Þjóðviljinn - 02.11.1982, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 02.11.1982, Blaðsíða 12
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 2. nóvember 1982 ALÞVÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið á Neskaupsstað Skrifstofa félagsins er opin á mánudögum kl. 17.30 - 18.30. Bæjarráð kemur saman á miðvikudögum kl. 20.00 að Egilsbraut 11. Ráðið er opið öllum félögum. Umræðuhópar um skólamál hóf starf 26. október. Hópurinn kemur saman annan hvern þriðjudag kl. 20.30 að Egilsbraut 11 og er opinn öllu áhugafólki. Hafið samband í síma 7397. Félagsmálanámskeið hefst laugardaginn 6. nóvermber. Komið verður saman á föstudagskvöldum og laugardagsmorgnum í sjö skipti. Leiðbeinandi Gerður G. Óskarsdóttir. Námskeiðið er opið öilum félags- mönnum og stuðningsmönnum. Skráning í síma 7397. Félagsvistin hefst 11. nóvember kl. 21 í sjómannastofunni. Stjórnendur Þórður Þórðarson og Sigfinnur Karlsson. Félagsvistin er opin öllum. Félagsfundur um stjórnmálaviðhorfin og flokksráðsfundinn verður föstu- daginn 5. nóvember kl. 20.30. Hjörleifur Guttormsson mætir á fundinn. Stjórnin. Alþýðubandalagið í Kópavogi - Aðalfundur bæjarmálaráðs Aðalfundur bæjarmálaráðs Alþýðubandalagsins í Kópavogi verður hald- inn miðvikudaginn 3. nóvember kl. 20.30 í Þinghól. Á dagskrá eru venju- leg aðalfundarstörf og bæjarmál. - Stjórnin Greiðum félagsgjöldin Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur alla félagsmenn sem enn skulda gjaldfallin félagsgjöld að nota tækifærið nú um mánaðamótin og greiða gjöldin. Verum minnug þess að Alþýðubandalagið í Reykjavík fjármagnar starf sitt einungis með félagsgjöldum og framlögum félags- manna sinna. Stöndum því í skilum og eflum þannig starf félagsins í Reykjavík. - Stjórn ABR Aðalfundur Aðalfundur í Alþýðubandalagi Rangárþings verður haldinn þriðjudaginn 2. nóvember að Þrúðvangi 9 á Hellu og hefst kl. 21. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kosning fulltrúa í flokksráð og kjördæmisráð og önnur mál. Alþýðubandalagið í Reykjavík - Fundaröð um verkalýðsmál Verkalýðshreyfingin - fjöldahreyfing eða stofnun Annar fundurinn í fundaröð Alþýðubandalagsins í Reykjavík um verka- lýðsmál verður um ofanskráð efni fimmtudaginn 4. nóvember kl. 20:30 í Sóknarsalnum Freyjugötu 27. Frummælandi: Benedikt Davíðsson, for- maður Sambands byggingarmanna. Fundirnir eru opnir öllu áhugafólki um verkalýðsmál. Félagsmenn fjölmennið og takið með ykkur gesti. - Stjórn ABR Svavar Alþýðubandalagið í Reykjavík Fundaröð um verkalýðsmál Alþýðubandalagið í Reykjavík efnir til þriggja funda um verkalýðsmál á næstu vikum. Fundirnir verða haldnir í Sóknar- salnum Freyjugötu 27 og , eru þeir opnir öllu áhuga- fólki um verkalýðsmál. jp Eftirtaldir fundir verða ® haldnir: Asmundur Benedikt Verkalýðshreyfingin - fjöldahreyfing eða stofnun Fundur um ofanskráð efni verður haldinn fimmtudaginn 4. nóvember kl. 20:30 í Sóknarsalnum. Frummælandi: Benedikt Davíðsson, formaður Sambands byggingarmanna. Samskipti verkalýðshreyfingarinnar og Alþýðubandalagsins er yfirskrift síðasta fundarins sem haldinn verður þriðjudaginn 9. nóvemb- er kl. 20:30 í Sóknarsalnum. Frummælendur: Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins. Félagsmenn fjölmennið og takið með ykkur gesti. Alþýðubandalagið Vesturlandskjördæmi Aðalfundur kjördæmisráðs Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn í Hótel Borgarnesi sunnudag- inn 7. nóvember kl. 14. Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf. Blaðberar óskast Flókagata-Úthlíð Sörlaskjól DJÚDVIUINN Húsnæði í boði Stórt og fallegt herbergi til leigu, (gæti verið tvö samliggjandi). Sameiginleg afnot af eld- húsi og baði. Upplýsingar í síma 12740 eftir kl. 17. Róseml Þjóðviljans Það hefur aldrei hvarflað að mér að gera þá kröfu til Þjóðviljans að hann fari fram úr sjálfum sér. Ég veit að það er tæpast á hans valdi áð gera fleira en gott þykir og náðar nýtur hjá flokksrekendum og fylg- ismönnum þeirra. Mig óraði samt ekki fyrir að hann væri orðinn svo beygður og farlama að hann haltr aði því aðeins af stað að hann væri til þess neyddur af verka- lýðsforingja og borgarfulltrúa í einni og sömu persónunni. Mál saumastofu og kjötvinnslu Hag- kaupa hefur hins vegar kennt mér ýmislegt. Eftir frétt - Al af því máli í blaðinu í gær er ég reynslunni ríkari og nú bið ég forláts á tilætl- uftarsemi minni í garð blaðs og flokks í sjónarhorni mínu þann 15. okt. s.l.. Ef grannt er skoðað, þá er það næsta augljóst mál að það er hvorki á valdi flokks né blaðs að spyrna við fótum þegar appírötin leggjast á eitt um að byggja kjallara yfir verkafólkið. Það er líka næsta augljóst mál, að ég undirrituð kom í veg fyrir að Alþýðubandalagið gæti sinnt kjallaramáli Hagkaupa í borgarstjórn með því að tefja þar afgreiðslu þess, eða eins og haft var eftir Guðmundi Þ. Jónssyni í Þjóð- viljanum í gær: „...það var Ingi- björg Sólrún Gísladóttir sem óskaði eftir frestun á síðasta fundi borgarstjórnar, ... og þar með fékkst málið ekki rætt.“ Það breytir auðvitað engu að málið var til umræðu á einum skipulagsnefndarfundi og tveimur fundum í byggingarnefnd! Að sjálfsögðu þykir mér afar Kvenréttindafélag s \ Islands Félags- námskeið A næstunni efnir Kvenréttinda- félag íslands til námskeiðs fyrir byrjendur í ræðumennsku, fundar- sköpum og fundarstjórn. Leiðbeinandi verður Fríða Proppé. Námskeiðið er ekki eingöngu ætlað félagsfólki, en opið körlum og konum, sem áhuga hafa. Hins vegar hafa margir góðir einsta!. lingar komið til starfa í félaginu eftir þátttöku í slíkum námskeið- um, auk þess sem eldri félagsmenn hafa sótt þau af miklum áhuga. Er því vel við hæfi að hefja þróttmikið vetrarstarf með enn einu nám- skeiði. Dagskrá verður sem hér segir: Laugardaginn 6. nóv. kl. 14.00- 17.00. Miðvikudaginn 10. nov.. mánudaginn 15. nóv. og mánudag- inn 22. nóv. kl. 20.30 -23.00 alla dagana. Þátttaka í námskeiðinu tilkynn- ist í síma 14406 (Sigríður) og 76571 (Árndís). Hefndar- englamir 35 bókin í bókaflokknum um Morgan Kane er komin út og fjall- ar um Mormónaböðla sem hefndu óréttar gegn trúbræðum sínum. En þeir gengu of langt og Morgan Kane er kallaður til skjalanna. Athugasemd vegna kjallara- mála Hagkaupa leitt að hafa brugðið fæti fyrir flokkinn í þessu máli en það er þó huggun harmi gegn, að Þjóðviljinn skuli halda sinni stóísku ró þó trippin hlaupi. Ég játa fúslega, að þegar ég skrifaði greinina þá hélt ég eins og hver annar óviti, að ég gæti nuddað Þjóðviljanum til þess að afla sér frétta af málinu og flytja lesendum. En því skyldi Þjóðvilj-. inn gera það? Málið er ekkert frétt- næmt fyrr en það er afgreitt á fundi borgarstjórnar og hægt er að skýra lesendum frá vasklegri framgöngu og rökfestu borgarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins á fundinum. Svo er heldur ekki við neinn að sakast í þessu máli nema gamlar og vondar reglur sem mannlegur máttur getur ekki og hefur aldrei túlkað hvorki verkafólki né atvinnurekendum í hag. Þetta veit rótgróið og virðu- legt blað sem hefur séð flest og reynt allt og hleypur ekki eftir hvaða duttlungum sem er. Kannski það hafi kennt mér eitthvað um sjálft sig? Miðvikudaginn-27. október 1982 Ingibj. Sólrún Gísladóttir. Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi: RARIK-82048. 132 kV Suðurlína. Stálsmíði Opnunardagur: Mánudagur 15. nóvember 1982 kl. 14:00. Verkið felst í smíði zinkhúðaðra stálhluta ásamt flutningi á þeim til birgðastöðvar í Reykjavík. Verkið skiptist í verkhluta 1, 2 og 3. Verkkaupi leggur til smíðaefni í verkhluta 3 og að hluta til í verkhluta 1. Bjóða má í hvern verkhluta fyrir sig eða alla. Verkhlutum 1 og 2 skal Ijúka 1. júní 1983 en verkhluta 3 skal Ijúka 1. maí 1983. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykja- vík, fyrir opnunartíma, og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf- magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudeginum 1. nóv- ember 1982 og kosta kr. 200, hvert eintak. Reykjavík 28.10 1982 RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Dvalarheimili á Egilsstöðum Tilboð óskast í að steypa upp frá grunnplötu dvalar- og hjúkrunarheimili á Egilsstöðum. Ganga skal frá þaki og gluggum. Húsið er að mestu á 2 hæðum, alls um 1870 m2 að gólffleti. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 30. mars 1984. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík og á skrifstofu sjúkrahússins á Egilsstöðum gegn 1.500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins miðviku- daginn 17. nóy. 1982 kl. 1100. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Blikkiðjan Asgarði 7, Garðabæ Önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.