Þjóðviljinn - 23.06.1982, Side 2

Þjóðviljinn - 23.06.1982, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 23. júni 1982 i hvaöa leik eruð \ þið krakkar? ) Rikisstjórnarieik! ~T IT^ Kariði bara ekki i neinn hasar'. Anna Normann: Lærði mest þegar ég fór aö kenna Þórshöfn. Anna er á leið utan, cn áður en hún kveður landið i bili, ætiar hún að flytja höfuð- borgarbúum konsert i Félags- stofnun stúdenta i kvöld kl.20.30. En hvað varð til þess að Anna kom hingað til lands og flutti norður á Melrakkasléttu? — Þannig var að Steven Yeats tónlistarkennari, sem hefur unnið dyggilega að uppvexti tónlistarlifs þarna fyrir norðan auglýsti i tónlistarskólum á Englandi eftir pianóleikara hingað upp til íslands. Ég sá þessa auglýsingu og fékk strax áhuga á málinu. Hafði aldrei komið hingað áður og sló þvi til. Ilvað kom þér mest á óvart þegar þú komst norður? — Þegar flugvélin lenti fyrir norðan, þá sá ég aðeins eitt litið hús. Ég hafði i það minnsta átt von á að sjá litið þorp, og fannst þetta þvi i það minnsta, aðeins eitt hús. Siðar kom i ljós að þetta var ekki Raufarhöfn, heldur býli við flugvöllinn sem stendur langt utan við þorpið. Hvernig kunnir þú við þig i svo gjörbreyttu umhverfi frá heimaslóðum? — Mjög vel. Fólkið á staðnum tók mér einstaklega vinsam- lega. Steven hefur unnið stór- virki i tónlistarmálum á þessum slóðum og tónlistaráhugi al- mennings er mjög mikill. Sem dæmi má nefna að á Þórshöfn eru um 40 ibúar i tónlistarnámi sem er nærri 10% þorpsbúa. Nú talar þú prýðisgóða is- lensku. Hvernig gekk þér að læra málið? — Strax eftir að ég kom byrj- aði ég að læra eftir linguaphone auk þess sem Steven hjálpaði mér mikið. Þetta var ansi erfitt til að byrja með, en ég lærði þó mest þegar ég fór að kenna, en þaö var nærri strax eftir að ég kom til Raufarhafnar. Fólkið sem ég kenndi talaði aðeins við mig islensku, og sjálfsagt hef ég lært mest af þvi. Til að byrja með bjargaði ég mér á vasa- orðabók, en þarf ekki mikið að nota hana núorðið. Ertu nokkuð alfarin til Eng- lands? — Nei, ég kem aftur i haust, og þá ætla ég að kenna á pianó við Tónlistarskólann i Reykja- vik. Þú ætlar að leika fyrir borg- arbúa i kvöld i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut. Hvað fá þeir að heyra? — Ég ætla fyrst að spila són- ötu eftir Bach og aðra slika fjör- uga eftir Beethoven. Þá leik ég hluta af verkum eftir bandarisk tónskáld á siðari hluta tónleik- anna. Hvernig þótti þér veturinn hér norður við Dumbshaf? — Það var mikill snjór en samt fannst mér ekki eins kalt og i Englandi, þar sem rakinn er alltaf svo mikill. Mér fannst á- kaflega notalegt að vera inni i hlýjum húsunum meðan stór- hrið geisaði úti. Ekki siður spennandi að horfa út i veðrið, þegar ekki sást á milli húsa fyrir veðurofsa. Sliku kynnist maður aldrei á Englandi. Hafðir þú gaman af verunni fyrir norðan? — Já, þetta var mjög ánægju- legur timi fyrir mig fyrir norð- an. Mér fannst einstakt hversu maður komst i náin tengsl við fólkið. Ég held að útlendingur eins og ég finni hinn islenska raunveruleika miklu fremur i samskiptum og samveru við fólk úti á landi, heldur en hér i Fugl dagsins Grálóa Grálóa — Pluvialis squatarola er ólik öllum öðrum vaðfuglum nema heiðlóu og gulllóu en auð- greind frá þeim á öllum timum árs á áberandi svörtum vang- krikafjöðrum sem stinga mjög i stúf við ljóst neðra borð vængj- anna. Um varptimann er gráló- an svört að neðan og hvitgrá að ofan. Fullorðnir fuglar eru i sumarbyrjun hvitflikróttir að ofan, en á veturna eru þeir jafn- litari og grárri og jafnframt hvitari að neðan en heiðlóa og gulllóa. t háttum er grálóan mjög lik heiðlóunni. Biðilskvak grálóunnar er ang- urvært, blistrandi ,,tli-ú-i”. Kjörlendið eru túndrur ishafs- landa, einkum i Sovétrikjunum. Geldfuglar dvelja oft sumar- iangt i V-Evrópu og flækingar eru alltiðir á fslandi og i Fær- eyjum. Rugl dagsins: Hverju munar það??? „Tqlið er að 800-ein milljón hafi verið á fundinum i Central Park...” (Frétt i Þjóðviljanum um frið- arfundinn í New York á dögun- um). Gætum tungunnar þéttbýlinu. —lg. EBENEZER lleyrst hefur: tuttugufaldur og þrjátiufaldur. Rétt væri: tvitugfaldur og þri- tugfaldur. Eldri tækni Ritvélin er módel 1924. Takið cftir lyklaborðinu sem er mjög nýstárlegt. An orða foUIKO) Rætt við Önnu Normann enskan píanókennara, sem er með tónleika í Félagsstofnun í kvöld „Sá aðeins eitt lítið hús Anna Normann heitir ung bresk stúlka frá Manchester sem hefur dvalið undanfarna vetur við tónlistarkennslu hér á Fróni. Það eru ekki höfuðborg- arbúar sem hafa notið leiðsagn- ar önnu við pianónám, heldur hefur hún alið manninn á Norðausturlandi og kennt ibú- um á Kópaskeri, Raufarhöfn, og © Bvlls Umhverfismálaráð Þórshafnar i Færeyjum gefur okkur höfuð- staðarhúum á íslandi ekkert eftir við fegrun bæjarins. Stóra torgið i iniðbæ Þórshafnar hefur verið tekið upp og er ætlunin að helluleggja það allt fyrir sumarið. Blómakössum verður komið fyrir og öðru sem torgið má prýða. Myndin er úr 14. september. Svinharður smásál — Vertu bara ordin nógu stór.. vWi róleg, Rauðhetta mín. Þú ert ekki Eftir Kjartan Arnórsson

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.