Þjóðviljinn - 02.11.1982, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 2. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Ólympíuskákmótid í Sviss
Albanir neituðu að
tefla við Bandaríkja-
menn, Sovétmenn
og ísraela....
og voru látnir tefia við Islendinga
Formaður Alþýðubandalagsins á Akureyri, Soffía Guðmundsdóttir, setti ráðstefnuna, en að því loknu flutti
formaður flokksins, Svavar Gestsson, ávarp. Ljósm. -ÁI.
Velheppnuð ráðstefna á Akureyri
Milli 40 og 50 manns sóttu
ráðstefnu um flokkana og jafnrétt-
ismál sem Alþýðubandalagið á Ak-
ureyri gekkst fyrir um helgina.
Soffía Guðmundsdóttir, formaður
ABA sagði í gær að ráðstefnan
hefði tekist mjög vel, menn hefðu
unnið af miklum krafti báða dag-
ana og þátttaka hefði verið alveg
bærileg.
Framsöguræður voru fluttar um
stjórnmálaflokkana, stöðu þeirra
og starfshætti, afstöðu Alþýðu-
bandalagsins til kvennahreyfinga
og annarra félagslegra hreyfinga og
um jafnréttisbaráttu, kvennahreyf-
ingar, markmið og leiðir. Ráð-
stefnan var haldin í Lárusarhúsi, og
störfuðu menn í umræðuhópum og
skiluðu af sér síðdegis á sunnudag.
Soffía sagði að niðurstöður
ráðstefnunnar yrðu lagðar fyrir
flokksráðsfund, sem haldinn verð-
ur í lck mánaðarins. Sagðist Soffía
ekki getað annað en hvatt önnur
flokksfélög til að hafa frumkvæði
að ráðstefnum sem þessum, en fé-
lagar kontu nt.a. frá Reykjavík,
Dalvík og A-Húnavatnssýslu, auk
Akureyringa. Ekki skortir um-
ræðuefnin, sagði Soffía að lokum.
—AI
Ferðaskrifstofan ISLEIÐIR, Miðbæjarmarkaðinum, 2. hæð. Sími 22100.
.s T S3 •X3
Sólskinsparadís - Heillandi heimur náttúrufegurðar, sögustaða, skemmtunar og Ijúfra bað-
stranda. Friðsemdarlíf hjá Ijúfri gestaþjóð, glaumur og gleði fyrir þá, sem bregða vilja á leik.
15 dagar í 2ja m. herb. + 1/2 fæði. Verð frá kr. 11.700.-
15 dagar 2 í íbúð. Verð frá kr. 11.060.-
Brottfarir: 16. nóv.- 30. nóv. 7. des.- - 14. des. - 21. des. - 28. des. -11. jan. - 15. febr.
- 7. mars. - 15. mars.
Frá Helga Ólafssyni, fréttamanni Þjóðviljans í Sviss:
en annar aðbúnaður til fyrirmyndar
Allur aðbúnaður á keppnisstað hér í Sviss er til mikillar fyrirmynd-
ar, margfalt betri en var á Möltu, þegar síðasta Ólympíumót fór fram.
Þó er einn galli á, en það eru taflmennirnir, sem notaðir eru. Þetta eru
taflmenn, eins og börnum eru gefnir í jólagjöf áður en þau læra mann-
ganginn, og hreint út sagt furðulegt að notast skuli vera við svona drasl.
Þátttökuþjóðirnar á mótinu eru 94 og eftir tvær fyrstu um-
ferðirnar var íslenska sveitin í 15. til 23. sæti með 6 vinninga.
Jóhann Þórir hefur þegar gefið út fyrsta eintakið af móts-
blaðinu, sem hann annast um útgáfu á. Þetta er hið myndarleg-
asta blað, 48 blaðsíður og gefið út í 60 þúsund eintökum.
Jóhann er með einvalalið íslendinga, sem hjálpa honum við
útgáfuna, þar á meðal lögfræðinga, enda mun ekki af veita, því
að mikið er lagt undir við útgáfu mótsblaðsins og því varla fyrir
einn mann að annast allt sem að þeirri útgáfu snýr.
-hól/S.dór.
Verkamannafélágið Hlíf:
Samníngar lauslr 1. des.
Viðureign okkar íslendinganna við Albani gekk
þokkalega, náðum jafntefli 2:2. Við Jón L. Árnason
gerðum jafntefli, Margeir Pétursson vann, en Jó-
hann Hjartarson tapaði. Skák mín fór í bið, en and-
stæðingur minn bauðmér jafntefli um leið, sem ég
þáði eftir smá umhugsun. Sennilega hefur staða mín
verið lakari, ef eitthvað var.
Albanir neituðu hinsvegar að
tefla við þessar þrjár þjóðir,
komust upp með það, og þess
Það má geta þess til gamans, að
eftir fyrstu umferðina voru Al-
banir jafnir Sovétmönnum,
Bandaríkjamönnum og ísraels-
mönnum að vinningum og áttu
því að tefla við einhverja þeirra.
vegna lenti íslenska sveitin gegn
þeim.
-hól/S.dór
Taflmennirnir eins
t •• r* r r • r 1 • •• Þ
og born fa 1 jolagjoí
Fjölmenni var í Iðnó á laugardaginn. Fremstur (annar frá vinstri) er Tryggvi Emilsson.
Ljósm. - eik - .
Fjölmenni á dagskrá til heiðurs Tryggva Emilssyni áttræðum:
Fiölbreytt og vel flutt
Mikið fjölmenni var á dagskrá
um verkafólk í bókmenntum til
heiðurs Tryggva Emilssyni átt-
ræðum, en hún var flutt í Iðnó s.l.
laugardag. Tryggvi las sjálfur úr
eigin verkum, Eðvarð Sigurðsson
flutti ávarp frá Dagsbrún og Þor-
leifur Hauksson fjallaði um stöðu
Tryggva í íslenskurri bókmenntuin.
Að öðru leyti byggðist dagskráin á
upplestrum, leikatriðum og söng
úr íslenskum verkum er tengjast
sögu verkafólks.
Kynnir var Silja Aðalsteinsdótt-
ir, en lesarar, söngvarar og leikarar
voru: Guðmundur Ólafsson, Krist-
in Ólafsdóttir, Olga Guðrún Arna-
dóttir og .Þorleifur Hauksson.
Guðmundur Hallvarðsson sá um
undirleik. Margir baráttufélagar
Tryggva frá fyrri árurn voru mættir
á þessa fjölmennu samkomu, og
dagskráin þótti fjölbreytt, vönduð
og vel flutt.
Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarflrði hefur sagt upp kaupliðum samn-
ings síns frá í sumar, frá og með 1. desember n.k. Það þýðir að Hlíf getur
boðað til vinnustöðvunar eftir 1. desember með viku fyrirvara. Þessi
ákvörðun var tekin á almennum félagsfundi Hlífar fyrir helgi.
„Við teljum stöðuna í kaupgjalds-
málum vera það ótrygga þessar
vikurnar að okkur beri skylda til að
hafa samninga lausa, þannig að
verkafólk geti gripið til varnar-
aðgerða með sem skemmstum
fyrirvara“, sagði Hallgrímur Pét-
ursson formaður Hlífar í samtali
við Þjóðviljann.
„Bráðabirgðalög ríkisstjórnar-
innar eru í deiglunni núna, og við
teljum sjálfsagt að verkalýðshreyf-
ingin standi sem best að vígi, komi
vísitöluskerðingaráformin til fram-
kvæmda“, sagði Hallgrímur að
lokum.
Ólympíuskákmótið:
Síðustu fréttir
Biðskákir úr 3ju umferð Ólym-
píu skákmótsins í Sviss voru tefldar
í gærkvöldi. Þessi urðu úrslitin:
Guðmundur tapaði fyrir McNab.
Skátahreyfingin
sjötug í dag
í dag minnast Skátar þess
að hreyfing þeirra hér á landi
er sjötug. Klukkan hálftíu
verður blómsveigur lagður að
gröf fyrsta skátahöfðingjans,
Axels Túliníusar, í gamla
kirkjugarðinum. f kvöld
verða skátafélög landsins með
kvöldvökur hvert á sínurn
vettvangi.
Jón L. vann Combie og Margeir
gerði jafntefli gegn Swanson.
Skotar og íslendingar skildu því
jafnir í karlaflokki, 2-2.
íslensku kvennasveitinni vegn-
aði betur og vann Finna með 2
vinningum gegn einum. Guðlaug
kom á óvart og sigraði Laitinen
eftir tvísýna skák. Sigurlaug tapaði
fyrir Pihlajamaki og Áslaug vann
Ristoja.
Júgóslavar eru nú efstir í karla-
flokki með 10 vinninga en í 2.-3.
sæti eru Sovétmenn og V-
Þjóðverjar með 9.5 vinninga og
biðskák.
í kvennaflokki eru Kínverjar
efstir með 7.5 vinning og biðskák
og í 2.-3. sæti eru Pólverjar og Ung-
verjar með 7 vinninga.