Þjóðviljinn - 04.05.1982, Síða 3

Þjóðviljinn - 04.05.1982, Síða 3
Þriðjudagur 4. maí 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Auknar niðurgreiðslur á landbúnaðarvörur Eiga að koma i upphafi verð- bótatúnabilsins ✓ — segir Asmundur Stefánsson ,/Mér finnst þaö býsna storkandi aö stjórnvöld skuli æ ofan i æ hækka niðurgreiðslur á útreikn- ingsdegi visitölunnar og slik vinnubrögð gera það eðiilegt/ að við reynum af okkar hálfu að fá yfirlýs- ingu frá ríkisstjórninni um að framvegis komi auknar niðurgreiðslur til fram- kvæmda í upphafi hvers verðbótatímabils/" sagði Ásmundur Stefánsson for- seti ASÍ i samtali við Þjóðviljann. Auknar niðurgreiðslur sem komu til framkvæmda i gær munu lækka visitölugrundvöllinn um allt að 2%. Sem dæmi um verðlækkun landbúnaðarvara má nefna, að eitt kg. af súpukjöti lækkar úr 47,25 i 39,65. Mjólkur- fernan lækkar úr 12,65 i 11,30 og smjörkilóið úr 64,90 i 57,30. ,,1 viðræðum við rikisstjórnina höfum við itrekað spurt um tilhögun niðurgreiðslna i nýjum visitölugrunni en aldrei fengið nein svör. Ég ætla að itreka þessa fyrirspurn á fundi með fultrúum rikisstjórnarinnar i Visitölunefnd i dag og ég tel eðlilegt á sama hátt, að fá afstöðu þeirra á tima- stningu á niðurgreiðslum i fram- tiðinni. 1 samningunum 1977 fengu verkalýðssamtökin yfirlýsingu frá stjórnvöldum þess efnis aö opinber þjónusta yrði ekki hækkuð fyrr en 10 dögum fyrir visitöluútreikninga. „Þess vegna væri það i takt við þá yfirlýsingu að auknar niður- greiðslur kæmu til framkvæmda strax i upphafi hvers verðbóta- timabils”, sagði Asmundur. „Það er rétt að niðurgreislur vega mjög svipað hjá tekjulægstu hópunum og þær gera i þeim visi- tölugrundvelli sem stuðst er við i dag. En áhrifin eru stórlega of- metin fyrir heildina. Hins vegar gefur þessi timasetning á niður- greiðslum þeim tekjuhærri for- skot, þar sem þeir hafa betri að- stöðu til að fylla sinar frystikistur af kjöti, en þeir sem bera minna úr býtum, þvi það er öllum ljóst að þessi lækkun stendur aðeins út máímánuð,” sagði Asmundur. -lg- f Fimm og fimmtíu með Strætó Frá og með 1. mai 1982, verða fargjöld SVR sem hér segir: Fargjöld fullorðinna: Einstök fargjöld Stór farmiðaspjöld Litil farmiðaspjöld Farmiðar aldraðra og öryrkja L Farg jöld barna: Óbreytt. (Einstök fargjöld Farmiðaspjöld kr. 5.50 kr. 100.00/23 miðar kr. 50.00/11 miðar kr. 50.00/23 miðar kr. 1.50 kr. 20.00/32 miðar). wm ■■■■■■■■■■■■■ ■■ ■ Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi á tali við roskna Reykvíkinga sem borgarstjórn bauð i sainsæti i tilefni 1. mai. — Ljósm.: —eik. Fleiri hundruð roskinna Revkvikinga báðu boð borgarstjórnar Revkiavikur og mættu til siðdegis- drykkju að Höfða i tilefni baráttudags verkalýðsins 1. mai. Þessi venja skapaðist 1979aðborgarstjórn býður öllum þeim reykviskum launamönnum sem verða 70 ára á árinu aö koma til fagnaðar i tilefni dagsins. Þessi siður hefur mælst mjög vel fyrir og árlega koma hundruö manna i heimsókn. Ekki var aðsóknin minni nú en endranær og varð að hleypa fólki inn i tveimur flokkum til að húsakynnin gætu rúmað alla með góðu móti. Dvöldu menn i góðu ylirlæti þessa dagsstund og var þaö mál manna að samkoman hefði að venju tekist vel. Myndirnar eru teknar i samsæti borgarstjórnar tilheiöurs rosknum Reykvikingum 1. mais.l. — v. Allir gcstir skrifuðu nafn sitt i sérstaka bók sem lá frammi. BOÐ í HÖFÐA 1. MAÍ Tryggjum öfluga kosningabaráttu G-listans í Reykjavíik. Gerum skil sem fyrst Kosn ing ah appárœtti A lþýdu bandalagsins Happdrættismiðar i kosningahappdrætti Alþýðubandalagsins hafa verið sendir út til stuðningsmanna og velunnara Alþýðubandalags- ins i Reykjavik Miðana má greiða i öllum bönkum og póstútibúum og á skrifstofu ABR að Grettisgötu 3 og Siðumúla 27. Þeir sem ekki hafa fengið senda miða geta snúið sér til kosninga- miðstöðvar félagsins aö Siðumúla 27 (simar 39813 og 39816). VINNINGAR: Suzuki Alto. Sérlega sparneytinn og hagkvæmur fjöl- skyldubill að verðmæti kr. 81.000,- og 8 ferðavinningar með Sam- vinnuferðum-Landsýn. Samtals að verðmæti 40.600,-

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.