Þjóðviljinn - 11.11.1982, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 11. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
f rá lesendum
RUV ©
Útvarp kl. 20.55
„Vegir
liggja til
allra átta”
„Vegir liggja til allra átta“ í
Útvarpinu kl. 20.55 í kvöld.
Svo nefnist þáttur um Skipti-
nemasamtökin á íslandi,
A.F.S., sem nú hafa starfað í
aldarfjórðung. Umsjónar-
maður þáttarins er Harpa J.
Amín.
f þessum þætti sínum mun
Harpa fyrst ræða við fram-
kvæmdastjóra samtakanna,
Sólveigu Karvelsdóttur.Því-
næst við tvo skiptinema sem
nýlega eru komnir heim, þau
Aslaugu Rósu Magnúsdóttur,
sem dvaldi í Brasilíu og Jón
Ólafsson, sem var í Sviss. Þá
spjallar hún við þá Heimi
Sindrason og Markús Örn
Antonsson, sem dvöldu er-
lendis sem skiptinemar fyrir
um það bil 20 árum. Loks
verða svo teknir tali tveir full-
trúar Skiptinemasamtakanna
úti á landsbyggðinni, Guðný
Gunnarsdóttir í Keflavík og
Hlöðver Magnússon á Sel-
fossi. Inn á milli orðræðna
verður fléttað viðeigandi tón-
list. Nú eru 40 íslenskir skipt-
inemar úti, víðsvegar um ver-
öldina.
Skiptinemasamtökin eru
hreint ekkert smásmíði, munu
nú vera orðin einhver fjöl-
mennestu samtök í heimi. Um
þýðingu þeirra þarf ekki að
deila. _ mhg
Sjón-
varpið
og
börnin
Móðir skrifar:
Hverjar eru skyldur Sjón-
varpsins í sambandi við barna-
efni? Á sunnudagskvöldið var
kynnt í Sjónvarpinu efni
næstu viku. Og var þar m,a.
nýr teiknimyndaflokkur fyrir
börn, Snjókarlarnir. Gaman,
gaman, hugsaði ég með mér.
En þetta gaman hvarf úr
huga mér jafnskjótt og sýndur
var smábútur úr fyrsta þættin-
um. Ekki svo að skilja, að
teikningarnar hafi á nokkurn
hátt verið ljótar, þvert á móti;
þetta virtust vera hinar falleg-
ustu og ævintýralegustu
myndir. Nei, annað var það,
sem fór fyrir hjartað í mér, en
það var, að texti var á mynd-
inni en ekki tal. Texti á mynd
er ágætur fyrir okkur full-
orðna fólkið, nú og unglinga,
en börn innan við 10 ára aldur
eiga erfitt með að fylgja texta.
Hvað þá börn undir 6 ára
aldri. Pau eru einfaldlega ekki
læs.
Ég fyrir mína parta hélt að
teiknimyndir þær, sem sýndar
eru eftir fréttir Sjónvarpsins,
væru einmitt sérstaklega ætl-
aðar yngstu kynslóðinni þ.e-
.a.s. börnum 10 ára og yngri.
En þegar settur er texti en
ekki tal inná myndirnar geta
þau ekki fylgst með. Ég get
ekki ímyndað mér að kostn-
aður við að fá einn leikara til
að lesa inn á teiknimynda-
flokk sem þennan geti verið
óyfirstíganlegur fyrir Ríkisút-
varpið - Sjónvarp.
Ur því ég er byrjuð ætti ég
líklega að fara út í annað, sem
mér liggur á hjarta í sambandi
við barnaefni Sjónvarpsins,
en það er: hvernig stendur á
að Sjónvarpið tekur ekki upp
þau barnaleikrit, sem í gangi
hafa verið í borginni? Ég reyni
að sjá með sonum mínum
tveimur þau barnaleikrit, sem
á boðstólnum eru á stór-
Reykjavíkursvæðinu, og ekki
eru allir foreldrar jafn iðnir
við leikhúsferðir, en flestir
eiga jú sjónvarp. Hvað með
barnaleikrit eins og þau, sem
Alþýðuleikhúsið hefur sýnt?
Þau eru bæði skemmtileg og
uppbyggjandi. Og svo var
Leikfélag Reykjavíkur með
barnaleikrit, sem maður frétti
utan að sér að hefði verið stór-
gott; en því miður, það var
einungis sýnt í skólum á höf-
uðborgarsvæðinu.
Ég skora hér með á Sjón-
varpið að sinna börnum
meira, og ekki bara meira,
heldur að láta gæðin sitja í
fyrirrúmi. Barnatími Sjón-
varpsins á ekki að vera afþrey-
ingartími, heldur stund, þar
sem börnin njóta menningar.
Kannski það hefði átt að
sleppa einum af þessum
ómerkilegu þáttum um „fél-
agsheimilið“, þar sem gert er
grín að menningu -
menningarleysi lands-
byggðarinnar og eyða þeim
fjármunum í að byggja upp og
sýna góð leikrit menningar-
neytendum framtíðarinnar, -
börnunum.
Móðir
Stefán Júlíusson
les kafla úr
nýrri
skáldsögu
í kvöld kl, 21.45 les Stefán
Júlíusson, rithöfundur upp í
útvarpið kafla úr nýútkom-
inni skáldsögu sinni átök og
einstaklingar - skáldsaga úr
bænum.
Sagan gerist á seinni árum
kreppunnar og á stríðsárun-
um og í tímanum er hún fram-
hald af skáldsögu Stefáns,
Stríðandi öfl, sem út kom fyrir
tveimur árum, en er þó algjör-
lega sjálfstæð.
Átök og einstaklingar er í
rauninni saga þriggja fjöl-
skyldna og jafnframt saga
tveggja eða þriggja kynslóða,
sagði Stefán. Sögumaður rifj-
ar upp ýmsa atburði frá
kreppu- og styrjaldarárunum
en gefur samtímanum jafn-
framt gaum, rekur átök og
árekstra ýmiss konar, sem
Stefán Júlíusson
verða í bænum og tengjast
pólitískum atburðum og á-
[Standinu á þjóðmálasviðinu.
Burðarás sögunnar kvað Stef-
án þó vera lífshlaup aðalsög-
upersónanna og viðhorf
þeirra, ástir þeirra, gleði og
andstreymi. Sögusviðið er að
mestu bundið við eitt bæjarfé-
lag en þó teygir það einnig
arma sína til Reykjavíkur,
Kaupmannahafnar og jafnvel
vestur um haf.
- mhg
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur
Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Ragnheiður Finnsdóttir talar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Kysstu
stjörnurnar" eftir Bjarne Reuter Ólafur
Haukur Símonarson les þýðingu sína
(8). Olga Guðrún Árnadóttir syngur.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Verslun og viðskipti Umsjón: Ingvi
Hrafn Jónsson.
10.45 Ardegis í garðinum með Hafsteini
Hafliðasyni.
11.00 Við Pollinn Ingimar Eydal velur og
kynnir létta tónlist (RÚVAK-Bein
sending ).
11.40 Félagsmál og vinna Umsjón: Skúli
Thoroddsen.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Fimmtudagssyrpa - Ásta R.
Jóhannesdóttir.
14.30 Á bókamarkaðinum Andrés Björns-
son sér um lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
15.00 Miðdegistónleikar Friedrich Gulda
leikur Píanósónötu nr. 21 í C-dúr op. 53
eftir Ludwig van Beethoven/Hallé-
hljómsveitin leikur „Ljóðræna svítu“
op. 54 eftir Edward Grieg; Sir John Bar-
birolli stj.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn-
ir.
16.20 Útvarpssaga barnanna: „Leifur
heppni“ eftir Ármann Kr. Einarsson
Höfundur les (5).
16.40 Tónhornið Umsjón: Guðrún Birna
Hannesdóttir.
17.00 Bræðingur Umsjón: Jóhanna
Harðardóttir.
17.55 Snerting Þáttur um málefni blindra
og sjónskertra í umsjá Arnþórs og Gísla
Helgasona.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
20.00 Fimmtudagsstúdíóið - Útvarp unga
fólksins Stjórnandi: Helgi Már Barða-
son (RÚVAK).
Reykvíkingar eiga orðið mikið af fallegum
görðum, en miklu skiptir hvernig gróður
þeirra er búinn undir veturinn. Þá er gott að
leita ráða hjá fagmönnum. Því skyldu
garðeigendur hvar sem þeir annars eru bú-
settir, hlusta á orð Hafsteins Hafliðasonar í
Útvarpinu, en hann verður „Árdegis í
garðinum“ kl. 10.45 í dag.
- mhg
'20.30 Gestur í útvarpssal: Bodil Kvaran
syngur lög eftir Edward Grieg og Jean
Sibelius. Ólafur Vignir Albertsson
leikur á píanó.
20.55 „Vegir liggja til allra átta“ Þáttur um
A.F.S. samtökin á íslandi. Umsjónar-
maður: Harpa J. Amín.
21.55 „Átök og einstaklingar“ Stefán Júl-
íusson les kafla úr nýrri skáldsögu sínni.
22.35 Án ábyrgðar Umsjón: Valdís Ósk-
arsdóttir og Auður Haralds.
23.00 Kvöldstund Með Sveini Einarssyni.
Útvarp
kl. 21.55
„Atök
og
einstak-
lingar”