Þjóðviljinn - 30.11.1982, Page 3

Þjóðviljinn - 30.11.1982, Page 3
Þriðjudagur 30. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Fjárhagsvandi lánasjóðs námsmanna leystur í bráð „Allir fá úriausn” segir Sigurjón Valdimarsson framkvæmdastjóri LÍN „Þetta var alveg geysileg aukning á lánsumsóknum fyrir haustlánin, sem sló okkur alveg út af laginu. En það er búið að bjarga okkur í bili, en vandamál næsta árs eru enn óleyst,“ sagði Sigurjón Valdimars- son framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna í samtali við Þjóðviljann. Lánsumsóknum fyrir haustlán sem eru greidd út í desember, fjölgaði í ár um 35% frá því í fyrra, en árleg aukning kom mönnum mjög á óvart, að sögn Sigurjóns, og var Ijóst að á vantaði um 40 mill- jónir króna til að geta greitt út lán fram til áramóta. „Stjórn lánasjóðsins hefur fengið vilyrði fjármálaráðuneytisins fyrir lausn á þessu máli, en sú lausn er ekki alfullkomin. Við verðum að fresta ákveðnum greiðslum fram yfir áramót, og til þess að allir fái eitthvað nú í desember þá verðum við að skerða lítilsháttar víxillánin til 1 árs nema þar til strax eftir ára- mótin. Fyrstu 5000 krónur lánsins verða greiddar út óskertar, en síð- an geymum við útborgun á 50% þess sem umfram er þar til eftir áramótin. Það fá því allir einhverja úrlausn sinna mála,“ sagði Sigur- jón. -lg- Samtök grásleppu- hrognaframleiðenda klofna: Líka ekki viimubrögð og þess vegna stofnuðum við ný samtök, segir Aðalbjörn Sigurlaugsson á Ólafsfirði Rætt um tækniþróun og samfélag á ráðstefnu Lífs og lands um helgina Hann er engin smásmíði þessi vörulyftari sem lagt var fyrir utan Kjarvaisstaði um helgina. Þetta er enaa stærsti vörulyftari landsins og var nokkurs konar vörumerki ráðstefnu Lífs og lands, en þar var m.a. rætt um tækniþróun og samfélag. Ljósm. - eik. Á sunnudaginn var voru stofnuð ný samtök grásleppuhrognafram- Sambandsstjóm ASÍ um verðbótaskerðinguna: leiðenda norður á Húsavík. For- maður þessara nýju samtaka var kjörinn Aðalbjörn Sigurlaugsson á Ólafsfirði, og sagði hann í samtali við Þjóðviljann í gær að ástæðan fyrir stofnun þessara nýju samtaka væri óánægja með vinnubrögð þeirra sem farið hefðu með málefni landssamtakanna til þessa. Þessi atvinnugrein er ekki það stór í sniðum að hún þoli þá miklu yfirbyggingu sem er á samtökun- um, auk þess sem við erum afar óánægðir með vinnubrögð ráða- manna samtakanna, sagði Aðal- björn. Hann sagði að þeir sem að þess- um nýju samtökum stæðu væru á milli 30 og 40, en jafnframt sagðist hann viss um að miklu fleiri aðilar myndu ganga til liðs við þau á næst- unni, því óánægjan með gömlu samtökin væri almenn. Guðmundur Lýðsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka grásleppu- hrognaframleiðenda, sagði að þessi nýju samtök væru stofnuð af þeim mönnum Sem hefðu orðið í minni hluta innan samtakanna undir forystu tveggja hrognaút- flytjenda, Jóns Ármanns Héðins- sonar og Guðmundar Halldórs- sonar. Aðspurður um hvort þessi klofningur gengi af gömlu samtök- unum dauðum, sagðist hann vona að svo yrði ekki, en n.k. sunnudag yrði aðalfundur þeirra og þar myndu málin án efa skýrast. - S.dór / Askiljum okkur allan rétt Andóf ekki raunhæft við núverandi aðstæður Á fundi sambandsstjórnar A.S.Í. var í gær samþykkt einróma kjar- amálaályktun á þessa leið: Með bráðabirgðalögum sem sett voru í ágúst er enn einu sinni endurtekin íhlutun stjórnvalda í gerða kjarasamninga. Sambands- stjórnarfundur Alþýðusambands- ins telur, að ítrekuð afskipti stjórn- valda af verðbótagreiðslum á laun sýni, að mjög skortir á að efnahags- stefna sé mótuð til langs tíma. Þess í stað hneigjast stjórnvöld til skyndilausna þegar á bjátar í efna- hagslífi þjóðarinnar. í stað þess að huga að uppbyggingu trausts efna- hagslífs er grafið undan frjálsum samningsrétti verkalýsðs- hreyfingarinnar og gripið til kaupskerðingar. Þann 1. desember n.k. munu bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar leiða til þess, að verðbætur alls launafólks verða skertar um 7,71 prósentustig. Á þeim níu mánuð- um sem eftir standa samningstím- ans má vænta þess, að kaupmáttur verði um 4% lakari ef lögin fara fram en að óbreyttum verðbótaá- kvæðum. Þó tekið sé tillit til fyrir- hugaðrar orlofslengingar og lág- launabóta er áætlað að skerðingar- Norræna trimmkeppnin fyrir fatlaða: Islendingar unnu Nýverið voru tilkynnt úrslit í hinni norrænu trimmkeppni fyrir fatlaða, en hún fór fram á síðast- liðnu ári. Fyrirkomulag keppninn- ar var með nokkuð öðrum hætti en venja er til, þar sem þátttakendur kepptu hver í sinni grein í eigin landi, án þess að hópurinn kæmi saman. Það tók hvert land um einn mánuð að Ijúka þátttöku, og máttu þátttakendur velja sér keppnis- greinar, hlaupa, synda, hjóla, aka um í hjólastól eða fara í kaj- hakrróður. Þau skilyrði voru sett að hvert trimm stæði yfir í a.m.k. 30 mínútur. I tilefni þess að úrslit lágu fyrir, kom hingað til lands stjórnarmeð- limur í íþróttasambandi fatlaðra á Norðurlöndunum, Arve Mangset, og afhenti hann íslendingum sigur- launin við sérstaka athöfn sem fram fór í Fáksheimilinu síðastliðið föstudagskvöld. Lokaniðurstaðan varð þessi: 1. ísland 72296,64 stig 2. Noregur 69808,80 stig 3. Færeyjar 372842,75 stig 4. Finnland 36978,76 stig 5. Svíþjóð 22865,00 stig Það var Sigurður Magnússon formaður íþróttasambands fatl- aðra sem veitti verðlaunum við- töku fyrir hönd íslands. 1053 ein- staklingar hér á landi sem á einn eða annan hátt eru fatlaðir gerðu sitt til að sigur mætti nást. Iþróttafélag fatlaðra í Reykjavík og Sjálfsbjörg sáu um skemmtun- ina í Fáksheimilinu. - hól. áhrif laganna verði um 2 1/2% að meðaltali. Sambandsstjórnarfundur ASÍ tekur undir samþykkt miðstjórnar frá 22. ágúst, sem fundurinn telur rétt viðbrögð við afskiptum stjórn- valda. Sambandsstjórn telur, að við núverandi aðstæður sé ekki raunhæft að efna til andófs vegna bráðabirgðalaganna, en ítrekar þá afstöðu miðstjórnar, að verkalýðs- hreyfingin hlýtur að hafa á fyílsta fyrirvara og áskilja sér allan rétt. Þá hvetur sambandsstjórn verka- lýðsfélögin til að taka kjaramálin til rækilegrar umfjöllunar í ljósi undangenginnar þróunar og at- burða. Sambandsstjórnarfundur Al- þýðusambands íslands bendir á, að vegna minnkandi verðmætis sjávarafla hefur atvinna verkafólks dregist mjög saman að undan- förnu. Sérstök ástæða er því til þess að stjórnvöld hafi vakandi auga með atvinnuástandi. Fundurinn minnir á, að verkalýðshreyfingin telur það frumskyldu stjórnvalda að tryggja fulla atvinnu alls verka- fólks. Þessa skyldu rækja stjórn- völd best með því að stuðla að ný- sköpun arðbærrar atvinnustarf- semi. Heitir fundurinn á stjórn- völd, stjórnmálaflokka og samtök að þau ljái lið sitt framgangi atvinn- ustefnu, sem tryggt geti lífsstarf vaxandi fjölda fólks á vinnumark- aði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.