Þjóðviljinn - 16.03.1982, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.03.1982, Blaðsíða 2
2 SIÐA— ÞJÓÐVILJINN I Þriöjudagur 16. mars 1982 viðtalið Ásmundur Hilm- arsson, starfsmaður framkvæmda- nefndar Vinnu- ✓ verndarárs ASI: Mikilvægt að kynna vinnu- vemdar- lögin A þingi ASÍ i nóvember 1980 var samþykkt, aö áriö 1982 skyldi vcröa Vinnuverndarár ASi. i framhaldi af þessu hafa la ndssa mbönd in innan ASt skipað 11 manna framkvæmda- nefnd, og er Ásmundur Hilm- arsson starfsmaður nefndarinn- ar. — Við hölum oröið varir við það, að fólk áttar sig ekki á þvi, að ný vinnuverndarlög gengu i gildi 1. janúar 1981, en þau í'ela i sér nokkra breytingu Irá þvi sem áður var, sagði Ásmundur Hilmarsson i viðtali við blaðiö. Það var i Sólslöðusamningun- um 1977, sem báðir aðilar komu könnun á öryggi á vinnustöðum, og að lög um öryggi á v innustöð- um yrðu tekin til endurskoö- unar. Nýju v'innuverndarlögin voru siöan samþykkt i kjöliar þessa, en þau fela það i sér, aö örygg- iseftirlitið, sem áður átti aö hafa með höndum öryggiseítirlit á vinnustöðum var lagt niður, en það hafði sýnt sig að sU stofnun gat ekkiannað þvi verkefni sem henni var ætlað eins og að henni var bUið. Samkvæmthinum nýju lögum er gert ráð fyrir að vinnustaður- inn hirði sjálfur um að öryggis sé gætt i auknum mæli og þvi er ákaflega mikilvægt að menn átti sig á réttindum sinum og skyldum. I lögunum er m.a. gert ráð fyrir þvi að vinnustað- ir, þar sem starfa 10 menn eöa fleiri, skuli starfsmenn kjósa sér öryggistrUnaðarmann en at- vinnurekandi tilnefna öryggis- vörð af sinni hálíu. Ber þeim að hafa samvinnu og fylgjast með að öryggi og aðbUnaöur sé i samræmi við lög og reglur. Hvaða reglur gilda um minni vinnustaði? Þar ber trUnaöarmanni og at- vinnurekenda eða verkstjóra að sjá til þess i samvinnu, að sömu reglum sé fyigt. Það er eitt af meginverkefn- um framkvæmdanefndarinnar aðkynna þessilög, oghölum við boðað til sérstaks íundar með öryggistrúnaðarmönnum i þvi skyni. Hvað er fleira á döfinni hjá ykkur? Við erum nU að láta gera 10 veggspjöld, sem ætluð eru til dreifingar á vinnustöðum. Þá eru i undirbUningi 7 bæklingar er fjalla um afmörkuð svið ör- yggis- og hollustumála, eitur- efniá vinnustað, likamsbeitingu við vinnu o.s.frv. Þá munum við reyna að vekja almenna um- ræðu og áhuga á þessum mikil- vægu málum sagði Ásmundur að lokum. Hvað er 1 síga- rettunum? í nýjustu skýrslu bandariska læknasambandsins er bent á fáránlega breytingu sem orðið hefur á sigarettum framleidd- um vestanhafs og ef til vill viðar. Tóbaksiðnaðurinn hefur reynt að halda velli og fá menn tii að reykja áfram með þvi að minnka tjöru- og nikontininni- haldið i sigarettunum. A sama tima hafa sigarettufram- leiðendur bætt ýmiss konar efn- um I sigaretturnar — að nokkru leyti til að bæta upp það bragð sem tapast með minnkandi nikótini og tjöru. í ljös hefur komið að þessi efni eru lika hættuleg. Hversu mikil hætta stafar af þessum efnum er ómögulegt að setja þar sem hinir ýmsu fram- leiðendur telja það framleiðslu- leyndarmál hvað þeir setja i sigaretturnar. En talið er vel h'klegt að það sem sett er i þess- ar sigarettur, sem i orði kveðnu eiga að vera hættu- minni, sé jafnhættulegt og það sem burtu var numið... Vitað er að sum af þeim efnum, sem i sigaretturnar er bætt, eru krabbameinsvaldar eða fram- leiða krabbameinsvald við bruna. Og vel má vera að þannig efni, sem sérstaklega .eru notuð til að auka bragð, séu einmitt notuð i mestum mæli i þær sigarettur sem minnst hfa tjörumagnið. Um þetta veit enginn utan tóbaksiðnaðarins Öldungar á flakki Myndasaga eftir EMIL & HálLGRÍM © (ÁHA! SKRI0DREKAÞ3ÖFARNIR) ( FARIO MEB Þð ) EIWNGRUNARKIEFAI7AI j V Mér skilst að Islendingar hafi ekki lifað lifinu fyrr en byrjað var að sýna Dallas I Sjónvarp- inu. Stórgræddu á beinu út- sendingunni Beina útsendingin á Urslita- leik dei Ida rbikarkeppninnar ensku sl. laugardag, gerði svo sannarlega stormandi lukku. Reykjavik var sem dauðs- mannsborg meðan á Utsending- unni stóð, allar götur tómar. Sjónvarpið hefur haldið þvi fram að slikar beinar útsend- ingar væru svo dýrar, að ekki væri gerlegt nema við hátiðleg tækifæri að kaupa slikt efni. Sannleikurinn er sá að sjón- varpið stórgræddi á Utsend- ingunni sl. laugardag. Auglýs- ingar i leikhléi tóku 9 minútur og kostar hver minúta 8.250 kr. Færri auglýsingar komust að i leikhléinu en óskað var eftir. Það liggur þvi i augum uppi að sjónvarpið getur tekið upp bein- ar útsendingar frá ensku knatt- spyrnunni á hverjum laugar- degi, auglýsingar i leikhléi slikra leikja væru fundið fé fyr- irstofnunina. Eftir hverjuer þá verið að biða? Fróðleiks- molar um stofublóm 4. Begónia Begoni'ur eru til i mörgum og fallegum afbrigðum. HUn má visna niður á haustin, þegar vökvun skal hætt. Knopparnir sem á plöntunni eru, varðveitast yfir veturinn i moldu, þar sem jöfnu rakastigi skal haldið að þeim. Birta: t góðri birtu en ekki i sólargeisla. Vökvun: Begóniuna skal vökva vel á vorin, en halda sem jöfnustu rakastigi, ekki mjög háu, á öðrum árstiðum. Aburður: Bera vel að plönt- unni á tveggja vikna fresti.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.