Þjóðviljinn - 16.03.1982, Side 7

Þjóðviljinn - 16.03.1982, Side 7
Þriðjudagur 16. mars 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Húsnæðismá last jórn hefur ákveðið lánveitingar til orkuspar- andi brevtinga, meiriháttar viðbygginga og m eiriháttar endurbóta, svo eitthvað sé nefnt. Á myndinni sést maður vinna við nýja aðferð við einangrun husa — sem sé orkusparandi breytingu á húsnæði. ( Ljósm .: gel.) Húsnæðis- málastjórn samþykkir lánveitingar Húsnæðis m álastjórn sam- þykkti á fundi sinum 2. mars sl. að neðangreindar lánveitingar skuli fara fram með þeim hætti, er hér greinir: „1. Lokalán (3. hluti) skulu veitt til greiðslu eftir 15. mars nk. þeim umsækjendum, sem fengu frumlán sin greidd 15. mars 1981 og miðlán sin greidd 15. september 1981 c. 6 millj. kr. 2. Frumlán (1. hluti) skulu veitt til greiðslu eftir 20. mars nk. þeim umsækjendum sem sent höfðu fokheldisvottorð til stofn- unarinnar fyrir 1. janúar sl. og Framhald á 14. siðu Verkalýðsfélag Vestmannaeyja ályktar: Hnin loðnu- stofnsins er ekkert einkamál s j ómanna og útvegs- manna Fundur haldinn f stjórn og trún- aðarmannaráði Verkalýðsfélags Vestmannaeyja 11. mars ályktar eftirfarandi: Fundurinn fagnar hugmyndum stjórnvalda um að bæta sjómönnum tekjutap er þeir verða fyrir vegna stöðvunar loðnuveiða. En bendir jafnframt á að hvergi hafi verið minnst á fjölda verkamanna viðs vegar um landsem óhjákvæmilega hljótiað verða fyrir alvarlegu tekjutapi vegna stöðvunar loðnuveiða. Fundurinn vill þvi vekja athygli yfirvalda og landsmanna allra á þvif jölmarga landverkafólki sem byggt hefur lifsafkomu sina mörg undanfarin ár á vinnslu loðnuafla og bendir á að hrun loðnustofns- ins er ekkert einkamál loðnusjó- manna og útvegsgerðarmanna einna. T.d. verða verkamenn i loðnubræðslunum i Vestmanna- eyjum fyrir verulegu tekjutapi þar sem meginhluti árstekna þeirra er fenginn yfir þann tima, sem loðnuvertið stendur yfir, en þá er unnið á vöktum i 10 - 12 vik- ur að meðaltali. Fundurinn beinir þvi þeim eindregnu áskorunum til stjómvalda að verði sú sjálfsagða ákvörðun tekin að bæta mönnum að tjón sem þeir sannanlega verða fyrir vegna þeirrar ákvörð- unar að stöðva loðnuveiðar verði allir látnir sitja við sama borð. Annað telur fundurinn óréttlátt. r Þorvaldur •. / Orn Arnason skrifar 1 Málm- eða fiskstórið ja? Á þrettándanum s.l. birtist hér í Þjóðviljanum grein eftir Jóhann J. E. Kúld/ þar sem hann mæl- ir með stóriðju í fisk- iðnaði í stað stóriðju málma. Hann bendir réttilega á, að langvar- andi of f ra m leiðslu- kreppa ríkir í málmiðnaði heimsins, að járnblendi- verksmiðjan á Grundar- tanga hafi verið rekin með bullandi tapi og að verandi iðjuver búa við, einkum hvað orku varðar. Orkukjör vest- firskrar fiskiðju og erlendrar málmiðju A Vestfjörðum eru mörg stór og meðalstór fiskiöjuver. Þau greiða nú u.þ.b. 40 aura fyrir kwst. raforku (vestfirsk heimili greiða u.þ.b. 60 aura). Stóriðju- verin i Straumsvik og Grundar- tanga greiða hins vegar u.þ.b. 7 mikilli óánægju á tsafirði og viðar. Með núverandi verðlagningu er raforka tæplega samkeppnis- hæf við oliu viö framleiðslu á gufu og heitu vatni i fiskmjöls- verksmiöjum, rækjuverksmiðj- um og fleiri iðngreinum. Menn halda sig bara við oliuna og eng- inn segir neitt við þvi. Rannsóknum á framleiðslu fljótandi eldsneytis og hagnýt- ingu rafbila og skipa miðar sorglega hægt, enda litlu fjár- magni varið til slikra hluta. Ekkert fær raskað ró lands- feðra okkar. Þeir láta sig Þorvaldur örn Árnason. birgðir hlaðist nú upp í Álverinu i Straumsvík. Þetta gerist þrátt fyrir niðurgreitt raforkuverð til þessara iðjuvera. Þegar dregið er úr forgangs- orku til þessara aðila fá þeir greiddar umtalsverðar skaða- bætur úr vasa annarra orku- kaupenda, þrátt fyrir að of- framleiðslan sé að sliga þá. Orkubú Vestfjarða, sem greiðir margfalt hærra verð fyrir raf- orkuna, varð á sama tima að keyra allar diselvélar á fullu án nokkurra skaðabóta og ný tengdur „hundur að sunnan” var gjörsamlega vannýttur á meöan. Jóhann boðar i grein sinni nýja stóriðju i fiskiðnaði i stað aukinnar stórframleiðslu ill- seljanlegra málma. Hann ræðir einkum um fullvinnslu saltfisks og frosinna fiskafurða fyrir Evrópumarkað og þurrkun á loðnu til manneldis. Eg tek undir það. En það má ekki gleymast, að nú þegar er starf- ræktur hér á landi fjöldi stór- iðjuvera i fiskiðnaði. Þar á ég við tugi stórra fiskiðjuvera, sem mörg hafa yfir 100 starfsmenn. Ekki má heldur gleyma fiski- mjölsverksmiðjunum, sem margar eru æði stórar. Fyrir nokkrum árum fullyrti starfs- maður Orkustofnunar i blaða- grein að þær notuðu samanlagt álika mikia orku og álverið i Straumsvik, en meginhlutinn er fenginn úr oliu. Aður en hugað er að nýjum iðjuverum i fiskiðnaöi er fróð- legt að athuga hvernig kjör nú- * aura fyrir kwst. Vestfirsk fisk-stóriðja greiðir u.þ.b. sex sinnum hærra raforkuverð en málm-stóriðjan við Faxaflóa. Sex hundruð prósent hærra verð! Fyrr má nú gagn gera. Það er undarlegt, aö fiskiðju- forkólfarnir skuii ekki kvarta meira undan þessu óréttlæti. Kannske væru þeir fáanlegir til að greiða ögn skárra kaup til verkafólksins, ef þeir fengju orku á réttlátara veröi? Er orkunýtingar- stefna Magnúsar Kjartanssonar fyrir bí? Hvað hefur orðiö um stefnu þá, sem Magnús Kjartansson setti fram 1971 um nýtingu inn- lendrar orku i stað oliu? Mikið hefur áunnist við að leysa oliu- hitun húsa af hólmi með jarð- varma. öllu hægar gengur að nýta raforku i stað oliu á ýms- um sviöum. Enn sem fyrr ein- blina landsfeður flestir á erlenda málm-stóriðju (eða hálf-islenska), þegar rætt er um ráðstöfun raforku frá nýjum orkuverum. Hið háa verð raforku til flestra nota stendur mest i veg- inum. Þaö borgar sig tæpast að breyta úr oliukyndingu yfir i rafhitun húsa. Fjarvarmaveit- urnar á Vestfjöröum fá of litið og of dyrt rafmagn, svo orkan frá þeim er nú ekki teljandi ódýrari en hjá þeim sem kynda með oliu (ef oliustyrkur er tek- inn með i dæmið). Þetta veldur hærra raforkuverö en málm- stóriöjan viö Faxaflóa dreyma um erlenda málmiðju á hvert krummaskuð. Hver ákveður þá afspyrnu fá- ránlegu verðlagningu á raforku, sem lengi hefur viðgengist? Það skyldu þó ekki vera tals- menn óþjóðlegs fjármagns Alþjóöa gjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans, i Landsvirkjun og æðstu fjármálastofnunum rikisins? Spyr sá, sem ekki veit. Útlitið í markaðsmálum láðurnefndri grein er Jóhann J. E. Kúld svartsýnn á markaði fyrir málma, en með sama skapi bjartsýnn á markaði fyrir fullunnar fiskafurðir. Fiskurinn sé matvara og hún veröi alltaf nauðsynleg hvað sem öllum kreppum liði. Þvi er til að svara, að kreppan i málmiðnaði stafar ekki af þvi að allir jarðarbúar hafi fengið öll þau málmtæki og verkfæri sem þá vanhagar um, öðru nær. Viða skortir mjög handverkfæri og plóga til landbúnaöarfram- leiðslu, svo ekki sé talað um dráttarvélar og flutningatæki. Þá sem mest þurfa á málm- verkfærum að halda vantar peninga til að greiða fyrir þau. A sama tima hlaðast upp birgðir óseljanlegra málma og málm- iðjuver eru lögð niður i stórum stil. Kreppan einkennist nefnilega bæði af offramleiöslu og ör- birgð. Ef vel er að gáð, er ástandið á matvörumarkaði heimsins mjög á sama veg. Flest vestræn iönþróuð riki stynja þungan undan offramleiðslu land- búnaðarafurða meðan tugir þusunda deyja af afleiðingum vannnæringar i heiminum hvern dag. Próteinskorturinn er verstur. Islenskur sjávarútvegur og landbúnaður framleiða ár hvert nægilegt magn próteina til að fullnægja þörfum 10-20 milljóna manna og þá tölu mætti hækka talsvert með bættri nýtingu sjávarafurða til manneldis og afnámi hafta á landbúnaðar- framleiðslu. Gallinn er sá að þessi próteinrika fæða lendir að mestu leyti á borðum fólks sem hefur úr nægri próteinfæðu að moða. Þar sem þörfin er mest vantar peninga til að kaupa lifs- nauðsynleg prótein og viö selj- um einungis hæstbjóðanda. Nú magnast kreppan dag hvern i löndum þeim sem kaupa mest af islenskum sjávarafurð- um. Atvinnuleysingjum fjölgar og lifskjör fjöldans eru skert. Hlýtur þessi þróun ekki að leiða til þess, að þessar þjóöir dragi verulega úr kaupum á islensk- um fiski? Er það kannske þessi þróun sem veldur hinni umtals- verðu skeröingu „ólafsvisitöl- unnar” 1. mars? Ég vara við allri bjartsýni á að fiskmarkaðurinn standi af sér núverandi kreppu heims- auðmagnsins. Hann bregst þó dáiitið seinna við en málm- markaðirnir. Meöan óheft lög- mál fjármagnsins ráða mestu i heimsviðskiptum verður ekkert samræmi milli þarfar og eftir- spurnar. Fjármagn leitar þangað sem fjármagn er fyrir. Mörgum alþjóðlegum hag- skýrslum (frá Sameinuöu þjóð- unum, Global 2000 o.fl.) ber saman um að bilið milli rikra og fátækra i heiminum öllum vaxi stöðugt. Hvað er til ráða? Gegn þessari háskalegu öfug- þróun hafa mörg þróunarriki sett fram kröfur um nýskipan efnahagsmála i heiminum. Þær kröfur beinast i reynd gegn f jöl- þjóðlegu auðhringunum og stór- veldunum og er þvi róðurinn skiljanlega mjög þungur. Það þarf mikið að ganga á til að hin kreppuhrjáöu iðnriki beri gæfu til að taka undir þannig kröfur af heilindum. Þau fljóta sofandi að feigðarósi, stungin svefnþorni lögmála hins rotnandi einokunarauövalds. Liklega fær ekkert snúið þeirri þróun nema viötæk uppreisn al- múgans, sem setur manneskju- leg viðhorf félagshyggju ofar þröngsýnum og háskalegum viðhorfum austræns og vest- ræns einokunarvalds. Niðurstaða min er sú, að ef við viljum sporna gegn ömur- legri kreppuþróun, verði Islenska rikið aö fylkja sér með smáþjóðum og þróunarrikjum i djarfri baráttu fyrir nýskipan efnahagsmála i heiminum. Til að svo geti orðið þarf að vinna mikið og fórnfúst hrein- gerningastarf i stjórnmálum hér innanlands, ekki sist á sviði hugmyndanna. Ráð Jóhanns J.E. Kúlds rista ekki nógu djúpt og sama giidir um mörg önnur skrif i þessu blaði, sem ætlar sér stórt hlutverk. Fyrst af öllu þurfa menn að reyna aö sjá skóginn fyrir trján- um. Isafiröi i febrúar 1981 Þorvaldur örn Arnasoi^j

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.