Þjóðviljinn - 02.11.1982, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 2. nóvember 1982
Mogens
Ellegaard
á íslandi
Hinn kunni danski harmon-
ikkuleikari Mogens Ellegaard
verður staddur hér á landi 3.-
9. nóvember. Er hann á leið til
Bandaríkjanna í konsertferð
mcð eiginkonu sinni Mörtu
Bene þar sem hann leikur ein-
leik með sinfóníuhljóm-
sveitinni í Toledo. Mogens Ell-
egaard er dósent við Kgl.
danska Mussikkonservatori-
um í Kaupmannahöfn.
Ellegaard og frú halda hér
tvenna tónleika í Norræna
húsinu; hina fyrri 5. nóv. kl.
20.30, og verða leikin m.a.
verk eftir Pcr Nörgárd, Tor-
björn Lundquist, Arne Nord-
heim og Ole Schmidt. En á
scinni tónleikunum sem verða
sunnudaginn 7. nóv. kl. 20.30,
leikur hann verk eftir P. Ross-
ini, Rimsky-Korsakow, einnig
búlgarska þjóðlagatónlist og
margt fleira, samhliða því sem
hann fjallar um sögu harmon-
íkunnar. Eru þau hér á vegum
Tónskóla Emils. - Aðgöngum-
iðar verða seldir í Norræna
húsinu.
Herstöðva-
andstœðingar
Styðjum
PLO
Herstöðvarandstæðingar
hafa lýst yfir stuðningi við
baráttu Palestínumanna og lí-
banskra samherja þeirra gegn
hamslausri árásar- og útþen-
slustefnu stjórnvalda ísraels-
ríkis og fordæmir afskipti
Bandaríkjamanna af málum
þeirra.
Þau afskipti fólust m.a. í því
aö skilja almenning í V-Beirút
eftir varnarlausan sem byssuf-
óður fyrir hægrisinnaða of-
beldismenn. f lok ályktunar
Samtaka herstöðvaandstæð-
inga segir:
„SHA skora á íslensk
stjórnvöld að veita frelsissam-
tökum Palestínumanna,
PLO, pólitíska viðurkenningu
og stuðning. Samtökin árétta
þá stefnu sína að styðja
smáþjóðir og alþýðu víða um
heim, sem eiga í hatrammri
baráttu fyrir lífi og freisi.“_V-
Flugleiða-
menn efstir
Skáksveit Flugleiða er ■ ef-
sta sæti á alþjóðaskákmóti
flugfélaga sem haldið er í
Tampa í Fiórida þessa
dagana.
Að afloknum 6 umferðum
af 8 er sveit Flugleiða í efsta
sæti með 1972 vinning. f öðru
til þriðja sæti eru sveitir Varig
flugfélagsins í Brasilíu og Pak-
istan Air með 17 vinninga.
f fyrstu umferð sigraði sveit
Flugleiða sveit Air Lilu 4-0.
Þá sveit KLM 4-0 og eins sveit
Lufthansa 4-0. Flugleiða-
menn töpuðu fyrir sveit Varig
L/2 -272 og gerði jafntefli við
Air Pakistan 2-2. f sjöttu um-
ferð sigraði síðan sveit Flug-
leiða sveit British Airways 4-
0. -lg.•
REPUBLÍCA DE CUBA
MCNÍ5TE8IO DB DEPENSA NACIONAL
TARJETA N?
EXP. DAC. N»
N««b«:4iiiiani
NaturAÍ dc dLDJL
Cotfs SlAnMð
T«lJa
P*chð
’oUcf* Nacíonal
IdenliíÍ
165 MILLONES PARA RETIROS Y
PEHSIOBES Y 85 PARfi VlVllNÐftS
TODOSALA PLAZA CIVICA EL2ÐEENER0
Armando Valladares
sem hinir 17 voru handteknir á sín-
um tíma. Hann man eftir hand-
tökunni, en ekki eftir Valladares.
Hann segir hins vegar að þessir
menn hafi allir átt það sameiginlegt
að vera fyrrverandi félagar í lög-
reglu Batista.
Greinarhöfundur grefur síðan
upp dómsskjöl, þar sem forsendum
dómsins yfir Valladares er lýst. Þar
er Valladares m.a. gefið að sök að
hafa sprengiefni undir höndum,
sprengjur og hríðskotabyssur, og
hafa meðhöndlað vopn ólöglega,
að skjóta skjólshúsi yfir liðhlaupa
og fyrir að hafa verið í sambandi
við bandarísku leyniþjónustuna.
Dómurinn er fyrir glæp gegn ríkinu
og andbyltingarsinnaða starfsemi.
Greinarhöfundur fór einnig á
sjúkrahús þar, sem Valladares var
til meðferðar. Hann neitaði hins
vegar að gefa greinarhöfundi við-
tal, en skáldið leit vel út, að sögn
þrátt fyrir sjúkdóm sinn, og bar það
ekki með sér að vera orðinn 42 ára.
Blaðamaðurinn fékk hins vegar að
vita, að Valladares hefði hlotið
umfangsmikla læknismeðferð fær-
ustu sérfræðinga eftir hungurverk-
fallið, en lömunin stafaði einmitt af
næringarskorti, sem hungurverk-
fallið hafði valdið.
Áróðursherferð?
Kúbönsk stjórnvöld líta á
Valladares-málið sem tilbúna ár-
óðursherferð. Þau hafa einnig sent
frá sér gögn um málið. Þar á meðal
myndir af skírteini Valladares frá
Batista-lögreglunni, ljósmynd af
frétt blaðsins Revolucion um hand-
töku hans, ljósmyndir af fórnarl-
ömbum sprengjutilræðanna og
plagg er sýnir að sérstakir meðmæl-
endur skáldsins í Batista-lögregl-
unni hafi verið alræmdir blóðhund-
ar úr liði harðstjórans.
Við birtum hér ljósmyndir af
lögregluskírteini skáldsins og fors-
íðu blaðsins Revolucion frá 30 des-
ember 1960, þar sem birtar eru
m.a. myndir af vopnabúri hinna
handteknu, og getur svo hver og
einn gert upp hug sinn, um hver sé
sannleikurinn í þessu undarlega
mali. - ólg.
„Ég hef varla séð nokkuð jafn
áhrifamikið. I 22 ár hafði hann set-
ið í fangelsi vegna hugsana sinna.
Svo var honum skyndilega flogið
yfir Atlantshafíð. Og nú stóð hann
þarna, skáldið Armando Valladar-
es, fyrir framan blossandi
Ijósmyndavélar í Orly flugvellinum
fyrir sunnan París...“
Þannig hefur fréttaritari Dagens
Nyheter frásögn sína af komu kú-
banans Armando Valladares til
Parísar, en mál hans hefur verið
mjög ábarandi í fjölmiðlum að
undanförnu og hafa frásagnir oft
verið æði þverstæðukenndar
Hver er Armando Valla-
dares?
„Þessi 45 ára gamli rithöfundur
var í eina tíð leiðtogi kúbanskra
stúdenta og hjálpaði byltingarfor-
ingjanum Fidel Castro að komast
til valda 1959“, segir DV í nafn-
lausri grein 25. okt. sl. og tilgreinir
ekki heimildir.
„Vissi ekki fyrir hvað hann var
fangelsaður“ segir Morgunblaðið í
fyrirsögn á forsíðu sama dag en get-
ur þess þó örlítið neðar í fréttinni
að Valladares hafi „verið dæmdur í
30 ára fangelsisvist 1961, án þess að
hafa verið ákærður fyrir nokkurn
Hugsjónafangi eða
hryðjuverkamaður?
ákveðnari glæp en skemmdarstarf-
semi“.
„Sagan um Valladares er saga
um sterka kristna trú og djúpan
kærleika úr fjarlægð á milli tveggja
mannvera“, segir Olaf Dahlberg,
fréttaritari Dagens Nyheter, sem
hitti skáldið í íbúð leikrita-
höfundarins Arrabals í París.
„Ég er enginn hryðjuverkam-
aður og ég hef aldrei verið í lög-
reglu Batista, eins og haldið hefur
verið fram. Þegar ég var handtek-
inn í desember 1960 voru engar
sannanir gegn mér, engin vopn,
engin sperngjuefni ekki einu sinni
áróðurgegn stjórninni. Égvar yfir-
heyrður tvisvar í 15 mímútur, það
var allt og sumt, og síðan var ég
dæmdur í 30 ára fangelsi..." hefur
fréttaritari DN eftir Valladares og
heldur sfðan áfram: Valladares
vann fyrir ríkisstjórnina, bæði fyrir
og eftir byltingu. Á síðasta valdaári
Batista hafði hann það verkefni hjá
hinni borgaralegu lögreglu að
kanna reiknings- og skriftar-
kunnáttu þeirra er sóttu um vinnu.
Þetta var sú forsenda sem Valla-
dares segir að notuð hafi verið,
þegar hann var ákærður fyrir að
hafa verið í Batista-lögreglunni.
Valladares hefur lítið viljað
segja af hinni löngu fangelisdvöl
sinni eftir að hann varð frjáls og
frábeðið sér athygli fjölmiðla. Þó
hefur komið fram, að hann hafi
þjáðst af lömun á meðan á fanga-
vistinni stóð. Hann segist enn
fremur vera hættur ritstörfum.
Hver hefur
svelt hvern?
„Var sveltur, er hann hafnaði
pólitískri endurhæfingu,“ stendur í
fyrirsögn í Morgunblaðinu 26. okt.
Hefur blaðið það eftir Le Monde
Lögregluskírteini skáldsins, gefíð út af
varnarmálaráðuneyti harðstjórans Batista,
sem sýnir að hann hafi verið meðlimur í
hcrlögreglunni einu og hálfu ári fyrir
byltinguna á Kúbu.
„Ég lifði fanga vistina af fyrir heita trú mína
og hreina samvisku“, sagði kúbanska
Ijóðskáldið Armando Valladares við
komuna til Parísar.
Frétt í blaðinu „Revolucion“ 30.
des. 1960, þar sem sagt er frá hand-
töku Valladares og sprengiefnum
þeim sem hann og félagar hans
höfðu í fórum sínum.
að honum og öðrum föngum hafi
verið neitað um mat nema af mjög
skornum skammti í 66 daga þannig
að hann lamaðist af næringar-
skorti.
Olof Dahlberg segir í DN: „Á
miðjum 7. áratugnum gaf Valla-
dares út ljóðabók með titlinum
„Úr hjólastólnum". Þar segir hann
frá því að hann hafi neitað að taka
þátt í hugmyndafræðilegri um-
skólun en þess í stað hafið 46 daga
langt hungurverkfall, sem hafði
síðan þær afleiðingar að hann lam-
aðist á báðum fótum."
í viðtalinu í DN lýsir hann síðan í
stuttu máli og almennum orðum
hinu ömurlega lífi sem fangavistin
hafi verið og segir að lokum að
hann hafi heyrt, að á Kúbu séu um
330 manns sem setið hafi inni jafn
lengi og hann.
Hryðjuverkamaður?
Okkur hér á Þjóðviljanum hafa
borist enn fleiri heimildir um Ar-
mando Valladares. Meðal þeirra er
grein úr spánska tímaritinu „Int-
erviu" frá janúar 1981 eftir José A.
Pages. Blaðið sendi greinar-
höfundinn til Kúbu til þess að
kanna málið, og hann komst þar að
því, að Valladares hefði hvorki
verið ákærður fyrir hugsanir sínar
né fyrir það að hafa verið í lögreglu
Batista, heldur hefði hann ásamt
með 17 öðrum verið dæmdur fyrir
að vera félagi í hryðjuverkahóp,
sem þegið hefði sprengiefni frá
CIA, sprengt sprengjur á almanna-
færi og orðið vegfarendum, konum
og börnum að bana. Höfundurinn
vitnar í samtímafrásögn af málinu í
blaðinu „Revolucion" frá 30. des.
1960, þar sem hinir 17 eru nafn-
greindir, þar á meðal Valladares,
og sagt „að þeir hafi hlýtt fyrirmæl-
um frá bandaríska sendiráðinu í
höfuðborginni (því var ekki lokað
fyrr en síðar - innskot ólg.) og sam-
kvæmt þeim hafi þeir á glæpsam-
legan og tillitslausan hátt komið
fyrir sprengjum við verslanir, þar
sem aðallega konur og börn komu
saman. Þau skilríki, stríðstól og sá
sprengjubúnaður, sem fannst í fó-
rum hinna handteknu sýna tengsl
þeirra við yankie-heimsvalda-
stefnuna, að agentar hennar veittu
þeim beina aðstoð við framkvæmd
hryðj u verkanna... “
Glæpir gegn ríkinu
Greinarhöfndur gróf upp
lögreglumann, á eftirlaunum sem
var lögreglustjóri í hverfinu þar