Þjóðviljinn - 16.04.1982, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. april 1982
um hclgina
Ijóðlist
Kynning
á ljóðum
Laxness
i tilcfni af 80 ára afmæli Hall-
dórs Laxness fiytja nemendur 3.
bekkjar Leiklistarskóla tslands.
i samvinnu viö Norræna húsiö,
samfellda dagskrá úr Ijóöum
skáldsins i Norræna húsinu kl.
17.00 sunnudaginn 18. april.
Dagskráin, sem ber heitið ,,ó,
hve létt er þitt skóhljóð”,er að
mestu byggö á Kvæðakveri
Halldórs, sem kom fyrst út árið
1930 og olli miklu fjaðrafoki og
hneykslan. Kvað þar við nýjan
tón, þar sem hefðbundnum
kveðskap var varpað fyrir róða,
bæði hvaö varðar yrkisefni og
form. Þá eru einnig flutt ljóðin
úr skáldsögunum sem skáldið
prentaði i siðari útgáfum
Kvæðakversins. Brotum úr
blaðagreinum og öðrum verk-
um skáldsins er skotið milli
ljóðanna og sungin eru lög eftir
Jón Ásgeirsson, Jón Þórarins-
son, Jón Laxdal, Askel Másson
og Eyþór Arnason, en hann er
úr hópi nemenda. Flytjendur
auk hans eru: Edda Heiðrún
Backmann, Helgi Björnsson,
Kristján Franklin Magnús,
Maria Sigurðardóttir, Sigurjóna
Sverrisdóttir og Vilborg
Halldórsdóttir. Þórhallur Sig-
urðsson hefur tekið dagskrána
saman og stjórnar flutningi
ásamt Fjólu Olafsdóttur, sem
æft hefur söngva. Undirleik
annast Páil Eyjólfsson, gitar-
leikari.
Leiklistarnemar munu endur-
taka fiutninginn i Norræna hús-
inu næstkomandi mánudags-
kvöld kl. 20.30 og i ráði er að
heimsækja nokkra staði utan
Reykjavikur.
tónlist
Frum-
flutningur
Concord-
sónötunn-
ar
Breski píanóleikarinn John
Lewis heldur tónleika aö Kjar-
valsstööum laugardaginn 17.
april klukkan fimm og mun þar
leika „Concordsónötuna” eftir
Charles Ives. Er þetta i fyrsta
skipti sem þessi sónata er flutt
hér á Iandi.
Sónatan er samin á árunum
1908-1915 og daga kaflaheitin
nöfn af þeim rithöfundum og
heimspekingum sem bjuggu í
Concord, Massachusetts, um
miðja siðustu öld, Emmerson,
H^wthorne, Alcotts og Thoreau.
Á tónleikunum mun John Lewis
einnig spjalla um sónötuna.
John Lewis hefur i vetur veriö
kennari viö Tónlistarskólann i
Stykkishólmi.
Tónleikar í
Austurbæj arbíói
Tónlistarfélagiö gengst fyrir
tónleikum n.k. laugardag, 17.
april, klukkan 2.30 i Austurbæj-
arbiói.
Þar koma fram Wiiliam
Parker, baritonsöngvari, og
William Huckaby, pianóleikari.
A efnisskránni eru verk eftir
Beethoven (Adelaide), Poulenc
(Banalités), Rorem (War
Scenes) og Schumann (Dichter-
liebe).
Úr fórum f j ölskyldunnar
Höskuldur Björnsson, listmálari, (1907-1963) dvaldist lengst af I
Austur-Skaftafellssýslu, þar til hann flutti búfcrlum til Hvera-
geröis, þar sem ekkja hans, Hallfrföur Pálsdóttir, býr enn, en hún
hefur breytt vinnustofu listamannsins þar i notalega kaffistofu.
„Höskuldur átti bæöi hagar og hlýönar hendur er geröu honum
hvert verk létt og hann átti óvenju skarpa sjón á töfra umhverfis
sins i náttúru og mannllfi. Hvort tveggja var forsenda þeirra lista-
verka er eftir hann liggja. Við sjáum nokkur af þeim hér.” — (Cr
sýningarskrá — Kristján frá Djúpalæk).
Laugardaginn 17. april verður
opnuö sýning á verkum
Höskuldar Björnssonar, þeirra
er enn eru i eigu fjölskyldu
hans. Sýningin vcröur aö Kjar-
valsstööum og opnar klukkan
tvö. AIIs veröa um 150 myndir á
sýningunni.
I ár veröa 75 ár liðin frá
fæðingu Höskuldar og af þvi til-
efni er efnt til þessarar
sýningar. Höskuldur fæddist 26.
júli 1907 að Dilksnesi i Horna-
firði og lést 2. nóvember 1963.
Hann lærði teikningu hjá Rik-
harði Jónssyni, myndhöggvara
veturinn 1925-26 og naut einnig
tilsagnar Jóns Stefánssonar,
listmálara, 1928-31.
Þaö sem helst einkenndi verk
Höskuldar Björnssonar voru
rómantiskar fugla- og lands-
lagsmyndir auk mynda af göml-
um byggingum, svo nokkuö sé
nefnt.
Tónleikar á Akureyri og í Reykjavík
Sextiu og þriggja manna
hljómsveit heldur tónleika á
Akureyri og i Reykjavik um
næstu helgi. Er hér um aö ræöa
nemendur fjögurra tónlistar-
skóla, Tónlistarskólans í
Reykjavik, Tónskóla Sigur-
sveins, Tónmenntaskólans og
Tónlistarskóla Akureyrar.
Hljómsveitarstjóri er Mark
Reedman og einleikari á fiölu
verður Guöný Guðmundsdóttir,
konsertmeistari Sinfóniuhljóm-
sveitar islands.
Tónleikarnir á Akureyri
verða i Iþróttaskemmunni á
laugardag klukkan fimm, en i
Reykjavik i sal Menntaskólans
við Hamrahlið á sunnudaginn
klukkan fimm. Sala
aðgöngumiða fer fram i bóka-
búðinni Huld á Akureyri og viö
innganginn á báðum stööunum.
Egó 6 Lækjartorgi
á morgun kl. 14.00:
Rokk gegn
banni
Bubbi Morthens og félagar
hans i Egó halda hljómleika á
Lækjartorgi á morgun, laugar-
dag kl. 2. e.h. Með hljóm-
leikunum er Egó að mótmæla
þvi uppátæki kvikmyndaeftir-
litsins, að banna fólki innan 14
ára aðgang að kvikmyndinni
„Rokk I Reykjavlk”. Liklegt er
að sá hópur fjölmenni á Torgið á
morgun, auk hinna „hólpnu”,
hvort sem ’ann hangir þurr
eður ei....