Þjóðviljinn - 14.09.1982, Page 7
Þriðjudagur 14. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Einn af helstu foringjum PLO:
Ætlum að efla baráttuna
á hernumdu svæðunum
Arafat hefur
viðbjóð
á hegðun
arabískra
leiðtoga
Forystumenn PLO, Frelsis-
samtaka Palestínumanna,
telja, að sú staðreynd, að þeir
gátu veitt ísraelsher viðnám í
ellefu vikur hafi ráðið miklu um
það, að Bandaríkjastjórn hefur
í fyrsta sinn imprað á brottför
ísraela af hernumdu svæðunum
á Vesturbakka Jórdanár og í
Gaza. Þeir gefa til kynna að
næsti áfangi baráttu þeirra
verði aukinn skæruhernaður
einmitt á þessum svæðum. En
þeir eru svartsýnir á sinnaskipti
ísraelskra ráðamanna og mjög
sárir stjórnum Arabaríkja fyrir
að þær komu þeim ekki til
hjálpar.
Þetta kemur fram í athyglisveröu
viðtali sem vestur-þýska blaðið
Spiegel hefur átt við Abu Ijad, einn
af staðgenglum Jassir Arafats og
þann af forystumönnum PLO sem
fer með „öryggismál byltingar-
innar“.
Vildu ekki trúa
Abu Ijad segir, að þegar í febrú-
ar hafi hann vitað um innrásará-
form ísraelska hersins og hafi hann
komið þeirri vitneskju áfram bæði
til stjórna Arabaríkja og Sovétríkj-
anna. Enginn hafi hinsvegar viljað
trúa því að slík allsherjarinnrás
væri yfirvofandi — í mesta lagi
vildu t.d. Sovétmenn trúa því að
ísraelar tækju einhverja smáspildu
syðst í Líbanon.
Málamiðlun?
En, segir staðgengill Arafats,
áætlun ísraelska herráðsins gekk
ekki eftir. Þeir menn héldu að þeir
myndu ná markmiði sínu á einni
viku eða tveim, en í raun þurftu
þeir ellefu vikur. Það er andspyrn-
an í Beirut, segir Abu Ijad, sem
hefur orðið til þess að Reagan
Bandaríkjaforseti hefur breytt um
tón. í fyrsta skipti heyrum við
bandarískan forseta nefna palest-
ínskt ríki á nafn, sem og að ísraelar
yfirgefi Gaza og Vesturbakkann.
Ég er ekki ánægður með tillögur
Reagans (sem gerir ráð fyrir eins-
konar sjálfstjórn Palestínumanna
undir yfirstjórn Jórdaníu) — en
það er ýmislegt jákvætt í þeim og
við getum ekki hunsað þær.
Áætlun Fahds
Abu Ijad bætti því við, að hann
væri reiðubúinn til að styðja friðar-
áætlun þá sem kennd er við Fahd,
konung Saudi-Arabíu, en hún gerir
ráð fyrir stofnun Palestínuríkis og
viðurkenningu á ísrael. Með því
skilyrði fyrst að Bandaríkjamenn
samþykki þessa áætlun. Hann
kveðst fylgjandi hverri þeirri mál-
amiðlun sem gerir ráð fyrir rétti
Palestínumanna til ríkis. En mál-
amiðlun sem slíkum áformum fylgi
geti hann ekki játast undir fyrr en
Palestínumenn hafa fengið sinn
rétt tryggðap.
Abu Ijad og Arafat: ef Arabaríkin ættu ekki lakari foringja en við...
Þessi leiðtogi Palestínumanna er
hinsvegar ekki bjartsýnn á það, að
ísraelar séu að sínu leyti reiðubúnir
til þeirrar málamiðlunar, sem geti
tryggt friðsamlega sambúð þjóð-
anna. Vegna þess að svotil allir ís-
raelskir stjórnmálaforingjar séu
litlu betri en Sjaron og Begín. Tók
hann sérstaklega dæmi af foringja
stjórnarandstöðunnar, Simon Per-
es, leiðtoga Verkamannaflokksins.
Beirut en ekki til arabískrar höfuð-
borgar?
Svar: Vegna þess að hann hefur
fengið svo mikinn viðbjóð á hegð-
un Araba að hann hefur enga
löngun til að heimsækja arabíska
höfuðborg.
áb endursagði.
Varðstöð í Beirút: vörnin hefur fengið Reagan til að breyta um tón...
Skæruhernaður
Abu Ijad sagði ennfremur, að
Palestínumenn þyrftu ekki á her-
bækistöðvum að halda í grann-
löndum ísraels til að geta háð
vopnaða baráttu. Þeir mundu ekki
heldur efna til hermdarverka í Evr-
ópu. „Við höfum ákveðið,“ sagði
hann, ',,að efla vopnaða baráttu á
hernumdu svæðunum. Framtíðin
mun innan skamms leiða í ljós hvað
ég á við með því.“
Rússar
Abu Ijad var að því spurður
hvers vegna Sovétmenn hefðu ekki
komið til hjálpar Palestínu-
mönnum — þeir hefðu t.d. skipt
sér mjög af Súesstríðinu 1956.
Hann svaraði því til, að Rússar
hefðu verið reiðubúnir að koma til
skjalanna hefði eitthvert arabískt
ríki beðið þá um þá, eða með öðr-
um orðum Sýrland. En Sýrlending-
ar vildu ekki biðja um aðstoð.
Beiskja
Það kom fram í viðtalinu, að for-
ingjar Palestínumanna eru fullir
beiskju út í stjórnvöld flestra Ar-
abaríkja. Abu Ijad spurði hvers-
vegna Sýrlendingar hefðu ekki bar-
ist, hvers vegna Gaddafi og Alsír-
menn hefðu ekki staðið við stóru
orðin, hvers vegna Saudi-Arabía
hefði ekki gripið til olíuvopnsins.
„Frá fyrstu viku innrásarinnar
sungu allar arabískar sjónvarps-
stöðvar og blöð einn og sama söng:
brottför Palestínumanna frá Beir-
út. Þau sögðu ekki orð um hetju-
lega andspyrnu okkar. Ef að Ár-
abaríkin hefðu leiðtoga á borð við
þá sem PLO hefur, þá hefði ekki
komið til undanhaldsins frá Beir-
ut.“
Við samþykktum undanhaldið
ifrá borginni, segir Abu Ijad, vegna
jþess að vinir okkar í Líbanon báðu
okkur um að hlífa konum, börnum
og öldungum við blóðbaði orustu
itil síðasta manns.
Viðtalinu lýkur á þessum
orðum:
Spiegel spyr: Hvers vegna fór
,Arafat fyrst til Grikklands frá
FM
FEYRIS
SJOÐUM
HVAÐ ÞÝÐIR VEÐLEYFI?
SVAR: Oft kemur fyrir að lántakandi á ekki full-
’ nægjandi veð fyrir þeirri lánsupphæð, sem hann
ætlar að taka að láni. En Iífeyrissjóðirnir veita lán
fyrir allt að 50% af brunabótamati íbúðar. Þá er
málið yfirleitt leyst þannig að lántakandi fær
„lánað“ veð hjá ættingjum eða kunningjum. (því
felst, að standi lántakandi ekki í skilum getur líf-
eyrissjóðurinn gengið að veðinu og boðið það
upp, ef ekki tekst að ná greiðslu á annan hátt. Sá
sem veðleyfið veitir, verður því að bera mikið
trausttil þess, sem veðið fær lánað. Þeirsemlána
veð í íbúðum sínum, verða að gera sér það
fullljóst, að þeir eru hugsanlega að afsala sér
hluta af eigninni og þeir verða að vera við því
búnir að þurfa að greiða af láninu sjálfir. Slíkt
kemur fyrir. Því verður að árétta: „Varúð við veð-
leyfi".
Sömu sögu er að segja þegar fólk í sambúð er
að byggja eða kauþa íbúð saman. Þá er mjög
mikilvægt að fólk gangi tryggilega frá lagalegri
hlið málanna, því að sambúðin getur rofnað og oft
er um miklar fjárhæðir að ræða. Sá sem er skrif-
aður fyrir eigninni stendur þá venjulega með
pálmapn í höndunum og hinn aðilinn gæti tapaö
öllu sínu.
Spurningarnar og svörin, sem birst hafa í
undangegnum auglýsingum, hafa verið gefnar út
( bæklingi, sem liggur frammi hjá lífeyrissjóðum
og ýmsum lánastofnunum.
SAMBAND ALMENNRA
LÍFEYRISSJÓÐA
LANDSSAMBAND
LÍFEYRISSJÓÐA
4