Þjóðviljinn - 08.09.1982, Síða 11

Þjóðviljinn - 08.09.1982, Síða 11
Miðvikudagur 8. september 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 11 íþróttir / Island — Austur-þýskaland í kvöld: Lögðu Itali tveimur mánuðum fyrir HM! / I austur-þýska liðinu eru gamalkunnir kappar og upprennandi stjörnur ísland og Austur-Þýskaland leika landslcik í knattspyrnu á Laugardal- svellinuin í kvöld og hefst hann kl. 18.15. Hér er um vináttu- og undirhún- ingsleik að ræða og má búast við fjörugri viðureign. Austur-Þjóðverjar koma hingað með sitt sterkasta lið, sem er blanda af gamalreyndum köppum og ungum og efnilegum leikmönnum. Enginn atvinnumannanna okkar sem lék gegn Hollendingum getur leikið í kvöld en hins vegar fá nú íslenskir knattspyrnuáhugamenn að sjá Pétur Pétursson í landsliðs- búningnum í fyrsta skipti í hálft annað ár. Pétur leikur nú með Ant- werp í belgísku 1. deildinni og það verður gaman að sjá þennan skemmtilega framherja á Laugar- dalsvellinum á ný. íslenska liðið sem hefur leikinn í kvöld er skipað eftirtöldum leik- mönnum: Þorsteinn Bjarnason, Viðar Halldórsson, Trausti Har- aldsson, Sigurður Lárusson. Mar- teinn Geirsson. Guðmundur Por- björnsson, Ómar Torfason, Gunn- ar Gíslason. Árni Sveinsson. Sig- urður Grétarsson og Pétur Péturs- son. Varamenn verða þeir Guö- inundur Baldursson, Sigurjón Kristjánsson og að líkindum Ágúst Már Jónsson, í stað Arnar Óskars- sonar sem enn á við meiðsli að stríða. Margir leikmanna austur-þýska liðsins eru íslendingum vel kunnir frá viðureignum þjóðanna á undanförnum árum. Par má nefna Júrgen Pemmerenke, Rúdiger Schnuphase, Norbert Trieloff og Joachin Streich. Austur- Þjóðverjum hefur gengið vel það sem aferárinu. sigruðu meöal ann- ars Itali, verðandi heimsmeistara. í apríl, tveimur mánuðum fyrir IIM- keppnina. Islendingar eiga góðar minning- ar frá landsleikjum við Austur- Þjóðverja, þær bestu frá Evrópu- keppni landsliða árin 1974 og 1975. Þá náðu íslendingar óvænt jafn- tefli, 1-1, í Magdeburg og sigruðu síðan 2-1 á Laugardalsvellinum, eins og frægt er, með glæsimörkum Jóhannesar Eðvaldssonar og Ás- geirs Sigurvinssonar. Leikurinn hefst kl. 18.15 eins og áður sagöi en miðasala verður í dag við Útvegsbankann f Austurstræti og á Laugardalsvelli frá kl. 10 og frant eftir degi. — VS EM í frjálsum íþróttum: Öddur í milliriðil Bætti eigið íslandsmet í 400 m hlaupi í gær Oddur Sigurðsson, spretthlaup- arinn snjalli úr KR, náði mjög góð- um árangri í undanrásum 400 metra hlaupsins á Evrópumeistar- amótinu í frjálsum íþróttum sem nú stendur yfir í Aþenu í Grikklandi. Oddur varð fjórði í sínum riðli og komst þar með í milliriðil. Hann hljóp á tímanum 46,63 sek., og bætti þar með eigið Islandsmet á vegalengdinni um 1/100 úr sek- úndu. Sextán hlauparar komust f milli- riðla og náði Oddur betri tíma í gær en fimm þeira. í millriðli þarf hann síðan að ná fjórða sæti til að kom- ast í úrslitahlaupið þar sem átta taka þátt. Einar Vilhjálmsson keppti á mánudag í forkeppninni í spjót- kasti en kastaði' aðeins 72,26 m, sem er nokkuð frá hans besta. •Úrslitakeppnin fór fram í gær og Oddur Sigurösson þar þeytti Austur-Þjóðverjinn Uwe Hohn spjótinu lengst, 91,34 metra. Jón Diðriksson hljóp 800 m hlaup á mánudag og varð sjötti í sínum riðli á 1:50,30 mín., en komst ekki áfram. Frank Emmelmann frá Austur- Þýskalandi varð í gær Evrópum- eistari í 100 m hlaupi karla 10,21 sek. Pavoni frá Ítalíu varð annar á 10,25 sek. Ionescu frá Rúmeníu sigraði í langstökki kvenna með 6,79 metra, Marlies Göhr frá Austur-Þýskalandi í 100 m hlaupi kvenna á 11,01 sek., og Jose Marin frá Spáni í 20 km göngu á einni klukkustund, 23,43 mínútum. Á mánudag sigraöi Italinn Alberto Cova í 10 000 m hlaupi á 27:41,03 mín, og Ilona Slupianek, Austur- Þýskalandi, í kúluvarpi kvenna, kastaði kúlunni 21,59 metra. - VS Sá stóri á morgun Fyrsti landsleikur kvenna í knattspyrnu hér á landi „Viö þurfum að gera breytingar frá leiknum i Noregi. Svlar voru meö „njósnara” á þeim leik og hafa kynnt sér liö okkar mjög vel”, sagöi Siguröur Hannesson, annar þjálfara fslenska kvennaiandsliösins I knattspyrnu I samtali viö Þjóöviljann 1 gær. Eins og fram hefur komiö, leika tsland og Sviþjóö I Evrópukeppni kvennalandsliöa á Kópavogsveilinum á morgun, fimmtudag, og hefst leikurinn kl. 18 Þetta er fyrsti kvennalands- leikur hér á landi en sá þriöji sem ísland leikur. A dögunum gerði ísland óvænt jafntefli gegn Nor- egi ytra, 2—2, i fyrsta leik liðsins i keppninni. Sextán stúlkur hafa veriö valdar fyrir leikinn á morgun. Þæreru: Guðriður Guöjónsdóttir, UBK, Ragnheiður Jónasdóttir, 1A, Rósa A. Valdimarsdóttir, fyrirliði, UBK, Asta B. Gunn- laugsdóttir, UBK, Erla Rafns- dóttir, UBK, Magnea Magnús- dóttir, UBK, Margrét Sigurðar- dóttir, UBK, Bryndis Einars- dóttir, UBK, Laufey Sigurðar- dóttir, ÍA, Kristin Aðalsteins- dóttir, IA, Brynja Guðjónsdóttir, Víkingi, Jóhanna Pálsdóttir, Val, Ragnheiður Vlkingsdóttir, Val, Ásta M. Reynisdóttir, UBK, Arna Steinsen, KR og Erna Lúðviks- dóttir, Val. Sænska liðið, sem kom hingað til lands á mánudag, er talið eitt það allra sterkasta I Evrópu um þessar mundir. Þaö hefur leikið sex landsleiki á árinu, sigrað ítali, 2—0, Finna 4—0, og 6—0 gert jafntefli við England og Noreg, 1—1, en tapað 1—2 fyrir Dönum. Sænsku stúlkurnar eru mjög leik- reyndar, og, eins og sagt er i fréttatilkynningu frá Kvenna- nefnd KSI, þar er valin kona i hverju rúmi. Atta þeirra hafa leikið yfir 20 landsleiki, sú leikja- hæsta, Anetta Börjesson, er með 38 slika að baki. — VS Island over- rasket alle Þetta var fyrirsögn i norsku blaði eftir jafntefliö I Tönsberg á dög- unum. Skyldu Sviarnir þurfa aö grlpa til svipaðra yfirlýsinga? Umsjón Víöir m Sigurmark Liverpool á síðustu sekúndu Liverpool-Nott.Forest.......4:3 Notts Co-Manch.City.........1:0 Watford-Swansea ............2:1 West Ham-Ipswich............1:1 2. deild: Burnley-Carlisle.... Cambridge-Barnsley . Cr.Palace-Shrewsbury Fullham-Q.P.R....... Grimsby-Blackburn .. Oldham-Rotherham .. Sheff.Wed-Bolton.... Wolves-Charlton..... Luther Blissett og Nigel Callag- han skoruðu fyrir Watford en Nigel Stevenson fyrir Swansea. Efstu liö 1. deildar: Liverpool .. Watford.... Manch.City Swansea ... Sunderland Coventry... Sheffield Wednesday er efst i 2. deild með 9 stig, Wolves hefur 8, Grimsby, Burnley og Q.P.R. 7 stig hvert. — VS Jóhannes byrjar vel Jóhannes Eðvaldsson, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, byrjar vel hjá sínu ný- ja félagi, Mothcrwel, í skosku úr- valsdeildinni. Á laugardagfór fram fyrsta umferðin og Motherwell lék gegn Rangers á heimavelli. Ran- gers var komið í 2 - 0 en þá var Jóhannes settur í framlínuna og átti stóran þátt í því að Motherwell jafnaði, 2-2. Onnur úrslit: Celtic- Dundee 2 - 0, Dundee United - Aberdeen 2 - 0, Hibernian - St.Mirren 0 - 0 og Morton - Kilm- arnock 0 - 0. Jóhannes varð heimsmeistari! Jóhannes Hjálmarsson, kraft- lyftingamaöurinn öflugi frá Akur- eyri, varð um helgina heimsmeistari í öldungaflokki á móti í Bandaríkjunum. Jóhannes sigraði í réttstöðulyftu, rétti úr sér með 270 kíló í höndunum. FH og Haukar ósigruð Reykjanesmótið í handknattleik hófst um helgina en í mcistara- flokki karla er leikið í tveimur riðl- y* I_____________________ fáum orðnm sagt:_________________ um. í A-riðli urðu úrslit þessi: FH- Stjarnan 25 - 22, Afturelding- Reynir S. 26 - 21 og Stjarnan- Afturelding 29 - 15. B-riðill: Breiðablik-Grótta 29 - 21, Haukar-HK 28 - 22 og Haukar- Breiðablik 25 -23. Keppninni lýk- ur um næstu helgi. ísland varð í 13 sæti Islenska unglingalandsliðið í golfi varð í 13. sæti á Evrópumeist- aramótinu sem lauk í Frakklandi um helgina. í síöasta leiknum sig- raöi ísland Holiand 4 - 3. Skotar urðu Evrópumeistarar cftir sigur í ítölum í úrslitalcik. 4 3 1 0 8:3 10 4 3 0 1 8:3 9 4 3 0 1 4:2 9 4 2 1 1 7:3 7 4 2 1 1 5:3 7 4 2 1 1 4:3 7 .4:1 .1:1 .2:1 .1:1 .5:0 .1:1 .3:1 .5:0 Peter Davenport skoraöi eitt niarka Forest gegn Liverpool. Englandsmeistarar Liverpool voru undir 2—3 á heimaveili þegar aöeins 7 minútur voru eftir af leik liðsins gegn Notthingham Forest i 1. deild ensku knatt- spyrnunnar i gærkvöldi. Graeme Souncss tókst aö jafna, 3—3, á 83. min, og á siöustu sekúndunum skoraði Ian Rush sigurmark Liverpool i æsispennandi leik, 4—3. David Hodgson skoraöi hin tvö mörk Liverpool en Steve Hodge 2 og Peter Davenport sáu um mörk Forest. Manchester City missti efsta sætiö i hendur Liverpool meö 1—0 tapi gegn Notts. County. Mark Goodwin skoraöi eina mark leiks- ins. Gerry Ryan skoraöi sigurmark Brighton gegn Arsenal, sem gengur illa aö skora þrátt fyrir kaupin á Lee Chapman og Tony Woodcock. Úrslit i gærkvöldi: 1. deild: Brighton-Arsenal...........1:0 Coventry-Sunderland........1:0 Lokauppgjörið í 1. deild kvenna Eins og sagt var frá í blaðinu í gær, lauk keppni í 1. deild kvenna í knattspyrnu um helgina með því að Valsstúlkur sigruðu Breiðablik 1-0. Lokastaðan í 1. deild varð þessi: Breiðablik...............10 8 1 1 32-8 17 Valur................... 10 6 3 1 11-4 15 KK ..................... 10 4 4 2 14-11 12 ÍA ..................... 10 4 2 4 19-16 10 Víkingur................ 10 1 3 6 5-13 5 FH...................... 10 0 1 9 1-30 1 Markahæstar: Ásta B. Gunnlaugsd., UBK....... 15 BryndísEinarsdóttir, UBK................. 7 Kolbrún Jóhannsdóttir, KR................ 7 Laufcy Siguröardóttir, ÍA................ 6 Ragna Lóa Lóröardóttir, ÍA............... 4 Alls voru 82 mörk skoruð af 30 stúlkum í 30 leikjum í 1. deildinni í sumar. Víðir úr Garöi tekur sæti FH í 1. deildinni en Garðsstúlkurnar báru sigurorð af KA frá Akureyri eftir tvo úrslitaleiki í 2. deildinni. Fvrst 0-0 á Akureyri en síðan sigraði Víðir 1-0 í Keflavík um síðustu helgi. — MHM

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.