Þjóðviljinn - 07.04.1982, Page 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNMiövikudagur 7. aprfl 1982
ALÞÝOUBANDALAGIÐ
KosningamiðstöðAlþýðubandalagsins
i Reykjavik, Siðumúla 27
Skrifstofa kosningamiðstöðvar Alþýðubandalagsins i Reykjavik er að
Siðumúla 27.
Simarnir eru 39816 (Úlfar) og 39813 (Kristján)
Kosningastjórn ABR
Undirbúningur borgarstjórnarkosninga
Sjálfboöaliðar óskast
Nú er kosningaundirbúningur Alþýðubandalagsins i Reykjavik aö
komast i fullan gang.
Kosningastjórn félagsins skorar þvi á alla félagsmenn og stuðnings-
menn Alþýðubandalagsins að tilkynna kosningamiðstöð um þann tima
sem þeir hafa aflögu til að létta störfin i kosningamiðstöð.
Siminn er 39816 og 39813. Kosningastjórn ABR
Fáið frambjóðendur Alþýðubandalagsins á fund
Kynnist þvl sem gert hefur veriö I Reykjavik og hver stefna Alþýöu-
bandalagsins er viö komandi borgarstjórnarkosningar.
Frambjóðendur Alþýðubandalagsins I Reykjavik við borgarstjórnar-
kosningarnar eru tilbúnir aðkoma tilfundar við borgarbúa sé þess ósk-
að. Skiptir þá ekkimálihvortum stóranhóper að ræða eöa litinn, hvort
fundurinn er á vinnustað eða I heimahúsi, hvort það er aö degi til eöa aö
kvöldi.
Hafið samband við kosningamiðstöð félagsins að Siöumúla 27. Simar:
39816 og 39813.
Frambjóöendur Aiþýöubandaiagsins
I Reykjavík
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Framlög i kosningasjóð
Tekið er við framlögum i kosningasjóð Alþýðubandalagsins í Reykja-
vik vegna borgarstjórnarkosninga að Grettisgötu 3 og i kosningamið-
stöö félagsins að Siðumúla 27.
Verum minnug þessaðenginupphæðer of smá.
Kosningastjórn ABR
Félagsfundur ABR i kosningamiðstöð
aðSíðumúla 27
Askja er hinn föngulegasti farkostur.
Skipaútgerö ríkisins
Fær nýtt fhitningaskip
Nýtt skip hef ur nú bæst
í flota Skipaútgerðar
rikisins og var það af hent
i gær. Skipið er norskt, 76
m. langt, 13.5 m. breitt,
497 brúttólestir, smíðað
1975. Verð þess er 14.665
mil'|. norskra kr. Skipið
hlaut nafnið Askja.
SkÍDStióri á öskiu verður Boei
Einarsson en yfirvélstjóri Unn-
steinn Þorsteinsson, áhöfn 10
manns.öskju er ætlaö aö leysa
afhólmiannaö hvort Heklu eða
Esju. Skipið er meö hliöar-
löndunarbúnað þannig aö hægt
er að losa vörur beint aö lyftara
og niöur i lest en þrir lyftarar
eru um borð.
Skipaútgerðin hefur aö
undanförnu haft á leigu systur-
skip öskju og hefur þaö reynst
mjög vel. Veröur þaö áfram i
þjónustu útgerðarinnar.
Askja mun annast strandsigl-
ingar, fer i sfna fyrstu ferð undir
islenskum fána á skírdag og
heldur þá austur um land.
—mhg
Kosningastefnuskrá félagsins lögöfram til samþykktar
Alþýðubandalagið i Reykjavik boðar til félagsfundar i kosningamið-
stöð félagsins að Siðumúla 27, föstudaginn 16. april kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosin kjörnefnd vegna stjórnar ABR
2. Stefnuskrá Alþýðubandalagsins i Reykjavik
við borgarstjórnarkosningarnar lögð fram
til samþykktar.
Framsaga: Sigurjón Pétursson
3. önnur mál. Kosningastjórn ABR.
Kosningamiöstöö Alþýöubandalagsins
verður lokuð yfir páskahelgina.
Kosningastjórn ABR.
Tillaga að stefnuskrá í borgarmálum
Kynnið ykkur stefnuskrána fyrir félagsfundinn á föstudagsdvöld.
Tillaga að stefnuskrá Alþýðubandaiagsins i Reykjavik við borgar-
stjórnarkosningarnar I vor liggur frammi fyrir félagsmenn að Grettis-
götu 3 og i kosningamiðstöð aö Siðumúla 27, frá og meö þriðjudeginum
13. april. Kosningastjórn ABR.
Til formanna flokksfélaga
utan Reykjavikur
Þeir sem enn eru ekki búnir að svara bréfi kosningastjórnar ABR eru
hvattir til að gera það nú þegar.
Kosningamiðstöðin er að Siðumúla 27, simar 39816 og 39813
Kosningastjórn ABR.
Alþýöubandalagið i Borgarnesi
og nærsveitum
Hin árlega Skirdagsvaka verður haldin i félagsheimilinu Valfelli kl.
14.00 (fimmtudag). Mætum öll hress og kát.
Stjórnin.
HRAÐSKAKMÓT í KOSNINGAMIÐSTÖÐ
Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins hefur ákveðið að efna til skák-
móts i kosningamiðstöð Alþýðubandaiagsins að Siðumúla 27 i
Reykjavik næstkomandi miðvikudagskvöld. Stjórnandi mótsins
verður Helgi Samúelsson. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og
þátttaka er öllum heimil. Þátttakendur eru beðnir að skrá sig hjá
starfsmanni Æskulýðsnefndar Alþýðubandalagsins I sima 17500. —
Æskilegt er aðsem flestir hafi með sér töflog klukkur.
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum hefur opnað kosningaskrifstofu aö
Tjarnarlöndum 14. Veröur skrifstofan opin fyrst um sinn mánudags-,
þriöjudags- og fimmtudagskvöld frá kl. 20.30 til kl. 22.30. Stuönings-
menn G-listans eru hvattir til að koma til starfa á áöurnefndum tima.
(Kosningasimi auglýstur siðar). Kosningastjórn.
Siglufjörður— Sauðárkrókur
Námskeið i blaðamennsku og útgáfu.
Akveöiö hefur veriö að halda námskeiö I blaöamennsku og útgáfu á
Siglufiröi helgina 17. og 18. aprn n.k. Nánar auglýst siöar.
Alþýðubandalagið.
SETUR ÞU
STEFNULJÓSIN
TÍMANLEGA A?l
||UMFERÐAR
______________)
INSÍ um afstöðu Virinuveitendasambandsins:
Slíka hræsni hlýtur
verkafólk að fordæma
„Enn einu sinni hefur verka-
fólki veriö kunngeröur boöskapur
atvinnurekenda, með yfirlýsing-
um um aö grundvöllur fyrir kaup-
máttaraukningu sé alls enginn
,næstu 2 árin. Slika hræsni hlýtur
verkafðlk aö fordæma harölega.
Slikar yfirlýsingar sýna best
hverskonar afturhald ræöur rikj-
um i herbúöum atvinnurekenda-
samtakanna,” segir m.a. í álykt-
un kjaramálaráöstefnu Iðnnema-
sambandsins sem haldin var 27.
mars sl.
Skorað er á verkalýöshreyfing-
una að gefa hvergi eftir I komandi
kjarasamningum og hvetur hana
til aö hafna hinni svokölluöu
„kökuskiptingu”, þar sem ætlast
er til aö verkafólk bftist um þaö
litla sem á aö vera eftir þegar
„greiöslugeta atvinnuveganna”
hefur veriö mæld.
Telur ráöstefnan brýnt að I
komandi samningum verði
ákvæði sem tryggi að stjórnvöld
geti ekki með geðþóttaákvörðun-
um afnumið vísitölubætur, eða
brotið geröa samninga. Þá telur
ráðstefnan rangt að kaupa félags-
leg réttindi með skeröingu á
kaupi.
Loks telur ráöstefnan að staöa
iðnnema veröi ein sú sérstæöasta
sem oröiö hefur lengi i komandi
samningum, vegna samninga um
lágmarksdagvinnutekjur sem
samið var um f siöustu samning-
um. Þá áréttar ráðstefnan kröf-
una um fuilan samnings og verk-
fallsrétt iönnema.
— S.dór
Akureyrarf élögin:
~
I eina sæng
Kaupfélag verkamanna á Ak-
ureyri hætti rekstri verslana
sinna sl. sumar, og óskaði eftir
viöræðum um að sameinast
Kaupféiagi Eyfirðinga.
lupphafi var um þaö rætt aö fé-
löginyröu sameinuð á grundvelli
laga um samvinnufélög. Viss
ákvæöi laganna geröu þó slfka
sameiningu seinvirka og i' ljós
kom að flestir félagsmenn i
Kaupfélagi verkamanna voru
einnigfélagsmenniKEA. Til þess
að flýta framgangi malsins var
þvi horfiö aö þvi ráöi að KEA
keypti eignir Kf. verkamanna og
tæki aö sér greiöslu á skuldum
þess. Eignimar eru húseignir við
Strandgötu, verslunarinnrétting-
ar og áhöld, vörubifreið, sendi-
feröabifreiö og útistandandi
skuldir. Meöal skuldanna eru
innistæöur félagsmanna I stofn-
sjóði og innlánsdeild. Ekki mun
enn ákveöiö hvernig KEA nýtir
þær eignir, sem það keypti af Kf.
verkamanna.
— mhg
RAUÐ ,
VERKALYÐSEINING 1982
Fundur til undirbúnings
Rauðrar verkalýðseiningar 1982
verður haldinn að Hótel Borg
miðvikudaginn 7. apríl kl. 20.00.
A fundinum verður gengið frá kröfugrundvelli aðgerða
RVEI og kosin framkvæmdastjórn.
Allir velkomnir.
Kommúnistasamtökin • Baráttusamtök fyrir stofnun kommúnistaflokks
Rauðsokkahreyfingin.