Þjóðviljinn - 08.09.1982, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 08.09.1982, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 8. september 1982 „Halda skaltu hvfldardaginn heilagan”------------ Strangtrúarmenn ráða miklu í Israel Stjórn israels hefur nú ákveðiö að frá byrjun septem- beraðtelja skuli allt flug hins þjóðnýtta flugfélags El Al leggjast niður á laugardögum, en laugardagurinn er hvíldardagur gyðinga. Hyggst Begin forsætisráðherra þannig halda betur þriðja boðorð Móse, sem segir svo „Minnstu þess að halda hvildardaginn heilagan". Menahem Begin ræðir við leiötoga strangtrúaðra gyðinga. Þessi ákvörðun, sem er siðasti þátturinn i viðleitni strang- trúaðra gyðinga til að sveigja allt israelska þjóðfélagið undir trúar- reglur Gamla testamentisins, kemur flugfélaginu E1 A1 i all- mikinn vanda. Flugvélar félags- FRETTASKÝRING ins geta nú ekki lengur flogið nema fimm og hálfan dag í viku, þar sem hvildardagurinn er tal- inn hefjast við sólsetur á föstu- dögum. Nú var afkoma flug- félagsins þegar mjög bágborin, en sætanýtingin var þó einna best i laugardagsfluginu. Óttast er þvl Skirrast einskis En strangtrúaðir gyðingar i tsrael kippa sér litið upp við það, þótt þeir stefni aðalflugfélagi Israelsþjóðar i beinan háska og verði þessvegna fyrir aðkasti. Þeir eru sannfærðir um réttmæti trúarboða sinna og siðareglna og skirrast einskis við að sveigja aðra undir þær. Margir þeirra voru i upphafi andvigir stofnun tsraelsrikis, þvi að þeir litu svo á, að pólitiskt gyðingariki væri i andstöðu við trúarlegt innihald gyðingdómsins, og fengu þeir þvi til leiðar komið að aldrei hefur verið sett nein stjórnarskrá i tsrael — reglur Gamla testa- mentisins voru að þeirra dómi Deilur á flugvelli milli strangtrúaðra manna og starfsmanna EI Al. framkvæmd ýmsum gömlum baráttumálum, sem fengið höfðu takmarkaðan hljómgrunn til þessa. I þeim pólitisku hrossakaupum, sem fram fóru áður en siðasta rikisstjórn Begins var mynduð i júni 1981, tókst forsprökkum þess strangtrúarflokks, sem stendur lengst til hægri, „Agudat Israel”, að koma ýmsum helstu stefnu- skrármálum sinum inn i stjórnar- sáttmálann, og siðan var hafist handa um að framkvæma þau, þótt augljóst væri að yfirgnæfandi hluti tsraelsmanna væri þessari stefnu andvigur. Þá var einkum lögð áhersla á þrennt. mataræði yrðu haldin i einu og öllu. Bannið við laugardagsflugi E1 A1 er einn liðurinn i þessari baráttu, en mikið hafði þó gengið á, aður en það mál komst á odd- inn. Þannig höfðu strangtrúaðir menn smám saman komið þvi til leiðar að mataræðisreglur Móselaga yrðu teknar upp i öllum opinberum stofnunum (m.a. hernum, sjúkrahúsum og fang- elsum), og bann við vinnu á laugardögum yrði hert i sifellu. En reglur Gamla testamentis- ins um helgi hvildardagsins eru þess eðlis að býsna erfitt er að framfylgja þeim i nútimaþjóð- félagi. Samkvæmt túlkun rabbia kveikt á ljósi og hita á hvildar- daginn án þess að nokkur mann- leg hönd komi þar nálægt. Síðast en kannski ekki sist má nefna það, að stofnunin hefur fundið upp sérstakt blek, sem er þess eðlis að það sem er skrifað meö þvi hverfur eftir fáa daga. Þannig geta menn skrifað á hvildardag- inn án þess að brjóta gegn þeirri trúarreglu sem bannar mönnum að draga „varanleg” leturtákn! En þótt strangtrúaðir menn, sem nú hafa viðurkennt gyðinga- rikiö, hafi fengið svona sterk áhrif i stjórmálum landsins og þjóðlifi, eru enn til hópar sem vilja ganga enn lengra i þessum efnum og berjast bæði leynt og Atök lögreglu og strangtrúaðra gyðinga. að þetta bann kunni að leiða til þess að nauðsynlegt verði að segja um 20 af hundraði starfs- manna félagsins upp störfum og draga starfsemi þess saman að mörgu leyti. Til að koma I veg fyrir að bannið við laugardags- flugi veiki stöðu félagsins gagn- vart erlendum keppinautum þess hefur stjórn Begins einnig ákveðið að banna flug erlendra flugfélaga i landinu á laugardög- um, þannig að tsrael verður nú lokað frá umheiminum einn dag i viku. Þó er óvtst aö þessi ráðstöfun geti bjargað miklu, og óttast margir að E1 A1 kunni að verða gjaldþrota áður en langt um liöur. Mikil ólga hefur verið meðal starfsmanna E1 A1 vegna þessara ráðstafana, og hafa þeir jafnvel gripið til þess ráðs að banna strangtrúuðum gyðingum aðgang að Ben Gurion flugvelli i Tel Aviv i mótmælaskyni. Til að svara slikum aðgerðum festu hinir strangtrúuðu siðan upp skilti i þorpinu Bnei Brak, þar sem þeir eru fjölmennir, og mátti þar lesa: „Aðgangur bannaður fyrir hunda og starfsmenn E1 Al”! nægilegur grundvöllur fyrir rikið. Þeirhöfðueinnig mikil áhrif á lög um hjúskap o.þ.h. En þrátt fyrir þetta voru áhrif þeirra á stjórn- mál ísraelsrikis löngum tak- mörkuð, ekki sist vegna þess að þeir voru klofnir i þrjá stjórn- málaflokka og siðar nokkur flokksbrot Hka, og þaö kostaði átök og klofning áður en megin- hluti þeirra féll frá andstööu sinni gegn gyðingarikinu og gat farið að taka þátt i eölilegu stjórn- málalifi i landinu. Nota Begin En ástandiö gerbreyttist þegar hægri menn komust til valda I tsrael undir forystu Begins. Bæði stóðu Begin og flokkur hans miklu nær þessum strangtrúarflokkum en verkamannaflokkurinn, sem áður hafði farið með völd i land- inu, og svo kom sú staða upp eftir kosningarnar 1981, að Begin varð að hafa stuöning þingmanna strangtrúarflokkanna til að hafa meirihluta á þingi. Strangtrúarmenn voru ákveðnir i að notfæra sér þessa stöðu út i ystu æsar til að hrinda i Forvigismenn strangtrúaðra gyðinga komu þvi til leiðar fljót- lega að ungir menn I æskulýðs- samtökum trúarflokkanna fengu undanþágu frá herþjónustu, þvi að „bibliunám er mikilvægara en vopnaburður”. Þótt þessi megin- regla hljómi fagurlega, vakti það reiði annarra tsraelsmanna, sem verða að bera hitann og þungann af vörnum landsins, að 15000 menn fengju þannig aö losna undan allri herskyldu á striðstim- um. Þeir fengu þvi einnig fram- gengt að miklu fé var varið i trú- mál, einkum til skóla og bæna- húsa, sem strangtrúaðir menn ráða einir yfir — og jafnvel eru notuð til að predika gegn sion- isma. Sabbatstæknin En mestur styrinn hefur þó staðið um þriðja atriðið: strang- trúaðir menn hafa barist fyrir þvi með kjafti og klóm að hvildar- dagurinn yrði haldinn heilagur i tsrael og boð Móselaga um á þessum lögum mega menn nefnilega ekki nota neina tegund af vélum eða tæknibúnaði á hvildardaginn og ekki fást við vinnu af nokkru tagi. Þess vegna hafa strangtrúaðir gyðingar i Jerúsalem sett á fót sérstaka „stofnun um trúarlög og tækni”, sem á að sjá um að að- hæfa Móselögin og þjóöfélagi tuttugustu aldar. Hætt er þó við þvi að ýmsar af uppfinningum stofnunarinnar liti út i augum út- lendinga eins og hálfgert „svindl” eða hræsni. Þannig hefurþessi stofnun hannað lyftur, sem þegar hafa verið teknar i notkun i ýmsum hótelum og háhýsum, og ganga sjálfkrafa á ákveðum stundum hvildardags- ins, þannig að menn geta komist á milli hæða án þess að styðja á einn einasta takka, — en ef þeir styöja ekki á takka getur enginn ásakað þá um að rjúfa helgi hvildardagsins með óleyfilegri vinnu eða notkun á tæknibúnaði! A sama hátt hafa verið tekin i notkun „sabbat-salerni” sem sturta niður á ákveðnum stundum og „subbat-úr” sem geta einnig ljóst gegn gyðingarikinu, sem þeir telja að hafi engan tilveru- rétt meðan Messias sé enn ókom- inn. Þessir menn neita að hlýða lögum og reglum rikisins, standa fyrir mótmælaaðgerðum gegn „trúarvillingastjórninni” i Jerúsalem, og hafa jafnvel krafist þess að hverfi þeirra I Jerúsalem verði gert að sjálf- stjórnarsvæði. Einn af tals- mönnum þeirra lýsti þvi jafnvel yfir að æskilegt væri að gyðinga- rikið eyöileggðist i kjarnorku-' árás. 011 þessi samtök og stjórnmála- flokkar strangtrúaðra manna eru mjög fámenn, en starfsemi þeirra getur þó haft alvarlegar afleið- ingar fyrir framtiö tsraelsrikis. Með þvi að gera trúarreglurnar að opinberum reglum þess eru þessir menn nefnilega að stuðla að þvi að þeir menntuðu og frjáls- lyndu gyðingar sem stofnuðu ísraelsriki og hafa fram að þessu verið aðal máttarstólpi þess, gefist upp á lifinu i þessu landi, sem er að verða þeim framandi. (Endursagt eftir „Der Spiegel”).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.