Þjóðviljinn - 27.10.1982, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 27. október 1982
Kveðjur frá Fósturskóla fslands og
Fóstrufélagi íslands
Brautryðjandinn
Þórhildur Ólafsdóttir
Fædd 18.7. 1900
Með Þórhildi Ólafsdóttur fyrr-
verandi forstöðukonu er gengin
merk kona og mikilhæf. Hún var
brautryðjandi á sviði dagvistar-
mála, og með starfi sínu að uppeld-
ismálum markaði hún stefnu og
hafði þau áhrif á samtíð sína að
ótrúlegt getur talist. Þórhildur var
önnur fóstrumenntaða konan á ís-
landi, en menntun sína hlaut hún á
Socialpedagogiska seminariet í
Stokkhólmi.
Þegar Þórhildur kom heim frá
námi haustið 1939 höfðu aðeins
verið rekin hér dagheimili á
sumrin, ætluð börnum mæðra sem
unnu í fiski. Leikskólastarfsemi
þekktist ekki. Það var ekki vegna
þess að dagvistarheimili væru ó-
þörf, heldur skorti vilja skilning
og fjármagn til þess að hrinda þess-
um málum í framkvæmd.
Þegar eftir heimkomuna fór Þór-
hildur að berjast fyrir því að koma
á fót dagheimilum og leikskólum
sem starfrækt væru allt árið. A
þessum árum var mikið atvinnu-
leysi og liðu mörg börn næringar-
skort að dómi bamavemdamefnd-
ar. Ósk Þórhildar var að starf-
rækja dagheimili fyrir börn þar sem
þau fengju góðan og hollan mat og
stuðlað væri að líkamlegum og
andlegum þroska þeirra. Hvar-
vetna mætti Þórhildur skilningsleysi
hjá opinberum aðilum. Þórhildur
sótti um styrk úr Barnauppeldis-
sjóði Thorvaldsensfélagsins og
fékk þrjú þúsund krónur til þess að
starfrækja dagheimili Hún leitaði
aðstoðar þar sem aðstoð var að fá,
hjá heildsölum, fisksölum, vinum
og frændfólki. Hún tók húsnæði á
leigu á eigin ábyrgð. Dagheimilið
opnaði hún 1. febrúar 1940. Börnin
voru 20. Hún hafði eina stúlku sér
til aðstoðar, en sjálf vann hún
kauplaust. Að þremur mánuðum
liðnum voru peningarnir búnir og
dagheimilinu lokað.
Þetta er glöggt dæmi um áhuga
hennar fyrir málinu og sér í lagi þar
sem hún yfirgaf gott skrifstofustarf
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur til
þess að helga sig málefnum barna
og mennta sig til þess.
Haustið 1940 hófst starfsferill
Þórhildar hjá Barnavinafélaginu
Sumargjöf. Sumargjöf fékk þá um-
ráð yfir húsi við Amtmannsstíg sem
var í eigu ríkisins og varð Þórhildur
þar forstöðukona Auk dagheimil-
is var starfræktur leikskóli þar sem
börnin áttu kost á að dveljast hlut
úr degi við þroskandi leiki og störf.
dáin6.8. 1982
Leikskólar fyrir börn var mikið
hjartans mál fyrir Þórhildi, bæði
vegna þess að hún hafði kynnst
þessari starfsemi á Spáni og í Sví-
þjóð, og eins það að dagheimili
höfðu á þessum árum á sér stimpil
fátækrahjálpar. En með leikskól-
astarfseminni hugðist hún ná til
barna frá betur stæðum heimilum
og stuðla þannig að eðlilegri félags-
legri blöndun.
1941 lagðist starfsemin niður við
Amtmannsstíg, þar sem ríkið tók
húsið til annarra nota.
Eftir að Þórhildur hafði sannfært
bæjarstjórn Reykjavíkur um að
það væri ódýrara fyrir bæjarsjóð aö
styrkja barnaheimili en að sjá ein-
stæðum mæðrum og börnum
þeirra farborða fékkst styrkur árið
1943. Eftir það fór að rofa til í
þessum málum. Sumargjöf keypti
hús við Tjarnargötu, Tjarnarborg,
og nýtti undir dagheimili. Þarna
settist Þórhildur að og hélt áfram
við ævistarfið; kom sér þá vel
menntun, dugnaður og stjórnsemi,
sem hún átti í ríkum mæli.
Það hefur ekki verið létt verk að
hefja það starf sem hún tók að sér
og hafa enga fóstru sér til aðstoðar.
Hún lagði alla tíð ríka áherslu á að
börnin fengju næringarríka fæðu
og að hreinlæti væri í hávegum
haft. Hún hafði sérstaka tilfinningu
fyrir því, að fallegur garður með
blómum, grasi og trjám væri í kring
um barnaheimilin og að börnin
lærðu að umgangast gróðurinn.
1 Tjarnarborg var húsnæði fyrir
starfsstúlkurnar og bjuggu þær oft
8 í húsinu auk Þórhildar. Margar af
starfsstúlkunum voru utan af landi,
og var þetta því þeirra annað
heimili, og tók hún þátt í því
að gleðjast með þeim á hátíðar-
stundum.
Þegar Laufásborg var opnuð ár-
ið 1952 réðst Þórhildur þangað sem
forstöðukona. Hún lét af störfum
sjötug að aldri.
Fóstrufélag íslands gerði Þór-
hildi að heiðursfélaga sínum þegar
hún varð sjötug. Félagið vottar
hinni látnu virðingu og þökk.
Blessuð sé minning hennar.
Fóstrufélag íslands
Fyrir réttum 36 árum tók til
starfa í Reykjavík nýr skóli undir
nafninu Uppeldisskóli Sumargjaf-
ar. Hlutverk hans var að mennta
stúlkur til starfa á barnaheimilum.
í þá daga þótti þetta allnýstárleg
hugmynd, nánast fjarstæða.
Bak við allar nýstárlegar hug-
myndir og nýjungar er framsýnt
fólk, fólk sem er á undan sínum
tíma í hugsun og athöfn. Á bak við
hugmyndina um fóstrumenntun og
uppeldis- eða fósturskóla á íslandi
var framsýn og stórbrotin kona,
Þórhildur Ólafsdóttir, forstöðu-
kona. Hún lést sem kunnugt er 6.
ágúst sl. 82 ára gömul.
Vegna fjarveru minnar átti ég
þess ekld kost að minnast samstarfs
konu minnar og vinkonu við lát
hennar í sumar. En fáum er það
skyldara —- og ljúfara en mér að
minnast þessarar merku konu.
Þórhildur Ólafsdóttir var fædd á
Stóra-Hrauni í Árnessýslu, 18. júlí
árið 1900, dóttir hjónanna Kristín-
ar ísleifsdóttur og séra Ólafs Helg-
asonar. Var hún af landskunnum
og merkum ættum, sem hér verða
ekki raktar. Þó má geta þess, að
Þórhildur bar nafn ömmu sinnar,
Þórhildar dóttur Tómasar Sæ-
mundssonar prófasts á Breiða-
bólsstað.
Faðir Þórhildar, séra Ólafur, var
brautryðjandi um kennslu
heyrnar- og málleysingja og rak
málleysingjaskóla á heimili sínu frá
1891 til dauðadags, en hann dó um
aldur fram árið 1904. Skólinn var
þó rekinn áfram á Stóra-Hrauni
fram til ársins 1910.
Ólst því Þórhildur upp á fjöl-
mennu menningarheimili, þar sem
íslenskar hefðir voru í hávegum
hafðar og umhyggja fyrir lítilmagn-
anum var eðlilegur þáttur í daglegu
lífi. Veganestið frá Stóra-Hrauni
mótaði án efa lífsviðhorf hennar
varanlega, eins og fram kom í því
að hún valdi barnauppeldi að ævi-
starfi og gerði bættar uppeldisað-
stæður borgarbarna að baráttumáli
sínu.
Þórhildur stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík og
lauk prófi þaðan. Síðan dvaldi hún
í Englandi í eitt ár. Á Spáni bjó hún
í 3 ár með systur sinni og mági,
þeim Karitas Ólafsdóttur og Helga
Guðmundssyni, bankastjóra, þau
hjónin studdu Þórhildi með ráðum
og dáðum í brautryðjandastarfi
hennar fyrr og síðar
Þegar heim kom frá Spáni, vann
hún í 5 ár við skrifstofustörf hjá
Rafveitu Reykjavíkur. Þau störf
fullnægðu henni ekki hvorki lífs-
viðhorf hennar né forystuhæfi-
leikum. Hugur hennar hafði ætíð
staðið til uppeldis- og kennslu-
mála, eins og hún átti kyn til.
Þrjátíu og átta ára gömul tók hún
þá ákvörðun „að fara úr fínni kont-
órstöðu í gagnslaust nám“ eins og
hún orðaði það sjálf með kímnis-
glampa í augum.
Haustið 1938 fékk Þórhildur inn-
göngu í „Socialpedagogiska
seminariet“ í Stokkhóhni —
fósturskóla sem þá var nýstofnað-
ur. Skóli þessi var stofnaður árið
1936 að tilhlutan Ölvu Myrdal,
heimskunn sem sendiherra Sví-
þjóðar á Indlandi og fyrir störf
sín að friðarmálum á alþjóðavett-
vangi. Sem kunnugt er hlaut hún
friðarverðlaun Nobels nú fyrir
skömmu. Alva Myrdal var fyrsti
skólastjóri þessa fósturskóla í
Stokkhólmi og gegndi því starfi
fyrsta áratuginn.
Socialpedagogiska seminariet
var þá boðberi nýrrar stefnu um
uppeldi borgarbarna í nútíma
þjóðfélagi. Þeirri stefnu eru gerð
góð skil í bók Ölvu Myrdal „Stads-
barn“ eða „Borgarbarnið" sem út
kom skömmu áður en skóli hennar
hóf göngu sína. Hreifst Þórhildur
mjög af þessum nýju kenningum
og hafði þær að leiðrljósi, er heim
kom og hóf brautryðjandastarf sitt
af brennandi áhuga með öðrum
Bygging 7
á Landspítalalóð
Loftræstitæki
Tilboð óskast í smíði og uppsetningu á loftræstitækjum í
blásaraklefa byggingar 7 á Landspítalalóð í Reykjavík.
Frágangi útsogsgreina skal lokið 15. desember 1982 og öllu
verkinu skal skila 1. febrúar 1983.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7 í
Reykjavík, gegn 500 kr. skilatryggingu.
»Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn, 11. nó-
vember 1982, kl. 11.00
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 POSTHÓLF 1441 TELEX 2006
mætum mönnum hjá Barnavinafé-
laginu Sumargjöf.
Þórhildur hafði ekki unnið lengi
sem forstöðukona, þegar henni var
fyllilega ljóst, að ekki var unnt að
reka barnaheimili sem verðugar
uppeldisstofnanir án þess að til
starfa fengist fólk, sem hlotið hafði
uppeldisfræðilega menntun til
þessara starfa. Hjá Þórhildi höfðu
þó unnið úrvalsstúlkur, sem hún
mat að verðleikum, enda taldi hún
ekki eftir sér að kenna þeim og
stjórna.
Árið 1945 tók Þórhildur að vinna
af alefli að því, að skóli yrði stofn-
aður til að mennta fólk til fóstru-
starfa. Átti hún frumkvæðið að
stofnun Uppeldisskóla Sumargjaf-
ar, sem síðar varð Fósturskóli ís-
lands, eins og áður segir. Undir
forystu ísaks Jónssonar, formanns
Barnavinafélagsins Sumargjafar,
tókst að fá styrk til reksturs skólans
frá ríki og Reykjavíkurborg. Um
þetta mál sagði Þórhildur svo frá í
viðtali við Fóstrublaðið 1970, er
hún lét af störfum sem forstöðu-
kona:
„Hófust nú allir handa. Ég man
ekki lengur hver gerði hvað, en
mér var falið að leggja drög að
starfsemi þessa væntanlega skóla
og útvega skólastjóra og aðalkenn-
ara. Tilhögun skólans mioaði ég nú
aðallega við þann ágæta skóla, sem
ég hafði numið við í Stokkhólmi.
Svo tókst mér að klófesta Valborgu
Sigurðardóttur, sem þá var að
ljúka námi í sálar- og uppeldisfræði
í Bandaríkjunum“.
Þannig var upphaf sambands
okkar Þórhildar.
Hún „klófesti mig unga að aldri
Við höfðum aldrei sést fyrr en ég
kom heim til Islands að námi loknu
og tók að starfa með henni að
undirbúningi skólans. Skólastarfið
hófst 1. október 1946 í einnu stofu í
barnaheimilinu Tjarnarborg undir
verndarvæng Þórhildar, sem þar
var forstöðukona. Þar tókst sam-
starf með okkur Þórhildi, sem átti
eftir að standa í aldarfjórðung og
vinátta, sem varði meðan henni
entist líf og heilsa.
f kringum Þórhildi var aldrei
kyrrstaða. Því gat hún ekki unað.
Hún var kvik í hreyfingum, létt í
spori, bar höfuðið hátt, var einarð-
leg í fasi og gustmikil á stundum.
Hún var stjórnsöm athafnakona,
sívakandi og stórhuga. Hún var
traustur samstarfsmaður, ákveðin í
skoðunum og fylgin sér og lét
ógjarnan hlut sinn fyrir öðrum.
Gat því verið erfitt fyrir ungan og
reynslulausan samstarfsmann að
halda hlut sínum, ef ámilli bar. Við
vorum oft ósammála og skarst í
odda með okkur. En við virtum
hvor aðra og vinátta okkar stóð
traustum fótum. Þórhildur var vin-
ur vina sinna hún kunni að gleðj-
ast með glöðum og hryggjast
með hryggum. I skaphöfn hennar
voru margir strengir — allir
hljómmiklir. Hún var skemmtileg
kona og höfðingi heim að sækja.
Hvar sem hún bjó sér heimili hvíldi
yfir því sérstakur þokki menningar
og myndarbrags. Naut ég þar þrá-
faldlega góðra stunda með góðum
gestum. Var þá óspart spilað og
sungið, því Þórhildur var söngvin
og unni hljómlist. Hún naut þess að
vera gestgjafi og kunni manna best
að halda hátíð.
En Fósturskólinn var óskabarn
Þórhildar. Á 25 ára afmæli skólans
árið 1971, færði hún „óskabarninu
sínu“ — eins og hún orðaði það
sjálf — allar sænsku námsbækurn-
ar sínar og myndarlega fjárupphæð
til bókakaupa að auki. Sýndi það
best umhyggju hennar fyrir
fóstrumenntuninni og tryggð
hennar við skólann, sem aldrei
brást.
Fyrir hönd Fósturskóla íslands
og sem skólastjóri hans þakka ég
henni að leiðarlokum fyrir for-
göngu hennar um stofnun skól-
ans og annað framlag hennar til
fóstrumenntunar í landinu.
Gengin er gagnmerk og stórhuga _
kona, sem unni landi sínu og þjóð'
og skilaði þjóðinni heillaríku ævi-
starfi. Ég minnist vináttu hennar
ogtryggðar og þakka henni fyrir að
hafa „klófest" mig og beint áhuga
mínum inn á þá braut, sem raun
ber vitni.
Fjölskyldu hennar, sem hún var
bundin sterkum kærleiks- og
tryggðarböndum, sendi ég ein-
lægar samúðarkveðjur.
Valborg Sigurðardóttir
1X2 1X2 1X2
9. leikvika - leikir 23. október 1982
Vinningsröð:
X11-X11-X11-X11
1. vinningur: 12 réttir- kr. 10.650.-
686 7914 11162 15437+ 75851(4/11)+ 94412(6/11)
2312 9732 11334 16100 90284(6/11)+ 95852(6/11)+
5510 10298 12812 18730(2/11)+ 91085(6/11)
7237 10618 13721 22678 93871(6/11)
2. vinningur: 11 réttir - kr. 531.00
528 11138 60967+ 69547 74946+ 91310 + 97628
1316 11517 61006 69644 75334+ 92077 97697+
2983 12246 62754 70158 76178 92231+ 97741 +
3601 12747 63014 70401 76181 + 93105 97901
4134 12958 63081 70758 76268+ 93857 6869(2/11)
4330+ 13574 63421 + 70816 78362 93966+ 60410(2/11)
4889 14126 63424+ 71547 80037 94029 63201(2/11)
4891 14467 63429+ 71874+ 80643 94252 63341(2/11)
4906 15377 63776 72024+ 80811 + 94317 63540(2/11)+
5378 16109 66268 72211 + 81041 94403 72399(2/11)
7183 16944 66615+ 72216+ 81537 94413 76186(2/11)+
7256 17420 67086+ 72572+ 90036 94495 76191(2/1)+
7322 17891 67361 + 72926 90149+ 94617+ 76813(2/11)
7834 20229 68010+ 73419 90281 + 94815+ 81599(2/11)+
8687 21373 68169 73745 90282+ 94924+ 92253(2/11)
8993 21642 68367+ 73844 90283+ 94978 8. vika:
9067 22071 68478+ 73846 90287+ 95851 + 60531 +
9088+ 22968 68957+ 73848 90323+ 96394
9231 + 22973 69509 74053+ 90359+ 96626
9780 60752+ 69518 74298 91249+ 96911
10922 60962+ 69538 74601 91256 97112+
Kærufrestur er til 15. nóvember kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skrif legar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á
skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef
kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang
til Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR íþróttamiðstöðinni REYKJAVÍK