Þjóðviljinn - 30.11.1982, Page 15

Þjóðviljinn - 30.11.1982, Page 15
Þriðjudagur 30. nóvember 1982 ÞJÓDVILJINN — SiÐA 19 RUV © 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7. 55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Forustugr. dagbl. (útdr.). 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Komm- óðan hennar langömmu" eftir Birgit Bergkvist Helga Harðardóttir les þýð- ingu sína (6). 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 „Áður fyrr á árunum“ Ágústa Björnsdóttir sér um þáttinn. Efni þátt- arins er um og eftir Þorgils gjallanda. Lesari með umsjónarmanni: Þorleifur Hauksson. 11.00 Gæðum ellina lífi Umsjón: Dögg Pálsdóttir. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. Þriðjudagssyrpa - Páll Þorsteinsson og Þorgeir Ástvaldsson. 14.30 Á bókamarkaðinum Andrés Björns- son sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir. 15.00 Miðdegistónleikar Félagar íFílharm- oníusveit Berlínar leika Klarinettu- kvintett í A-dúr K. 581 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.20 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.00 „SPÚTNIK“. Sitthvað úr heimi vís- indanna Þór Jakobsson sér um þáttinn. 17.20 Sjóndeildarhringurinn Umsjónar- maður: Ólafur Torfason. (RÚVAK.) 18.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.45 Tilkynningar. Tónleikar. 20.00 Frá tónlistarhátíðinni í Björgvin s.l. sumar Flytjendur: Göran Söllscher, Elly Ameling, Rudolf Jansen, Aaron Rosand, Geir Henning Braathen og Stúlknakórinn í Sandefjord; Sverre Val- en stj. a. Gítarlög eftir Augustin Barrios og Alexander Tansmann. b. Ljóðalög eftir Franz Schubert. c. Fiðlulög éftir Mompou, Sarasate, Szymanovski, Pag- anini og Chopin. d. Norsk þjóðlög og kórlög eftir Zoltan Kodaly. 21.45 Útvarpssagan: „Norðan við stríð“ eftir Indriða G. Þorsteinsson Höfundur les (3). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöidsins. 22.35 Þriðji heimurinn: Landlaus þjóð Umsjón: Þorsteinn Helgason. 23.15 Oní kjölinn Bókmenntaþáttur í um- sjá Kristjáns Jóhanns Jónssonar. RUV ** 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Sögur úr Snæfjöllum Tékknesk barnamynd. Þýðandi Jón Gunnarsson. Sögumaður Þórhallur Sigurðsson. 20.45 í forsal vinda. Nýr flokkur Fyrsti þáttur. Eldur, ís og stormar Andesfjöll- in í Suður-Ameríku eru lengsti fjall- garður veraldar, um 6.500 km, og er land þar víða lítt kannað. Þessi mynda- flokkur frá BBC er í þrem þáttum og lýsir stórbrotnu landslagi og fjölskrúð- ugu dýralífi á þessum slóðum. Þýðandi Jón O. Edwald. 21.50 Lífið er iotterí Fjórði þáttur. Sænsk- ur sakamálaflokkur. { síðasta þætti fann John Hissing ráð til að koma gullinu í verð með útgáfu minnispeninga um fræga afbrotamenn. Hann býður birginn glæpakonungi Svíþjóðar, sem heimtar sinn skerf af ránsfengnum. Þýðandi Hallveig Thorlacius. 22.55 Á hraðbergi Viðræðuþáttur í umsjón Halldórs Halldórssonar og Ingva Hrafns Jónssonar. í þessum þætti verður m.a. rætt við Friðrik Ólafsson, fráfarandi for- seta FIDE, alþjóðaskáksambandsins. 23.50 Dagskráriok. Leiðsögumaðurinn í þættin um í forsai vinda, Michael Andrews. Sjónvarp kl. 20.45 í forsal vinda Nýr þáttur um Andesfjöllin í Suður-Ameríku Fyrsti flokkurinn af þremur um Andesfljöllin í Suður- Ameríku er á dagskrá sjón- varpsins í kvöld og hefst kl. 20.45. Ber þessi myndaflokk- ur yfirskriftina I forsal vinda. Það er breska sjónvarpsstöðin BBC sem hefur unnið þennan þátt. Eldur ís og stormar er heitið á fyrsta þættinum, sá næsti ber heitið Hafið, eyði- mörk og þunnt loft og sá þriðji Niður eftir Amazon-fljótinu. í fyrsta þættinum er viðkoma gerð á Cape Horn, einhverjum hrikalegasta fjallatindi sem sögur fara af. Myndir eru teknar frá hæstu tindum Acongua-fjallsins. Þaðan er fylgst með flugi kondórsins sem lætur loft- straumana bera sig hvert sem hann vill. Norðan Andesfjall- anna er staðnæmst við eldfjöll í Chile en þau munu vera um 2000 talsins og mörg þeirra enn virk. Fjöldi stöðuvatna er við rætur þessara fjalla og þar er fjölskrúðugt dýra- og fugla- líf. Trjágróður er marg- slunginn. Jón O. Edwald er þýðandi þessara þátta, en fyrsti þáttur- inn tekur um 25 mínútur í flutningi. Sjónvarp kl 22.55 Friðrik Ólafsson verður á hraðbergi Þáttur þeirra Halldórs Hall- dórssonar og Ingva Hrafns Jónssonar Á hraðbergi verður á dagskrá sjónvarpsins í kvöld og hefst kl. 22.55. Að þessu sinni mætir Friðrik Olafsson stórmeistari í skák í þáttinn og verða málefni FIDE alþjóða skáksambandsins til umfjöll- unar. Eins og kunnugt er þá tap- aði Friðrik með 43 atkvæðum gegn 65 í kjörinu á FIDE- þinginu í Luzern fyrr í þessum mánuði. Filippseyingurinn Florencio Campomanes komst í embættið sem Friðrik hafði gegnt í 4 ár. Friðrik Ólafsson stórmcistari og fráfarandi forseti FIDE verður í þættinum Á hrað- bergi í kvöld. Þeir félagar Halldór og Yngvi Hrafn munu spyrja Friðrik spjörunum úr um kosninguna sem fram fór 11. nóventber. Sögusagnir gengu um það að Campomanos hefði hreinlega keypt sig inní stöðuna og beitt ótrúlegustu brögðum til að ná sínu fram. frá lesendum Böðvar Guðmundsson skrifar Lágkúra og smekkleysa Jóns Baldvins »> „Um að koma óorði á vinstri stefnu" Að heita Filippía en kalla sig Hugrúnu Við sctnmgu 41 flokksþings Alþyðuflokksins hcr uppi i (íamla btói. fór Gunnar Eyjólfs- son mcð þessi flcygu orð: „það tr ekki ranglæti hinna »11- vifjuðu, tem er verst; það verUa cr þógn og afskiplalcysi húnna góðviljuðu." Þcss vcgna crtilþin leitað. Þaö Er nokkuð að I þjóðfélagi. þat scm crlcndar skuldir okkar nalg- ast óðfluga hclming arlcgrar þjóðarframlciðslu ogfyrr cn varir fcr annar hvcr fiskur. scm is- lcnskir sjómcnn draga á land. til grciðslu afborgana og vaxta til er- lcndra lánardrottna'* Er nokkuð að^þjóðfétagi. þar allahrcsti. þcgar staðicsndin c su. að s I þrju ar hata hscrt ui sig unnið til gullvcrðlaun.i siltui og hrons scm mcslu atlaar l> landssogunnar I ruið þið þvi. að þcll saman að kcnna þcuri hcimskrcppu. scmcnn hctui ckki numi.............. alll Til ritstjórnar Þjóðviljans. Það hendir stundum gamla stuðningsmenn og áskrifend- ur Þjóðviljans að þeir verða að byrgja augu sín í sorg og smán vegna lágkúru og smekkleysis sem stundum setja svip á blaðið. Og því verður heldur ekki móti mælt að ritstjórn Þjóðviljans er á- kaflega viðkvæm fyrir gagn- rýni. Ver þar stundum hver annan af sannri samtryggingu og fyrir kemur að þeir séu settir í ritbann sem ekki pípa eftir flokksnótunum og lofa málgagnið. Nú langar mig til að biðja um birtingu á litlu lesendabréfi og mig langar til' að biðja um að það verði birt óstytt og óbrjálað af sensúr. Föstudaginn 26. nóvember 1982 var á 5. síðu í Þjóðviljan- um grein eftir Jón Baldvin Hannibalsson. Greinin bar fyrirsögnina: „Að heita Fil- ippía og kalla sig Hugrúnu." Hér er ekki um lágkúru að ræða, ekki smekkleysu. Hér er siðleysi á ferðinni. Allt um það þó Jón Baldvin hafi talið sér sæma að vitna til ritdeilu Svavars Gestssonar og Óla komma, þar sem „Ólafi leiddist greinilega, að Alþýðu- bandalagið er alltaf að villa á sér heimildir. Hann líkti því við þá skáldkonu, sem kallar sig Hugrúnu, en heitir reyndar Filippía,“ - ekki þurfti Þjóðviljinn að fara eftir því. Ummæli Óla komma eru, - séu þau rétt höfð eftir, - svo full fordóma og heimsku að engu tali tekur. Það er langt fyrir neðan virðingu Jóns Baldvins Hannibalssonar að éta þau eftir. Enn auvirðilegra er af ábyrgri ritstjórn að hafa þau að feitletraðri fyrirsögn. Filippía Kristjánsdóttir hefur, - eins og aðrir rithöfundar, - fullan rétt á að taka sér það höfundarnafn sem hún velur. Og því þá að tengja það við róna og hrossaket? Hvers konar fordómar eru það? Ætli Þjóðviljinn hefði birt ummælin „að heita Magnús Kjartansson en kalla sig Austra“ - með svipaða skír- skotun? Hefði ritstjórn Þjóð- viljans talið það mannsæm- andi kurteisi? Eða telur ritstjórn Þjóðvilj- ans það kannski allt annað „að heita Magnús Kjartans- son og kalla sig Austra“ en „að heita Filippía og kalla sig Hugrúnu“? Ef svo er, - guð hjálpi þá málgagni sósíalisma, verka- lýðshreyfingar og þjóðfrelsis með siðlausa ritstjórn. Ef svo er ekki, - þá er það vel, og ég vænti þess að ritstjórn Þjóð- viljans biðji Filippíu Krist- jánsdóttur opinberlega afsök- unar á leiðinlegri yfirsjón. Böðvar Guðmundsson Athugasemd frá ritstjórn: Fyrirsögn umræddrar greinar er frá höfundi sj álfum, Jóni Baldvini Hannibalssyni, komin, og það er venja að höfundar aðsendra greina ráði fyrirsögnum sjálfir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.