Þjóðviljinn - 19.03.1982, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.03.1982, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. mars 1982 Lóöin umhverfis barnaheimiliö býöur upp á ótal möguleika til útivistar jafnt sumar sem vetur. Þarna eru háir hólar aö renna sér niöur á veturna, litlir boilar og lautir aö leggjast i á sumrin og ekki spillir lækurinn fyrir, en hann rennur rétt viö bæjardymar og þar syndir bra-bra. — (Ljósm.: gei). Merkt barnaheimili í Hafnarfirði Hefur verið í eigu verkakvenna í 50 ár Slödegislúrinn er mikil freisting fyrir þriggja ára snáöa, og hér hefur hann Ingvar lagst óforvarendis til hvfldar fjarri glaumi hinna barnanna. — (Ljósm.: gel). ,, ( kringum 1960 voru hér 115 börn. Nú eru þau um 40 og samt f innst okk- ur alveg nóg að gera," segir Rebekka Árnadótt- ir, en hún er f orstöðukona allmerkilegs dagheimilis að Hörðuvöllum í Hafn- arfirði. Heimilið er merkilegtfyrir þá sök, að Verkakvennafélagið Framtíðin í Hafnarfirði á heimilið og hefur rekið það allt frá árinu 1933, hvorki meira né minna. Sennilega er þetta eina barnahei m i I ið, sem verkalýðshreyfingin í landinu á og rekur — a.m.k. höfum við ekki haft spurnir af öðru. Barnaheimiliö er enn i sínu gamla húsi, en þaö er afskap- lega rúmgott og hefur greini- lega verið mikiö hús á sinum tima. Verkakonurnar ráku heimilið fyrst i gamla barna- skólanum, en byrjuðu strax aö byggja sitt eigið heimili, og árið 1935 tók helmingur hússins til starfa. Seinni helmingurinn var siðan byggður upp úr 1950. Rebekka tjáir okkur, að verkakvennafélagið hafi farið út i þennan rekstur til þess að fá fleiri konur i fiskvinnu i bænum, en vinnuaflsskortur mun hafa veriö i Hafnarfirði á þessum tima. Félagið kostaði starfsem- ina sjálft meö skemmtunum og styrkjum annarra verkalýðsfé- laga allt fram til ársins 1955, en þá er i fyrsta sinn minnst á styrk frá bæjarsjóði i rekstrar- reikningi heimilisins. Núna er barnaheimilið að Hörðuvöllum rekið með styrk frá bænum og starfar sam- kvæmt reglum bæjarfélagsins, en er enn i eign Framtiðarinnar. ast Foreldrafundur um dagvistarmál i Hafnarfirði: Algjört úrræðaleysi — segir Rannveig Traustadóttir um hugmyndir meirihlutans Þessi uppástunga þeirra Árna Grétars og Árna Gunnlaugssonar lýsir al- gjöru úrræðaleysi. En hvaða bót er að því að skera niður eina stof nun til þess að bjarga annarri? Þannig mæltist Rannveigu Traustadóttur, fulltrúa Alþýðu- bandalagsins i bæjarstjórn Hafnarfjarðar, á fundi sem for- eldrar barna á leikskóla St. Jósefssystra og áhugafólk um dagvistarmál i Hafnarfirði boðaði tii sl. laugardag. A fundinn voru boðaðir fulltrúar allra stjórn- málaflokka. Eins og fram hefur komið áður i fréttum Þjóðviljans mun leikskóli St. Jósefssystra að öllum likind- um verða lagður niður i sumar, en spitalinn hefur hug á að fá húsnæðið undir sina starfemi. Þetta er eini leikskólinn i Suöur- bæ Hafnarfjarðar og á honum dvelja nú um 85 börn. Nýr Ieík- skóli mun taka til starfa i Hafnar- firði i sumar, en hann verður i Norðurbænum. Hjá fulltrúum meirihlutans i bæjarstjórn, þeim Árna Grétari Finnssyni og Arna Gunnlaugs- syni, kom fram sú hugmynd á fundinum, að skóladagheimili við Kirkjuveg verði tekið undir leik- skóla i vor, ef St. Jósefssystur hætta rekstri sins skóla. Rannveig Traustadóttir sagði i samtali viö blaöiö, aö skóladag- heimilið, Kattholt, væri afar óhentugt leikskólahúsnæði og ljóst væri, að miklu þyrfti að kosta til þess aö koma þvi i viðun- andi ástand. 1 hugmynd meiri- hlutans væri að auki ekkert sagt um hvað tæki við i hust. Þetta lýsti þvi algjöru úrræðaleysi. „Við höfum nýlega fengiö i hendur skýrslu um ástand dag- vistarmála i stærstu kaupstööum landsins,” sagði Rannveig. ,,í henni kemur fram, að i Reykjavik eru nú 26 ibúar að baki hverju dagvistarrými, i Kópavogi 42, á Akureyri 37, en i Hafnarfirði hvorki meira né minna en 63. Hér eru aðeins tekin þau heimili sem bæjarfélagið á og rekur, en töl- urnar sýna ljóslega hversu aftar- lega Hafnarfjörður er á merinni. í bæjarstjórninni hafa rikt af- Miili 80 og 90 manns sóttu fund foreldra barna á ieikskóia St. Jósefs- systra og áhugafólks um dagvistarmál I Hafnarfiröi sl. laugardag og uröu umræöur á köflum haröar og fjörugar. Greinileg óánægja kom fram hjá fundarmönnum meö ástand þessara mála I Firöinum. Fulitrúar stjórnmálaflokkanna sitja fyrir svörum. Taliö frá vinstri: Arni Grétar Finnsson, Sjálfstæöisflokki, Arni Gunnlaugsson, óháöir borgarar, Rannveig Traustadóttir, Alþýöubandalagi, Jón Bergsson, Alþýöuflokki, Eirikur Skarphéöinsson, Framsóknarflokki og Jóhann Guöjónsson, fundarstjóri. spyrnu undarleg viðhorf til dag- vistarmála. Alþýðubandalagið hefur flutt tillögur um dagvist- armál á hverju ári, en meirihlut- inn ávallt visað þeim frá eða fellt þær. Alþýðuflokkurinn hefur einn flokka staðið með okkur.” — Hver er tillaga Alþýöu- bandalagsins i þessu máli, Rann- veig? „Viö bendum á, að ef til lokunar þessa leikskóla kemur, þá sé eina raunhæfa lausnin sú að reisa ein- ingahús undir leikskóla i Suður- bænum. Það á ekki að taka nema nokkra mánuði, og þetta er það eina sem myndi leysa málið að okkar mati,” sagði Rannveig að lokum. — ast, Meöan foreldrarnir skeggræddu viö bæjaryfirvöldin um nauösyn góöra dagvistarstofnana, voru börnin undir verndarvæng góöra manna á borö viö Astu Magnúsdóttur, sem las Barbapabba I griö og erg viö mikinn fögnuö áheyrenda. Föstudagur 19. mars 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Hafnarfjöröur Framboðslisti Al- þýðubandalagsins við bæjarstjórnar kosningarnar í vor, samþykktur einróma á félags- fundi s.l. þriðjudag I. Kannvrig Trau&tadóttir. þroskaþjálfi, Selvogsgötu 9 2. Magnús Jón Arnason. kennari. Fögrukinn 17 4. Ilallgrimur llróömarsson, kennari. Iloltsgötu 18 Páll Arnason. verksmiöjustjóri. Hreiftvangi II 6. Sigurbjörg Sveinsdóttir, ibnverkakona, Arnarhrauni 21 5. Gubmundur Kúnar Arnason. Þjóbfél.fr.nemi. Arnarhrauni 24 II. Bragi V. Björnsson, sölumaöur. Ilringbraut 3U 12. Orn Itúnarsson. verkamabur. öldugötu IH r.|. ValgerfturGuömundsdóttir. kennaranemi, Slétlahrauni 29 14. Margrét Friftbergsdóttir. 15. Viftar Magnússon. 16. Guftnv Dóra Gestsdótlir, kennari, pípulagningarmaftur skrifstofumaftur, l.ækjarhvammi 7 AlfaskeiftiH4 llringhraul 29 17. Sigriftur Magnúsdóttir. IH. Sverrir Mdr Albertsson. 19. Ægir Sigurgeirsson. forslöftumaftur. læknanemi. kennari. MiftvangiSJ Sléttahrauni 16 Miftvangi77 20. Sigrún Guftjónsdóttir. 21. Kristjdn Jónsson. 22. Sigrún Sveinsdóttir, myndlistarmaftur. styrimaftur. verkakona, Austurgötu 17 Krluhrauni 11 Skúlaskeifti 20. Rætt við Halldór Brynjólfsson: Hitaveitan er mesta kjarabótin Halidór Brynjólfsson i Borgarnesi var aö þvi spuröur hvaö liöi kosningaundirbúningi hjá þeim þar efra. — Jú, viö höfum þegar hafiö hann, svaraði Halldór — Settum raunar á fulla ferö strax i haust og hefur slöan ekki veriö lát á. Efnt var til sameiginlegs próf- kjörs snemma I febrúar og á prófkjörsdaginn var „opiö hús” hjá Alþýöubandalaginu I Hótel Borgarnesi. Þar var margt um manninn og m.a. mættu þar Skúli Alexandersson, Svavar Gestsson og Guörún Hallgrims- dóttir. Kosin hefur verið stjórn svo- nefnds sveitarmálaráðs, en þvi er ætlað að skipuleggja og stjórna kosningarstarfinu til að byrja með en það mun einnig halda störfum áfram eftir kosn- ingar. Vinna þarf ötullega aö þvi að gera sem allra fiesta félaga virka i starfi og þaö verður m.a. hlutverk sveitar- málaráðsins. Nú stendur vfir hjá okkur fundaröð og er að þvi stefnt að halda fundi hálfs- mánaðarlega fram að kosn- ingum. Siðan eru sjö hópar að störfum milli funda og fjalla þeir um hina einstöku mála- flokka, sem á dagskrá eru. Einn hópurinn f jallar um heiibrigðis- ogskipulagsmál, annar um hús- næðismál, þriðji um dagvist- unar- gæslu- og öldrunarmál, fjóröi um heilbrigöis- og um- hverfismál, fimmtium atvinnu- mál og atvinnurekstur sveitar- félagsins, sjötti um skólamál og sjöundi um félags-, menningar- og æskulýðsmál. Undanf arin ár höfum við gefið út blaðið Röðul, sem er blað Al- þýðubandalagsins i Borgarnesi og nærsveitum. Hafa komið út fjögur tbl. á ári að undanförnu og svo kemur út sérstakt auka- blað nú fyrir kosningarnar. Ég hygg þvi að vel megi taka svo til orða að við séum komin á fulla ferð með kosningaundirbúning- inn. — Hvernig telurðu útlitið vera? Halldór Brynjólfsson — V ið erum alls ekki svartsýn en Urslitin veröa að sýna sig. — Hvert hefur verið stærsta verkefni hreppsnefndarinnar á þessu kjörtimabili? — Það eru náttúrlega tvimælalaust hitaveitufram- kvæmdirnar. Þótt að ýmsu hafi verið unnið þá bera þær að minum dómi alveg af. Við erum nú búin að njóta hitaveitunnar i rúmt ár og ég tel alls ekki of- mælt að segja að hún sé sú al- mesta kjarabót, sem fólk i Borgarnesi hefur fengiö á siðari árum. Nú, það hefur auðvitað, eins og ég sagði, verið unnið að ýmsum fleiri framkvæmdum. Það hefur t.d. verið gert stór átak við frágang gatna, gang- stétta og gróðursvæöa á kjör- timabilinu, svo að eitthvað sé nefnt. — Hvaö mun svo verða efst á baugi hjá ykkur á næsta kjör- timabili? — Það veröur að sjálfsögöu haldið áfram með gatnagerðina og skyld verkefni, holræsagerö, hafnarframkvæmdir og trúlega verður byrjað á viðbyggingu við grunnskólann. Lengra komumst við Halldór ekki með spjall okkar þvi að á næsta leyti voru ráðstefnuslitin. — mhg Bæjarstjóm Kópavogs: Einrómagegn hraðbraut um Fossvogsdal Bæjarstjórn Kópavogs hefur af gefnu tilefni ítrekað fyrri samþykktir sinar um að ekki verði lögð stofnbraut eftir Fossvogsdalnum, heldur skuli stefnt að því að gera þar virkt útivistarsvæði Kópavogs og Reykja- víkur. Aðalskipulag Kópavogskaup- staðar, sem og annarra sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu, er nú I endurskoöun. Hraðbraut á höfuðborgarsvæðinu, er nú i endurskoðun. Hraðbraut i gegnum Fossvogsdal virðist enn vera ofarlega i huga sumra skipuleggjenda og þvi ályktaði bæjarstjórn Kópavogs um þessi mál: „Af gefnu tilefni itrekar bæjarstjórn fyrri samþykktir sinar um aö ekki verði lögð stofnbraut eftir Fossvogsdal. Þá samþykkir bæjarstjórn að sú stefna verði tekin upp að gera Fossvogsdal að sameiginlegu útivistarsvæði Kópavogs og Reykjavikur. Það er álit bæjar- stjórnar Kópavogs að allar ein- hliða ákvarðanir Reykjavikur um aðalskipulag er áhrif hefur á nærliggjandi sveitarfélög séu út i hött og bendir á að aukinnar samræmingar er þörf I þessum efnum.” Allir bæjarstjórnarmenn i Kópavogi voru þessu samþykkir og er óhætt að segja að þar sé vilji flestra ef ekki allra Kópa- vogsbúa túlkaður. — v.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.