Þjóðviljinn - 08.06.1982, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Þriftjudagur 8. júni 1982
viðtalið
Rætt við tvo félaga
úr Samhygð,
nýkomna úr
„víking”
frá New York
,,Fólkið
er hrætt
Nú i vikunni komu heim úr
viking til Bandarikjanna þrjár
stöllur úr Sainhygð, þær Edda
Björnsdóttir, Ingibjörg Guð-
mundsdóttir og Þóra Björns-
dóttir.
Tvær siðarnefndu litu við hér
á ritstjórninni og þótti upplagt
að fá að heyra nánar frá þessu
ferðalagi.
— Við vorum ytra i 10 daga i
Forest Hill úthverfi New York.
Þessi hópur var annar af
þremur fyrirhuguðum, en eftir
reynsluna sem komin er þá höf-
um við i Samhygð ákveöið að
senda hóp til New York i
hverjum mánuöi fram til ára-
móta.
En hvaða erindi eigið þið til
Bandarikjanna?
— Tilgangurinn er fyrst og
fremst að hitta, finna fólk, sem
er tilbúið til að gera sitt nánasta
umhverfi mannlegra, fólk sem
finnur til ábyrgðar varöandi
framtiöina. Fólk sem vill vinna
skipuiega á jákvæðan hátt að
betra mannlifi.
Hafiðþið ekki af nægu að taka
hér á Fróni?
— Til þess að hafa sálarlifið i
lagi þá þurfa menn að gefa eitt-
hvað frá sér. Þaö er veröugt
verkefni fyrir lslendinga að
gefa það jákvæöa af sér til ann-
arra þjóða sem virkilega þarl'n-
ast þess. Það eru ekki margar
þjóðir sem njóta jafn mikillar
virðingar og islendingar i
Bandarikjunum, og það er
virkilegahlustað á það sem þeir
hafa fram aö færa. Hugsum
okkur til að mynda el' Þjóö-
verjar ætluðu sér þaö sama i
New York og við höfum verið aö
gera, boða frið og mannkær-
leika. Þarna liggur kannski
helsti grundvöllurinn fyrir
okkar starfi i Bandarikjunum.
Hvernig höguðuð þið ykkar
starfi?
— Við fórum út á göturnar
meðmyndastanda og kynntum i
máli og myndum starf okkar
samtaka hér á islandi og annars
staðar í heiminum. Við ræddum
við fólk um starfið að gera
heiminn mennskan. Samtök
okkar eru starfandi úti um allan
heim, en eru að stiga sin fyrstu
spor í Bandarikjunum og við
vorum að gera okkar til að
hleypa meiri krafti I starfsem-
ina.
Auk þess að vera á götunni
með kynningarstarf þá fórum
við i neðanjarðarlestirnar og
höfðum tal af fólki. Vorum með
gjallarhorn og boðuðum fólk til
fundar við okkur i aðstöðu sem
við höfðum i hverfunum.
Hver voru viðbrögð almenn-
ings?
—-Fólk hafði almennt mikinn
áhuga á Islandi. Við fengum
góðar viðtökur og jákvæðar.
Mörgum þótti sérstakt að heyra
boðskap frá islandi. Þarna kom
upp 10 manna hópur ungs fólks
sem ræddi málin af áhuga og
meðan við vorum þarna úti þá
hafði þessi hópur tvöíaldast.
Er þetta ckki dýrt fyrir ykkar
samtök?
— Uppihaldiö i Bandarikj-
unum fáum við fritt hjá félögum
okkar, en ferðir borgum við
sjálf og öflum til þess fjár eftir
ýmsum leiðum. Hins vegar er
rétt aö það komi fram að hjá
okkur i Samhygö er ekki neitt
til sem heitir „þaö er ekki
hægt”.
Reynslan sýnir aö allt er hægt
aðeins ef viljinn er íyrir hendi.
Ilvað kom ykkur helst á óvart
í samræöum við fólkiö i Forest
Hill?
— Fólkið er upp til hópa áber-
andi hrætt og tortryggið sifellt
að verja sig og brynja gegn alls
kyns hættum i samfélaginu.
Edda Björnsdóttir á tali við vegfaranda I Forrest Hill. Bakvið sjást
myndstandarnir.
Ingibjörg Guðmundsdóttir og Þóra Björnsdóttir með gjallarhorn I
neðanjarðarlest, og kynna farþegum boðskapinn. Myndir: EB
neitt annað að okkur. Það sann-
Margir voru undrandi og hissa
að við þyrðum að standa i okkar
starfi þarna. Okkar starf gekk
slysalaust og var ekkert nema
ánægjan, enda hvarflaöi aldrei
aðist þar sem viðar, að hugar-
farið ræður oft mestu um ár-
angurinn.
-lg-
Ur
fortíð
til nú-
tíma
Þessar föngulegu og barma-
miklu stúlkur eru meðal leik-
enda i myndinni frægu „Leitin
aðeldinum” óneitanlega erhálf
skrýtið að sjá frummennina
(konurnar) gæða sér á grilluð-
um kjúklingum og neskaffi i
skjóli viö rúgbrauð. Svona vill
dæmið lita út þegar fortiðin
mætir nútimanum.
Svínharður smásál
Eftir Kjartan
Arnórsson
PÓ LllUÍl LKLGGPí ÖT,lQE(
mF\ £G Slfí F TuNGuWfl
• ~Tl
<
Q
O
b
Fugl dagsins
Vepja — Vanellus vanellus,
er einkennisfugl þéttbýlla
ræktarlanda. Hún er alltiður
flækingur á tslandi og hefur
orpið hér en annars á hún aðal-
sumarheimkynni um alla
mið-Evrópu. Veþjan er auð-
þekkt á löngum, strýkenndum
doppi, breiðu svörtu bringubelti
sem stingur i stúf við hvitan lit-
inn aö neðan og ekki sist á sér-
kennilegri rödd. Það er hávært
nasahljóð „ki-úit” eða lengra
„kror-úi” með alls kyns til-
brigðum. Flugið hjá vepjunni er
ákaflega reikult og óstöðugt og
vængjatökin hæg og blaktandi.
Kjörlendið er akurlendi, engi,
mýrlendi, og vepjan verpir i
ræktuðu landi eða votlendi eins
og gerst hefur hérlendis.
Rugl dagsins
Vegna þess að meirihluti
borgarbúa kaus okkur þá ber
okkur samkvæmt þvi að hætta
við byggð i Sogamýri. (Rök
Daviðs iborgarstjórn)
Gætum
tungunnar__________
Rétt er að segja: Mig langar,
þig langar, drenginn langar,
stúlkuna langar, barnið langar,
drengina langar, stúlkurnar
langar, börninlangar.
(Ath.: mig langareins og mig
lengir.)
Bíll fyrir
einstæð-
inga
Japanska bilafirmað, Suzuki
hefur hafið framleiðslu á bil -
um fyrir einstæðinga. Það er
ekki hægt að segja annað en
þessir bilar (framtiðarinnar?)
séu sparneytnir, þvi þeir eyða
aöeins 2 litrum á hundraðið.
Vélin er 50 -ccm, og hámarks-
hraði 50 km. Verðið i Japan er i
kringum 3000 mörk eða tæpar
14 þús. isl.
Mundueftír
ÖRYGGISSKÓNUM