Þjóðviljinn - 16.03.1982, Page 15

Þjóðviljinn - 16.03.1982, Page 15
Þriöjudagur 16. mars 1982 ÞJODVILJINN — StÐA 15 M Drykkjulæti / a Hringiö í síma 81333 kl 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum lesendum leiksýningu Föstudaginn 26. febrúar s.l. fór ég i Iðnó á leikritiö Jói eftir Kjartan Ragnarsson. Sýningin var ógleymanleg en eitt skyggði á þessa góðu kvöld- stund. Stór hluti áhorfenda var drukkinn. Þaö var hópur fólks utan af landi er kom beint frá Þórskaffi og hefur liklega ætlað þangað aftur að sýningu lokinni. Það var flautað og hrópað svo helst minnti á „þrjúbió” og vodka- pelar gengu um salinn. Hviiikt virðingarleysi gagnvart þvi fólki sem að sýningunni stóð, og tillitsleysi gagnvart öðrum áhorfendum. E.t.v. hefði maður átt að ganga út og fá miða á aðra sýningu, en það er ansi hart að borga miða i leik- hús, og njóta svo ekki sýningar nema til hálfs vegna drykkjuláta. En mér er spurn: Var þetta undantekning eða er svo komið að maður þurfi að fara i leikhús i miðri viku til að forðast óþægindi og truflun frá drukknu fólki. Svekktur leikhúsgestur. Jóhann Sigurðsson i hlutverki Jóa i leikriti Kjartans Ragnarssonar. Röskir blaðberar Magnús B. Þorgeirsson, skip- stjóri hringdi og vildi koma á fram færi þökkum tii blaðbera Þjóðviljans á Hvaleyrar- brautinni, Jóhanns, og einnig piltsins sem stundum leysir hann af og heitir Fylkir. Magnús kvað þessa kornungu pilta vera aldeilis frábæra blaðbera. töllum veðrum væri Þjóðviljinn kominn eld- snemma á morgnana, yfirleitt á slaginu kl. 7. Trúmennsku og árvekni þeirra væri við brugðið. Við innheimtustörf létu þeir heldur ekki deigan siga. Þeir væru kurteisir en ákveðnir og væru öðrum blað- berum góð fyrirmynd. í fljótu bragði virðast þessar tvær myndir vera alveg eins. Það er þó eitthvað sem gerir þær frá- brugðnar. Hvað? Bamahornið Brandarar Vitið þið af hverju allir Hafn- firðingar sem vettlingi gátu valdið fóru út I gær og horfðu upp i himininn? Nú, að sjálfsögðu vegna þess að það var spáð fljúgandi hálku. Vitið þið af hverju þessir sömu Hafnfirðingar fóru niður að sjó á hverjum degi rétt fyrir jólin? Þeir voru að biöa eftir bóka- flóðinu. Eftirfarandi auglýsing birtist i hafnfirska fréttablaðinu: tskrosskeppni verður haldin fyrir ofan Hafnarfjörð i dag. Komið og horfið á spennandi keppni Það brást ekki, að flestir Hafnfirðingar fengu hálsrig af þvi aö horfa upp i himininn þennan sama dag. Fyrirfinnast vitsmuna- verur á öðrum stjörnum? „Carl Sagan fjallar i þess- um þætti um likurnar á þvi að vitsmunaverur finnist annars staðar en á jörðinni. t augna- blikinu höfum við engar sann- anir fyrir þvi að svo sé. Af- staða Sagans er sú að lif hljóti að fyrirfinnast annarsstaðar. Það cru nú einu sinni u.þ.b. 400 miljaröar sólna i okkar vetr- arbraut og einhversstaöar hlýtur að finnast lif. Hitt er svo annað mál að likurnar fyr- ir þvi að við komumst að þvi er hverfandi.” Þannig mæltist Jóni Ö. Ed- waid, þýöandahinna athyglis- verðu þátta um alheiminn en visindamaðurinn Carl Sagan mun enn sem fyrr leitast við að rannsaka hið ókunna. Hverjar eru llkurnar fyrir þvi að við fáum vitneskju um lif á öðrum stjörnum? Þó svo vits- munalif fyrirfinnist annars- staðar eru þá einhverjar likur fyrir þvi að við náum sam- bandi við vitsmunaverurnar þær? Spurningin sem þessum og íleirum til varpar Sagan fram og fleirum og fleirum. Þetta er næstsiöasti þáttur Carl Sagan. Hinn siðasti verður að viku liðinni og þá fjallar Sagan um atómbomb- una. ■jQg. Sjónvarp O kl. 20.40 Klippt á beinu útsendinguna Fótspor á tunglinu. Hvarog hvenær stigur maöurinn næst niður fæti? Næstsíðasti þátturinn um alheiminn: á laugardaginn: Urslitaleikurinn 1 bikarkeppninni ætti að renna ótruflaður í gegn segir Bjarni Felixson, íþróttafréttamaður sjónvarps „Ég reikna fastlega með að sýna lokakaflann úr leik Tott- enham og Livcrpool i iþrótta- þættinum á laugardaginn,” sagði Bjarni Felixson, þegar hann var inntur eftir niðurlagi á leik þessara liða i úrslitum deildarbikarsins. Beina út- sendingin frá úrslitaleiknum á Wemblcy tók heldur dapur- lega stefnu. Eftir venjulegan leiktima var staðan 1:1 og þurfti þvi að framlengja. Spennan var i há- marki þegar klippt var á dag- skrána, er sýndar höfðu verið u.þ.b. 10 minútur af framleng- ingunni. A slaginu kl. 17 á laugardaginn þurfti flestum Islendingum til mikillar ar- mæðu, Vis-news, sjónvarps- stöðin að taka yfir linuna og áhorfendur á Islandi misstu. þvi af besta kafla leiksins. Þegar klippt var á leikinn var staðan 1:1, en lið Liverpool sem þá stundina hafi alla yfir- burði bætti við tveim mörkum og vann 3:1. Bjarni kvaðst hafa reynt að Bjarni Felixson fá niðurlag leiksins frá Dönum en litið hefði miðaö i þá átt. Hann sagði þaö hinsvegar ör- uggt að leikurinn kæmi frá Englandi fyrir laugardaginn. Næsta beina útsending frá meiriháttar viðburði á iþróttasviðinu verður svo úr- slitaleikurinn i ensku bikar- keppninni og ætti hann að renna ótruflaður i gegn. Leik- urinn sá hefst nefninlega kl. 14 á islenskum tima og „Vis-news” þarf linuna ekki fyrr en kl. 17.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.