Þjóðviljinn - 11.11.1982, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 11. nóvember 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 7
Leikfélag Selfoss:
Dagbók Ónnu Frank
eftir Frances Goodrich
og
Albert Hackett
Sveinn Víkingur íslenskaði
Leikstjóri og leikmynd:
Stefán Baldursson
Sagan af dagbók Önnu Frank er
öllum kunn: hún fannst eftir stríð í
felustað í Amsterdam þar sem fjöl-
skylda Otto Franks, fjórar mann-
eskjur, og fjórir Gyðingar aðrir
höfðu falið sig í tvö ár fyrir nasist-
um og skósveinum þeirra. Dag-
bókin hefur farið víðar en flestar
bækur aðrar sem til hafa orðið á
seinni tímum og ber þar margt til:
þessi bók er skrifuð við hinar
óvenjulegustu aðstæður, sem
tengdar eru herfilegustu tíðindum
sem yfir nokkra þjóð hafa dunið.
Og dagbókin er um leið heillandi
mannlegt skjal um lífsþrá og við-
leitni til að halda mennskri reisn
einnig þegar varla glittir á ljóstýru í
feiknarlegur myrkri. Leikritið sem
gert var eftir skáldsögunni hefur og
víða farið, enda er það mjög vel
gert, dregur skýrt fram sérkenni
hvers einstaklings sem kemur við
sögu í hinu litla samfélagi felu-
staðarins og þó best persónu Önnu
sjálfrar og hinn sérstæða sigur
hennar yfir ömurleikanum.
Leikfélag Selfoss kom með sýn-
ingu sína á þessu verki í Kópavog á
mánudagskvöldið og er sú heim-
sókn mjög þakkarverð. í stuttu
máli sagt: þetta er mjög vönduð
áhugamannalist og reyndar ótvírætt1
afrek. Stefán Baldursson hefur
stjórnað sýningunni og nær mjög
Halldór Páll og Guðrún Kristmannsdóttir í hlutverkum Péturs og
Önnu.
góðum árangri, verða ekki neinir
teljandi bláþræðir á henni, hún
gengur vel og rösklega í öllum
þrengslunum á sviðinu (sem eru
reyndar meiri en var í felustaðnum,
raunverulega). Og þótt leikararnir!
séu vissulega misjafnlega vanir óg
öruggir kemur ekki upp neinn J
vandaræðaskapur, hvér og einn
leikari nær að skila sínum „persón-
ukjarna“ með fullnægjandi hætti
og einatt meira en það.
Pétur Pétursson og Kristín
Steinþórsdóttir eru vinsamlegir
hollenskir vinir og áhyggjufullir
bjargvættir Gyðinganna. (Mætti
hér vera smá innskot um þýðing-
una - mig minnir að Otto Frank
segi ekki í spaugi við vin sinn Kral-
er, að „við Hollendingar eigum í
bölvuðum vandræðum með
Gyðingana okkar“ eða e-ð á þá
leið heldur segi hann í orðastað
Kralers: Enginn skal segja okkur
Hollendingum hvað við eigum að
gera við Gyðingana okkar). Gunn-
ar Kristjánsson er hinn sérgóði
Van Daan og Björg Mýrdal kom
vel til skila konu hans, sem seint
gleymir því að hún var dekurbarn í
fínu húsi. Rúnar Lund er Dussel
tannlæknir, óþolinmóður og ótta-
sleginn og hefur villst alllangt frá
húsi feðra sinna. Sigríður Karls-
dóttir er frú Frank, gædd mikilli
þolinmæði sem þó getur brostið og
Þuríður Helgadóttir er Margrét
dóttir hennar, hlédræg og jákvæð.
Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson er
Otto Frank og kemst vel frá því að
lýsa góðmenni - sem er líklega erf-
iðara verk á leiksviði en margur
heldur. Halldór Páll Halldórsson
%
leikhús
fer með hlutverk Péturs, sem ekki
getur þolað stelpukrakkann fram-
hleypna, Önnu Frank, en verður svo
hennar fyrsta ást: hann kunni vel
að fara með klaufaskap og feimni
þessa drengs sem lengst af hefur
verið hornreka í hverju boði.
En Guðrún Kristmannsdóttir
heitir sú kornung leikkona sem fer
með veigamesta hlutverkið og er
þar skemmst frá að segja, að hún
vinnur í túlkun sinni á Önnu Frank
hinn besta sigur. Af ágætri smekk-
vísi og innlifun sýndi hún ótta
hennar og kæti, óþreyju hennar og
hjálpfýsi, dapurleika og von um
betra líf, betri heim. Það ætti kann-
ski vel við að spá Guðrúnu frægð
og frama á leiksviði - en á hitt er að
líta, að það er útbreidd og gyðing-
leg hjátrú, að það beri að fara var-
lega í fagnaðarspádómum: betra
að hver hugsi sitt, og berji í tré
þrisvar til að ill lukka spilli ekki
óskunum.
ÁB
Uffl sannleiksást
móralska sigra
Herra ritstjóri.
í forsíðufregn Þjóðviljans s.l.
þriðjudag, af flokksþingi Alþýðu-
flokksins s.l. helgi, undir fyrirsögn-
inni: „hægri öflin undir hjá kröt-
um: Jón Baldvin galt afhroð“, ei
mjög hallað réttu máli. I trausti
þess að blaðið vilji heldur hafa það
sem sannara reynist, bið ég blaðið
að birta eftirfarandi leiðréttingu:
1) Fullyrt er að margar tillögur
sem undirritaður studdi hafi verið
felldar.
Ég flutti tvær tillögur á flokks-
þingi: Sú fyrri var breytingartillaga
við ályktun um utannríkismál. Sú
breytingartillaga tók af tvímæli
um, að Alþýðuflokkurinn teldi ör-
yggi íslensku þjóðarinnar bezt
borgið með áframhaldandi aðild að
varnarsamtökum lýðræðisríkj-
anna. Þessi tillaga var samþykkt
með yfirgnæfandi meiri hluta at-
kvæða. Ef ég man rétt voru 4 atkv.
á móti.
Eftir
Jón Baldvin
Hannibalsson
2) Hin tillagan sem ég flutti var
um það, að hugmyndafræðipistli
um markaðshyggju, áætlunarbú-
skap, blandað hagkerfi og velferð-
arríki, yrði vísað til flokksstjórnar
og 7-manna stefnuskrárnefndar.
Þar með var engin afstaða tekin til
stílsins sem slíks; - einungis vísað
til þeirrar staðreyndar, að ritsmíð
þessi fékk enga umræðu í starfs-
nefnd þingsins né á þinginu sjálfu. í
henni var hins vegar að finna ýmis
álitamál um efni og orðfæri. Alla-
vega taldi ég sjálfsagt að virða rit-
gerðina efnislegrar umræðu. Til-
laga mín þess efnis var einnig sam-
þykkt með drjúgum meiri hluta.
Aðrar tillögur flutti ég ekki á
flokksþinginu.
Breytingartillaga við stjórnmál-
aályktun um stuðning við jöfnun
atkvæðisréttar án fjölgunar þing-
manna var flutt af Gunnlaugi Stef-
ánssyni frá Hafnarfirði, en ekki
mér. Hún fékk ekki efnislega af-
greiðslu á þinginu, þar sem hún
var, skv. samþykktum þing-
sköpum, of seint fram borin. Þar
sem röskun þingskapa hefði fært
allt þinghaldið úr skorðum, greiddi
ég atkvæði gegn því, að tillagan
fengist sett á dagskrá. Sú hand-
vömm, að tillagan var of seint fram
borin, olli því að hún fékk ekki efn-
islega afgreiðslu.
Það er rökstudd sannfæring mín,
að yfirgnæfandi meiri hluti þing-
fulltrúa og Alþýðuflokksmanna, er
tillögunni fylgjandi.
Það eina sem er rétt í frásögn
Þjóðviljans er sú staðreynd, að
undirritaður bauð sig fram og náði
ekki . kjöri í framkvæmdastjórn.
Hins vegar gæti það stafað af ó-
kunnugleika, að blaðið dregur
rangar ályktanir af þessu. Skv.
hefð er kosning í framkvæmda-
stjorn því sem næst fyrirfram á'-
kveöirrjeitast er við að ná víðtækri
samstöðu um að tryggja formanni
Alþýðuflokkskvenna, formanni
ungra jafnaðarmanna, fulltrúa
sveitarstjórnarmanna, annarra
fulltrúa kvenna o.s.frv. kjör í fram-
kvæmdastjórn. Auk þess er það
hefð að þingmenn sitji ekki í fram-
Söluturni í Nýjum miðbæ
úthlutað án auglýsingar
í gær úthlutaði meirihluti borg-
arráðs leyfi til byggingar söluturns
í Nýja miðbænum í Kringlumýri.
Slíkt væri ekki í frásögur færandi,
nema vegna þess að hér er um mjög
stórt og væntanlega mikilvægt
viðskiptasvæði að ræða, og borg-
arráð felldi tillögu Sigurjóns Pét-
urssonar um að auglýsa hnossið.
Sá heppni sem fyrir nokkrum
vikum sótti um leyfið heitir Magn-
ús Jensson og er byggingameistari.
Hann er fulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í skipulagsnefnd, en nefndin
fjallar þessar vikúrnar um endur-
skoðun á skipulagi Nýja miðbæjar-
ins.
-ÁI
og
kvæmdastjórn aðrir en þeir sem
eru sjálfkjörnir (formaður, vara-
formaður og ritari). En þegar við
bættist að forystumenn ýmissa
kjördæma höfðu bundist sam-
tökum á laun um að koma í veg
fyrir að Reykjavík hefði eðlilega
hlutdeild í flokksstjórn, ákvað ég
framboð mitt sem „mórölsk mót-
mæli“.
Á baksíðu Þjóðviljans er sú
staðreynd að Vilmundur Gylfason
náði ekki kjöri til varaformanns
túlkuð sem „móralskur sigur“.
Sama niðurstaðan er því túlkaður
sem „móralskur sigur" í einu tilvik-
inu, en „afhroð“ einhverra hægri-
afla (sem ég reyndar kannast ekki
við) í hinu. Það er í samræmi við
málflutning Þjóðviljans að undan-
förnu, en það fer ekki milli mála að
blaðið hefur gerst sérstakt málgagn
Vilmundar Gylfasonar vegna próf-
kjörs Alþýðuflokksmanna í
Reykjavík. Það er Þjóðviljanum
auðvitað guðvelkomið og væntan-
lega einnig „móralskur sigur“ fyrir
skjólstæðing blaðsins. En hver svo
sem er vild eða óvild Þjóðviljans
gagnvart frambjóðendum annars
flokks, verður að gera þá kröfu til
blaðsins, að það fari rétt með
staðreyndir.
Virðingarfyllst,
Jón Baldvin
Fundur um
friðarmál
Kvennaframboðið í Reykjavík
heldur fund um friðarmál í kvöld,
11. nóv., kl. 20.30 á Hótel Vík. Þar
verða sýnd sjónvarpsviðtöl sem
Berit As og Eva Nordland áttu við
læknishjónin Helen og Bill Caldic-
ott. Rætt er um afleiðingar kjarn-
orkuhernaðar, ábyrgð vísinda-
manna og friðarhreyfingar í Evr-
ópu og Bandaríkjunum.
Dúfurnar fá
Bræðrapart
Dúfur, nánar tilgreint bréfdúfur,
hafa nú fengið heimild borgarráðs
til þess að leggja undir sig húsið
Bræðrapart við Engjaveg í Laugar-
dal. Húsið skemmdist mjög í eldi
fyrir skömmu og ágirntist Slökkvi-
lið Reykjavíkur rústirnar til þess að
æfa þar frekara slökkvistarf. _ ÁI
Þrír fá áskrift
Dregíð hefur verið úr nöfnum þeirra sem tók'u þátt í lesenda-
könnun Þjóðviljans. Á annað hundrað manns sendu inn svör í
skoðanakönnuninni og kann blaðið þeim þakkir fyrir. Ókeypis
áskrift að Þjóðviljanum fá eftirtaldir lesendur:
Georgía M. Kristmundsdóttir, Heiðarbrún 63, Hveragerði.
Þórunn Eiríksdóttir, Kaðalstöðum, Mýrasýslu.
Ole Lindquist, Tjarnarlundi 18h, Akureyri.
- ekh