Þjóðviljinn - 16.03.1982, Side 11
'Jfi&judagur 16. mars 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Naumur
sigur
Vals
Valsmenn lentu I vandræðum
meö 1S i úrvalsdeildinni i körfu-
knattleik á laugardag en tókst þó
að sigra með einu stigi, 98-97. t
fyrrakvöld léku KR og Fram og
unnu Framarar öruggan sigur,
97-79.
Staðan i úrvalsdeildinni þegar
einni umferð er ólokið:
Njarðvik ... 19 15 4 1673:1495 30
Fram........ 19 13 6 1614:1468 26
Valur.......19 12 7 1614:1557 24
KR ..........19 11 8 1525:1586 22
1R......... 19 5 14 1473:1620 1.0
1S...........19 \ 1 18 1549:1662 2
Einn leikur veröur i úr-
valsdeildinni i kvöld. ÍR og 1S
leika i iþróttahúsi Hagaskóla kl.
20.
ÍR-stúlkur
unnu FH!
IR-stúlkurnar komu veru-
lega á óvart um helgina i 1.
deild kvenna er þær sigruðu
FH i Laugardalshöll 13:12. FH
nægði jafntefli i leiknum til að
tryggjú sér Islandsmeistara-
titilinn en það tókst ekki og
fyrsta tap liðsins i vetur var
staðreynd.
Akranes er fallið i 2. deild
eftir tap fyrir KR á Akranesi á
föstudagskvöldið, 7:9. I hálf-
leik var staðan 6:4, KR i vil.
Víkingur vann sanngjarnan
sigur á Val á sunnudagskvöld-
ið 17:14 og Fram sigraöi botn-
lið Þróttar 17:11 og á enn
möguleika i efsta sætinu.
Staðan i 1. deild kvenna:
FH.......13 10 1 1 246:163 22
Fram ..
Valur ..
Vik. ...
KR ....
1R....
Akran .
Þrótt ..
. 13
.13
. 13
. 13
.13
. 13
. 13
1 226:186 20
3 199:165 16
6 218:203 14
6 202:184 12
7 213:213 12
9 164:241 8
13 147:270 0
-Keflavík
vaiui alla
— og skoraði
101 stig að j
meðaltali í leik
Keflavik sigraði Hauka með 91 ■
stigi gegn 66 i 1. deild karla i |
körfuknattleik i Hafnarfirði um ,
helgina. Keflvíkingar unnu þá ■
alla leiki sina i 1. deild og I
skoruðu 101 stig að meðaltali i I
leik. Þeir leika i úrvalsdeildinni ,
næsta vetur i stað IS.
Haukasigur
í Eyjum
Tveir leikir voru i 2. deild karla
i handknattleik um helgina.
Haukar unnu Þór i Eyjum 24:18
og Breiðablik vann Aftureldingu
að Varmá 19:18
Staðan i 2. deild:
1R............ 12 9 0 3 218:202 18
Stjarnan...... 11 7 1 3 243:224 15
Breiðablik ... 13 6 3 4 262:254 15
Haukar........ 13 6 2 5 274:252 14
ÞórVe......... 13 6 1 6 256:251 13
Afturelding ..12 4 3 5 251:255 11
Týr........... 12 4 0 8 266:278 8
Fylkir ....... 12 1 2 9 237:281 4
HILMAR SIGURGÍSLA-
SON skorar úr hraðaupp-
hlaupi fyrir Viking gegn
Val. — Myndeik.
1. deild karla í handknattleik:
Allt eftir bókinni
— en 1 þremur leikjanna munaði
aðeins einu marki — FH og
Víkingur berjast um meistara-
titilinn, HK og Fram um fallið
um næstu helgi
Það var allt eftir bókinni f 1.
deild karla um helgina. Fjögur
cfstu liðin sigruðu fjögur neðstu
liðin og staðan f deildinni er þvi
óbrcytt. Þremur leikjanna lauk
þó með eins marks mun og mikil
spenna í þeim öllum. Það er ljóst
að leikur FH og Vikings i Hafnar-
firði á sunnudagskvöldið næsta
ræður úrslitum um hvar lslands-
meistaratitillinn hafnar að þessu
sinni.
Fram — Þróttur21:22
Þegar 12 minútur voru liðnar af
siöari hálfleik stefndi allt i stór-
sigur Þróttara. Þeir höföu breytt
stöðunni úr 14:13 i 20:14 á 7 min.
kafla og Framarar virtust búnir
að vera. En skjótt skiptast veður i
lofti. Næstu 14 min. skoruðu
Þróttarar ekki mark og Framar-
ar náðu að jafna, 20:20. Siguröur
Sveinsson kom Þrótti yfir, 21:20,
en Hannes Leifsson jafnaði 21:21.
Fram fékk siðan knöttinn en
missti hann á klaufalegan hátt og
Páll ólafsson skoraði sigurmark
Þróttar 20. sek. fyrir leikslok.
Framarar misstu þarna af dýr-
mætu stigi i fallbaráttunni og
leikur þeirra gegn HK að Varmá
á laugardaginn sker úr um hvort
liöið fellur i 2. deild. Sigurður
Þórarinsson markvöröur var
besti maður liðsins eftir daufa
byrjun og Egill og Björgvin gerðu
einnig góða hluti ásamt Hannesi.
Egill var markahæstur með 6
mörk,Hannes skoraði 5 og Björg-
vin 4.
Hjá Þrótti voru Siguröur og
Páll aðalmenn að vanda. Sigurð-
ur skoraði 8 mörk og Páll 6. Þrótt-
arliðið veröur að taka sig á fyrir
leikina gegn Itölunum um næstu
helgi, leikur liösins að undan-
förnu hefur verið mjög gloppóttur
og ósannfærandi.
KA— FH 23:30
Danski þjálfarinn Jan Larsen
tekur við KA sem 2. deildarliöi i
sumar. Til þess að forðast fallið
þarf KA að sigra KR fyrir sunnan
og HK og Fram að gera jafntefli
og möguleikarnir á slikum úrslit-
um eru harla litlir.
KA-menn héldu i við FH fram
að hálfleik en þá var staöan jöfn,
13:13.1 siðari hálfleiknum tók FH
öll völd, komst i 17:14 og siöan i
27:17 og gat siðan leyft sér að
slaka á undir lokin.
Kristján 9, Guðmundur 7 og
Hans 7 skoruðu mest fyrir FH en
Þorleifur5, Erlingur, Friðjón, Jó-
hann og Sigurður 4 hver voru at-
kvæöamestir noröanmanna.
HK— KR 20:21
HK missti þarna eina ferðina
enn af sigri eftir að hafa verið yfir
lengst af en tæpara mátti það ekki
standa. Haukur Geirmundsson
skoraði sigurmark KR 5 sek. fyrir
leikslok og gerði þar meö vonir
HK um stig aö engu. I hálfleik var
staðan 11:9, HK i hag, og KR jafn-
aði ekki fyrr en 12 min. fyrir
leikslok, 16:16.
Alfreð 6, Haukur G. 6 og Gunn-
ar 5 voru markahæstir hjá KR en
Ragnar 7 og Hörður 5 hjá HK.
Víkingur — Valur 15:14
Ahorfendur fengu að biða lengi
eftir mörkum i þessum leik.
Theódór skoraöi fyrsta mark
leiksins fyrir Val á 6 min. og bætti
öðru við rétt á eftir. Valur komst i
3:1 og Islandsmeistararnir skor-
uðu aðeins eitt mark fyrstu 11
minúturnar. Þá komu þrjú i röð,
4:3, en Valur komst yfir á ný. 7:5
og 8:7, en Óskar og Páll sáu til
þess að Vikingar voru yfir i hálf-
leik, 9:8.
Byrjun siðari hálfleiks var i stil
við byrjun þess fyrri nema nú liöu
9 min. þar til mark var skorað.
Það gerði Hilmar fyrir Viking og
Páll kom Vikingi i 11:8 áður en
Valsmenn skoruðu sitt fyrsta
mark i hálfleiknum á 12 min.
Þeim tókst að jafna, 11:11 og sið-
an 13:13. Eftir hroöaleg mistök
dómara, sem reyndar jöfnuðust
út skömmu siðar, komust Viking-
ar i 15:13 en Brynjar minnkaði
muninn i 15:14 tveimur min. fyrir
leikslok. Siðustu sekúndurnar
voru svo Valsmenn með knöttinn
en Brynjar skaut framhjá úr von-
litlu færi um leið og lokaflautið
gall við og þar með stóðu Viking-
ar uppi sem sigurvegarar.
Leikurinn einkenndist fyrst og
fremst af sterkum varnarleik
beggja liða, Fyrir aftan varnirn-
ar stóöu svo friskir markveröir,
sérstaklega var þaö Jón Gunn-
arsson i Valsmarkinu sem varði
vel. Þorbergur var yfirburöa-
maður hjá Vikingi en litið bar á
öðrum. Hjá Val var Jón i markinu
bestur, Brynjar sótti sig mjög
þegar á leið og Þorbjörn Jensson
var eins og brimbrjótur i vörn-
inni.
Mörk Vikings: Þorbergur 8,
Páll 3, Hilmar 2, Guömundur 1 og
Óskar l'. Mörk Vals: Brynjar 6,
Theódór 3, Friðrik, Geir, Jakob,
Jón Pétur og Þorbjörn G. eitt
hver.
Staðan
Vikingur ..13 11 0 2 299:224 22
FH......... 13 10 1 2 323:295 21
Þróttur ....13 9 0 4 284:272 18
KR .........13 8 1 4 281:271 17
Valur....... 13 6 0 7 263:255 12
HK ........ 13 2 1 10 236:266 5
Fram........ 13 2 1 10 258:313 5
KA......... 13 2 0 11 242:300 4
-VS
Ekkert mark í Kuwait
island og Kuwait skildu jöfn i
landsleik i knattspyrnu i Kuwait á
sunnudag, ekkert mark var
skorað.
Fátt var um marktæki-
færi i leiknum, þau bestu fengu
Jón Einarsson og Sigurlás Þor-
leifsson. Leikið var i 23ja stiga
hita sem þýöir vist fremur kalt i
Kuwait. Úrslitin hljóta að teljast
ágæt ffyrir ilenska liðið, sem var
án atvinnumannanna, en Kuwait
tekur þátt i lokakeppni HM á
Spáni i sumar og leikur þar i riðli
með Englandi, Frakklandi og
Tékkóslóvakiu.
Islenska liðið var þannig
skipað: Guömundur Baldursson,
örn óskarsson, Trausti Haralds-
son, Sigurður Halldórsson, Mart-
einn Geirsson, Njáll Eiðsson,
Ómar Rafnsson, Sigurður Lárus-
son, Ómar Torfason, Sigurður
Grétarsson og Sigurlás Þorleifs-
son. Jón Einarsson kom inn á sem
varamaður fyrir Sigurð Halldórs-
son. Islendingarnir eru væntan-
legir heim i dag.