Þjóðviljinn - 27.10.1982, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 27. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
RUV ©
Sjónvarp
kl. 20.35
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Gull í
mund. 7.25 Leikfimi
9.05 Morgunstund barnanna: „Meira af
Jóni Oddi og Jóni Bjarna” eftir Guð-
rúnu Helgadóttur. Steinunn Jóhannes-
dóttir les (5).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.30 Sjávarútvegur og siglingar Umsjón-.
armaður: Ingólfur Arnarson. Fjallað
um mat á sjávarafurðum. Rætt við Jó-
hann Guðmundsson forstöðumann
Framleiðslueftirlitsins.
10.45 íslenskt mál. Endurtekinn þáttur
Jóns Aðalsteins Jónssonar.
11.05 Létt tónlist Alexanderbræður,
London Pops, James Galway og Boys of
the Lough syngja og leika.
11.45 Úr byggðum Umsjónarmaður: Rafn
Jónsson
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. í fullu fjöri Jón Gröndal
kynnir létta tónlist.
14.30 „Móðir mín í kví kvP’ eftir Adrian
Johansen Benedikt Arnkelsson þýddi.
Helgi Elíasson les (6).
15.00 Miðdegistónleikar: íslensk tónlist
Hamrahlíðarkórinn syngur „Kveðið í
bjargi” eftir Jón Nordal; Þorgerður Ing-
ólfsdóttir stj. / Robert Aitken og Sinfón-
íuhljómsveit íslands leika Flautukons-
ert eftir Atla Heimi Sveinsson; höfund-
urinn stj. / Rut Ingólfsdóttir og Gísli
Magnússon leika Fiðlusónötu eftir
Fjölni Stefánsson.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.20 „Á reki með hafísnum” eftir Jón
Björnsson Nína Björk Árnadóttir les
w...
16.40 Litli barnatíminn Stjórnandinn,
Finnborg Scheving lýkur við að segja frá
tíma og dögum. Einnig er síðasta fræð
sla um okkur sjálf úr bókinni „Svona
erum við” eftir Joe Kaufman. Örnólfur
Thorlacius þýddi.
17.00 Djassþáttur Umsjónarmaður: Ger-
ard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómas-
dóttir.
17.45 Neytendamál Umsjónarmaður:
Anna Bjarnason.
19.00 Kvöldfréttir
19.45 Daglegt mál. Árni Böðvarsson flytur
þáttinn. Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Fiðlusnillingurinn Niccolo Paganini
- 200 ára minning Umsjón: Knútur R.
Magnússon.
21.45 Utvarpssagan: „Brúðarkyrtillinn”
eftir Kristmann Guðmundsson Ragn-
heiður Sveinbjörnsdóttir les (10).
23.35 fþróttaþáttur Hermanns Gunnars-
sonar
23.00 Kammertónlist Leifur Þórarinsson
kynnir.
RUV *»
18.00 Stikilsberjar-Finnur og vinir hans.
Fjórði þáttur. Leyndardómar næturinn-
ar. Framhaldsmyndaflokkur gerður
eftir sögum Marks Twains. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
Krabba-
mein
Snorri
Ingimarsson
læknir
sér um þátt
um þennan
mikla skaðvald
Kl. 20.35 í kvöld hefur
göngu sína í sjónvarpinu
myndaflokkur íslenskur um
heilbrigðismál. í þessum þætti
og næstu sem á eftir fylgja
verður fjallað um helstu sjúk-
dóma sem hrjá landsmenn og
lækningar við þeim. í fyrsta
þættinum mun Snorri Ingi-
marsson læknir sjá um þátt
um krabbamein, en þáttur
þessi kemur í kjölfar Þjóðará-
taks gegn krabbamcini.
Snorri mun ræða um hinar
ýmsu tegundir krabbameins,
viðhorf manna, hvemig þau
hafa breyst o.s.frv. Síðast en
ekki síst munu sjónvarps-
áhorfendur eiga þess kost að
sjá og heyra hvaða lækn-
ingaaðferðir eru til við
krabbameininu. Þá verður
fjallað um fyrirbyggjandi starf
vegna krabbameins.
Stjórnandi upptöku er Sig-
urður Grímsson.
Útvarp kl. 11.45
r
Ur byggðum
Fjarvarma-
veitan á
Seyðisfirði
Þáttur Rafns Jónssonar
fréttamanns á Seyðisfirði, Úr
byggðum verður á sínum stað
í dagskrá útvarps kl. 11.45.
Þáttur tekur 15 mínútur í
flutningi.
Rafn sagði í stuttu spjalli
við Þjóðviljann að þáttur hans
í dag myndi taka til umfjöllun-
ar fjarvarmaveituna á Seyðis-
firði en hún á eins árs afmæli
um þessar mundir. Kvaðst
Rafn tala við forseta bæjar-
stjórnar á Seyðisfirði Theódór
Blöndal um málefni veitunn-
ar, hvernig hún vinnur bæjar-
búum gagn o.s.frv.
Starfsmenn frumurannsóknarstöðvar Krabbameinsfélags Islands að störfum.
Fjórði þátturinn í mynda- og Finnur bregða á leik f þætti
flokknum um Stikilsberja- sem ber yfirskriftina Leyndar-
Finnerádagskrásjónvarpsins dómar næturinnar. Á mynd-
í kvöld kl. 18. Vinirnir Tumi inni eru Ian Tracey sem Finn-
ur og Sammy Snyders sem
Tumi.
18.25 Svona gerum við. Fjórði þáttur.
Hljóðið. Fræðslumyndaflokkur um
eðlisfræði. Þýðandi og þulur Guðni Kol-
beinsson.
18.50 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Líf og heilsa. Um krabbamein. Nýr
íslenskur fræðslumyndaflokkur um heil-
brigðismál, helstu sjúkdóma og iækn-
ingar. í þessum fyrsta þætti er fjallað um
krabbameinslækningar og viðhorf
manna til þessa sjúkdóms og afleiðinga
hans. Umsjón hefur Snorri Ingimarsson
læknir. Stjórn upptöku annaðist Sigurð-
ur Grímsson.
21.25 Dallas. Bandarískur framhalds-
myndaflokkur um Ewing-fjölskyiduna í
Texas. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.10 Mike Mainieri. Bandarískur djass-
þáttur. Tónsmiðurinn og víbrafónleik-
arinn Mike Mainieri flytur lögeftir sjálf-
an sig ásamt fjórum öðrum djass-
leikurum.
22.40 Dagskrárlok.
Heiöur þeim
sem heiður ber
Þakkir til Einars Braga
og Steinunnar Jóhannesdóttur
Það er ekki á hverjum degi
að dagblöðin í Reykjavík
flytja okkur ritsmíðar, sem
verðar eru NÓBELSVERÐ-
LAUNA. Þetta gerðist þó í
síðasta helgarblaði Þjóðvilj-
ans og á ég þar við hina frá-
bæru grein Einars Braga:
„Bréf til dómsmálaráðherra,“
sem bæði að orðfæri og efn-
ismeðferð er sannkölluð perla
- auk þess að dusilmennum í
þjóðfélaginu er veitt makleg
og ógleymanleg ráðning.
Ef einhver andmælir þessu
með þeim hætti að lítil blaða-
grein geti ekki verið mikilla
verðlauna verð minni ég á að
það er ekki magnið, sem á að
mæla í slíkum efnum heldur
andagiftin og snilldin sem
verkið felur í sér.
Úr því ég tók mér penna í
hönd, af þessu tilefni, vil ég í
leiðinni nefna, að íþessu sama
helgarblaði birtist önnur
gagnmerk ritsmíð en það er
grein okkar ágætu leikkonu
Steinunnar Jóhannesdóttur:
Að fortíð skal hyggja.
Að tvær slíkar ritsmíðar
birtist í einu og sama tölublaði
Einar Bragi rithöfundur
Þjóðviljans (vilja þjóðarinn-
ar) er óræk sönnun þess að
þrátt fyrir réttmætar óánægju-
raddir í garð blaðsins fyrir
vanrækslu og stundum linkind
í baráttunni fyrir beinum
hagsmunum verkalýðsstéttar-
innar - þá er Þjóðviljinn ágætt
og ómissandi málgagn ís-
Steinunn Jóhanncsdóttir
lcikkona
lenskrar alþýðumenningar,
og nýtur í starfi sínu stuðnings
hinna ágætustu manna af báð-
um kynjum. Þökk sé þeim og
heiður.
Þetta vildi ég ekki láta
liggja í láginni.
Steingrímur Aðalsteinsson