Þjóðviljinn - 08.09.1982, Side 1
MÚÐVIUINN
„Hérerfólk rólegra
og það hugsar
meira. Úti eru allir
svo uppgefnir,"
segir Erró sem
opnarsýninguí
Norræna húsinuá
laugardag.
16
Utanríkisráðherra hefur
samþykkt hönnun og
framkvæmdir fyrir sitt
leyti í Helguvík, segir Helgi
Ágústsson forstöðumaður
„varnarmáladeildar“. En
pólitískur ágreiningur
ríkirum framkvæmdirnar.
Sjá bls. 7
Sérstök ástæða er til
að vara fólk við því
að samningar um
lágmarkskaup séu
ckki brotniren
allmörgdæmi um
slíkt berast
verkalýðsfélögunu m.
september 1982
miðvikudagur
203. tölublað
47. árgangur
ÉÉF
v
Þaö á eftir að ræöa skipulagið
varðandi Helguvik og langur
vcgur er frá samþykkt þess til
framkvæmda, scgir Svavar
Gcstsson ráðherra skipulags-
mála.
Helguvík:
Engar
fram-
kvæmdir
verið
ákveðnar
— Það hafa engar fram-
kvæmdir verið ákveðnar I Helgu-
vík sagði Svavar Gestsson félags-
málaráðhcrra en skipulagsmál
heyra undir hans ráðuneyti. Þaö
liggur ekki einu sinni fyrir hvort
og þá hvenær Bandarikjastjórn
vildi leggja i framkvæmdir. Núna
fara einungis fram rannsóknir og
hönnun er á frumstigi, sagði
Svavar.
— Nú er verið að vinna að
skipulagi hafnarsvæðisins og
bæði það og aðalskipulag Kefla-
vikur sem nú hangir uppi þar i bæ
á eftir að fá nánari umíjöllun.
Þegar það hefur hangið uppi er
skipulagið sent Skipulagi rikisins
ásamt athugasemdum sem borist
hafa við það. Þegar umfjöllun
lýkur i Skipulagi rikisins er það
sent félagsmálaráðuneytinu til
samþykktar eða synjunar. Það er
þvi langur vegur frá skipulagi til
framkvæmda, sagði Svavar
Gestsson. — óg
Mun Guðmundur J. Guðmundsson styðja bráðabirgðalögin?
SET SKILYRÐI
Meginatriði að meiri byrðar verði
lagðar á aðra en láglaunafólk
„Rikisstjórnirkoma og fara, en
ég tel mig vera að gæta hags-
muna Dagsbrúnarmanna með þvi
að skoða það vandlega hvort
ástæða sé til þess að fella rikis-
stjórn sem reynir að koma i veg
fyrir atvinnuleysi og veltir byrð-
unum af áföllum frekar yfir á þá
sem meira mega sin en almennt
verkafólk” — Þetta sagöi Guð-
mundur J. Guðmundsson al-
þingismaður og formaður Dags-
brúnar m.a. á fundi i hádeginu i
gær með verkamönnum hjá Haf-
skip sem skorað höfðu á hann að
greiða atkvæði gegn bráða-
birgðalögunum og beita sér fyrir
hörðum aðgerðum eins og 1978.
Guðmundur kvaðst ekki vera i
þeirri oddaaðstöðu á þingi sem
reynt væri að láta lita út. „En ég
er ekki farinn aö sjá það að meiri-
hluti sé fyrir þvi á Alþingi að
lengja orlof verkafólks, greiða
láglaunabætur og lækka
verslunarálagningu. Ég set þvi
það að skilyrði að verði það
meginatriði ekki virt aö meiri
býrðar verði lagðar á aðra en lág-
launafólk mun ég standa fastur á
þvi að greiða atkvæöi gegn bráða-
birgðalögunum. 1 þessu sam-
bandi vil ég sérstaklega nefna
það að ég geri það að stóru máli
að lánskjaravisitala veröi látin
fylgja kaupinu þannig að verka-
fólk geri staðið undir þeim dýru
lánum sem það neyðist nú til að
taka”. —ekh
,... - w\
„Það hvarflar ekki að mér aö við setjum útflutningsbann á skreið sem ekki selst úr landi”, sagði Guömundur J. Guðmundsson m.a. á fundi
með verkamönnum hjá Hafskip i gær, þar scm bæði var skipst á hörð-um skeytum og brugðiö á gamanmál. Ljósm. eik.
Eínaverksmiðj an flytur frá Seljavegi!
Að tillögu Sigurjóns Péturssonar
„Ég fagna þvi að sjálfsögðu að
tillaga mín um að Eimur viki sem
fyrst úr ibúðahverfinu við Selja-
veg, náði fram að ganga og ég
hlýt að vænta þess að borgar-
stjóri, Davið Oddsson, gangi jafn
rösklega fram við að framfylgja
henni og hann áður vann að
framlengingu starfsleyfis fyrir
Kolsýruhleðsluna”, sagði Sigur-
jón Pétursson borgarráðsmaður
Alþýðubandalagsins i samtali við
Þjóðviljann I gær.
Tillaga Sigurjóns Péturssonar,
sem Guðrún Jónsdóttir frá
Kvennaframboði gerðist með-
flutningsmaöur að, er svohljóð-
andi: „Borgarráð samþykkir að
fela borgarstjóra aö vinna að þvi
aö starfsemi eins og sú sem
Eimur rekur að Seljavegi 12 verði
hætt á þeim stað og henni fundinn
staður annars staðar i borgar-
landinu”.
Það voru þau Sigurjón og Guð-
rún auk Alberts Guðmundssonar
sem ljáðu tillögunni atkvæði sitt.
Þvi má nú fullyrða að áratuga
baráttumál ibúa i nágrenni Selja-
vegar 12 sé nú aö nokkru i höfn
enda þótt talsverður timi eigi
eftir að liða þar til Eimur verður
kominn á annan stað. Borgin
verður eflaust að útvega fyrir-
tækinu aðra lóð auk þess sem
talsverðan tima tekur aö byggja
þar upp fyrir starfsemina.
— v.