Þjóðviljinn - 27.11.1982, Side 13
Helgin 27.-28. nóvember 1982; ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA03
„Það var nær þrjátíu árum eftir
það, að Jón Franz var tekinn, að
bóndi einn úr Hálsasveit var að
silungsveiðum á Arnarvatnsheiði.
Hitti hann þá mann einn ríðandi á
brúnum hesti langt frá öllum
mannabyggðum. Maður þessi var
fáránlega búinn og óþrifalegur í
mesta máta. Hálssveitingurinn fór
að leita eftir því hver þessi maður
væri, en fékk bæði ógreið og afund-
in svör. Vill hann þá reyna að
mýkja skap mannsins með því að
gefa honum í nefið og dregur upp
bauk úr vasa sínum, en þá sló hinn í
hest sinn, og hafði Hálssveitingur-
inn ekki meira af honum.-----En
svo stóð bónda mikill stuggur af
þessum manni, að honum þótti
óvarlegt að fara aftur á þessar
slóðir án vopna. Bóndi þessi var
járnsmiður góður. Smíðaði hann
sér nú sverð breitt og biturlegt úr
góðu stáli, og var það ei minna en
alin fyrir egg. Þegar hann hafði ný-
lokið við smíði þessa, heimsóttu
foreldrar mínir hann og sýndi hann
þeim þetta merkilega vopn. Var
móður minni það minnisstætt, hve
sverð þetta var mikið og biturlegt."
Þessi atvik eru kveikjan að ljóði
Guðmundar Böðvarssonar, Sverð
Gísla Jakobssonar, sem prentað er
í bók hans Innan hringsins. Ég hef
fyrir satt að hér hafi verið um að
ræða Gísla bónda á Augastöðum í
Hálsasveit, Jakobsson, Snorra-
sonar prests á Húsafelli. Hann var
smiður góður og skytta og hraust-
menni mikið; lést 1885, áttræður
að aldri.
(Þjóðsögur Ölafs Davíðssonar;
Þyrnar Þorsteins Erlingssonar;
Gríma; Héraðssaga Borgarfjarðar;
Innan hringsins eftir Guðmund
Böðvarsson o.fl.)
Tryggvi Gunnarsson: „kann ekki
að halda á landsins fé“
Jón söðli
Víðar offramleiðsla
á búvörum en hér
Hátt hvín í tálknum sumra spek-
inga yfir offramleiðslu á búvörum
hérlendis og er kennt um rangri
landbúnaðarstefnu. Er þó naumast
hægt að tala um offramleiðslu á
annarri búvöru en kindakjöti. Svo
er aðgerðum bænda sjálfra fyrir að
þakka.
En víðar virðist „röng“ stefna
hafa ríkt í landbúnaðarmálum en á
íslandi. Samkvæmt norskum heim-
ildum nemur offramleiðsla á mjólk
þar á þessu ári um 90 milj. ltr. og
nálgast það heildarmjólkurfram-
leiðsluna hér á landi nú. Tala
mjólkurkúa í Noregi er um 400
þús. Að því er stefnt að fækka þeim
um 25 þús.
Offramleiðsla á nautakjöti er um
10 þús. tonn. Til þess að nálgast
jafnvægi, þótt ekki verði í fyrstu
umferð, hyggjast Norðmenn slátra
40 þús. ungkálfum.
Öfframleiðsla á kindakjöti er
áætluð 3000 tonn í ár. Norðmenn
stefna að fækkun sauðfjár svo sem
hér er gert. Búist er við að offram-
leiðsla á svínakjöti í ár verði um
4000 tonn og svarar það til 54 þús.
sláturgrísa. Og enn má nefna að
offramleiðsla á eggjum er um 22
milj. stykki.
Sú verðskerðing, sem bændur
verða að taka á sig af þessum sök-
um mun trúlega nema um 400 milj.
norskra króna. - mhg
Uppreisnar-
saga frá Perú
Ut er komin hjá Iðunni skáld-
sagan Hinn ósýnilegi eftir Perú-
manninn Manuel Scorza. Fyrir
tveimur árum gaf Iðunn út sögu
hans, Rancas — þorp á heljaþröm og
hin nýja saga er önnur bók í þeim
sagnaflokki en þó algerlega sjálf-
stæð að efni. Ingibjörg Haralds-
dóttir hefur þýtt báðar þessar
bækur úr spænsku.
Hinn ósýnilegi byggir á sönnum
atburðum, bændauppreisn árið
1962, en þeirri uppreisn var mætt af
óheyrilegri grimmd. „Bændurnir
réðust inn á endalausar víðáttur
stórbýlanna", segir höfundur í for-
mála, „og endurheimtu jarðir sín-
ar. Þar með var hafin sú mikla hetj-
usaga sem gerist í Andesfjöllum og
á eftir að binda enda á lénsskipu-
lagið á miðhálendi Perú“.
Þótt Hinn ósýnilegi byggi þannig
á raunverulegum atburðum, „er
hún ekki raunsæissaga í venjulegri
merkingu, heldur í ríkum mæli
gædd andrúmslofti ævintýra" segir
í kynningu.
lOáraábyrgð
Góögreiöslukjör
þrekhjól
fyrir þá sem
er annt um heilsuna
Kjörið til líkamsræktar heimavið. Stöðugt og sterkt - mjúkt og breitt sæti,
öryggishlífar á keðju og hjóli - stillanlegt stýri og sæti -
stiUanlegur fótstigsþungi - hraðamælir og snúnings-
teljari - tekur lítið pláss. Varahlutaþjónusta.
Verð kr. 2.401 og 2.759.
2&jnínutiir á dag...
KALKHOFF þrekhjól er ódýr
og góð lausn fyrir þá sem
annt er um heilsuna.
, / — — Reiðhjólaverslunin ^^
Serverslunimeira /iðf»if||n|fc
en hálfa öld / IrirlilJllfr '
/ Spítalastíg 8 vió Oóinstorg símar; 14661,26888
Vinsælasti smábíllinn í dag, Daihatsu Charade, er aðalvinningurinn í Happdrætti Þjóðviljans 1982.
Happdrætti Þjóðviljans 1982
Gerið skil!
Vinningar: Verðgildi kr.:
1. Bifreið Daihatsu Charade 128.000-
2. Húsgögn að eigin vali frá TM húsgögnum 25.000,-
3. Nordmende litasjónvarp frá Radíóbúðinni 25.000,-
4. Ferð að eigin vali frá Samvinnuferðum-Landsýn . 19.170,-
5. Ferð að eigin vali frá
Satnvinnuferðum-Landsýn........ 15.000,-
6. Ferð að eigin vali frá
Samvinnuferðum-Landsýn ......... 15.000,-
7. Ferð að eigin vali frá
Úrvali.......................... 15.000,-
8. Ferð að eigin vali frá
Úrvali.......................... 15.000,-
Verðmæti vinninga alls kr. 232.170.-
Upplýsingar í símum 17504 og 81333