Þjóðviljinn - 04.05.1982, Qupperneq 2
? SIDA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. maí 1982
viðtalið
Ærin verkefni en of
lítið framkvæmdafé
Mhg ræðir við Björn Þór Ólafsson,
bæjarfulltrúa AB í Ólafsfirði
— Þaö eru nd tvær fylkingar,
sem takast á viö bæjarstjómar-
kosningarnar hér i Ólafsfiröi aö
þessu sinni og þannig var þaö
einnig viö seinustu kosningar.
Annarsvegar er þaö Alþýöu-
bandalagiö, Framsókn, Alþýöu-
flokkurinn og óháöir en hins-
vegar ihaldiö.
Núverandi meirihluti er
skipaöur tveimur Framsóknar-
mönnum, einum Alþýðu-
bandalagsmanni, einum Al-
þýöuflokksmanni og einum
óháöum en alls eru bæjarfull-
trúarnir 7. Þetta er því sterkur
meirihluti, bæöi að tölunni til og
samstööu. Hún hefur veriö góö
þessi tvö kjörtimabil.
Bæjarstjóraskipti urðu hér á
kjörtimabilinu. Pétur Már
Jónsson, lét af störfum en við
tók Jón Friðriksson. Hann er
búinn að vera hjá okkur rúmt á r
og viö væntum þess fastlega að
okkur haldist á honum áfram.
Sá, sem þannig lét um mælt,
er Björn Þór Ólafsson, bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins i
Ólafsfirði.
— Hverjar eru þær fram-
kvæmdir heistar, sem bærinn
hefur haft meö höndum á kjör-
timabilinu, Björn?
— Stærstu verkefnin eru
dvalarheimili aldraðra og
heilsugæslustöðin. I dvalar-
heimilinu verður vísir að hjúkr-
Björn Þór ólafsson
unarheimili. t sömu byggingu er
svo heilsugæslustöðin. Við
vonumst til þess að hægt verði
aö taka dvalarheimilið í notkun
nú um næstu mánaðamót
apríl-maí. Það á að rúma
18 manns og auk þess verða 8
rúm i hjúkrunardeildinni.
Áætlaö er að heilsugæslustöðin
verði afhent 1. júní.
Þá má nefna, að við erum að
taka I notkun barnaheimili, sem
ætla má að fullnægi þörf fyrir
dagvistun.
— Hvernighefur ykkur gengiö
aö fá starfsfólk aö þessum
stofnunum?
— Það hefur gengið þokka-
lega. Við erum búnir að ráða
það starfsfólk sem við þurfum á
að halda i bili nema lækni með
fasta búsetu hér hann er ófeng-
inn enn.
Talsvert mikið hefur verið
unnið við höfnina; hafa þær um-
bætur einkum verið fólgnar i þvl
að bæta löndunaraðstööuna
fyrir togarana, en þeir eru hér
þrir. Aðstaða fyrir smábátana
hefurog verið bætt. Aformað er
að I ár verði áfram unniö að
hafnarbótum. Verður það
væntanlega bæði fólgið I þvi að
styrkja grjótvamargarðinn og
dýpka höfnina. Sandburður I
höfnina er okkur mjög erfiður
ljár i þúfu. Þarf að moka upp úr
henni á tveggja til þriggja ára
fresti.
Nokkuð hefur verið unnið að
varanlegri gatnagerð og þokast
þar smátt og smátt I áttina. Til
að byrja með steyptum við slit-
lagið en síðustu tvö árin höfum
við notað malbikið.
— Hvar eruð þiðá vegi staddir
með gatnageröina?
— Ég hygg að við séum svona
fast að þvi hálfnaðir með gatna-
kerfið, eins og það er nú.
Enn má nefna, aösifellt er að
■ þvl unnið i samvinnu við
íþróttafélögin að bæta aöstöð-
una tilíþróttaiðkana, en þar eru
mikil verkefni framundan, svo
sem aðkoma uppnýju uþrótta-
húsi og undirbúningur að sund-
laugarbyggingu.
— Hvernig er ástatt meö hús-
næðismálin hjá ykkur?
— Það er náttUrlega alltaf
nokkur skortur á húsnæði. Við
gátum afhent þrjá verka-
mannabústaði á þessu ári og
áformað er að byggja á næst-
unni aðra þrjá. Bærinn hefur
byggt nokkuð af leigu- og sölu-
ibúðum en þó engan veginn nóg.
Til þessara ibúða er gjarna
gripið fyrir þá, sem bærinn þarf
að sjá fyrir hUsnæði, svo sem
kennara og aðra starfsmenn
bæjarins.
— Atvinnuástandið?
— Atvinna hefur verið yfir-
drifin hjá okkur og Utlit á að svo
verðiáfram, bæði hjá fiskvinn -
slufólki og iðnaöarmönnum.
Togararnir okkar hafa aflað
mjög vel.
Og verkefnaleysinu þurfum
við ekki að kviða á næsta kjör-
timabili. Hitt er annað mál, að
fjármagn til framkvæmda er af
skornum skammti. Skólamál og
heilbrigðismál eru mjög stórir
útgjaldaliðir og þar verður litlu
um breytt. Hjá okkur eru um
80% tekna bæjarins bundið I
föstum liðum svo olnbogarýmið
til framkvæmda er æði tak-
markað, hversu aökallandi og
nauðsynlegar sem þær eru.
— mhg
Eftir Kjartan
Arnórsson
Úr
Galdra-
skræð
ö-
r*
Það getur verið gott aö kunna
ýmislegt fyrir sér á þessum
siðustu og verstu timum. Þeir
sem vilja til dæmis reyna að
galdra svolítiö til heimabrúks
fá hér á næstunni nokkra góöa
galdra. Þeir eru úr Galdra-
skræöu eftir Skugga (Jochum
M. Eggertsson,) en Bókavaröan
hcfur nú gefið út þetta merka
rit, scm er eitt fárra um galdra
og galdrastafi. Bókin fjallar
bæöi um Hvitagaldur (magia
candida) og Svartagaldur
(magia diabolica).
Höfundurinn segir m.a. i for-
mála sinum fyrir ritinu:
„Til þess að verða galdra-
maður, varð fyrst að læra að
móta hagsunina og gefa henni
form og búning. Hvitagaldur er
einskonar skóli i þessu efni og
undirstaða hins virkilega
hugargaldurs eða svartfræði
(nekromanteia). Miðlastarf-
-O
—f
h
1. hfHkh
nnjn-nk-i ú/ú ýírrEb
■i'f fiit'ijjn'Mntí)'t-hw*
ní/nnt riNbni tmuJr
tmnf- R- n-m
toJt fFiMim-flUk'HP-Miv
MtOÝ. ,
Jfe'ý-f'irtéj,: 1. cfó'-fsf ó- - $<4- tþtrma
a, dfUsrtar/- i'aJvcC Vfý ■Tí'f'ó þasyiri
/ZrtaJí faó tJ-. þec a./ ót/Trjtþó).
semi og hverskonar andakukl er
svartfræði eða nekromateia á
vissum stigum. Til að forma
einhverja hugsun verður að
þjálfa saman hönd og huga.
Formið er öllu æðra, jafnt i
galdri sem annarri íist.”
Aðalheimildir höfundarins
eru gömul handrit I Landsbóka-
safni og handritasafni Jóns for-
seta Sigurðssonar. Auk þess
byggir hann mjög á tveimur
galdrabókum vestfirskum,
fornum mjög, og einni norð-
lenskri galdraskræðu, sem sögð
er afrituð eftir blöðum
Galdra-Steinunnar, Jónsdóttur,
en hún var dóttir Jóns „stólpa”
og alsystir Antonlusar Jónsson-
ar, hins fræga galdramanns úr
Grimsey. Höfundur Galdra-
skræðu, Jochum M. Eggertsson,
bróðursonur Matthiasar
Jochumssonar, er löngu látinn,
en hann var rithöfundur og
fræðimaður i Reykjavik.
Svínharður smásál
Fugl dagsins
Svartbakur
Larus Marinus heitir hann á
latinu og er um 74 sm. Miklu
stærri en silfurmávur og slla-
mávur með hvitholdlitum fótum
og dýpri rödd. Fullorðnir fuglar
eru svartir að ofan, nefið er
sterklegra en á silamáv.
Grimmur og áræðinn fugl,
sem rænir eggjum og ungum og
drepur jafnvel fullorðna fugla.
Röddin er hrjúf, geltandi
„ák”, djúpt, kokkennt
„ga-ga-ga” langdregin mjálm-
andi hljðð. Heldur sig við sjó i
Norður-Evrópu, að nokkru far-
fugl.
Rugl dagsins
Afkastamikill höfundur
„Svo komu út eftir mig 1962
bækur með sagnaþáttum..”
(Helgarpósturinn 3». apr.)
Pelsinn
dýri
Liberace heitir þessi gaur,
þekktur skemmtikraftur sem
hamast á pianó og er fimur i
þeirri list að vekja á sér athygli
einkum með þvi að halda á lofti
gimsteinahringum si'num og
þúsund alklæðnuðum. Liberace
vakti aðdáun flóna og réttláta
reiði skynsamra manna á dög-
unum þegar hann sýndi sig I
nýjum refaskinnspels sem hann
hafði látiö gera sér og kostar 3.5
miljónir nýkróna. Er pelsinn
enda þrem metrum lengri en Li-
berace sjálfur. Og staðfestist
rétteinu sinni, að niutlu prósent
af fjárfestingum I sjóbissness er
skrum og eftirsókn eftir
vindi.