Þjóðviljinn - 19.02.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.02.1982, Blaðsíða 3
Föstudagur 19. febrúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Dagblaðiö og Vísir: Menningar- verðlaun Hin árlegu menningarverölaun Dagblaðsins og Visis voru afhent i gær, og er þetta i fjóröa sinn sem slik verðlaun eru veitt. Að þessu sinni hlaut Vilborg Dagbjarts- dóttir verðlaun fyrir bók sína „ljóð”, Arni Kristjánsson pianó- leikari hlaut tónlistarverðlaun, Asgerður Búadóttir myndlistar- verðlaun og Hjalti Rögnvaldsson leiklistarverðlaun, fyrir hlutverk sitt i „Húsi skáldsins”. Þá hlaut „Útlaginn” kvikmyndaverðlaun og Birna Björnsdóttir hlaut verð- laun fyrir byggingarlist, en hún hannaði strætisvagnaskýlið við Landspitalann. Verðlaunagripinn i ár gerði Sigrún Guðjónsdóttir. A myndinni sjáum við Arna, Ásgerði, Jón Þórisson (F.h. „Útlagans” Birnu, Vilborgu og önnu RögnvaldsdótturC konu Hjalta Rögnvaldssonar), við af- hendingu verðlaunanna. Eirikur Tómasson formaður íþróttaráðs Reykjavíkur i ræðustól I gær en þá var úthlutað heiðurs- og styrkveitingum úr styrktarsjóði iþróttaráðs. Sjá nánar bls. 11. Ljósm: eik Tíðin bætir stöðuna í vatnsbúskapnum: Skerðing á forgangsorku nú afnumin Landsvirkjun hefur afnumið þá skerðingu á forgangsorku sem tekin var upp til stóriðju og Kefla- vikurf lugvallar i byrjun mánaðarins. Vegna hagstæðrar tiðar undanfarið hefur staðan i vatnsbúskap Landsvirkjunar batnað til muna, og er ekki talin þörf á frekari skerðingu. Hún var um mánaðarmótin talin óhjákvæmileg vegna óhags- I stæðrar vatnsstöðu á hálendinu og talið að til að gæta fyllsta öryggis þyrfti skerðingin að nema alls 10% eða 35,5 megawöttum af forgangsaflsþörfinni. Bættur vatnsbúskapur varð þess valdandi að skerðingin var minni en ella, eða aðeins 6,7% þeas. 23.8 megawött þegar hún varð mest og bitnaði eingöngu á stóriðju og Keflavikurflugvelli. í frétt frá Landsvirkjun i gær segir að henni hafi nú verið aflétt. . —ekh Hvammstangi: Fundaröð á vegum Alþýðubandalagsins Hvammstanga 16. febrúar. Laugardaginn 21. nóvember sl. var haldinn opinn fundur i Fé- lagsheimilinu á Hvammstanga um skóla-, iþrótta- og æskulýðs-, mál á vegum Alþýðubandalagsfé-: lags V-Húnvetninga. Var þaö fyrsti fundurinn i fundaröð um af- markaða málaflokka. Frummæl- endur voru Eyjólfur Magnússon skólastjóri og Fleming Jessen iþróttakennari. Fundur um heilbrigðismál var svo haldinn 30. janúar sl. og voru frummælendur Matthias Hall- dórsson héraðslæknir og Þóröur Skúlason sveitarstjóri. Hefur þetta frumkvæði AB mælst vel fyrir hjá bæjarbúum enda fundir veriö vel sóttir. Bröttugata boðin aftur Borgarráð ákvað á fundi sinum s.l. þriðjudag að bjóða aftur út Bröttugötu 6, en sá sem var meö efsta tilboð i húsið haföi fallið frá tilboði sinu. Næsti fundur verður svo núna um helgina, 20. febrúar og verður hann um iðnaöar- og atvinnumál og hefst kl. 14.00. Frummælendur verða Pétur Eysteinsson iðnþró- unarfulltrúi Norðurlands og Brynjólfur Sveinbjörnsson mjólk- urbússtjóri. Að lokum verður svo haldinn fundur um sveitastjórnarmál i mars. Allir þessir fundir hafa verið opnir öllum áhugamönnum. Eyjólfur Sýningar á Operunni falla niður Fella verður mður synmgar á „Sigaunabaróninum” um helgina vegna veikinda Garöars Cortes. — Er þetta i fyrsta sinn sem af- lýsa verður i óperunni eftir 22 sýningar, jafnán fyrir fullu húsi. Arni Reynisson, framkvæmda- stjóri óperunnar sagði i viðtali við blaðið i gær að miðar á þessar tvær sýningar, sem áttu að vera á föstudag og sunnudag, væru endurgreiddir i miðasölunni, en n.k. miðvikudag verður siðan byrjað að selja miða á ný. VOLVO PENTA eru úrvals bátavélar. En jafnvel úrvals vélar þarfnast reglulegs eftirlits og viðhalds. Viðhaldsþjónustu Veltis er við - brugðið enda einvala lið sem hana annast. En því miðurerekki hægt að sinna öllum í einu og þess vegna er áríðandi að hafa tímann fyrir sér og panta strax. Jóhann Kárason er þjónustustjóri Penta vélanna. Hafið samband við hann eða sam- starfsmenn hans hið fyrsta. SUÐURLANDSBRAUT 16 SÍMI 35200 VOLVO o 2

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.