Þjóðviljinn - 27.10.1982, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 27. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Leitað að
husi handa
Ardiles
Auknar líkur eru nú taldar á að
Argentínumaðurinn Osvaldo Ardi-
les gangi til liðs við Tottenham á ný
næsta sumar en framlengi ekki
lánssamning sinn við franska fé-
lagið Paris St.Germain eins og
sögur hafa verið á lofti um.
Þetta þykir staðfest af enskum
með því að vinir knattspyrnusnill-
ingsins í London hafí að undan-
förnu verið að skoða hús sem eru til
sölu í Broxbourne Woods skammt
fyrir utan stórborgina. í því hverfi,
sem er afar ríkmannlegt, búa
nokkrir þekktir knattspyrnumenn,
svo sem Pat Jennings, Ray Clem-
ence og Alan Sunderland.
-VS
Derby
bjargað
Derby County, liðinu sem varð
Englandsmeistari í knattspyrnu
1972 og 1975 en situr nú við botn 2.
deildar, hefur verið bjargað endan-
lega frá hugsanlegu gjaldþroti er
hangið hefur eins og skuggi yfir fé-
iaginu síðan á dögum Tommy Doc-
herty sem framkvæmdastjóra.
Auðkýfingurinn Mike Watter-
son hefur tekið við sem formaður
félagsins og þegar eru um 500,000
pund af reikningi hans komin inná
bankabók „The Rams“. John New-
man verður áfram framkvæmda-
stjóri liðsins og að sögn hins nýja
formanns eru allar fregnir um að
Derby sé að fá til sín sem stjóra
Peter Taylor, Roy McFarland eða
Mick Mills úr lausu lofti gripnar.
- VS.
Það eru
Melavelli!
Ekki hefur unglingalandsliðinu í
knattspyrnu verið boðið uppá betri
aðstæður til æfinga í Laugardaln-
um en hinum landsliðunum á dög-
unum. Strákarnir sem leika við íra
í Dublin þann 10. nóvember í Evr-
ópukeppni unglingalandsliða, hafa
að vndanförnu æft á flötinni fyrir
framan sundlaugarnar. Eins og
frægt er orðið eru þar engin mörk,
og ekki fást þau hjá yfirvöldum á
Laugardalsvelli frekar en þau væru
úr gulli. Strákarnir hafa því af og til
þurft að fara upp á Mclavöll, og þó
hábölvað sé að æfa á malarvelli
fyrir grasleik, eru þar þó altjént tvö
mörk...!
- VS.
Haukur
endur-
ráðinn
Haukur Hafsteinsson hefur verið
endurráðinn þjálfari 2. deildarliðs
Víðis úr Garði í knattspyrnu.
Undir stjórn Hauks, sem einnig
þjálfar unglingalandsliðið, urðu
Víðismenn öruggir sigurvegarar í
3. deild á nýloknu keppnistímabili.
- VS.
Fastir liðir eins og venjulega. ÍR
var að lcika í 1. deild karla í hand-
knattleik í gærkvöldi og andstæð-
ingurinn var Fram. Að sjálfsögðu
var um Framsigur að ræða og þeg-
ar á það er litið að Fram er næst-
neðst í 1. deild sést hve gífurlegt
regindýpi skilur á milli IR og ann-
arra 1. deildarliða. Lokatölurnar
urðu 25-16, Fram í hag, munur sem
hefði getað orðið helmingi meiri ef
Framarar hefðu beitt sér á fullu
allan leikinn en ekki aðeins hálfan
hálfleik.
Það var á fyrstu fimmtán mínút-
unum sem Framarar kafsigldu
botnliðið. Þeir komust í 9-2 en í
leikhléi stóð 14-6. Mest munaði
ellefu mörkum, 22-11, en Fram, án
Hannesar Leifssonar og Dags Jón-
assonar, tókst ekki að varðveita þá
forystu.
Gunnar Gunnarsson og Er-
lendur Davíðsson voru bestir hjá
Fram. Allir fengu að spila og allir
skoruðu. Gunnar 6/2, Egill 4, Er-
lendur 4, Björn 3, Hermann 3,
Brynjar, Hinrik, Jón Árni, Sig-
urður og Viðar eitt hver.
Craig Johnston, sem vill fara frá
Liverpool, ensku meisturunum í
knattspyrnu, þar sem hann fær
ekki fast sæti í aðalliðinu, fer ekki
til WBA þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir Miðlandaliðsins. WBA
bauð Liverpool skipti, annaðhvort
Gary Owen eða Steve Mackenzie
fyrir Johnston, en Bob Paisley,
framkvæmdastjóri Liverpool, hef-
ur áhuga á hvorugum.
Hann vill frekar Nick Pickering
eða Stan Cummins frá Sunderland
og lét fylgjast með þeim gegn
Everton á laugardag. Arsenal hef-
ur sýnt Johnston áhuga og gert er
ráð fyrir að þeir reyni að fá hann til
að lífga upp á sóknarleik sinn.
-VS
Sævar Jonsson, CS Briigge
Marteinn Geirsson, Fram
Atli Eðvaldsson, Dússeldorf
Ómar Torfason, Víkingi
Árni Sveinsson, Akranesi
Arnór Guðjohnsen, Lokeren
Sigurður Grétarsson, Breiðabliki
Pétur Pétursson, Antwerpen
ísland og Spánn mætast einnig í
Evrópukeppni landsliða undir 21
árs og fer hann fram í Badajos og
hefst kl. 17:30 að okkar tíma.
Varðandi A-landsleikinn kvaðst
Jóhannes renna nokkuð blint í sjó-
inn hvað viðkemur spænska liðinu
sem er mjög breytt frá HM en væri
þó búinn að fá góða punkta um það
frá aðstoðarmanninum Antonio,
Spánverja sem giftur er íslenskri
konu, og vonaði að þeir kæmu hon-
um og íslenska liðinu til góða í
leiknum í kvöld.
- VS
Pétur
farinn
til Ítalíu!
Pétur Guðmundsson, körfu-
knattleiksmaðurinn risavaxni sem
að undanförnu hefur leikið með
Portland Trailblazers í bandarísku
atvinnudeildinni, NBA, er farinn til
Ítalíu í vetur og leikur þar með
sterku liði, Fabriano.
Pétur náði ekki að komst í 12
manna hópinn sem Portland hyggst
nota í vetur og því hefði hann lítið
fengið að spila þar vestra. Portland
lánaði því Pétur til ítalska félagsins
en hann á eftir fjögur ár af samn-
ingi sínum við þá bandarísku.
— VS
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Ómar, Árni og Sig-
urður hefja leikinn
Um 400 Spánverjar fylgdust með
íslenska liðinu æfa í gærkvöldi
„Það voru um 400 manns að
fylgjast með æfingu hjá okkur
áðan. Áhuginn fyrir þessum leik
hérna á Spáni er gífurlegur og í
fjölmiðlum hér undanfarna daga
hefur farið fram mikil kynning á
íslandi. Landkynningin sem við
fáum í kringum þennan landsleik er
ótrúleg að umfangi. Maður er
óvanur svona tilstandi, það hefur
verið lítill friður hjá okkur fyrir
fréttamönnum og það er beðið eftir
leiknum í miklu ofvæni, ekki síst
vegna þess að þetta er fyrsti leikur
Spánverjanna eftir heimsmeistara-
keppnina. Við æfðum á lcikvangin-
um glæsilega hér í Malaga í kvöld,
öll umgjörðin í kringum leikinn er
glæsileg og ég vona bara að hann
sjálfur verði í samræmi við það“,
sagði Jóhannes Atlason landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu er Þjóðvilj-
inn náði sambandi við hann í gær-
kvöldi.
Leikur Spánverja og íslendinga í
Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu hefst í kvöld í Malaga kl.
19:30 að íslenskum tíma. Þrjár
breytingar hafa verið gerðar á
byrjunarliði íslands frá leiknum á
írlandi fyrir hálfum mánuði en
eftirtaldir leikmenn hefja leikinn:
Þorsteinn Bjarnason, Keflavik
Örn Óskarsson, ÍBV
Viöar Halldórsson, FH
Allir léku með og allir
skoruðu þegar Fram vann ÍR
Björn Björnsson stóð upp úr hjá Steingrímsson dæmdu þokkalega
ÍR og þá varði Guðjón Flauksson en brenndu sig á því eins og aðrir 1.
ágætlega. Björn skoraði 5, Guðjón deildardómarar að flauta aukaköst
M. 5/1, Þórarinn 3, Atli 1, Einar 1 of snemma og taka þannig góð
°g Tryggvi 1/1. mörk af liðunum.
Jón Hermannsson og Þórir — VS
Johnston tU Arsenal?
Arsþing
Craig Johnston
Ársþing Frjálsíþróttasambands
íslands fer fram á Hótel Esju dag-
ana 4. og 5. desember næstkomandi
og hefst kl. 13 báða dagana. Til-
lögur og málcfni, sem sambandsað-
ilar ætla að leggja fyrir þingið
þurfa að berast stjórn FRI sem
fyrst, eða í síðasta lagi tveimur vik-
um fyrir þingið, eða 20. nóvember.
Lárus gerði danska bakvörð
inn „hringavitlausan”!
Lárus Guðmundsson var besti
maður leiksins á Idrætsparken í
Kaupmannahöfn
Lese markeringer lod uge-
nert Waterschei bygge et fly-
dende positionsspíl op styret af
landsholdsspilleren Leo Cluys-
ters. Belgierne spredte spillet
langs flojene eller splittede det
danske forsvar med diagonale,
flade pasninger gennem mid-
ten.
Banens i særklasse bedste
spiller, den 19-árige islænding
Larus 3udmundsson, voldte
konstait de tunge drenge i B
93-fors'aret kvaler. Lynhur-
tigt ryktede han og skabte hul-
ler, gjode backen Lars Dals-
borg het rundtosset og afleve-
rede firt til sine medspillere.
Fuldt hrtjent kronede han en
flot p’rastation med Water-
scheis aidet mál efter at have
omdribht málmanden Bo
Skovbjirg.
í danska blaðinu „Informasjon“ rákumst við á meðfylgjandi greinarstúf
sem er partur af ítarlegri frásögn blaðsins af leik B93 frá Kaupmannahöfn
og belgíska félagsins Waterschei, sem Lárus Guðmundsson leikur með, í
Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu.
Lárus fær mikið lof danskra og segja þeir hann hafa verið besta mann
vallarins, „banens i særklasse bedste spiller“. Lýsingin er afar lífleg og
segir m.a. að Lárus hafi gert bakvörð danska liðsins „helt rundtosset“, sem
samkvæmt dansk/íslenskri orðabók ísafoldar útleggst á okkar ylhýra máli
„hringavitlaus“! _ys
Klipp-Klipp-Klipp-Klipp- :
: TOMMA:
• HAMBORGARAA \
FRIMIÐI
Ef þu kaupir emn
TOMMA-BORGARA
færðu annan fritt