 kynningarbæklingi samtak- anna kemur fram, að Mál- freyjusamtökin eru ekki bara konum til góðs, þvi þar er haft eftir bandariskum athafna- manni: „Ég var alltaf hræddur við fundi og ræðuhöld. En eftir að konan min gekk i Málfreyju- samtökin höfum við aflað okkur þekkingar á fundarsköpum og nú get ég stjórnað fundi af rögg- semi, hvað þá heldur hún...” Að sögn frú Dollýar Nielsen er nú i undirbúningi aö stofna fleiri Málfreyjudeildir á íslandi. ólg Ef marka má lesendabréfin i Dagblaðsvisinum geta tslend- ingar nú um stundir aðeins sameinast um það eitt að kalla Dallas yfir sig aftur. Hvaðan kemur allt þetta ryk? © Bvlls Þetta kemur inn. um gluggana. Og ég sem hélt að viö ■ værum svona miklir sóöar^) »

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.