Þjóðviljinn - 07.04.1982, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 7. aprtl 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Rætt við Stefán Guðmundsson, bæjarfulltrúa á Sauðárkróki:
Það vantar aldrei verkefni
Menn utan af landi hafa i
mörgu aO snúast þegar þeir koma
hingað til höfuðborgarinnar. Og
það gildir vist ekkert siður um
Stefán Guðmundsson, vélvirkja
og bæjarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins á Sauðárkróki en aðra.
Það vottaði þvi fyrir samviskubiti
hjá blaðamanni þegar hann innti
Stefán el't'ir þvi hvort hann gæti
séð af fáeinum augnablikum til
þess að svara spurning-
um. — Augnablikum, sagði Stef-
án i spurnartón. Og tónninn sá
var ekkert undrunarefni þvi allir
vita, aö orðið augnablik merkir
yfirleitt heila eilifð nú til dags.
— Þið eruð búnir að ganga frá
framboðslistanum, Stefán. Not-
uðu þið kannski prófkjörsaðferð-
ina?
— Við erum búin að ganga frá
honum, já, en prófkjöri slepptum
við nú alveg. Við kusum uppstill-
ingarnefnd, sem gerði tillögu um
skipan listans og hann var siðan
samþykktur á félagsfundi. Það
rikir mikil eining um þennan
framboðslista okkar og við teljum
hann sterkan. Við eigum einn
fulltrúa i bæjarstjórninni en
stefnum að þvi að fá tvo kosna nú.
— Hverjir mynda meiri hluta i
bæjarstjórninni núna?
— Meiri hlutann mynda Sjáif-
stæðismenn, Alþýðuflokkurinn og
óháðir en það hefur nú enginn
sérstakur kærleiksandi rikt i
þeirri þrieinu sambúð.
— Og hvað hafið þið svo helst
haft fyrir stafni á kjörtimabilinu?
— Ja, það má kannski segja að
höfuð viöfangsefnið hafi verið að
vinna að undirbúningi steinullar-
verksmiðjunnar, sem nú er i sjón-
máli, að þvi er við vonum. Það er
mál, sem mikið er búiö fyrir að
hafa.
Stefán Guðmundsson
Svo hefur verið unniö að skóla-
mannvirkjum. Lokið var við einn
áfanga heimavistarbyggingar-
innar við Fjölbrautaskólann og
hugmyndin er að byrja á öðrum
áfanga i vor. Þá var og lokið við
C-álmu sjálfrar skólabyggingar-
innar. Einnig er hafin bygging á
iþróttahúsi. Nefna má að búið er
að taka grunn að byggingu
dvalarheimilis fyrir aldraða og
heilsugæslustöð hefur verið i
byggingu. Það vantar alderi
verkefnin og eitt kallar jafnan á
annað en gallinn er bara sá, að
tekjumöguleikar sveitarfélaga
eru svo takmarkaðir að litið svig-
rúm vröur til framkvæmda þegar
staðin hafa verið skil á lög-
boönum gjöldum.
— Hefur eitthvað verið unnið að
varanlegri gatnagerð hjá ykkur
að undanförnu?
— Nei, hún hefur nú engin
verið. Hinsvegar er fyrirhugað að
gera mikið átak i þeim efnum á
þessu ári og væntanlega verður
það verkefni hinnar nýju bæjar-
stjórnar.
— Og þið byggið stöðugt nýjar
ibúðir?
— Já, bærinn þenst út en ennþá
höfum við samt nógar lóðir.
Fjöldi ibúðarhúsa hefur risið á
Sauðárhæðum undanfarin ár og
byggðin mun halda áfram að
teygja sig til suðurs vestan
Sauðárkróksbrautar.
— Fjölgar ekki ibúum stöðugt á
Sauðárkróki?
— Jú, þeim gerir það og þó
e.t.v. minna en ætla mætti af þvi
hvaö mikið er byggt, en ibúafjölg-
un mun vera nálægt landsmeðal-
tali.
— Og atvinna er næg hjá
ykkur?
— Já, það hafa allir nóg að gera
eins og sakir standa en um ibúa-
fjölgun getur naumast orðið að
ræða úr þessu að neinu marki
nema til komi nýir atvinnumögu-
leikar. Við höfum ýmiss konar
iðnað og hann er mikils virði. En
megin burðarásinn i atvinnu-
lifinu er útgerðin og fiskvinnslan.
Er sjálfsagt að hlynna að henni
svo sem unnt er og vonandi að
ekki þurfi að koma þar til sam-
dráttar. Hinsvegar verður það
alltaf ótryggt að þurfa að treysta
mikið á eina atvinnugrein og þvi
ber brýna nauðsyn til þess að efla
aðra atvinnustarfsemi. Og þá er
það steinullarverksmiöjan, sem
við horfum til. Hún leiðir svo sem
ekki neitt sérstaktstökk en hún er
samtsem áður forsenda fyrir þvi
að ibúum geti haldið áfram að
fjölga hjá okkur. Við hölum siður
en svo nokkurt horn i siðu Sunn-
lendinga en ég held að það dyljist
engum að þeir hali mun meiri
möguleika á og betri skilyrði til
að koma upp margskonar iðn-
rekstri en við á Sauðárkróku svo
okkur finnst þeir hafi alveg ráð á
þvi að sjá af steinullarverksmiðj-
unni til okkar.
— Þú sast á sveitarstjórnarráð-
stefnunni á Siglufirði um daginn,
Stefán hvernig likaði þér hún?
— Það var prýöilega góð sam-
koma og ég held að fleiri slikar
ætti að halda innan kjördæmisins.
— in hg
„ÞJOÐHATIД
1 Borgarfbði eystra
Siðastliðið laugardagskvöld
frumsýndi leikfélagið Vaka í
Borgarfirði eystra gamanleikinn
Þjóðhátið, eftir Guðmund Steins-
son, undir stjórn Asgeirs Sigur-
valdasonar.
Þau hjónin Gilstaf og Rósu,
;léku Pétur Eiðsson og Asta
Geirsdóttir. Börn þeirra, Klöru og
Benedikt, léku Dagmar Snjólfs-
dóttir og Jökull MagnUsson.
Dátann lék Erling Ólason,
Leiknum var mjög vel tekið og
Vorvaka V-
Húnvetnlnga
Hin árlega Vorvaka Vestur-
Húnvetninga verður haldin á
Hvammstanga dagana 8,—10.
april n.k. Verður þar að venju
margt til fróölciks og skemmt-
unar.
A skirdag, kl. 14, verður Vakan
sett og listsýningar opnaöar. Við
opnunina syngur blandaður kór
undir stjórn Helga ólafssonar.
Þeir listamenn sem sýna verk sin
á Vorvökunni eru: Gunnar
Guðjónsson, Salome Fannberg,
Marinó Björnsson og Torfhildur
Steingrimsdóttir. Einnig sýna
nokkrir Hvammstangabúar leir-
muni.
Kl. 21 hefst svo kvöldvaka. Þar
koma fram tónlistarmennirnir
Ragnar Björnsson, Guðný
Guðmundsdóttir og Pétur
Þorvaldsson. Pjetur Hafsteinn
Lárussonog Geirlaugur MagnUs-
son lesa Ur verkum sinum og
Sveinbjörn Beinteinsson kveöur
rimur.
A föstudaginn langa verða sýn-
ingar opnar frá kl. 14—17.
A laugardaginn veröa þær
einnig opnaðar kl. 14, en kl. 16
hefst samfelld dagskrá. Þar
syngur blandaöur kór undir
stjórn Helga Ólafssonar. Ragn-
hildur Karlsdóttir les ljóð eftir
Ingibjörgu Jónsdóttur frá Laufási
i Viðidal, Simon Ivarsson leikur á
gitar og Visnavinir skemmta með
leik og söng.
Kaffisala verður á fimmtudag
og laugardag. Agóði af henni
rennur i orgelsjóð Hvamms-
tangakirkju. Aðgangur aö þvi,
sem fram fer á Vorvökunni, hefur
jafnan verið ókeypis og er svo
enn.
ere/mhg
leikstjóranum færð blóm að leiks-
lokum.
NU er Vaka 10 ára og þetta er
niunda verkefni hennar. Stjórn
hennar skipa Erling ólason, for-
maður, Dagmar Snjólfsdóttir,
ritari og Ásta Geirsdóttir, gjald-
keri.
Aformað er að sýna Þjóðhátið
viðar um Austurland ef veður og
færð leyfa.
sh/mhg
Hópurinn i „Þjóðhátið” ásamt leikstjóra.
Kolbeinn
bjarnarson
Frið-
Sigurður
son
Hlöðvers-
Signý
dóttir
Jóhannes-
Brynja
dóttir
Svavars-
Guðmundur
son
Lárus-
Sva va
dóttir
Baldvins-
tiarteiun Marteins-
Framboðs
listi
Alþýðu-
bandalagsins
á Siglufirði
1. Kolbeinn Friðbjarnarson,
form. verkalýðsfél. Vöku.
2. Siguröur Hlöðversson,
tæknifræðingur.
3. Signý Jóhannesdóttir, hús-
móöir.
4. Brynja Svavarsdóttir, hús-
móöir
5. Guðmundur Lárusson, raf-
vélavirki.
6. Svava Baldvinsdóttir,
verkakona.
7. Þorleifur Halldórsson, vél-
virki.
8. Jóel Kristjánsson sjómaður.
9. Marteinn Marteinsson, sjó-
maður.
10. Kolbrún Eggertsdóttir,
kennari.
11. Kristján Eliasson, sjómaður.
12. Ingunn Jónsdóttir, verka-
kona.
13. Hörður Júliusson, húsa-
smiöur.
14. Steinunn Hilmarsdóttir,
verkakona.
15. Þorsteinn Haraldsson, húsa-
smiöur.
16. Oskar Garibaldason, fyrrv,
form, verkalýösfél. Vöku.
17. Hannes Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri.
18. Gunnar Rafn Sigurbjörns-
son, skólastjóri.
Gjaldeyris-
merklngar
aðgengí-
legri
Ákveðnar skammstaf-
anir tiðkast viðast hvar
;yfir nöfn landa og við-
komandi myntar, en
langt er hins vegar frá
þvi að samræmi sé i
skammstöfununum
milli málsvæða. Þetta
hefur valdið misræmi og
stundum misskilningi i
alþjóðlegum samskipt-
um.
Margt fólk þarf við dagleg störf
sin að visa skriflega til landa og
gjaldeyris þeirra, i handskrift, á
ritvél, á telex eða við skráningu
upplýsinga inná tölvu. En jafnvel
alþekkt tákn eins og pund eða $
eru ekki alltaf til staðar á lykla
borðinu, (t.d. á þeirri vél sem
þessi frétt er sett á er táknið fyrir
pund ekki til), svo óráðlegt væri
að taka upp sambærileg tákn fyr-
ir annan gjaldeyri. Þvi hefur
verið gripið til skammstafana, en
þær þarf að samræma og stað-
festa alþjóðlega.
Þetta hefur nú verið gert á veg
um Alþjóöa staðlastofnunar-
innar, ISO. Teknar hafa verið upp
tveggja og þriggja stafa
skammstafanir, sem rétt er að
vekja athygli á. Norðurlanda-
krónurnar eru þannig ekki lengur
táknaðar með IKR, DKR, NKR
og SKR, heldur ISK, DKK, NOK
og SEK. t stað táknsins fyrir
sterlingspundið og $ fyrir
Bandarikjadollarinn verður
skrifað GBP og USD og þýska
markið, DM, verður DEM það
vesturþýska og DDM austan-
tjaldsmarkið.
u
Frjálslyndir
í Sandgerði
Akveðinn hefur verið listi
frjálslyndra borgara i Sandgerði,
H-listinn, fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar i vor. Framboðs-
listann skipa:
1. Magnús Sigfússon, húsamiða-
meistari.
2. Elsa Kristjánsdóttir, gjald-
keri.
3. Jón Þórðarson, verkamaður.
4. Ómar Bjargþórsson, kennari.
5. Unnur Guðjónsdóttir, hús-
móðir.
6. Helga Hallsdóttir, kennari.
7. Kristján Gunnarsson, húsa-
smiöameistari.
8. Guðrún Emilia Guðnadóttir,
húsmóðir.
9. Óskar Guðjónsson, málara-
meistari.
10. Steinunn Heiðmundsdóttir,
húsmóðir.
11. Gunnar B. Sigfússon, verk-
stjóri.
12. Sigurður Margeirsson, form.
verkalýðs- og sjómannafélags
Miðnesshrepps.
13. Gylfi Gunnlaugsson, gjald-
keri.
14. Sveinbjörn Berentsson, bif-
reiðastjóri.
Frjálslyndir eiga tvo menn i
hreppsnefnd.