Þjóðviljinn - 27.10.1982, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 27. október 1982
Aðalslmi ÞjóSviljans er 81333 Id. 9 - 20 mánudag til fóstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
„Stórslys” á
Kef lavíkurf lugvelli:
Æfingin
tókst vel
„I hcild tókst þessi æfíng vel og
virðist skipulagið virka ljómandi,
utan hvað tveir framkvæmdaþætt-
ir brugðust hrapalega“, sagði Guð-
jón Pedersen, forstjóri Almanna-
varna ríkisins í gær. f gærmorgun
var líkt eftir flugslysi á Keflavíkur-
flugvelli og tóku um 1000 manns
þátt í því að „bjarga“ 105 farþegum
úr brennandi DC-8 flugvél.
Þeir þættir sem brugðust voru
annars vegar að „óslasaðir“ farþeg-
ar voru fluttir í hersjúkrahús vallar-
ins í stað þess að lenda hjá Rauða
kross fólki í flugstöðinni og hins
vegar urðu þau mistök í stjórnstöð
að Flugbjörgunarsveitin var ekki
inni í seinni boðuninni, aðeins
þeirrí fyrri um að vera í viðbragðs-
stöðu.
„Að einu leyti missti æfingin þó
marks,“ sagði Guðjón, „þar sem
dagblaðið Tíminn birti ótímabæra
frétt um æfinguna í þriðjudagsblaði
sínu. Var Tíminn kominn á lögregl-
ustöðina í Reykjavík um hálf þrjú
leytið um nóttina og klukkutíma
síðar á Borgarspítalann og í lög-
reglustöðina í Kópavogi. Nætur-
vaktir þessara staða vissu því allar
af æfingunni, sem ekki er meining-
in,“ sagði Guðjón.
Það vakti athygli fréttamanna
þar syðra að vopnaðir hermenn
gættu flugvallarsvæðisins. Sagði
Guðjón að samkvæmt skipulaginu
hefði herinn með höndun stjórnun
aðgerða innan flugvallarsvæðisins
ásamt lögreglustjóra og slökkvi-
liðsstjóra vallarins, sem báðir eru
íslenskir. Herinn hefði því með|
höndum stjórnun björgunarað-
gerða og fyrstu meðferð en „slas-
aðir“ farþegar færu beint undir
stjórn íslenskra lækna. Ef „slysið“
hefði gerst utan vallarsvæðisins þar
syðra, hefði almannavarnanefnd
Suðurnesja haft með stjórnun að-
gerða að gera samkvæmt sérstakri
hópslysaáætlun. „Þá hefði dæmið
algerlega snúist við,“ sagði Guð-
jón. „Islendingar hefðu stjórnað
aðgerðunum og herinn verið til að-
stoðar." _ ÁI
Hafnarkanturinn
á Reyðarfirði:
Bráðabirgða-
viðgerð lokið
Júgóslavneska flutningaskipið
sem sigldi á bryggjuna á Reyðar-
fírði sl. mánudagsmorgun er nú á
hringsóli norður um land að lesta
skreið. Hafa Reyðfírðingar óskað
eftir því að trygging verði sett
vegna skcmmdanna sem skipið olli
á hafnarkantinum áður en það fer
af landinu. Það skemmdist ekki við
áreksturinn.
Hörður Þórhallsson, sveitar-
stjóri á Reyðarfirði sagði í samtali
við Þjóðviljann í gær að strax á
mánudag hefði verið gert til bráða-
birgða við bryggjukantinn til þess
að koma í veg fyrir að fyiling í hon-
um rynni út. Stefni skipsins kom
þvert inn í bryggjuna og rauf 1,5 m
breitt skarð í hana efst, það mjókk-
aði niður og náði niður fyrir sjó-
línu. Bjóst Hörður ekki við að
fullnaðarviðgerð færi fram fyrr en
næsta sumar en viðgerðin verður
treyst eitthvað fyrir veturinn. Ekki
er búið að meta tjónið en sagðist
Hörður giska á að það næmi nokkr-
um hundruð þúsunda króna.
Sjópróf voru haldin á Eskifirði
síðdegis á mánudag. í þeim kom
fram að skipið kom á heldur mikilli
ferð að bryggjunni og tók vélin
seint við sér í afturábak. Bar
mönnum ekki saman um hvort
skipanir hefðu verið gefnar of seint
eða hvort seint hefði verið svarað.
Skipið sem er um 4500 tonn, klauf
stálþilið og steypta þekjuna. Engin
slys urðu á mönnum og engin önn-
ur skip voru við þennan kant.
Atvinnuástand er nú með besta
móti á Reyðarfirði, mikil vinna í
síldinni og slátrun nýlokið. Sagði
Hörður að útlitið væri bjart svo
framarlega sem ekki yrði aflabrest-
ur. ísumarvar skiptumjarðvegog
sett bundið slitlag á eina götu á
Reyðarfirði auk þess sem vestast í
þorpinu voru gerðar fyllingar undir
nýtt iðnaðarsvæði. Áfram var hald-
ið við byggingu íþróttahúss og
áhaldahúss og hafin bygging
tveggja deilda leikskóla. Haustið
hefur verið gott, að sögn Harðar,
og vetur konungur hefur enn ekki
látið á sér kræla á láglendi. _ ÁI.
Steinþór Þráinsson í hlutverki Papageno í Töfraflautunni. Ljósm.: eik.
„Mozart var sení og að færa upp
Töfraflautuna er mjög erfitt af því
að allt er svo einfalt", sagði Gilbert
Levine hljómsveitarstjóri íslensku
óperunnar í samtali við Þjóðvilj-
ann. En á morgun verður frumsýn-
ing hinnar frægu Töfraflautu.
Gilbert Levine sagðist sjálfur
hafa átt hugmyndina að því að setja
upp Töfraflautuna í Gamla bíói en
hún hefði einmitt upphaflega verið
samin fyrir lítil óperuhús og fyrir
allan almenning en ekki bara yfir-
stéttina. Þórhildur Þorleifsdóttir
leikstjóri sagði við sama tækifæri
að Töfraflautan ætti erindi til hvers
manns því að persónurnar í henni
væru ekki gerðar af guðum eins og í
sumum óperum heldur venjulegu
fólki með holdi og blóði.
Hlutverkin í Töfraflautunni eru
24, og þar að auki kemur fram 26
manna kór og 35 manna hljóm-
sveit. Með helstu hlutverk fara
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Garð-
ar Cortes, Eiríkur Hreinn Helga-
son, Steinþór Þráinsson, Guð-
mundur Jónsson, Lydía Ruckling-
er, Sieglinde Kahman, Elín Sigurv-
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Þorsteinn Gylfason og Gilbert Levine
hljómsveitarstjóri segja blaðamönnum frá snilidarverkinu Töfraflaut-
unni. Ljósm.: eik.
insdóttir, Anna Júlíana Sveinsdótt-
ir, Katrín Sigurðardóttir og Júlíus
Vífill Ingvason. Leikmyndina
gerði Jón Þórisson.
Þess skal að lokum getið að Moz-
art samdi Töfraflautuna á síðasta
æviári sínu 1791 og er hún eitt!
margslungnasta og ástsælasta lista-
verk óperusögunnar. Hún hefur
einu sinni áður verið sýnd á íslandi
en það Var í Þjóðleikhúsinu 1956.
-GFr.
Herstödvaandstaedingar
afhentu fyrirspurnir \ gær
Árni Hjartarson og Jón Ásgeir Sigurðsson bíða eftir skrifstofustjóran-
um Hannesi Hafstein. Þeir sögðust hafa beðið eftir viðtali við utanríkis-
ráðherra sjálfan í 2 vikur, en gefist upp þegar sýnt var að hann hefði
ekki tíma í bráðina til að taka á móti fyrirspurnum. Starfsmaður
ráðuneytisins bankar uppá hjá skrifstofustjóranum. - (Ljósm.: - eik)
Væntum svara
fljótt og vel
„Utanríkisráðherra hefur heila
deild („varnarmáladeild") til að
vinna í málum sem þessum, svo við
væntum þess að svör við fyrir-
spurnum okkar berist bæði fljótt og
vel“, sagði Árni Hjartarson for-
maður Miðnefndar Samtaka her-
stöðvaandstæðinga sem afhenti
Hannesi Hafstein skrifstofustjóra í
utanríkisráðuneytinu í fjarveru
ráðherrans (Ólafs Jóhannessonar)'
fyltrspurnir frá Landsráðstefnu
Samtaka herstöðvaandstæðinga
um herstöðvamál. Spurt er hvaða
skýringar íslensk stjórnvöld geti
gefið á auknum umsvifum banda-
ríska hersins hér á landi að undan-
förnu.
__________________________-og-
Sjá á bls. 3.
Hrygningarstofninn aðeins 265 þúsund tonn:
Engar loðnuveiðar
Bjartara útlit næsta haust
Rannsóknir á stærð loðnustofns-
ins sem lauk í síðustu viku staðfesta
dökkar spár fískifræðinga frá í vor.
Mældist hrygningarstofninn aðcins
265 tonn sem er langt innan þeirra
400 þúsund tonna marka sem
veiðar hafa verið miðaðar við.
Treysta fiskifræðingar sér því ekki
til að mæla með loðnuveiðum á
þessum vetri.
Jakob Jakobsson fiskifræðingur,
sagði í samtali við Þjóðviljann í gær
að í fyrrahaust hefði hrygningar-
stofninn mælst 470 þúsund tonn.
Aðeins hefðu þó um 135 þúsund
tonn náð að hrygna vegna mikillar
veiði í fyrravetur. Sagðist hann
áætla að þorskurinn tæki 20-25%
af hrygningarstofninum nú, þannig
að ekki væri útlit fyrir að mælt yrði
með veiðum í vetur.
Jakob sagði að þó útlitið væri
dökkt mætti greina eina ljósglætu,
sem sé þá að óvenju mikið mældist
af ársgamalli loðnu, þeirri sem
kemur í gagnið næsta haust. Eftir
væri þó að vinna betur úr þeim
þætti rannsóknanna.
I rannsóknaleiðangrinum sem
stóð í 3 vikur tóku þátt íslenskir og
norskir fiskifræðingar á rannsókn-
askipunum Bjarna Sæmundssyni
og G.O. Sars. Leiðangursstjórar
voru Hjálmar Vilhjálmsson, Páll
Reynisson og Are Domasnes. Alls
mældust 560 þúsund tonn af loðnu,
þar af 265 þúsund tonn af 2j a og 3j a
ára loðnu sem hrygnir í vetur. Að-
stæður til rannsóknanna væru mjög
góðar hvað varðar ís og veður. Er
því ekki ástæða til að ætla að
skekkja leynist í niðurstöðunum að
mati Hafrannsóknastofnunar.
-ÁI
S j á varútvegsráðherra
um loðnustofninn:"
i tii bjartsýni
„Nýjustu mælingar á loðnu-
stofninum gefa tilefni til nokkurr-
ar bjartsýni", sagði Steingrímur
Hermannsson sjávarútvegsráð-
herra, í umræðum á alþingi í gær.
Vitnaði Steingrímur til nýaf-
staðins rannsóknaleiðangurs. ís-
ienskra og norskra fiskifræðinga
°g sagði að nú hefði hrygningar-
loðna mælst 265 þúsund lestir en f
fyrra hefði hún mælst 135 þúsund
lestir. Þá benti ráðherrann á að
eins árs loðna hefði nú mælst 260-
300 þúsund lestir en aðeins um 5
þúsund iestir í fyrra. Sagði
Steingrímur að þó þessar tölur
gæfu tilefni til bjartsýni, þá kæmi
ekki til að leyfa loðnuveiðar fyrr
en í fyrsta lagi næsta haust.
-óg.