Þjóðviljinn - 08.06.1982, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 8. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Davið hættir við úthlutun á 120 lóðum i Sogamýri:
Uttekt á fjárhag
Engar lóðir
í staðinn!
Dýru skipulagi var kastað
á glæ án nokkurra raka
Um 700 lóðaumsækjendur um
120 ibúðarhúsalóðir i Sogamýri
sitja nú uppi meðsárt ennið, þar
sem borgarstjórnarmeirihluti
Sjáifstæðismanna ákvað á
fimmtudag að hætta við úthlut-
un á svæðinu. Engin fagleg rök
komu fram sem réttlætt gætu
þessa furðulegu ráðstöfun og hið
eina sem nýkjörinn borgarstjóri
Davið Oddsson gat sagt var að
hann hefði „verið búinn að lofa”
þvi að hætta við úthlutunina.
Efndir á þessu vanhugsaða
kosningaloforði Daviðs Odds-
sonar eru dýrkeyptar. Hér er
um að ræða mjög hentugt bygg-
ingasvæði, vandað skipulag og
hagkvæmt bæöi fyrir húsbyggj-
endur og borgina. Að auki
myndi byggð á þessu svæöi
koma Vogahverfinu til góða
hvaö varðar þjónustu og að-
stöðu til dtivistar og fjölgun
ibúa i hverfinu tryggir áfram-
haldandi kennslu i Vogaskóla.
Þaö er sem kunnugt er mikið
kappsmál hverfisbúa.
Tillaga Sjálfstæðisflokksins
um aö hætta við úthlutun og láta
skipuleggja útivistarsvæði i
Sogamýri brýtur i bága viö
staðfest aðalskipulag af þessu
svæði. Tillaga þeirra gerir
nefnilega ráð fyrir þvi að Suður-
landsbrautin austan Langholts-
vegar verði ekki felld niður eins
og aðalskipuleg ákveður, heldur
tengist inn á Elliðavog. A fund-
inum bentu fulltrúar minnihlut-
ans á að tómt mál væri aö tala
um gott útivistarsvæði milli
hraðbrautanna tveggja, Miklu-
brautar og Suðurlandsbrautar,
en Sjálfstæðismenn létu þau rök
sem vind um eyrun þjóta.
Frestun hafnaöán raka
Borgarfulltrúar Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks lögðu til að
þessari tillögu yrði frestaö þar
til skipulagsnefnd og umhverf-
ismálaráð hefðu kannað hana
nánar. Lýstu fulltrúar Kvenna-
framboðs sig samþykka frest-
unarbeiðninni, en hún var felld
með atkvæöum Sjálfstæðis-
flokksins.
Alfheiður Ingadóttir benti á
að engar röksemdir heföu kom-
iðfram með þessum dæmalausa
tillöguflutningi og þvi yröu
menn að geta sér til um ástæð-
urnar. Varla væri ástæðan sú að
Sjálfstæðismönnum þætti of
mörgum lóðum úthlutað hjá
borginni miðaö við fyrri yfirlýs-
ingar, og i ljósi kosningaloforða
um nægt framboð á lóðum væri
þessi tillaga enn furðulegri. Þá
benti Sólrún Gisladóttir á að það
væri ábyrgðarleysi að hætta við
úthlutun á 120 lóðum án þess að
bjóða upp á nokkuð i staðinn.
Alfheiður sagði að vart gætu
mótmæli nokkurra húseigenda
við Gnoðarvog verið ástæöa til-
lögunnar. Þeir sem skrifuöu
undir mótmæli til borgarstjórn-
ar hefðu með þvi verið að
Svæðið austan Skeiðarvogs er rúmlega 17 hektarar, fyrirhuguð
byggðrúma 5 hektara og 12 hektarar voru ætlaðir undir útivist, þar
af rúmlega 4 á Steinahliðarlóðinni.
tryggja sér skaðabótarétt, eins
og eðlilegt mætti teljast. Skipu-
lagið sjálft hefði hlotið almenn-
ar undirtektir eins og umsækj-
endafjöldinn sýndi og aðrir Ibú-
ar i Vogahverfi væru þvi hlynnt-
ir.
Þá benti hún á að vart gæti
umhyggja fyrir útivistarsvæð-
um borgarinnar verið ástæðan
heldur, þvi aðeins 5 hektarar
svæðisins fara undir byggð skv.
skipulaginu, 12,7 eru útivistar-
svæði, og þar af væri Steina-
hliðalððin rúmir 4. Fráleitt væri
að ætla sér aö leggja vinnu i úti-
vistarsvæöi milli hraðbraut-
anna tveggja, þar sem þær væru
einmitt ástæðan fyrir þvi aö
græna svæöið á þessum staö
hefði aldrei nýst sem útivistar-
svæði.
Gönuhlaup
Þaö er sama hvernig leitaö er,
það er ekki hægt að koma auga.
á nokkrar frambærilegar
ástæður né nokkur fagleg rök
fyrir þessari ákvörðun, sagði
Alfheiöur. Hins vegar er margt
sem mælir i móti þessu gönu-
hlaupif f jöldi umsækjenda sýnir
að hér er um eftirsótt bygginga-
land að ræða, og spurning væri
hver réttur þeirra væri nú. tbú-
um i Vogahverfi hefði fækkað
um tæpan helming á s.l. 15 ár-
um. Nemendum i Vogaskóla
hefur fækkaö úr 1623 siðan 1966 i
320 á siðasta skólaári og blikur
eru á lofti um framhald skóla-
halds i hverfinu. Aö auki brýtur
tillagan i bága við samþykkt aö-
alskipulags og þarfnast þvi fag-
legra raka áður en hún er send
til Skipulagsstjórnar rikisins,
sagði Alfheiöur.
Daviö Oddsson og Markús
örn Antonsson sögðu að það
væri sök vinstri meirihlutans að
nú yröi að hafna 700 umsækj-
endum án nokkurra raka, —
þeir hefðu varað við þvi að lóð-
irnar yrðu auglýstar! Þeir svör-
uðu i engu fjárhagslegum og
skipulagslegum rökum minni-
hlutans, felldu frestunartillög-
una og samþykktu loks gegn at-
kvæðum alla minnihlutamanna
að hætta við úthlutun.
borgarinnar
Góð
staða
um
ára-
mót
Borgarstjórn samþykkti á fundi
sinum á fimmtudag að tillögu frá-
farandi meirihluta að gerð yrði
samskonar úttekt á fjárreiðum
borgarinnar nú eins og gerð var á
miðju ári 1978.
A borgarstjörnarfundinum var
lagður fram ársreikningur
borgarinnar 1981, og sýndi hann
að fjárhagur borgarsjóðs og
flestra fyrirtækja borgarinnar
var mjög góöur um siðustu ára-
mót, en vegna tregðu stjórnvalda
við að leyfa gjaldskrárhækkanir
var t.d. útkoma hitaveitunnar lé-
legri en áætlun gerði ráð fyrir.
Fjárhagsáætlun borgarinnar
fy rir siðasta ár var ekki tekin upp
frekar en aðrar fjárhagsáætlanir
vinstri meirihlutans. Benti Krist-
ján Benediktsson á i umræðum
um ársreikninginn að litil frávik
áætlunarinnar við ársreikning
þrátt fyrir mikla verðbólgu sýndu
að áætlunin hal'i verið vönduð og
'fjármálastjórn á árinu 1981 mjög
góö. Arsreikningurinn sýndi
góða stöðu um siðustu áramót en
brýnt væri nú við stjórnarskiptin
að gera stöðuna upp. Sjálfstæðis-
flokksfulltrúarnirlýstu þviyfir að
þetta væri sjálfsagður og eðli-
legur hlutur og var tillaga vinstri
flokkanna samþykkt með 21 at-
kvæði. Reynt verður að fá sömu
aðila til að framkvæma úttektina
og 1978 og verða sömu þættir i
fjármálum borgarinnar kann-
aðir. — AI
Sýndarmennska í borgarstjórn:
Bllleg kosnlngaloforð efnd
Kosningaloforð Sjálfstæðis-
flokksins voru til umræðu á borg-
arstjórnarfundi s.l. fimmtudag
þegar fulltrúar flokksins fluttu
nokkrar tillögur sem miðuðu að
efndum þeirra. Fulltrúar minni-
hlutans i borgarstjórn gagnrýndu
ekki efndir loforðanna, en þeini
mun harðar gagnrýndu þeir kosn-
ingaloforðin, sem sum hver voru
óþörf með öllu og efndir þeirra þvi
sýndarmennskan ein.
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins lögðu til að tillögum Sjálf-
stæðisflokksins um að „fella úr
gildi ákvarðanir” um að koma
bryggjum út i Tjörnina og um að
„nemaúr gildi allar samþykktir”
skipulagsnefndar um ibúðar-
byggð i Laugardal yrði visað frá.
Bentu þeir á að engar ákvarðanir
lægju fyrir i þessum efnum og þó
Sjálfstæðisflokkurinn mótmælti
þvi, gátu fulltrúar þeirra á fund-
inum ekki vitnað I eina einustu
gilda ákvörðun sem hnekkja
þurfti I þessum efnum.
Alfheiður Ingadóttir benti á að
|------------------
Grjótagata 9 seld
i
Borgarráð samþykkti i lok
maí að auglýsa húsið viö
Grjótagötu 9 til sölu og verja
andvirði þess til endurbóta á
öðru húsi borgarinnar i
Grjótaþorpi.
Leigutaki i húsinu hafði
óskað eftir að fá það keypt en
hann hefur gert talsverðar
lagfæringar á húsinu þann
stutta tima sem hann hefur
haft þaðá leigu. Það var hins
vegar samdóma mat borgar-
ráðs að hann hefði ekki
áunnið sér forkaupsrétt að
húsinu og það skyldi auglýst
á almennum markaði.
Húsið hafði staðið autt um
nokkurn tima þegar áður-
nefndur leigutaki fékk það til
hálfs árs leigu, en sam-
kvæmt ákvörðun borgarráðs
verður hann að rýma húsið
fyrir 1. októbei n.k.
A borgarstjórnarfundi sl.
fimmtudag lagði Alfheiður
Ingadóttir til ab umhverfis-
málaráði og borgarminja-
verði yrði falið að gera nán-
ari tillögu um ráðstöfun and-
virðisins og var þeirri tillögu
visað til umhverfismálaráðs.
Er þetta i annað sinn sem
ákveðið er að verja andvirði
seldra húsa borgarinnar til
viðgerða i Grjótaþorpi.
J
ákvörðun hefði verið tekin um
endurbætur á norðanverðum
Tjarnarbakkanum á árinu 1981
með þvi að 450 þúsund krónum
heföi verið varið til framkvæmda
þar.m.a. til pallasmiði undir Von-
arstræti. Þeim fjármunum var
hins vegar varið til endurbóta á
Bernhöftslóðum, sem urðu mun
dýrari en áætlað hafði verið, og
framkvæmdum við Tjarnarbakk-
ann frestað. Hún upplýsti að i ár
væri varið 200 þúsundum króna til
endurbóta við Tjörnina og að um-
hverfismálaráð hefði i vetur á-
kveðið að gera engar tillögur um
áðurnefnda pallasmiði. Hefði þar
meö veriö falliö frá þessum á-
formum m.a. vegna þeirrar and-
. stöðu sem þau vöktu.
Eftir stæði þvi aö engar á-
kvarðanir lægju fyrir og þvi væri
óþarft með öllu að gera tillögu um
að fella þær úr gildi.
Sömu sögu er að segja um
Laugardalinn. Stofnanasvæði við
austurhluta Suðurlandsbrautar
var eitt af 5 athugunarsvæðum
sem valin voru vegna þéttingar
byggðar i ársbyrjun 1979 og var
Ingimundur Sveinsson arkitekt
fenginn til þess að gera tillögur
um breytta landnýtingu á svæð-
inu og endurskoða skipulag Laug-
ardalsaðöðruleyti. Tillögurhans
um ibúðabyggð við Suðurlands-
braut og vestan Alfheimablokk-
anna hlutu ekki undirtektir i
skipulagsnefnd og borgarráði og
samþykkti borgarráð að falla frá
hugmyndum um ibúðabyggð við
Suðurlandsbraut en fól Ingimundi
að huga betur að hugsanlegri
byggð við Alfheima. Sú tillaga er
enn á vinnslustigi og hefur skipu-
lagsnefnd engar samþykktir gert
um íbúöabyggö þar. Benti Alf-
heiður á að þvi væri óþarft með
öllu að nema einhverjar slikar úr
gildi.
Fulltrúar hinna minnihluta-
flokkanna tóku i sama streng.
Frávisunartillögur voru felldar,
sú fyrri gegn atkvæðum Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks, og sú
siöari gegn atkvæðum Alþýðu-
bandalags og Kvennaframboðs.
Kosningaloforð Daviðs voru
gagnrýnd harðlega á borgar-
stjórnarfundinum á fimmtudag.
Siðan efndu Sjálfstæðismenn
þessi blekkingarloforð sin með 12
samhljóöa atkvæðum. Fulltrúar
minnihlutans tóku ekki þátt i
þeirri atkvæðagreiðslu.
ÚTBOÐ |||
Tilboð óskast í eftirfarandi vegna Borgar-
spítalans:
A Hurðasmíði
B Hurðakarma
Otboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3. Tilboðin verða opnuð á sama
staðþriðjudaginn29. júníl982 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800