Þjóðviljinn - 16.03.1982, Side 9

Þjóðviljinn - 16.03.1982, Side 9
Þriðjudagur 16. mars 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 FRÉTTASKÝRING Skipulagsmál á svo- kölluðum //varnarsvæð- um" hafa verið mjög til umræðu að undanförnu. Stafar sú umræða ekki hvað sist af þeim vinnu- brögðum sem utanrikis- ráðuneytið og varnar- máladeild þess hafa við- haft í samskiptum sínum við sveitar- og bæjarfélög i nágrenni Keflavíkur- f lugvallar. t islenskum skipulagslögum segir, að öll sveitarfélög á ís- landiséu skipulagsskyld, en það felur i sér, að ekki megi reisa byggingar eða önnur mannvirki er áhrif hafi á útlit umhverfis, Skipulags- málin innan og utan „varnar- svæða” Gengið á Ólafur Gíslason skrífar nema þau séu i samræmi við áð- ur gerðan skipulagsuppdrátt, sem samþykktur hefur verið af hlutaðeigandi sveitarstjórn og skipulagsstjórn rikisins. Ber skipulagsstjóra aö ganga frá endanlegum skipulagsupp- drætti og senda hann ráðherra til staðfestingar. Ná til „varnarsvæðanna" Það mun samdóma álit lög- fróðra manna, að islensk skipu- lagslög nái einnig til svonefndra „varnarsvæða”, að meðtalinni herstöðinni á Keflavikurflug- velli. Hins vegar kann það að vera deiluatriði, hver fari með framkvæmdavald laganna. t viðtali við Timann s.l. föstu- dag segir Ólafur Jóhannesson að oliubirgðastöð sú, sem hann hyggst leyfa bandariska hern- um að reisa upp á sitt einsdæmi á Hólmsbergi norðan Helguvik- ur sé á svokölluöu „varnar- svæði” i landi Gerðahrepps. Hann er þá spurður, hvort þetta feli i sér að landið sé ekki skipu- lagsskylt. „Það er nú of flókið að fara út i þaö, cn það þýðir það að þctta er varnarsvæði og það verður ekki tckið nýtt svæði undir þá. Og sama máli gegnir um það land, sem Keflvíkingar eiga að fá afnotarétt af, að það er varn- arsvæði.” Enginn fyrirvari er um það i skipulagslögum, að „varnar- svæði” séu undanþegin lögun- um. Hins vegar segir i lögum um yfirstjórn mála á „varnar- svæðum”, að ekkert sé þvi til fyrirstöðu, að ráðherra þeim, sem falin er framkvæmd varn- arsamningsins, sé jafnframt falin framkvæmd annarra málaflokka innan lögsagnar- umdæmis Keflavikurflugvallar, sem falla undir önnur ráðuneyti utan þess lögsagnarumdæmis. Sem kunnugt er fer félagsmála- ráðuneytiö með yfirstjórn skipulagsmála. Hins vegar seg- ir i reglugerð nr. 96 frá 1969 um mál þau, sem utanrikisráðu- neytið varða, i 13. gr.: „10. lið- ur. Framkvæmd varnarsamn- ings tslands og Bandarikjanna, þ.á m. innan marka varnar- svæðanna, lögreglumál, dóms- mál, tollamál, póst- og sima- mál, flugmál, radarstöðvarmál, heilbrigðismál, félagsmál og önnur þau mál, er leiðir af dvöl hins erlenda varnarliðs i land- inu, sbr. lög nr. 106, 17. des. 1954 um yfirstjórn mála á varnar- svæðum o.fl.” Framkvæmd skipulags- laga á ,,varnarsvæðun- um" Samkvæmt ofanskráðu virðist mega lita svo á að utanrikis- ráðuneytinu beri að annast framkvæmd skipulagslaga á „varnarsvæðum”. En i hverju er slik fram- kvæmd fólgin? Samkvæmt skipulagslögum er hún i þvi fólgin, að ráðuneyt- inu beri að sjá til þess, að allar framkvæmdir sem ráðist er i á Helguvjkin umdeilda,en norður af henni i landi Gerðahrepps vill utanrikisráðherra láta sprengja olíu- birgðastöð fyrir herinn inn i klettana. þessum svæðum séu i samræmi við aðalskipulag, sem samþykkt hefur veriö af skipulagsstjórn og viðkomandi sveitarstjórn. Utanrikisráðherra getur þvi ekki gengið á snið við þau ákvæði laganna sem fela öörum framkvæmd mála, svo sem eins og skipulagsstjórn rikisins, skipulagsstjóra og sveitarfélög- um. Ekki i samræmi við skipulag Þær framkvæmdir, sem utan- rikisráðherra hefur fyrirhugað i Helguvik, er bygging hafnar- garðs fyrir 30 - 35 þús. rúmlesta oliuskip, vegaframkvæmdir og lagning oliuleiðslna yfir i land Gerðahrepps. Þessar fyrirhug- uðu framkvæmdir eru ekki i samræmi við gildandi skipulag. Þegar breyta þarf staðfestum skipulagsuppdrætti ber skipu- lagsstjórn að öðru jöfnu að birta þær breytingartillögur almenn- ingi og auglýsa. „Skal þar til- greint yfir hvaða svæði tillagan nái, hvar uppdrættir ásamt fylgiskjölum séu til sýnis og hve lengi, en það má eigi vera skemur en 6 vikur, hvert skila skuli athugasemdum við tillög- una og innan hvers frests, en hann má eigi vera skemmri en 8 vikur frá birtingu auglýsing- ar...” (17. gr. skipulagslaga.) „Sveitarstjórn skal... senda skipuiagsstjórn athugasemdir þær, er borist hafa, ásamt um- sögn sinni um hverja athuga- semd og endanlega umsögn um uppdráttinn. Hafi samvinnu- nefnd fjallað um skipulagstil- löguna, skal leita umsagnar hennar um athugasemdirnar. Skipulagsstjórn gengur siðan endanlega frá uppdrættinum og , sendir hann ráðherra til stað- festingar.” (18. gr. skipulags- laga). Björn Jónsson undirritaði Þar sem rætt er um ráðherra i þessu sambandi er átt við fé- lagsmálaráðherra, sem fer með yfirstjórn skipulags rikisins. Það verður ekki séð af lögum þessum, að það sé verksvið ut- -anrikisráðherra að undirrita aðalskipulag. 1 þvi sambandi má benda á, að þegar núgild- andi aðalskipulag fyrir Kefla- vik, Njarðvikur og og Keflavik- urflugvöll var staðfest af ráð- heri;a árið 1973 var það Björn Jónsson, þáverandi félagsmála- ráðherra, sem undirritaði skipulagið. 1 þvi felst viður- kenning utanrikisráðuneytisins á skipulagsskyldu og skipulags- lögum, svo og að félagsmála- ráðherra hafi raunverulegt for- ræði á skipulagsmálum innan varnarsvæða, þótt utanrikisráð- herra fari með það að forminu til. Út fyrir mörkin Þær reglur, sem hér um ræð- ir, gilda að sjálfsögöu einnig um fyrirhugaðar framkvæmdir i landi Geröahrepps. Þar er fyrst og fremst um byggingu oliu- birgðastöðvar að ræða og lagn- ingu oliuleiðslna upp á Kefla- vikurflugvöll og tilheyrandi vegaframkvæmdir. Þessar framkvæmdir eru allar skipu- lagsskyldar og þurfa þvi þá lagalegu meðferð, sem að ofan greinir. Það land, sem varnar- máladeild hefur upp á eigið ein- dæmi afhent Keflvikingum úr landi Gerðahrepps er skipulags- skylt á sama hátt. Helgi Ágústs- son hefur lýst þvi yfir, að þetta sé fyrirhugað athafnasvæði fyr- ir Keflavik. Skipulagsmál á þessu svæði heyra þó ekki undir Keflavik, heldur Gerðahrepps, og Keflvikingar eiga þaö þvi undir Gerðhreppingum komið. hvað þeir fá að framkvæma á umræddu svæði, en ekki varn- armáladeild að þvi er séð verö- ur. Fáheyrð vinnubrögð Ekki verður annað séð en að við alla meðferð þessa máls hafi utanrikisráðuneytið haft i frammi vinnubrögð, sem ilia samræmist gildandi lögum og reglugerðum auk þess sem freklega hefur verið gengið á rétt nálægra sveitarfélaga um skipulagarétt á eigin lögsagnar- umdæmi. Sveitarstjórnarmenn i Geröa- hreppi hafa enn ekki fengiö skýringu á þvi hjá utanrikisráð- herra, með hvaða rétti hann hyggst afhendi Keflavikurbæ land úr lögsagnarumdæmi Garðahrepps til afnota sem leigugjald fyrir Helguvik. Laga- prófessorinn Ólafur Jóhannes- son hefur þannig tvivegis komið sér hjá þvi að svara fyrir um lagalegar forsendur þess frum- hlaups, sem hér hefur veriö haft iframmi. Væntanlega liggurpró- fessorinn nú undir feldi og flettir i lagabókum sinum. Við skulum vona aö ljós heilbrigðr- ar skynsemi og réttsýni fái að lýsa undir þann feld. við Lögin Vinnubrögð utanríkisráðuneytisins samræmast ekki lögum og reglugerðum

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.