Þjóðviljinn - 02.11.1982, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 2. nóvember 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 19
RUV ©
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi 7.55 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Árna Böðvarssonar
frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Sólveig Óskarsdóttir talar.
8.30 Forystugr. dagb. (útdr.).
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: „Kysstu
stjörnurnar“ eftir Bjarne Reuter Ólafur
Haukur Símonarson byrjar lestur þýð-
ingar sinnar. Olga Guðrún Árnadóttir
syngur.
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Áður fyrr á árunum“ Ágústa
Björnsdóttir sér um þáttinn. Gils Guð-
mundsson les frásöguna „Haustferð
með Herthu".
11.00 íslenskir einsöngvarar og kórar
syngja
11.30 Gæðum ellina lífi Umsjón: Dögg
Pálsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Þriðjudagssyrpa - Páll Por-
stinsson og Þorgeir Ástvaldsson.
14.30 „Móðir mín í kví kví“ eftir Adrian
Johansen Benedikt Arnkelsson þýddi.
Helgi Elíasson les (10).
15.00 Miðdegistónleikar Heinz Holliger og
Concertgebouw-hljómsveitin í Amster-
dam leika Óbókonsert í C-dúr eftir Jos-
eph Haydn; Davið Zinman stj. / Arthur
Grumiaux og Enska kammersveitin
leika Fiðlukonsert í a-moll eftir Johann
Sebastian Bach; Raymond Leppard stj.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn-
ir
16.20 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen
kynnir óskalög barna.
17.00 „SPÚTNIK“. Sitthvað úr heimi vís-
indanna Dr. Þór Jakobsson sér um
þáttinn.
17.20 Sjóndeildarhringurinn Umsjónar-
maður: Ólafur Torfason (RÚVAK).
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
20.00 Frá tónleikum norrænna ungmenna
U.N.M. í Austurbæjarbíó 22. sept. s.l.
Breska söngkonan Jane Manning syng-
ur. Manuela Wiesler, Hafliði Hallgríms-
son og Þorkell Sigurbjörnsson leika á
flautu,selló ogpíanó. Umsjón: Hjálmar
H. Ragnarsson. -Kynnir: Kristín Björg
Þorsteinsdóttir.
21.15 Kórsöngur Hamrahlíðarkórinn
syngur íslensk og erlend lög. Þorgerður
Ingólfsdóttir stj.
21.45 Útvarpssagan: „Brúðarkirtillinn“
eftir Kristmann Guðmundsson Ragn-
heiður Sveinbjörnsdóttir les (12).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35
Stjórnleysi - Þáttur um stjórnmál fyrir
áhugamenn Umsjónarmenn: Barði
Valdimarsson og Haraldur Kristjánsson
23.15 Oní kjölinn Bókmenntaþáttur í um-
sjá Kristjáns Jóhanns Jónssonar og
Dagnýjar Kristjánsdóttur.
RUV
jOt;
Tf
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Könglarnir Stutt sænsk barnamynd.
Þýðandi Hallveig Thorlacíus. (Nordvis-
ion - Sænska sjónvarpið)
20.40 Þróunarbraut mannsins Fimmti
þáttur. Nýtt skeið í þessum þætti er fjall-
að um Neanderthalsmenn, sem uppi
voru á síðustu ísöld, og hlutverk þeirra í
þróunarkeðjunni. Þýðandi og þulur Jón
Ó. Edwald.
21.30 LíFið cr lotterí Nýrr flokkur. Fyrsti
þáttur. Sakamálaflokur í sex þáttum frá
sænska sjónvarpinu. Hérsegirfrá ævin-
týralegu gullráni, seinheppnum manni,
sem dettur í lukkupottinn, og Símons-
son, lögreglufulltrúa, sem falin er lausn
málsins. Þýðandi Hallveig Thorlacíus.
22.20 Á hraðbergi Viðræðu- og umræðu-
þáttur. Stjórnendur þáttarins, Halldór
Halldórsson og Ingvi Hrafn Jónsson
ásamt Hauki Helgasyni, aðstoðarrit-
stjóra, leggja spurningar fyrir dr. J
hannes Nordal, seðlabankastjóra.
Útvarp
kl. 10.30
Haust
ferð
með
Hertu
„Áður fyrr á árunum" nefn-
ist þáttur, sem er á dagskrá
Útvarpsins kl. 10.30 í dag. Er
hann í umsjá Ágústu Björns-
dóttur.
Efni þáttarins að þessu
sinni er upplestur Gils
Guðmundssonar, rithöfundar
á frásögninni „Haustferð með
Hertu“. Er frásögn þessi upp-
haflega skráð af Valtý Stefán-
ánssyni, ritstjóra og birtist í
Lesbók Morgunblaðsins en
seinna í einni viðtalsbók
Valtýs.
Sögumaðurinn er Gunnar
Einarsson, sem var sonur þess
þjóðkunna manns, Einars
Ásmundssonar í Nesi en son-
ur Gunnars var aftur á móti
Jóhannes Gunnarsson sem
um árabil var biskup ka-
Gils Guðmundsson
þólskra manna á íslandi.
Gunnar fór kornungur til Fra-
kklands um svipað leyti og
Jón Sveinsson, (Nonni), á
vegum frakkneskra manna,
sem kunnugir voru Einari í
Nesi.
Gunnar dvaldi ekki lengi í
Frakklandi en var urn skeið í
þjónustu Gránufélagsins og
var Herta eitt af skipum þess.
Einn af kunnustu skipstjórum
Gránufélagsins var kallaður
Gránu-Petersen. Hann var þó
ekki skipstjóri á Hertu í þess-
ari sögulegu haustferð heldur
sonur hans, sem nefndur var
Hertu-Petersen, þekktur fyrir
dugnað og úrræðasemi.
Að þessu sinni var ferð
Hertu heitið frá íslandi til
Kaupmannahafnar, st'ðari
hluta október, og flutti hún
sláturfjárafurðir. En skonn-
ortan hreppti hið versta veður
og náði, eftir mikið volk og
hrakninga landi norðan við
Björgvin í Noregi.
- mhg
Útvarp kl. 17.20
Sjóndeildar-
hringurinn
Akureyringar eru á ferð í
Útvarpinu kl. 17.20 í dag. Þá
flytur Ólafur Torfason þátt,
scm hann nefnir „Sjóndeildar-
hringurinn“, og verður hann á
dagskrá útvarpsins alla
þriðjudaga í vetur.
Ólafur Torfason sagði að
sjóndeildarhringurinn væri að
þessu sinni bundinn við slát-
urtíðina. Rætt verður um slát-
urdýr, sér í lagi sauðkindina
og hvenær og með hvaða hætti
menn hafi byrjað á því að ala
hana til slátrunar. Eru leiddar
fram skoðanir bæði forn-
leifafræðinga og mann-
fræðinga á þeim málum. Ein
af mögum getgátum um þetta
er sú að upphafið sé að rekja
til þess að menn fóru að hafa
einn og einn heimalning og þá
hafi augum mannskepnunnar
Ólafur Torfason
smátt og smátt opnast fyrir því
hversu þýðingarmikið það var
til þess að auðvelda fæðuöfl-
unina, að gera sér sauðkind-
ina undirgefna.
Síðan víkur Ólafur að jurta-
fæðunni og ber m.a. saman
kostnað við framleiðslu þess-
ara matvælategunda.
Tónlist kemur svo að sjálf-
sögðu við sögu í þættinum.
-mhg
Utvarp kl. 17.00
Sitthvað
úr heimi
vísindanna
Dr. Þór Jakbosson, veðurf-
ræðingur hefur nú byrjað að
llytja i Útvarpinu þátt, sem
fjallar um „sitthvað úr heimi
vísindanna“. Verður hann
fyrst um sinn a.m.k. á þriðju-
Sjónvarp
kl. 21.30
Lífið er
lotterí
Nýr sakamálamynda-
flokkur hefur göngu sína í
Sjónvarpinu kl. 21.30 í kvöld.
Hefur okkur áskotnast hann
frá sænska sjónvarpinu og
Hallveig Thorlacíus snarað á
íslensku.
Mikið gengur víst á í þess-
um fyrsta þætti og mun svo
sjálfsagt verða framvegis, en
þættirnir eru sex að tölu.
Framið er gullrán rrieð næsta
ævintýralegum hætti, sagt er
frá einhverjum „seinhep-
pnum“ náunga, sem er þó
ekki lánlausari en það að hann
Þau eru misjafnlega vel búin að klæðum undir veturinn,
þessi skötuhjú.
lendir í einhverjum lukkup-
otti, (kannski fann hann gull-
ið?), og svo kemur við sögu
Símonsson karlinn lögreglu-
fulltrúi, sem falið er það verk-
efni að góma gullþjófana,
reyna það að minnsta kosti.
-mhg
Þór Jakobsson
döguni kl. 17.00 Dr. Þór hefur
kosið að nefna þátt sinn í dag
„Spútnik“ og er svo gert í ti-
lcfni af 25 ára afmæli
gcimrannsóknanna.
Annars er efni þáttarins að
þessu sinni ekki himin-
geimurinn heldur starfsemi
náttúruverndarmanna, eink-
um á Vestfjörðum. Dr. Þór
sat nýlega aðalfund Vestfir-
skra náttúruverndarsamtaka
en þar var umræðueínið öðru
fremur fjaran, sjórinn og sjá-
varnytjar.
Á fundinum átti dr. Þór tal
við Láru Oddsdóttur, forrn-
ann Samtaka náttúruverndar-
manna á Vestfjörðum og
fræddist af henni um starfsemi
og áform samtakanna þar.
Bera þar nú hæst fyrirætlanir
um tvennt: að koina upp
náttúruminjasafni og fjöru-
vernd. Frá þessu skýrir dr.
Þór í þætti sínum „og sé ég
ekki betur en hvorttveggja
þetta tengist vísindum", sagði
hann. - mhg
Þakklæti
til Steinunnar
Kona í Breiðholtinu hringdi:
Mig langar til að minnast
hér með örfáum orðum á tvö
atriði.
Hið fyrra er, að taka undir
það þakklæti, sem Steinunn
Jónannesdóttir, leikkona hef-
ur fengið fyrir grein sína: „Að
fortíð skal hyggja í
Breiðholti", sem birtist í
Þjóðviljanum nú um næst-
liðna helgi. Sú grein var svo
sannarlega orð í tíma töluð,
þó að við finnum það kannski
best, sem í Breiðholtinu bú-
um. Það verður ekki betur
séð, en að til þess hafi verið
ætlast af þeim, sem skipu-
lögðu byggðina sumstaðar
hér, að þar byggi bara barn-
:iaust fólk. Ef börn hætta sér út
iTir hússins dyr þá er gatan
eini „leikvöllurinn". Þetta er
hvorttveggja í senn:
ófyrirgefanlegt slys og argasta
heyksli. Hversvegna er ekki
hægt að hafa sama skipulag á
þessu í Breiðholtinu og er t.d.
í Árbæjarhverfinu?
Hitt atriðið, sem ég vildi
minnast á, snertir húsnæðis-
stjórnarlánin. Því í ósköpun-
um er aðeins ein skrifstofa á
öllu landinu, sem annast þessi
mál fyrir alla, hvar sem þeir
búa? Fólk veit oft á tíðum
ekkert hvað þvf ber að borga
hverju sinni né hvenær og það
er ekki alltaf auðvelt fyrir alla
að fá um þetta í tæka tíð upp-
lýsingar frá Reykjavík. Og ef
greiðsla dregst, - ja, þá er það
fógetinn.
mSá