Þjóðviljinn - 08.09.1982, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 8. september 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 11
íþróttir
/
Island — Austur-þýskaland í kvöld:
Lögðu Itali tveimur
mánuðum fyrir HM!
/
I austur-þýska liðinu eru gamalkunnir kappar
og upprennandi stjörnur
ísland og Austur-Þýskaland leika landslcik í knattspyrnu á Laugardal-
svellinuin í kvöld og hefst hann kl. 18.15. Hér er um vináttu- og undirhún-
ingsleik að ræða og má búast við fjörugri viðureign. Austur-Þjóðverjar
koma hingað með sitt sterkasta lið, sem er blanda af gamalreyndum
köppum og ungum og efnilegum leikmönnum.
Enginn atvinnumannanna okkar
sem lék gegn Hollendingum getur
leikið í kvöld en hins vegar fá nú
íslenskir knattspyrnuáhugamenn
að sjá Pétur Pétursson í landsliðs-
búningnum í fyrsta skipti í hálft
annað ár. Pétur leikur nú með Ant-
werp í belgísku 1. deildinni og það
verður gaman að sjá þennan
skemmtilega framherja á Laugar-
dalsvellinum á ný.
íslenska liðið sem hefur leikinn í
kvöld er skipað eftirtöldum leik-
mönnum: Þorsteinn Bjarnason,
Viðar Halldórsson, Trausti Har-
aldsson, Sigurður Lárusson. Mar-
teinn Geirsson. Guðmundur Por-
björnsson, Ómar Torfason, Gunn-
ar Gíslason. Árni Sveinsson. Sig-
urður Grétarsson og Pétur Péturs-
son. Varamenn verða þeir Guö-
inundur Baldursson, Sigurjón
Kristjánsson og að líkindum Ágúst
Már Jónsson, í stað Arnar Óskars-
sonar sem enn á við meiðsli að
stríða.
Margir leikmanna austur-þýska
liðsins eru íslendingum vel kunnir
frá viðureignum þjóðanna á
undanförnum árum. Par má nefna
Júrgen Pemmerenke, Rúdiger
Schnuphase, Norbert Trieloff og
Joachin Streich. Austur-
Þjóðverjum hefur gengið vel það
sem aferárinu. sigruðu meöal ann-
ars Itali, verðandi heimsmeistara. í
apríl, tveimur mánuðum fyrir IIM-
keppnina.
Islendingar eiga góðar minning-
ar frá landsleikjum við Austur-
Þjóðverja, þær bestu frá Evrópu-
keppni landsliða árin 1974 og 1975.
Þá náðu íslendingar óvænt jafn-
tefli, 1-1, í Magdeburg og sigruðu
síðan 2-1 á Laugardalsvellinum,
eins og frægt er, með glæsimörkum
Jóhannesar Eðvaldssonar og Ás-
geirs Sigurvinssonar.
Leikurinn hefst kl. 18.15 eins og
áður sagöi en miðasala verður í dag
við Útvegsbankann f Austurstræti
og á Laugardalsvelli frá kl. 10 og
frant eftir degi. — VS
EM í frjálsum íþróttum:
Öddur í milliriðil
Bætti eigið íslandsmet í 400 m hlaupi í gær
Oddur Sigurðsson, spretthlaup-
arinn snjalli úr KR, náði mjög góð-
um árangri í undanrásum 400
metra hlaupsins á Evrópumeistar-
amótinu í frjálsum íþróttum sem nú
stendur yfir í Aþenu í Grikklandi.
Oddur varð fjórði í sínum riðli og
komst þar með í milliriðil. Hann
hljóp á tímanum 46,63 sek., og
bætti þar með eigið Islandsmet á
vegalengdinni um 1/100 úr sek-
úndu.
Sextán hlauparar komust f milli-
riðla og náði Oddur betri tíma í gær
en fimm þeira. í millriðli þarf hann
síðan að ná fjórða sæti til að kom-
ast í úrslitahlaupið þar sem átta
taka þátt.
Einar Vilhjálmsson keppti á
mánudag í forkeppninni í spjót-
kasti en kastaði' aðeins 72,26 m,
sem er nokkuð frá hans besta.
•Úrslitakeppnin fór fram í gær og
Oddur Sigurösson
þar þeytti Austur-Þjóðverjinn
Uwe Hohn spjótinu lengst, 91,34
metra.
Jón Diðriksson hljóp 800 m
hlaup á mánudag og varð sjötti í
sínum riðli á 1:50,30 mín., en
komst ekki áfram.
Frank Emmelmann frá Austur-
Þýskalandi varð í gær Evrópum-
eistari í 100 m hlaupi karla 10,21
sek. Pavoni frá Ítalíu varð annar á
10,25 sek. Ionescu frá Rúmeníu
sigraði í langstökki kvenna með
6,79 metra, Marlies Göhr frá
Austur-Þýskalandi í 100 m hlaupi
kvenna á 11,01 sek., og Jose Marin
frá Spáni í 20 km göngu á einni
klukkustund, 23,43 mínútum. Á
mánudag sigraöi Italinn Alberto
Cova í 10 000 m hlaupi á 27:41,03
mín, og Ilona Slupianek, Austur-
Þýskalandi, í kúluvarpi kvenna,
kastaði kúlunni 21,59 metra. - VS
Sá stóri á morgun
Fyrsti landsleikur kvenna í knattspyrnu hér á landi
„Viö þurfum að gera breytingar frá leiknum i Noregi. Svlar voru
meö „njósnara” á þeim leik og hafa kynnt sér liö okkar mjög vel”,
sagöi Siguröur Hannesson, annar þjálfara fslenska kvennaiandsliösins
I knattspyrnu I samtali viö Þjóöviljann 1 gær.
Eins og fram hefur komiö, leika tsland og Sviþjóö I Evrópukeppni
kvennalandsliöa á Kópavogsveilinum á morgun, fimmtudag, og hefst
leikurinn kl. 18
Þetta er fyrsti kvennalands-
leikur hér á landi en sá þriöji sem
ísland leikur. A dögunum gerði
ísland óvænt jafntefli gegn Nor-
egi ytra, 2—2, i fyrsta leik liðsins i
keppninni.
Sextán stúlkur hafa veriö
valdar fyrir leikinn á morgun.
Þæreru: Guðriður Guöjónsdóttir,
UBK, Ragnheiður Jónasdóttir,
1A, Rósa A. Valdimarsdóttir,
fyrirliði, UBK, Asta B. Gunn-
laugsdóttir, UBK, Erla Rafns-
dóttir, UBK, Magnea Magnús-
dóttir, UBK, Margrét Sigurðar-
dóttir, UBK, Bryndis Einars-
dóttir, UBK, Laufey Sigurðar-
dóttir, ÍA, Kristin Aðalsteins-
dóttir, IA, Brynja Guðjónsdóttir,
Víkingi, Jóhanna Pálsdóttir, Val,
Ragnheiður Vlkingsdóttir, Val,
Ásta M. Reynisdóttir, UBK, Arna
Steinsen, KR og Erna Lúðviks-
dóttir, Val.
Sænska liðið, sem kom hingað
til lands á mánudag, er talið eitt
það allra sterkasta I Evrópu um
þessar mundir. Þaö hefur leikið
sex landsleiki á árinu, sigrað
ítali, 2—0, Finna 4—0, og 6—0 gert
jafntefli við England og Noreg,
1—1, en tapað 1—2 fyrir Dönum.
Sænsku stúlkurnar eru mjög leik-
reyndar, og, eins og sagt er i
fréttatilkynningu frá Kvenna-
nefnd KSI, þar er valin kona i
hverju rúmi. Atta þeirra hafa
leikið yfir 20 landsleiki, sú leikja-
hæsta, Anetta Börjesson, er með
38 slika að baki.
— VS
Island over-
rasket alle
Þetta var fyrirsögn i norsku blaði eftir jafntefliö I Tönsberg á dög-
unum. Skyldu Sviarnir þurfa aö grlpa til svipaðra yfirlýsinga?
Umsjón
Víöir m
Sigurmark
Liverpool
á síðustu
sekúndu
Liverpool-Nott.Forest.......4:3
Notts Co-Manch.City.........1:0
Watford-Swansea ............2:1
West Ham-Ipswich............1:1
2. deild:
Burnley-Carlisle....
Cambridge-Barnsley .
Cr.Palace-Shrewsbury
Fullham-Q.P.R.......
Grimsby-Blackburn ..
Oldham-Rotherham ..
Sheff.Wed-Bolton....
Wolves-Charlton.....
Luther Blissett og Nigel Callag-
han skoruðu fyrir Watford en
Nigel Stevenson fyrir Swansea.
Efstu liö 1. deildar:
Liverpool ..
Watford....
Manch.City
Swansea ...
Sunderland
Coventry...
Sheffield Wednesday er efst i 2.
deild með 9 stig, Wolves hefur 8,
Grimsby, Burnley og Q.P.R. 7
stig hvert.
— VS
Jóhannes byrjar vel
Jóhannes Eðvaldsson, fyrrum
fyrirliði íslenska landsliðsins í
knattspyrnu, byrjar vel hjá sínu ný-
ja félagi, Mothcrwel, í skosku úr-
valsdeildinni. Á laugardagfór fram
fyrsta umferðin og Motherwell lék
gegn Rangers á heimavelli. Ran-
gers var komið í 2 - 0 en þá var
Jóhannes settur í framlínuna og átti
stóran þátt í því að Motherwell
jafnaði, 2-2. Onnur úrslit: Celtic-
Dundee 2 - 0, Dundee United -
Aberdeen 2 - 0, Hibernian -
St.Mirren 0 - 0 og Morton - Kilm-
arnock 0 - 0.
Jóhannes varð
heimsmeistari!
Jóhannes Hjálmarsson, kraft-
lyftingamaöurinn öflugi frá Akur-
eyri, varð um helgina
heimsmeistari í öldungaflokki á
móti í Bandaríkjunum. Jóhannes
sigraði í réttstöðulyftu, rétti úr sér
með 270 kíló í höndunum.
FH og Haukar ósigruð
Reykjanesmótið í handknattleik
hófst um helgina en í mcistara-
flokki karla er leikið í tveimur riðl-
y*
I_____________________
fáum
orðnm
sagt:_________________
um. í A-riðli urðu úrslit þessi: FH-
Stjarnan 25 - 22, Afturelding-
Reynir S. 26 - 21 og Stjarnan-
Afturelding 29 - 15. B-riðill:
Breiðablik-Grótta 29 - 21,
Haukar-HK 28 - 22 og Haukar-
Breiðablik 25 -23. Keppninni lýk-
ur um næstu helgi.
ísland varð í 13 sæti
Islenska unglingalandsliðið í
golfi varð í 13. sæti á Evrópumeist-
aramótinu sem lauk í Frakklandi
um helgina. í síöasta leiknum sig-
raöi ísland Holiand 4 - 3. Skotar
urðu Evrópumeistarar cftir sigur í
ítölum í úrslitalcik.
4 3 1 0 8:3 10
4 3 0 1 8:3 9
4 3 0 1 4:2 9
4 2 1 1 7:3 7
4 2 1 1 5:3 7
4 2 1 1 4:3 7
.4:1
.1:1
.2:1
.1:1
.5:0
.1:1
.3:1
.5:0
Peter Davenport skoraöi eitt
niarka Forest gegn Liverpool.
Englandsmeistarar Liverpool
voru undir 2—3 á heimaveili
þegar aöeins 7 minútur voru eftir
af leik liðsins gegn Notthingham
Forest i 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar i gærkvöldi. Graeme
Souncss tókst aö jafna, 3—3, á 83.
min, og á siöustu sekúndunum
skoraði Ian Rush sigurmark
Liverpool i æsispennandi leik,
4—3. David Hodgson skoraöi hin
tvö mörk Liverpool en Steve
Hodge 2 og Peter Davenport sáu
um mörk Forest.
Manchester City missti efsta
sætiö i hendur Liverpool meö 1—0
tapi gegn Notts. County. Mark
Goodwin skoraöi eina mark leiks-
ins.
Gerry Ryan skoraöi sigurmark
Brighton gegn Arsenal, sem
gengur illa aö skora þrátt fyrir
kaupin á Lee Chapman og Tony
Woodcock.
Úrslit i gærkvöldi:
1. deild:
Brighton-Arsenal...........1:0
Coventry-Sunderland........1:0
Lokauppgjörið í
1. deild kvenna
Eins og sagt var frá í blaðinu í
gær, lauk keppni í 1. deild kvenna í
knattspyrnu um helgina með því að
Valsstúlkur sigruðu Breiðablik
1-0.
Lokastaðan í 1. deild varð þessi:
Breiðablik...............10 8 1 1 32-8 17
Valur................... 10 6 3 1 11-4 15
KK ..................... 10 4 4 2 14-11 12
ÍA ..................... 10 4 2 4 19-16 10
Víkingur................ 10 1 3 6 5-13 5
FH...................... 10 0 1 9 1-30 1
Markahæstar:
Ásta B. Gunnlaugsd., UBK....... 15
BryndísEinarsdóttir, UBK................. 7
Kolbrún Jóhannsdóttir, KR................ 7
Laufcy Siguröardóttir, ÍA................ 6
Ragna Lóa Lóröardóttir, ÍA............... 4
Alls voru 82 mörk skoruð af 30
stúlkum í 30 leikjum í 1. deildinni í
sumar.
Víðir úr Garöi tekur sæti FH í 1.
deildinni en Garðsstúlkurnar báru
sigurorð af KA frá Akureyri eftir
tvo úrslitaleiki í 2. deildinni. Fvrst
0-0 á Akureyri en síðan sigraði
Víðir 1-0 í Keflavík um síðustu
helgi.
— MHM