Þjóðviljinn - 07.04.1982, Qupperneq 19
Miðvikudagur 7. aprlí 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
M
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla
virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum
fra
lesendum
Fréttasending frá Berlín
Ekkert spurst
til „Útlagans”
Ég las hér i blaðinu ég held
upp úr nýárinu, að kvikmyndin
„Útlaginn” yrði send á Kvik-
myndahátiðina i Berlin vestur.
En hér i borg hefur ekkert til
hennar spurst. Þar sem ég hef
viljað halda við menningar-
tengslum milli landanna, hafði
ég áhuga á að fylgjast með
þessu og vita hvað blöð myndu
skrifa um myndina. Þvi bað ég
góðvin minn einn, sem i V-Ber-
lin býr, að athuga þetta fyrir
mig. Maður sá er próf. Heinz
Baraske, ekki óþekktur maður á
tslandi, bæði vegna heimsókna
sinna og bóka (ísland, Dan-
mörk, Færeyjar). Hann gaf út
bók með islenskum sögum á
þýsku, og ætlun hans er að gefa
út þýðingar á nútimalegum
ljóðum islenskum. Heinz og frú
koma til min öðru hverju og ég
bað hann að athuga þetta fyrir
mig. Eins að hringja til skandi-
navisku deildarinnar i Flihá-
skólanum i Dahlem, svo að
norrænustúdentar þar gætu
kynnt sér Gisla sögu á einu
bretti, ef áhugi væri á sögunni
eða þá að vekja hann.
Heinz hringdi í mig á dög-
unum, athugaði þetta sam-
viskusamlega eins og hans var
von. Fór á staðinn, hátiðin var
ekki á enda, á leikskrá stóð ekk-
ert um þetta og skrifstofan
kannaðist ekkert við Gisla Súrs-
son.
Af þvi má álykta að Gisli hafi
sigið upp i vitlausa lest og haldið
i aðra átt. Þar sem Gisli var
ekki sterkur i öðrum evrópu-
málum, hefði hann átt að vera
betur nestaður að heiman. Hinir
ábyrgu ef einhver hefði átt að
sjá um, að ætlun hans stæð-
ist — sem stafur á bók. Hvað
ætli að Rúmenar skilji, þvi Gisli
hafði mælt fram dróttkvæöar
visur, sem ekki voru ortar fyrr
en löngu eftir dauða hans — að
auki.
Gat enginn fariö með film-
una? t öllu falli á ekki svona'
nokkuð að koma fyrir. Fyrir
okkur islendinga er þetta ekki
aðeins áhugamál, heldur og
metnaöarmál — jafnvel þótt
þessi tilraun félli ekki erlendum
i geð.
Berlin mars 1982
Sveinn Bergsveinsson
ÖRgyrrSSTAMBAlDAAgi
k.iÁj2M
Hraf nkell Ásmundsson er
9 ára og býr í Neskaup-
stað Hann teiknaði þessa
sögulegu mynd frá ör-
lygsstaðabardaga
1238.— Hrafnkell er eldri
bróðir Jóns Knúts, sem
átti myndina af Tyrkja-
ráninu sem við birtum
hérna í horninu í síðustu
viku.
Barnahornid
Sjónvarp
tT kl. 18.00
Sjónvarp
TF kl._18.30
Verkfæri
dýranna
Vissir þú að sjóoturinn sem
býr við Kaliforniustrendur i
Bandarikjunum, notar hamar,
já steinhamar, til að komast
að matnum i skelfiski og
öðrum krabbadýrum.
Það mun sjálfsagt koma
mörgum á óvart i þessari
fræðslumynd, hvernig dýrin
nota hina ýmsu hluti sem
verkfæri rétt eins og maður-
inn. í raun voru það dýrin sem
fundu upp hamarinn löngu áð-
ur en maðurinn hafði vit á að
útbúa slikt verkfæri.
I þessari fræðslumynd
ferðumst við með breskum
kvikmyndatökumönnum viða
um heimsbyggðina og kynn-
umst furðulegum dýrum og
ennþá furðulegri verkfærum
og öðrum „tækjabúnaði” sem
Dýrin höfðu vit á þvi að notast
viö ýmis konar verkfæri I llfs-
baráttunni, löngu áöur en
„maöurinn” kom til sögunnar
og fór aö fjöldaframleiöa sllk
tól og tæki.
þau notast við i hinu daglega
lifi sinu. M.a. heimsækjum við
Egyptaland, Galapagoseyj-
arnar, Astraliu, Kaiiforniu og
viðar.
Þýðandi myndarinnar er
Öskar Ingimarsson en þulur
Friðbjörn Gunnlaugsson.
1 kvöld er komiö aö þvi að
bikarmeistarar Þróttar leika
fyrri leik sinn i undanúrslitum
Evrópukeppni bikarhafa.
Mótherjarnir eru engir
byrjendur i handknattleik,
sjálfir Dukla Prag, sem
islenskir handknattleiksunn-
endur þekkja vel frá þvi fyrr á
árum.
Leikurinn i kvöld kemur til
með aö hafa gifurlega þýðingu
fyrir Þrótt, þvi tapi þeir, eru
möguleikar þeirra sjálfsagt úr
sögunni, en nái þeir hins vegar
að sigra og þá vonandi með
nokkrum mun, veit enginn
hvernig fer að endum.
Það á ekki að þurfa að
hvetja alla áhugamenn að
fjölmenna i Höllina i kvöld, en
hinir sem einhverra hluta
vegna geta ekki komið þvi við,
að styöja viö bakið á Þrótt-
urum, geta hlýtt á beina lýs-
ingu Hermanns Gunnarssonar
úr Laugardalshöll kl. 20.35, og
horft siðan á valda kafla úr
leiknum i sérstökum
aukaiþróttaþætti hjá Bjarna
Felixsyni i sjónvarpinu, sem
hefst kl. 23.15 og stendur til
miðnættis. Áfram Þróttur!!!
Ná Tékkarnir að stöðva Sigurð
Sveinsson i kvöld???
Prinsessan
Lindagull
Prinsessan Lindagull er við-
fræg ævintýrasaga eftir
finnska rithöfundinn Zachar-
ias Topelius.
Lindagull er fögur
prinsessa, dóttir Shah Nadir
sem var æðsti höfðingi i
Persiu fyrir langa langa löngu
siðan. Móðir hennar var
norræn og gaf dóttur sinni
þetta fallega norræna nafn.
Óvinur Shah Nadirs heitir
King Bombal. Hann vill ná yf-
irráðum i Persiu og rænir þvi
Lindagull og heldur henni
fangri norður i Lapplandi hjá
galdranorninnu Hirmu. En
hann Abderraman prins i
Persiu er ekki á þvi að Linda-
gull sé haldið fangri i
Lapplandi.
>•
Afram Þróttur