Þjóðviljinn - 27.10.1982, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 27. október 1982
Hinum slösuöu var
dreift um allstórt
svæði umhverfis
vélina sem átti að
hafa nauðlent á
norð-vestur flugbraut
Keflavíkurflugvallar.
Hér er verið að
flytja þá
síðustu á sjúkrahús.
Ljósm. gel.
Æfing á hópslysaáætlun
Keflavíkurflugvallar
Strax og fórnarlömbin úr flugslysini'
komu í hersjúkrahúsið á Vellinum
voru meiösli þeirra könnuö nánar
og þeir síöan fluttir
í skyndi til aögeröar.
Flug AB-12 frá Kennedyflugvelli tilkynnir:
NAUÐLENDING
í Keflavík kl. 06.45
„Tilkynning barst frá DC-8
þotu bandaríska flugfélagsins
Air Florida, sem þá var stödd
180 mílur vestur af íslandi, að
véiarbilun hefði komið upp og
væri mjög lágur þrýstingur á
hreyfli 2. Einnig léti vélin ekki
að stjórn. Kl. 06.45 nauðlenti
svo þotan 3 kílómetra vestur af
Keflavík. 100 manns eru um
borð og talið að allstór hluti
þeirra sé látinn. Nánari fréttir
síðar.“
Nei, hér er sem betur fer ekki
stuðst við sannleikann í fréttaflutn-
ingi, en eitthvað á þessa leið voru
fyrstu fréttir sem okkur blaða-
mönnum bárust þegar við komum
suður á Keflavíkurflugvöll í gær-
nótt. Þá var að hefjast allsherjaræf-
ing á vegum Almannavarna ríkis-
ins og var ofangreint slys sett á
svið.
Árið 1980 var gerð svipuð æfing
á skipulagi hjálparstarfs vegna
hugsanlegs fjöldaslyss á Keflavík-
urflugvelli. Síðan þá hafa tvær
Flugleiðavélar í raun nauðlent á
vellinum, og í ljósi fenginnar
reynslu hefur hópslysaáætlun vall-
arins verið endurskoðuð og gerðar
á henni lagfæringar. Af hálfu
Bandaríkjahers tóku þátt í æfing-
unni um 16 deildir og þar má nefna
slökkvilið, landgönguliða flotans,
öryggisdeild, hersjúkrahúsið,
björgunardeild og flutningadeild.
Þeir íslensku aðilar sem tóku þátt í
æfingunni voru flugmálastjórn,
flugvallarstjóri og hans menn, lög-
reglan og starfslið Fríhafnar og
Flugleiða. Utan Keflavíkurflug-
vallar tóku þátt í æfingunni sveitir
Slysavarnafélagsins, Hj álparsveitir
skáta, Flugbjörgunarsveitar og
Rauða krossins, auk lögregluliðs,
sjúkraflytjenda, slökkviðliða,
sjúkrahúsa og Landhelgisgæslu.
Tóku um 40 félög þátt í æfingunni,
og er talið að um 1000 manns hafi
tekið þátt í samæfingunni.
Vettvangsstjóri á slysstaðnum
var slökkviliðsstjórinn á Keflavík-
urflugvelli, en heildarstjórn að-
gerðanna var í höndum sameigin-
Iegrar almannavarnanefndar
Keflavíkurflugvallar. Starfið á
milli umdæma og starfsemi aðila
utan vallar var samræmd af Al-
mannavörnum ríkisins. -v.
Mikill viðbúnaður
Strákarnir í slökkviliði Keflavík-
urflugvallar undir stjórn Sveins
Eiríkssonar voru fljótir að gera
sig kiára þegar neyðarbjallan
hljómaði.
Ljósm. gel.
Þegar blaðamenn komu
á slysadeild Borgarspítal-
ans í Reykjavík um kl.
9.30 í gærmorgun höfðu
komið þangað 10 sjúkling-
ar úr „slysinu“ á Keflavík-
urflugvelli af þeim um það
bil 30 sem von var á. Þar
var samankominn mikið
fjölmenni lækna og hjúkr-
unarliðs og við spurðum
Rögnvald Þorleifsson yfir-
Iækni deildarinnar hvort
allir starfsmenn spítalans
hefðu verið kallaðir út.
Hann vaðsvoekkivera,enætl-
unin hefði verið að kalla út auka-
krafta eftir því sem þörf væri talin
á. Hins vegar væru margir viðbúnir
á slysadeildinni, svo og ýmsum
öðrum deildum spítalans, en þang-
að færu sjúklingarnir eftir tegund
meiðsla og ásigkomulagi.
Tryggvi Þorsteinsson læknir
sagði að auk Borgarspítalans hefði
verið tekið á móti sjúklingum á
Landakoti og Landspítala. Hins
vegar ætti slysadeild Borgarspítal-
ans að vera best í stakk búin til að
mæta álagi af þessu tagi. Deildin
væri ný og vel tækjum búin, og til
dæmis væru þar 30 stútar í vegg þar
sm hægt væri að gefa sjúklingi í
bráðatilfelli súrefni, létta svæfingu
og sog, auk þess sem aðstaða til að
gera að bráðameiðslum væri mjög
góð.
-V.
Það var nóg um hjálp-
fúsar hendurá
slysadeild Borgar-
spítalans
til að taka á móti
„slösuðum“ úr nauð-
lendingunni á
Keflavíkurflugvelli.
Ljósm gel.