Þjóðviljinn - 30.11.1982, Page 1

Þjóðviljinn - 30.11.1982, Page 1
UOÐVIUINN Leikdómur Sigurðar A. um Dagleiðina löngu inn í nótt varð tilefni svargreinar frá Þjóðleikhússtjóra. I dag svarar Sigurður Sveini. Sjá 6 nóvember 1982 þriðjudagur 47. árgangur 268. tölublað Hafrannsóknastof n - unin krefst opin- berrar rannsóknar: Sitjum ekki þessum ásökunum segir Jón Jónsson forstöðumaður stofnunarinnar Það er aiveg ljóst að við sitjum ekki undir þessum ásökunum þegj- andi og því munum við krefjast op- inberrar rannsóknar á ásökunum þessa stýrimanns um þegjandi sam- komulag okkar og sjómanna í smá- fiskadrápi. Hér um slíka fjar- stæðu að ræða, að engu tali tekur, sagði Jón Jónsson, forstöðumaður Hafrannsóknastofnunar, vegna ummæla eins viðmælenda hljóðvarpsins á dögunum, stýri- manns af togara, um þegjandi sam- komulag eftirlitsmanna Hafrann- sóknastofnunarinnar og sjómanna um að amast ekki við smáfiska- drápi. Við erum orðnir vanir skömmum úr ýmsum áttum og ekki vanir að kippa okkur upp við þær, en undir þessu sitjum við ekki þegj- andi. Best væri auðvitað að maður- inn tæki orð sín aftur og bæðist af- sökunar, en geri hann það ekki verður að fara fram opinber rann- sókn, sagði Jón. Hann bætti þvf við að eftirlitsmenn með veiðunum væru mjög illir vegna þessara um- mæla, sem fyrst og fremst bitna á þeim. Jón sagðist gera sér grein fyrir því að viðmiðunarmörkin sem Hafrannsóknastofnunin setur séu ströng og að það væri alveg nóg að fá skammir frá hagsmunaaðilum fyrir þessi mörk, þótt ekki sé verið að ásaka starfsmenn stofnunarinn- ar fyrir að brjóta þau. - S.dór Eldborg GK, sem nú stundar kol- munnavciðar norðurafFær- eyjum hefur aflað mjög vel undan- farna daga Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ: Aðgerðlr ekki raunhæfar nú en áskiljum okkur allan rétt síðar „Verkalýðssamtökin hljóta alltaf að taka tillit til aðstæðna og það er því mat sambandsstjórnarinnar að á næstunni sé ekki raunhæft að ganga til aðgerða vegna bráða- birgðalaga ríkisstjórnarinnar,“ sagði Asmundur Stefánsson forseti Alþýðusambands íslands í gær- kvöldi eftir að sambandsstjórn ASÍ hafði afgreitt ályktun sína um kjar- amál. í ályktun sambandsstjórnarinn- ar segir að með bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar í ágúst hafi enn einu sinni veriðjhlutast um gerða kjarasamninga. Átelur sambands- stjómarfundurinn þetta og segir af skipti stjórnvalda at veröbóta- greiðslum sýna að mjög skorti á að efnahagsstefnan sé mótuð til langs tíma. I stað þess að huga að upp- byggingu trausts efnahagslífs sé grafið undan frjálsum samnings- rétti verkalýðshreyfingarinnar og gripið til kaupskerðingar. Síðar segir: „Sambandsstjórnin telur að við núverandi aðstæður sé ekki raunhæft að efna til andófs vegna bráðabirgðalaganna, en í- trekar þá afstöðu miðstjómar að verkalýðshreyfingin hlýtur að hafa fyllsta fyrirvara og áskilja sér allan rétt.“ „í þessari ályktun sem var sam- þykkt samhljóða í sambandsstjórn- inni er það áréttað að sífelld laga- setning af hálfu stjórnvalda er sam- tökunum hættuleg og stefnir hinum frjálsa samningsrétti verkalýðs- samtakanna í tvísýnu," sagði Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ að lokum. - v. Þegar talin höfðu verið 2500 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík af rúmlega 8000: Geir Hallgrímsson i baráttusætið? var í 7. sæti með 1443 atkvæði Laust fyrir klukkan tvö í nótt, þegar talin höfðu verið 2.500 at- kvæði af rúmlega 8.000 sem kusu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, var formaður flokks- ins, Geir Hallgrímsson í 7. sæti með aðeins 1.443 atkvæði á bak við sig. Hann var því í neðsta sæti núver- andi þingmanna flokksins og verði þessar meginniðurstöður próf- kjörsins, gæti hann komið til með að skipa baráttusæti flokksins í Reykjavík. Engar opinberar tölur fengust í nótt frá Valhöll þar sem talning fór fram en Þjóðviljinn aflaði þeirra eftir öðrum leiðum. 2.500 atkvæði höfðu verið talin laust fyrir kl. 2 og þá var röð manna þessi: 1. Friðrik Sófusson 1788 atkvæði, 2. Albert Guðmundsson 1785, 3. Birgir ísl. Gunnarsson 1782, 4. Ellert B. Schram 1648, 5. Ragnhildur Helg- adóttir 1601, 6. Pétur Sigurðsson 1474,7. Geir Hallgrímsson 1443,8. Geir Haarde 1302, 9. Jón Magnús- son 1266, 10. Guðmundur H. Garðarsson 1249, 11. Bessí Jó- hannsdóttir 942 og 12. Jónas Elíasson með 862 atkvæði. Aðrir frambjóðendur höfðu hlotið færri atkvæði. Þetta voru tölur sem Þjóðviljinn aflaði sér í nótt en þá var búið að telja 2.500 atkvæði af rúmlega 8.000 manns sem tóku þátt í próf- kjörinu nú. 1978 kusu 11.000 manns í prófkjöri flokksins í Reykjavík og 1979 kusu 9.800 í prófkjörinu. - v- Stjórn kjördæmisráðs Al- þýðubandalagsins é Vestfjörðum hefur ákveðið að fyrri umferð forvals vegna skipunar framboðslista í komandi alþingis- kosningum fari fram dagana 3.-9. des. n.k. Dansað í tilefni glæsilegs sigurs íslendinga í Norðurlandakeppni fatlaðra í trimmi. Sjá bls. 3 Hrakningar 17 ára pilts í Tindfjöllum: Missti af félögunum og fannst eftir margra tíma leit Ungur piltur, Stefán Smárason 17 ára að aldri, varð viðskila við félaga sína í Alpaklúbbnum í fyrri- nótt þar sem þeir voru á ferð í Tind- fjölium, og fannst ekki aftur fyrr en eftir margra klukkustunda leit, heill á húfl. Það var síðdegis í fyrradag sem Stefán varð viðskila við félaga sína og hófu þeir leit að honum strax og þess varð vart. Iðulaus stórhríð var á og einungis skyggni til örfárra metra. Einn leitarmanna Ólafur Guðmundsson sagði hafa verið blindhríð og auk þess svartamyrk- ur sem hefði gert leitina mjög erf- iða. Það var svo ekki fyrr en hjálp- arsveitir höfðu verið kvaddar til frá Hvolsvelli, Hellu og Selfossi að pilturinn fannst stutt frá skála í Tindfjöllum. Hafði hann gert það eina rétta, að koma sér ofan í svefnpoka og grafa sig í fönn, þegar hann varð þess áskynja að hann hefði orðið viðskila við hópinn. Stefán Smárason kom heim til sín í Mosfellssveit í gærkvöldi en ekki tókst að ná tali af honum eftir hrakfarirnar. - v. Láglaunabætur í desember: „Deilt er um reikn- uð laun” segir Þröstur Ólafsson „Það hefur ekki ennþá tekist að ná samkomulagi um hvernig standa eigi að útborgun þessara láglaunabóta, en við miðum við að skila tillögum okkar til ríkisstjórn- arinnar von bráðar, svo hægt sé að senda þessar greiðslur út til við- komandi fyrir jól, eins og gert er ráð fyrir í bráðabirgðalögunum frá í haust,“ sagði Þröstur Ólafsson aðstoðarmaður fjármálaráðherra í samtali í gær. Þröstur stýrir vinnuhóp, fulltrúa þingflokkanna og ASÍ sem á að skila tillögum til ríkisstjórnarinnar um fyrirkomulag láglaunabóta, vegna vísitöluskerðingarinnar 1. des. n.k. Gert er ráð fyrir 50 milljón króna launabótum í desember og hefur sú fjárhæð þegar verið tryggð með tekjuöflun ríkissjóðs. „Þetta er mikið vandaverk hvern- ig staðið verður að þessum greiðslum, og þá ekki síst hverjir eigi að fá þær. Ljóst er að greiðslurnar verða sendar í ávísun til viðkomandi fyrir jólin, en menn deila um hverjir eigi að fá þessar bætur og þá hversu miklar. Það er einkum spurningin um þá sem hafa reiknuð laun, þ.e. bændur ein- yrkjar, listamenn, sjálfstæða iðnaðarmenn og fleiri slíka hópa. Ég er hins vegar bjartsýnn á að okkur takist að ná samkomulagi um þessi atriði von bráðar," sagði Þröstur Ólafsson. - lg.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.