Þjóðviljinn - 27.11.1982, Síða 15
Skáldsaga
eftir
Olgu
Guðrúnu
Hjá Máli og menningu er komin
út ný skáldsaga, Vegurinn heim,
eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur.
Þetta er önnur skáldsaga Olgu
Guðrúnar, en hún hefur áður sent
frá sér unglingasöguna Búrið sem
kom út árið 1977 og varð mjög vin-
sæl og umdeild.
Um bókina segir á kápu:
„Niðurstaða skilnaðarbarnsins
er bitur: Þið fáið að ákveða sjálf,
núna viljið þið þetta og núna viljið
þið hitt, þið getið gifst og skilið og
gert allt sem ykkur sýnist, og svo
bitnar það á mér. Ég bara lendi
einhvers staðar og enginn spyr
mig“.
Vegurinn heim eftir Olgu
Guðrúnu Árnadóttur er átaka-
mikil skáldsaga sem kemur öllum
við.. í miðpunkti sögunnar er ell-
efú ára gömul telpa sem berst fyrir
því að fá að ráða lífi sínu sjálf.
Þeir segja að húsbyggingar séu
aðaltómstundagaman Islend-
inga. Ekki mitt. Hins vegar þurfti
ég að kaupa bíl um daginn og hef
komist að raun um að bílakaup
og bílahjal er eitt vinsælasta um-
ræðuefnið. Sjálfur er ég óttalegur
auli í slíkum viðræðum, svo sem í
húskaupa- og byggingatali.
Sennilega hefði ég betur átt
heima á einhverri annarri öld eða
í öðru þjóðfélagi. Eða þá sem
einhver önnur skepna. Það hefði
líklega verið affarasælast.
En ég þurfti sem sagt að kaupa
bíl af því að gamli bíllinn er upp-
urinn. Hann er haugamatur.
Ryðgaður, brotinn, beyglaður,
bilaður og farinn á taugum. Samt
ætlar maður að kaupa hann af
mér.
Verst var að ég átti enga pen-
inga en hollvinir mínir margir
sögðu að ég þyrfti hreint enga
peninga til að kaupa bfl. Þeir
væru svo margir í sölu og svo ill-
seljanlegir að hægt væri að fá
ágæta bíla fyrir nánast slikk. Það
var og. Ég hringdi í einn vininn,
sem ég vissi að var kræfur í svona
málum, og bað hann að útvega
mér góðan bíl fyrir helst enga út-
borgun &g afganginn eftir efnum,
ástæðum og hentúgleikum.
Minnsta mál í heimi, sagði hann.
Svo hringdi hann út í bæ og
sagði að ég gæti fengið glæsi-
legan, framhjóladrifinn, lítið
keyrðan, skoðaðan og nýyfirfar-
Helgin 27.-28. nóvember 1982 ÞJÓDVIEHNN — SIÐA 15
! Minnsta mál í heimi
i
inn bíl á vildarkjörum. Það var
ogi Mér fannst nú verðið nokkuð
hátt - þrátt fyrir allt - en það er
líklega af því að ég á enga pen-
inga og er ekki nógu kræfur í
svona málum.
Svo fór ég að spyrjast fyrir um
svona bíl hjá hinum og þessum og
allir ljómuðu á svipinn og voru
óðfúsir að fræða mig á kostum og
löstum þessarar tegundar. „Hann
hefur orð á sér fyrir að vera
sparneytinn“, sagði einn. „Um-
boðið er slæmt og þess vegna er
hann ekki góður í endursölu",
sagði annar. „Þeir ryðga fljótt en
úr því að hann er ekki keyrður
nema 40 þúsund, þá....“, sagði sá
þriðji. Þetta er alltaf happ-
drætti“, sagði sá fjórði. „Uss,
ekki líst mér á þá“, sagði sá fimm-
ti. „Hefurðu athugað kramið?“
spurði sá sjötti. „Ef hann er ný-
sprautaður, þá er eitthvað grun-
samlegt“, sagði sá sjöundi.
Svona létu þeir dæluna ganga.
Mér var eiginlega hætt að lítast í
blikuna. í vikutíma skaust ég inn
á bílasölur og las auglýsingar í
blöðum. Ég gekk um með spek-
ingssvip, barði í bíla hér og hvar
og leit undir þá og spurði og
spurði. Og það var svo sannar-
lega margt að athuga. Sjálfum
leist mér best á bíla sem voru með
útvarp. Eitt sinn var ég kominn á
fremsta hlunn með að kaupa einn
en þegar ég mætti daginn eftir var
búið að selja hann öðrum.
Þá skyndilega missti ég þolin-
mæðina. „Skítt með það“, hugs-
aði ég með mér og skellti mér á
það sem var hendi næst. Það var
bíllinn sem fyrst bauðst, þessi
glæsilegi, framhjóladrifni. Ekk-
ert mál með peningana. Eða
þannig.
Guðjón.
sunnudasskrossgátan
Nr. 349
/ Z 3 8 (p V 8 iT (y; 8 <5 )D 7T 5?
)2 )t // 5? )8 )8 1 S" u? <2 )V )Ö s
l(p isr n- // 20 )1 2) 22 10 23 28 52 22
'V V 22 W~ n liT 26~ 2*2 2% /iT W t> 18 23
z<* 2? w (s> 10 fí 8 )8 V Z!o 22 2/ /9 )2 28
22 2J 2S II 22 /? 23 sr W Z) 11 )8 2Ý r-ST V
25 28 % % '8 lT~ 22 23 28 28 23 3'
' 52 3o 23 )8 /8 I/ 52 / 28 1/ )í? )& 20
/ 21 10 Z3 V )sr 23 28 Up )) /SJ Zl TT
) 1 r Z3 18 28 /9 28 /9 52 1/ 2Ý / II )tr d
/? 20 28 S? Zl /s" 23 V 5 )8 1 29 )8
29 28 y 3/ 23 28 q? // )*) W y ) )8 Zo
b" 23 10 // 52 11 28 52 it 2o 28 IC 23 S2 Z(s>
V 122 /5 22 n 30 15 22 23 22
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á fjalli
sem flestir þekkja. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 349“.
Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem iesið er lá- eða lóðrétt..'
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp,
því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
AÁBDÐEÉFGHlfJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Verðlaunin
Verðlaun fyrir krossgátu nr.
345 hlaut Guðrún Björnsdótt-
ir, HUðargötu 2, Neskaup-
stað. Þau eru Birgir og
Asdís eftir Eðvarð Ingólfsson.
Lausnarorðið var Benónýja.
Verðlaunin að þessu sinni er
bókin Fílaspor eftir Ham-
mond Innes.